Morgunblaðið - 22.02.1955, Síða 2
2
MORGVXBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. febr. 1955
Franih. af bís.J 1
samiiingurinn vseri stærji gfsji
tryggingarfélagið boðið betri
ikjör.
ERFITT HLUTSKIPTI
FRAMSÓKNARÞINGMANNS
Jörundur Brynjólfsson tók til
máls og virtist hlutskipti hans
ekkit gott. Var að sjálfsögðu erf-
itt fyrir hann að mæla í gegn
þeirri tillögu að sveitarfélögin
sjálf stjórnuðu sínu eigin trygg-
ingaffélagi, því að öllum ætti að
vera ljóst, að það er hagkvæmast
fyrir þau. En af einhverjum ann-
arlegum ástæðum virtist þó sem
Jörundur yrði að vera á móti.
Virtist hann alveg skorta sann-
færingarkraft.
Ræðumaður snerist af veikum
mætti gegn þeirri tillögu að
sveitarfélögin kjósi fulltrúaráð
Brunabótafélagsins, sem komi
saman á fund fjórða hvert ár til
að ráða stefnu Brunabótafélags-
ins og velja framkvæmdastjóra.
Þetta sagði Jörundur að væri al-
veg ómögulegt fyrirkomulag. Það
væri miklu viðaminna að lát.a
Alþingi kjósa framkvæmdastjórn
ina. En á hitt minntist hann ekki,
hve miklu öruggara og hagkvæm
ara það væri fyrir sveitarfélögin
að ráða sjálf tryggingarkjörun-
um. Hann sagði og að kostnaður-
inn við að kalla saman fulltrúa-
ráðið væri svo mikill að slíkt
væri ekki hægt.
RÖK FRAMSÓKNAR
LÉTTVÆG
Jónas G. Rafnar svaraði
Jörundi og benti honum á að
það væru tryggjendurnir
sjálfir, sem mestra hagsmuna
hefðu að gæta um að félaginu
væri vel stjórnað og einnig
að tryggingargjöldum væri
stillt í hóf. Þeirra hagsmuna
! væri bezt gætt með því að
þau sjálf réðu stefnunni og
veldu framkvæmdastjórnina.
Hvað kostnaðarhlið af fund-
iim fulltrúaráðsins viðvíkur benti
Jónas á það að ýmis félög halda
slíka fulltrúaráðsfundi. — Kom
hann með sem dæmi SÍS og ým-
is samtök útgerðarmanna og
bænda.
Björn Ólafsson benti á það að
Stéttarsamband bænda kæmi
saman á fund árlega. í því væru
47 fulltrúar. í fulltrúaráði Bruna-
bótáfélagsins yrðu 33 fulltrúar
sveitarfélaganna og kæmu þeir
saman aðeins fjórða hvert ár.
Svo að þessi rök Jörundar væru
mjög léttvæg. Enda er sjálfsagt
að þeir menn í sveitunum, sem
hafa sameiginlegra hagsmuna að
gæta, komi saman til að ræða
sameiginleg hagsmunamál.
Annað atriði, sem Jörundur
gagnrýndi var að sveitarfélag,
sem segði sig úr Brunabótafélag-
inu yrði að gera það með 6 mán-
aða fyrirvara. Þótti honum þessi
fyrirvari óhæfilega langur.
Jónas Rafnar hrakti þessar
dylgjur. Hann benti á það að
Brunabótafélagið hefði áður haft
einkarétt á brunatryggingum,
enda væri því lögskipað að taka
allar brunatryggingar í sveitum
að sér. Félagið er byggt upp með
þetta fyrir augum og er því ekki
nema eðlilegt að það fái nokkurt
ráðrúm til að taka við úrsögnum.
tílíkt myndi hafa ýmsar breyting-
í'.r í för með sér í reksri þess.
Svo mótsagnakenndur var
allur málflutningur Jörundar
Brynjólfssonar og sást þetta
bezt í lok ræðu hans, er hann
sagði: „Það er síður en svo
I að ég vilji á nokkurn hátt
skaða þennan félagsskap
I (Brunabótafélagið). Ég vil
honum allt gott!!“ Var furða
I þótt þingmenn brostu í kamp-
I inn og spyrðu: — Hvern vill
hann þá skaða með því að
leyfa ekki sveitarfélögunum
að ráða og stjórna sínu eigin
I gagnkvæma tryggingarfélagi?
Það er vissulega illt að
1 Framsóknarflokkurinn skuli
! yilja gera þetta að pólitísku
‘ máli, því að hér er um að
i ræða svo mikið sanngirnis og
I réttlætismál bæjar og sveitar-
{ félaganha. 1
Aim farið
iiigiéililÍJÍl
:roora .
— Hermann Field
s
VEGNA þess hve gæftasamt hef-
ur verið í ollum verstöðvum hér
við Faxaflóa, það sem af er ver-
tíð, er nú svo komið, að bátar
hafk almennt farið í 50 róðra.
Mun talinn venjulegur róðra-
fjöldi á vertíð alls um 70. Útgerð-
' armenn eru nú farnir að óttast
| beituskort.
' í vetur hafa verið keypt til
landsins frá Noregi um 300 tonn
af beitusíld og hefur hýn líkað
' mjög vel.
Þá hefur báturinn Haraldur,
1 eign Óskarr Halldórssonar h. f.,
! verið sendur á reknetjaveiðar á
vegum beitunefndar. Fyrir þrem
vikum var mikil síld á Selvogs-
banka, en í iögn þar fékk Harald
ur aðeins nokkrar síldar. Nú mun
báturinn láta reka austur við
! Dyrhólaey
Togarinn Haili@i
með góðan afla
SIGLUFIRÐI, 21. febr. — Togar-
inn Hafliði kom í morgun úr
fyrstu veiðiför sinni eftir við- ■
gerðina, sem skipið fékk í vetur !
í Þýzkalandi. Afli skipsins í þess-
ari för mun vera um 40 lestir af
saltfiski og 220 lestir af ísfiski,
þar af 60 lestir karfi. Allur ís-
fiskurinn verður unninn í frvsti-
húsinu hér.
Undanfanra daga hefur verið
ágætisveður hér, frost og heið-
ríkt og sjóveður allgóð. Reitings-
afli hefur verið hjá bátunum
— Guðjón.
GLÍMUFÉLAGIÐ ÁRMANN
( heldur sundnámskeið í Sundhöll |
I Reykjavíkur og hefst námskeiðið
j í kvöld. Námskeiðið er fyrir
i stúlkur og pilta frá 12 ára aldri,
( bæði fyrir byrjendur og þá sem
1 lengra eru komnir. Námskeiðs- '
æfingar eru á þriðjudögum og '
fimmtudögum frá kl. 7—7,45
Isíðd. fyrir yngri flokka (frá 12,
' ára) og á sömu dögum kl. 7,45— !
8,30 fyrir eldri. Sundkennari er (
Þuríður Árnadóttir sund- og
1 íþróttakennari, en auk þess munu j
beztu sundmenn Ármanns kenna
á námskeiðinu. Það skal tekið !
fram að námskeiðið er bæði fyr- j
ir Ármenninga og þá aðra sem
j hug hafa á að leggja stund á
sundiðkun.
Sunddeild félagsins hélt ný-
lega aðalfund sinn og er stjórnin
' sem hér segir: Stefán Jóhanns-
( son, form, Guðbrandur Guðjóns-
| son, ritari, Davíð Ólafsson gjald-
keri og Olafur Guðmundsson,
meðstjórnandi. Sunddeildin hefir
t starfað af miklu kappi undan-
farin ár og þjálfað undir stjórn
hins dugmikla þjálfara síns Þor-
steins Hjálmarssonar. — Hefur ,
; félagið átt marga af beztu sund-
: og sundknnttleiksmönnum lands
ins um margra ára bil.
Allar nánari upplýsingar er
að fá hjá kennurunum í Sund-
höllinni á áðurnefndum tímum.
(Frá Ármanni).
kljeidir oPsf þrW ía*
fötuin.
Þeir sögðu mér að tæma vasa
mína. Síðan fóru þeir með mig
út og óku mér til öryggismála-
ráðuneytisins. Þar var mér hald-
ið í um það bil tvær vikur og ég
spurður spjörunum úr.
Ég hélt fyrst að grunur hefði
fallið á mig vegna þess að ég
hefði verið að taka myndir. En
síðar hvarflaði það að mér, að
hvarf bróður míns kæmi hér við
sögu“.
Field skýrði frá því að hann
hefði aldrei verið beittur líkam-
legu ofbeldi í fangelsinu í Pól-
landi.
En þetta var andleg raun,
segir hann. Þeir reyndu að
yfirbuga mig andlega með
þrotlausum réttarhöldum. Á
meðan á yfirheyrslunum stóð
gat ég lítið sofið og stundum
var ég yfirheyrður í samfellt
sjö klukkustundir.
Allan fangelsistímann eða frá
því um miðjan september 1949
og þar til 25. okt. 1954, kom hann
varla út undir beran himinn. Öll
þessi ár sat hann innilokaður í
klefa, sem var 2 sinnum 2 metr-
ar, í kjallara í íbúðarhúsi, sem
breytt hafði verið í fangelsi. —
Hann skipti aldrei um föt þenna
tíma.
Nokkrum sinnum gerði Field
hungurverkfall og einu sinni
stóð ,,verkfallið“ í 27 daga, en þá
var látið að vilja hans og hann
látinn fá skrifblýant og pappír.
Blýanturinn og pappírinn urðu
honum til afþreyingar, hann
lauk við tvö handrit í fangelsinu,
annað þeirra er skáldsaga, en
hitt kallar hann „hugleiðingar
fangans um lífið“. Þetta síðara
handrit er gert í félagi við pólsk-
an — og pólitískan — samfanga,
sem látinn var laus um sama
leyti og Field. Field ráðgerir að
gefa út bæði handritin.
Field neitar því að hann sé
kommúnisti og segist aldrei hafa
verið það.
Um bróður sinn, Noel, sem
einnig var í fangelsi, en kaus að
vera kyrr í Ungverjalandi, eftir
að hann var látinn laus, sagði
Herman Field, að sér væri fátt
kunnugt. „Mér hefur aldrei verið
það ljóst, hvort Noel væri komm-
únisti. Ég hef ekki séð hann síðan
1947“.
Að lokum fékk hann ekki var-
ist gráti, er hann skýrði frá heim-
sókn ameríska sendiherrans í
fangelsið en hann færði honum
þær fréttir, að hann væri frjáls
maður. Og tárin streymdu niður
.kinnar hans, er hann skýrði frá
endurfundunum við konu sína og
börn, en hann var búinn að gefa
upp alla von um að sjá fjölskvldu
sína nokkru sinni framar. Hann
kvaðst að lokum „vera hamingju-
samur maður nú er hann væri
með fjölskyldu sinni“.
Leitarflokkur skátafélagsins Hraunbúa. — Fyrirliðinn, Guðjón
Sigurjónsson, er annar frá vinstri. — Ljósmyndastofa G. Ásgeirss.
Aðstoðar bæjarbúa
á ýmsasa háii
Skátofél. Hraunbúar Hafnarfirbi 30 ára
Hafnarf.i'.ði.
IDAG eru liðin 30 ár frá því er skátafélagið Hraunbúar húr í
bæ var stofnað, en það var 22. febrúar 1925. Stofnandinn var
Jón Oddgeir Jónsson, sem starfaði þá í Skátafélagi Reykjavíkur.
Á þeim árum, sem og æ síðan, var Jón mikill unnandi skátahreyf-
ingarinnar og gerði sér far um að sem flest æskufólk gerðist skútar,
svo að það mætti stunda hinar hollu útilegur skátanna og tileinka
sér einkunnarorð þeii-ra og breyta samkvæmt þeim. í HafnarTirði
stofnaði Jón skátafélagið Hraunbúa með nokkrum piltum, en ekki
leið á löngu þar til er félagatalan jókst og fór stöougt vax .ndi
næstu árin. Og aldrei fyrr hafa eins margir starfað í félaginu og nú.
MIKIÐ STARFAÐ
í allt hafa flokksforingjarnir
verið 9. Nú er Eiríkur Jóhannes-
son flokksforingi. Með honum í
stjórn eru Gísli Magnússon, Katr-
ín Káradóttir og Gunnar Bjarna-
son. — Skátarnir starfa hér af
miklum dugnaði og eru fundir
einu sinni í viku hjá hverjum
flokki, en starfandi eru 6 flokk-
ar drengja, 4 flokkar stúlkna og
2 fl. ylfinga. Aðrir fundir eru
eftir ástæðum.
AÐSTOÐA BÆJARBÚA
Á ÝMSAN HÁTT
Eins og bæjarbúar verða oft
varir við, koma skátarnir fram
við ýmis tækifæri, hvort heldur
þegar aðstoðar þeirra þarfnast á
ýmsum hátíðisdögum, svo sem 17.
júní o. fl. eða þegar t. d. Vetrar-
hjálpin þarf á þeim að halda til
þess að safna fé til hennar. Það
er og margt annað, sem skátarnir
láta gott af sér leiða, sem ekki
verður upp talið hér. Það er kunn
ara en frá þurfi að segja, að skát-
arnir aðstoða bæjarbúa við ýmiss
konar tækifæri, sem á þessum
tímamótum er vert að þakka.
•
LEITARFLOKK URINN
Enn er eitt ótalið, sem er
kannske veigamesti þátturinn í
— Frakkland
Framh. af bls. 1
stuðning síns eigin flokks. Þar á
Mendes France marga trausta
’ fylgismenn, en þeir eru sagðir
| vilja fá íhaldsmann til þess að
mynda næstu stjóm. Þá væri
kannske hægt að koma sökinni
| á núverandi örðugleikum á hægri
(menn og leiðin þar með gerð
greiðfærari fyrir Mendes France
til þess að mynda stjórn síðar.
Flokkur Bidaults hefur lýst
yfir, að hann muni greiða at-
kvæði með Faure.
Faure skýrir Coty forseta frá
því í nótt, hvort hann treystir
sér'til þess að mynda stjórn.
Gekk 3 km í næloiisokknm
í 17 stiffii frosfi
O
Hiaul kaisár og kuidabólgu á báóum fóðum
Hvammstanga, 21. febrúar.
FYRIR nokkrum dögum vildi það til í Bæjarhreppi að stúlka um
tvítugt, varð fyrir allverulegu kali á fótum, eftir að hún
var úti í 17 stiga frosti í nælonsokkum.
GEKK 3 KM
í NÆLONSOKKUM
Stúlkan þuffti að fara milli
bæja, sem mun vera um þrír km.
— Gekk hún þessa vegalengd í
þunnum nælonsokkum, en eins
og fyrr segir var 17 stiga frost.
HLJÓP UPP í BLÖÐRUR
Er hún kom inn úr frostinu,
voru báðir fætur orðnir mjög
bólgnir'ög hafði húft-hlbtið'kal-
sár og frostbólgu sem hljóp í
blöðrur eins og sokkarnir sögðu
til um á fótum hennar.
TALAÐ VIÐ LÆKNI
Var þegar brugðið við og
hringt til læknis og leitað ráða
hans, en ekki var unnt að ná
fundi hans sjálfs þennan dag. —
Hefur stúlkan legið síðan með
fæturna reifaðar, en er nú á bata-
vtgi'. —* Fréttaritarí.........
starfsemi Hraunbúa. En það er
leitarflokkurinn, sem er deildl
innan félagsins, og var stofnaður
fyrir nokkrum árum. Hefur þessi
flokkur þrásinnis tekið þátt ? leit
að týndu fólki. Er þessi floklc-
ur ávallt reiðubúinn þegar kallið
kemur, en það er ekki svc lítið
öryggi að hafa vísan flokk manna
sem leita má til þegar í nauðir
rekur. Fyrirliði leitarflokksins er
Guðjón Sigurjónsson, kennari,
sem er duglegur og áhuga:; mur
skáti. Hefur hann starfað í skáta-
félaginu um mörg ár, t .d. verið
flokksforingi.
NÆSTA SKREFIB —
NÝR SKÁLI
Skátaskála eiga Hraunbúar
skammt fyrir sunnan Þjóðkirkj-
una, sem er nú reyndar orðinn
alltof lítill fyrir félagsstarfsem-
ina. Er eitt aðaíáhugamál þeirra
að koma sét; upp nýju félags-
heimili, en til þess þarf mildð fé.
Ætti bæjarfélagið að styrkja
skátana við að koma upp nýjum
skála, sem fullnægði félagsstarfi
þeirra, sem vex með hveiju ár-
inu, sem líður, því að ávallt bæt-
ist við félagatöluna.
Þá hafa skátarnir byggt sér
skála við Kleifarvatn, sern þeir
nota af og til bæði að sumri til
og einnig á veturna. Er það frek-
ar rúmgóður skáli, sem stend.ur
á fögrum stað þar upp frá.
VORMÓTIÐ
Fastur liður í starfsemi Hraun-
búa er hið svokallaða vormót,
sem haldið er um hvítasunnuna
uppi í Helgadal, sem er skammt
frá Kaldárseli. Hafa skátar úr
nærliggjandi byggðum, svo sem
Keflavík og Kópavogi, sótt vor-
mótið og farið með Hraunbúum
í útilegu í Helgadal um hvíta-
sunnuna. Fara þar fram íþróttir,
göngur, og fleira er gert sér til
skemmtunar. — Hefur þátttaka
ávallt verið mikil.
AFMÆLISINS MINNZT
Skátafélagið Hraunbúar minn-
ist afmælisins með skemmtun í
Góðtemplarahúsinu næstkomandi
sunnudag, 27. febr. Verður þar
margt til skemmtunar, sem skát-
arnir sjá um að öllu leyti, Einnig
verður kaffidrykkja. — f cfag
óska Hafnfirðingar Hraunbúum
til hamingju með afmælið og
heiilaríkt starf á komandi árum,
’ ' *..............—‘ G. E.