Morgunblaðið - 22.02.1955, Qupperneq 9
Þriðjudagur 22. febr. 1955
MORGVNBLAÐiÐ
9
Mikilvægt að búa svo um hnútana
að sem fæstar flækjur komi á
IGÆK var hið nýja frum-
varp menntamálaráðherra
um kostnað af skólahaldi til
fyrstu umræðu í Efri deild
Alþingis. En í frumvarpi þessu
er miðað að því að koma í
veg fyrir margs konar óvissu,
sem verið hefur í fjárreiðum
menntamálanna. — Flutti
menntamálaráðherra Bjarni
Benediktsson þá framsögu-
ræðu, sem hér fer á eftir.
ÞAÐ ER kunnara en frá þurfi
að segja, að síðustu áratug-
ina hefur sótt í það horf, að ríkið
hefur tekið meiri og meiri þátt
í þeim kostnaði, sem stafar af
skólahaldi í landinu. Ríkið og
sveitarfélögin, þar með talin bæj-
ar- og sýslufélög, annast nú í
sameiningu barnafræðslu, gagn-
fræðastigsfræðslu og húsmæðra-
fræðslu. Hluti ríkisins af rekstr-
arkostnaði þessara skóla nam
1953 h. u. b. 38 millj. og 100 þús.
kr. og rekstrarkostnaður sveitar-
félaganna nam h. u. b. 12 millj.
og 900 þús. kr. Af þessum tölum
er ljóst, að hér er mjög mikilla
fjárhagsmuna að gæta, enda er
rekstrarkostnaður ríkis og sveit-
arfélaga af þessu skólahaldi áætl-
aður samtals nær 55 millj. króna
fyrir árið 1955.
SKERA ÞAKF ÚR MÖRGUM
VAFAATRIÐUM
Núgildandi ákvæði um þessi
efni eru í fræðslulöggjöfinni frá
1946. Samkvæmt lagaboðunum er
ætlazt til, að um þetta sé nánar
kveðið á í reglugerðum. Reglu-
gerðir þess efnis hafa all lengi
verið í undirbúningi í mennta-
málaráðuneytinu, en að athuguðu
máli varð ljóst, að sjálf lagaboð-
in eru að ýmsu svo óskýr, sund-
urlaus og sjálfum sér ósamþykk,
að ekki var ráðlegt að setja reglu-
gerðir samkvæmt þeim að lög-
unum óbreyttum. Það er og mjög
til óhagræðis að hafa fjármála-
ákvæðin á víð og dreif innan um
önnur ákvæði fræðslulaganna, og
á allt þetta sinn þátt í því, að
töluvert ósamræmi hefur orðið í
framkvæmd laganna og hún öll
yfirleitt slappari en viðunandi
sé. Þegar af þessum ástæðum
hefi ég látið undirbúa heildar-
löggjöf um þessi efni og er það
von mín, að eftir setningu henn-
ar verði skorið úr mörgum vafa-
atriðum, sem nú þvælast fyrir
mönnum og að meðferð þessara
mála verði þá í heild mun yfir-
litsbetri en verið hefur fram til
þessa.
RÆTT UM HVAÐA REGLUR
GILDI UM STOFNKOSTN-
AÐ ARGREIÐ SLUR
Mestu varðar þó að leysa þá
efnisannmarka, sem fram hafa
komið á gildandi lögum. Þar
skiptir höfuðmáli, að skýr á-
kvæði verði sett um stofnkostn-
aðargreiðslu skólanna. Nú er
mjög um það deilt, hverjar regl-
ur gildi. Lögin gera að vísu ráð
fyrir skiptingu milli sveitarfé-
laganna og ríkisins. Af hálfu
sumra er því haldið fram, að
hlutföllin, sem nefnd eru í lög-
Um, séu svo ákveðin, að hvor-
um aðila sé skylt að greiða það
fé, sem í hans hluta kemur sam-
kvæmt þeim reglum, og eigi
sveitarfélögin beina lagakröfu á
ríkið um þaer greiðslur. Forráða-
menn ríkissjóðs hafa hins vegar
ætíð litið svo á, að hvað sem
þessu hlutfalli líður sé ríkinu
ekki skylt að greiða meira fé en
hægt er að úthluta af því, sem
veitt er á fjárlögum hverju sinni.
Eftir þessu eru reglurnar um
hlutfall ríkisins í greiðslum þess-
Um einungis hámarksreglur og
ræður þá fjárveitingavaldið því
alveg, að hve miklu leyti það
leggur fram fé í þessu skyni
dnnan þeirra takmarka, sem há-
marksreglurnar setja. Ef þetta er
rétt er ljóst, að sveitafélögin eiga
filveg undir högg að sækja hjá
írmarp sem bætir lir því, hve ákvæði um
gre'lsh kostnaðar af skólahaldi hafa verið óljós
Framsöguræða Bjarna Benediktssnoar |
menntamálaráðherra á þingi í gær !
MIKILVÆG RÉTTARBÓT
Vera kann, að sumum þyki þau
nokkuð flókin og of þung skylda
til undirbúnings verði lögð á
sveitarstjórnir og menntamála- j
ráðuneyti, ásamt fræðslumála-
skrifstofunni, en ég fæ ekki séð,
hvernig þetta verður umflúið, ef
komast á út úr því öngþveiti, sem
nú ríkir. Ef framkvæmd þessa
ákvæðis tekst, svo sem vonir
standa til, og ef ríkið getur innan
hæfilegs tíma greitt þær kröfur,
sem nú eru fallnar á í þessum
efnum, hefur fengizt mjög mik-
ilsverð réttarbót, er gera mun
skólanefndum, sveitarstjórnum,
skólastjórum og kennurum og
öðrum þeim, er eiga að annast
framkvæmd skólamála í landinu.
ólíkt léttara að gegna skyldum
sínum en nú er. Vona ég, að allir
geti orðið sammála um að stuðla
að því, að þessi mikilvæga rétt-
arbót nái fram að ganga.
SKÓLABÍLAR HAFA
REYNZT VEL
Þá er rétt að vekja athygli á
ákvæðunum um skólabíla. Akst-
ur á skólabörnum og unglingum
til skóla hefur sums staðar gefið
mjög góða raun, einkum í snjó-
léttari sveitum hér í nágrenninu
og á Suðurlands-láglendinu. Með
sliku er hægt að spara byggingu
sérstakra skóla og heimavista og
liggur sannanlega fyrir, að stund-
um er það fjárhagslega mun hag-
kvæmara, jafnvel þótt rekstur
skólabílanna sé allkostnaðarsam-
ur. Auk þess vilja flestir foreldr-
ar frekar hafa börn sín heima hjá
sér, heldur en að koma þeim í
heimavist, þótt góð sé.
Um stofnkostnaðarákvæði frum
varpsins er þess ennfremur að
geta, að nákvæmar er nú talið en
áður, hvað til stofnkostnaðar
skuli telja og betra samræmi í
því en verið hefur.
¥8|!egasfa SuðyrSandáförigi
Orlof tekur Sólfaxa ó leigu til Paris-
Rómar-Kairo-T unis-Alsir-
Madrid-London
FERÐASKRIFSTOFAN Orlof
hefur nú lokið öllum undir-
búnftigi að ævintýralegustu hóp-
ferð, sem efnt hefur verið til fyr-
ir ísl. ferðamannahóp. Er hér um
að ræða 21 dags Suðurlandaferð
og hefur hópurinn Sólfaxa til
umráða, til þess að viðdvölin á
öllum viðkomustöðunum geti
orðið sem Iengst, en sem skemmst
ur tími fari í sjálft ferðalagið
milli staðanna.
FERÐIN
Hópferðin hefst 16. marz n.k.
og lýkur 5. april og er gert ráð
fyrir að í hópnum verði nær 50
manns. Hin skemmtilega ferða-
óætlun er í stórum dráttum þessi:
Frá Reykjavik verður flogið
beint suður til Parísar. — Eftir
nokkurra daga viðdvöl þar, flogið
til Rómaborgar. Næsti viðkomu-
staður er Kairo. — Þaðan flýgur
Sólfaxi með hópinn til Túnis,
þaðan til Algeirsborgar og er
hópurinn heldur þaðan verður
farið til Madríd og að lokum,
áður en sjálf heimferðin hefst,
verður komið við í Lundúnum.
Á öllum þessum stöðum verður
höfð nokkurra daga viðdvöl.
Ásbjörn Magnússon forstjóri
Orlofs, skýrði blaðamönnum frá
þessari ferð í gærdag. Fyrir
hvern þátttakanda kostar ferðin,
öll um 14.000 krónur. — Á hverj-
um stað verður hið markverðasta
skoðað af söfnum, sögustöðum og
merkum mannvirkjum, og einnig
það, sem sérkennilegt þykir og
einkum einkennandi fyrir hina
mörgu og ólíku staði, sem komið
verður á.
— Við munum kappkosta að
gera ferðina sem ánægjulegasta
og fróðlegasta í senn, sagði Ás-
björn Magnússon.
En þar eð ferð þessi hefst um
miðjan marz sem fyrr segir, þá
er nauðsynlegt fyrir væntanlega
þátttakendur að hafa tilkynnt
þátttöku sína eigi síðar en 1.
marz.
Bjarni Benediktsson,
menntamálaráðherra.
fjárveitingavaldinu og geta í
raun réttri litlu eða engu treyst
um stuðning ríkisvaldsins við að
koma skólum upp.
17 MILIiJÓN KRÓNA
ÓGREIDDAR KRÖFUR
Ég skal ékkert um það segja
hér, hvað rétt sé í þessu, hvort
sveitarfélögin eigi réttarkröfur á
ríkið eða ekki, enda er orðalag
laganna ekki allt á einn veg og
engan veginn víst, að efni þeirra
sé hið sama, þó að sennilega hafi
verið til þess ætlazt. Það, sem hér
skiptir máli, er, að ríkið hefur
hvergi nærri greitt framlög, sem
samsvari því hlutfalli, er lögin
nefna, og gera sveitarsjóðir nú
kröfur á hendur ríkissjóði fyrir
barnaskóla 12Vz millj. króna,
fyrir gagnfræðaskóla 3 millj. og
350 þús. króna, fyrir húsmæðra-
skóla IV4 millj. króna. Þessum
kröfum þarf að fullnægja fyrr en
síðar, vegna þess, að sveitarfélög-
in hafa reist skólana í þeirri trú,
að greiðslurnar fengjust. Engu
að síður hafa þessar skuldir auk-
izt.frá ári til árs og nema nú sem
sagt samtals 17 millj. og 100 þús.
króna. Við setningu gildandi fjár-
laga fékk ég því áorkað, að í fjár-
veitingum skyldi greint á milli
greiðslna á áföllnum kröfum og
þess, er færi beint í skóla, sem
verið er að reisa. Upp í þessar
rúml. 17 millj. króna kröfur
fékkst ekki nema 1200 þús. kr.
fjárveiting og var þá að vísu ætl-
unin að veita mun meira í því
skyni af tekjuafgangi ársins 1954,
hvað sem úr því verður.
Hins vegar voru 6 millj. 890
þús. kr. veittar til stofnkostnaðar
nýrra skóla, og er það mun meira
en nokkru sinni áður, enda von-
uðust menn þá til, að skuldirnar
myndu ekki vaxa á þessu ári.
Höfuðnauðsyn er að setja um
þessi efni ákveðnar reglur, er
gildi í framtíðinni, svo að hver
og einn viti, að hverju hann eigi
að ganga, og ekki sé unnt að
ásaka ríkið fyrir vanefndir. Menn
verða að gera sér grein fyrir
hverjar byggingarframkvæmdir
helzt þarf að ráðast í og tryggja
síðan fyrirfram, að fé til þeirra
sé fyrir hendi. Verður þá hvort
tveggja að fylgjast að, að Al-
þingi sjálft ákveði, hvaða skólar
skuli reistir með tilstyrk ríkisins
og hvenær ríkisframlögin skuli
greidd, og að enginn vafi sé , á,
að þessi framlög verði greidd á
tilsettum tíma, enda stofnist ótví-
ræð réttarkrafa, sem sveitarfé-
lögin geti knúið fram greiðslu á
lögum samkvæmt, ef greiðslur
dragast úr því. Ákvæði frum-
varpsins miða að þessu.
Maður hœft kominn
þegar kviknar í vélbát
OF SMAIR GAGNFRÆÐA-
STTGSSKÓLAR
Ákvæðin um reksturskostnað
eru mörg til samræmingar og
skýringar frá þvi, sem verið hef-
ur. Sérstök ástæða er til að benda
á, að samkvæmt frumvarpinu eru
látnar gilda tilsvarandi reglur
um þátttöku ríkisins í kennara-
launum við gagnfræðaskóla og
barnaskóla varðandi þann fjölda
nemenda, sem þarf að vera fyrir
hendi svo að skóli öðlist rétt til
kennara. Undanfarið hafa ákvæð-
in verið óljós um gagnfræðastig-
ið og hefur það leitt til þess, að
víðs vegar um landið hafa mynd-
azt mjög smáir gagnfræðastigs-
eða unglingaskólar. Eftir frum-
varpinu mundi ríkið ekki greiða
laun kennara við slíka skóla,
nema stuttan starfstíma á hverju
ári. Leiðir af því, að annað hvort
verða sveitarfélögin að leggja
meira fram af sinni hálfu til skól-
anna en áður, eða að haga starfi
þeirra svo, að það standi þeim
mun skemur, er svari til tak-
mörkunarinnar á skyldu rikis-
sjóðs til greiðslu kennaralauna.
Ef sveitarfélögin vilja á hvorug-
an þennan kost fallast, er það
ráð, að þau sameinist um stærri
skóla eða noti þá skóla, sem fyrir
eru og nú eru lítt sóttir sumir
einmitt vegna þessara smáskóla,
svo að jafnvel ein slík milljóna-
bygging stendur nú ónotuð. Sjálf-
sagt verða ekki allir á eitt sáttir
í þessu, en ljóst er þó, að ákveðn-
ar reglur verða að gilda, svo að
menn viti, að hverju þeir eiga
að ganga en ekki eins og nú, að
Framh. á bla. 12
HAFNARFIRÐI — Á fimmta
tímanum á sunnudagsmorguninn
kom upp eldur í Síldinni, sem lá
við ytri hafnarbryggjuna. Kvikn-
aði í út frá olíukynntum ofni í
káettu skipsins, en tveir menn
sváfu í káettunni. — Þegar þeir
vöknuðu lagði mikinn reyk upp
frá ofninum. Annar skipverjinn,
Gunnlaugur Árnason frá Elliða
á Seltjarnarnesi, fór þegar inn í
vélarúm skipsins og hugðist setja
sjódælu í gang, en hinn maður-
inn sem er Færeyingur, fór upp
á þiljur og ætlaði að sprauta nið-
ur í káettuna. Var eldurinn þá
orðinn talsvert magnaður.
Leið nú góð stund, og enginn
sjór kom í slönguna, en reykur
orðinn allmikill. Fór Færeying-
urinn þá app á Slökkvistöð og
náði í hjálp. Kom það þegar nið-
ur á bryggju og gerði margítrek-
aoar tilraur.ir til að komast nið-
ur í vélarrúmið. Var þá allmikill
reykur í káettu og á gangi, en
minni í vélarrúmi. Varð Slökkvi-
liðið að brjóta lestarþiljur til
þess að komast inn í vélarrúmið.
Gunnlaugur lá þá meðvit-
undarlaus á gólfinu. Var hann
þegar borinn upp í sjúkra-
bifreið, sem beið á bryggj-
unni. Var farið með Gunr<
laug í siúkrahús og hafnar á
honum lífgunartilraunir. —
Komst hann til meðvitundar
eftir nokkurn tíma, og líður
honum nú sæmilega eftir at-
vikum.
Þegar verið var að bjarga
Gunnlaugi, varð annað slys
þarna. Albert Kristinsson
verkstjóri hjá Rafveitu
Hafnarf jarðar, sem ók sjúkra-
bílnum, skarst mjög illa á
hendi, og varð að flytja hann
í Landsspítalann, þar sem
gert var að sárum hans.
Slökkvilíðið gekk vasklega
fram í að slokkva eldinn, og hafði
lokið því að klukkutíma liðnum.
Skemmdir urðu talsverðar af
eldi og vatni. —G. E.
Fjörlegir leikir 1
knattspyrnu innanhúss
Undanúrslit mótsins verða í kvöld
ÞRIÐJA leikkvöld Reykjavíkur-
mótsins í innanhússknattspyrnu
fór fram á sunnudagskvöldið og
fóru þá fram 7 leikir.
í 3. flokki urðu úrslit þessi:
KRB — ValurB 2:1
Fram A — Valur A 3:0
KR E — Fram B 4:1
KR C — KR A 5:1
í 2. flokki sigraði Þróttur A
Val A með 4:3 eftir jafnan og
tvísýnan leik.
GANGUR LEIKJANNA
Aðalleikir kvöldsins voru í
meistaraflokki. Fyrst léku A-Iið
KR og Fram B, og sigraði KR
með talsverðum yfirburðum, 5:0.
KR-ingar sýndu mjög góðan og
léttan leik, einkum í síðari hálf-
leik, er þeir skoruðu fjögur af
mörkunum. Þetta lið er lítið
j breytt frá þeim liðum KR, sem
sigrað hafa í þeim tveim innan-
hússmótum, sem fram hafa farið.
í hinum leiknum sigraði Fram
A Þrótt C með 3:2, eftir jaínan
og tvísýnan leik. í fyrra komst
Þróttur i úrslit í innanhússmóti
í tilefni af 5 ára afmæli Þróttar,
en tapaði þá naumlega fyrir KR.
Þetta lið var skipað tveim af
máttarstoðum þess liðs, og var
því búist við að Þróttur mundi
sigra Fram, en það fór á aðra
leið. Fram hafði oftast yfir, þegar
kom fram í síðari hálfleik stóðu
leikar 2:1 og fékk þá Þróttur
vítaspyrnu á Fram, sem mistókst.
Nokkru siðar jafnaði Sherriffs
fyrir Þrótt, en Guðmundur Jóns-
son tryggði síðan Fram sæti í
undanúrslitum.
UNDANÚRSLIT í KVÖLD
í kvöld fara fram undanúrslit
í 3 flokkum. f 4. flokki fara fram
þessir leikir:
Fram A — Þróttur.
KR A — Fram B.
Undanúrslit i 2. flokki:
KR C — Þróttur A.
KR B — Fram A.
Aðalleikir kvöldsins verða í
meistaraflokki:
KR B — Valur B.
KR A — Fram A. . „ /