Morgunblaðið - 26.02.1955, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.02.1955, Qupperneq 1
16 sáður Kaupmáttur Dagsbrúnarkaups hefir aukizt um 1,1% s.l. tvö ár vegna lækkunar skatta og útsvars Ef skaf Hi og útsvari er sleppt hef- ir kaupsnéf f isrinn rýrnað um 2,9% GreinargerB frá rikisstjórninni FYRIE nokkru fól ríkisstjórnin tveimur hagfræðingum, þeim Klemens Tryggvasyni hagstofustjóra og Ólafi Björnssyni prófessor að framkvæma athugun á þeim breyt- ingum, sem orðið hefðu á kaupmætti verkamannalauna í Reykjavík frá janúar 1953 til janúar 1955. Hafa þeir fyrir nokkru skilað álitsgerð um þetta atriði. Er niðurstaða þeirra á þá lund, að þegar hlutfallið milli kaups og framfærslu- kostnaðar í janúar 1953 annars vegar er borið saman við hlutfallið milli kaups og framfærslukostnaðar í janúar 1955 hins vegar, þá komi í ljós, að kaupmáttur Dagshrúnarkaups hafi aukizt um 1,1% á umræddu tímabili. Er þá miðað við kaupgjald í janúar 1955 og við grundvöll kauplagsnefndar að meðtöldum skatti og útsvari. Ef sleppt er skatti og útsvari þá hafi kaupmáttur launa hins vegar rýrnað um 2,9%. Hér fer greinargerð hagfræðinganna á eftir í heild. Ríkisstjórnin fól þeim Klemens Tryggvasyni hagstofustjóra og Ólafi Björnssyni prófessor, að gera athugun á þeim breyting- um, sem orðið hafa á kaupmætti verkamannslauna í Reykjavík frá janúar 1953 til janúar 1955. Hér fara á eftir helztu niðurstöður álitsgerðar þeirra um þessi mál. KAUPGJALD 1953 OG 1955 Það er álitamál, við hvaða kaupgjald skuli miðað, þegar bera á saman kaupmátt launa á mismunandi tímum. í álitsgerð- inni er miðað við vegið meðaltal Dagsbrúnarkaups, fundið á þann hátt, að almenni Dagsbrúnar- taxtinn er látinq gilda að %, lægsti sértaxti Dagsbrúnar að 1/6 og meðaltal annarra sértaxta sömuleiðis að 1/6. Vegið dag- vinnutímakaup Dagsbrúnar verð- ur með þessu móti kr. 14,94 í janúar 1953, kr. 15,04 í janúar 1955 og kr. 15,23 miðað við kaup- gjaldsvísitölu svarandi til fram- færsluvísitölu janúarmánaðar 1955, en hún er tveim stigum hærri en nóvembervísitalan, sem kaup mánaðanna des. 1954 — febr. 1955 er reiknað eftir. En nú hefur kaupgjaldsvísitalan, reikn- uð eftir framfærsluvísitölu febrúar 1955, hækkað um þau tvö k'ramh. á bls. 2 Eyjan Nanchishan seld í hendur kommúnistum Nehru telur kröfu Rauða Kína til Formósu réttmæta • TAIPEH, Formósu, 25. febr. — Þjóðernissinnastjórnin á For- mósu hefur tilkynnt, að lokið sé brottflutningi herliðs og borgara af litlu eyjunni Nanchishan skammt fyrir norðan Tachen- eyjar. Var það nyrzía eyjan, er þjóðernissinnar höfðu á valdi sinu, 40 km undan strönd megin- lands Kína og 200 km norður af Formósu. Brottflutningurinn af Nanchishan hefur staðið yfir undanfarna tvo daga og fór fram án nokkurrar aðstoðar frá sjö- undu deild bandaríska flotans. — Eyja þessi heyrir ekki undir hinn gagnkvæma varnarsamning For- mósu og Bandaríkjanna fremur en eyjarnar Quemoy og Matsu. • Undanfarna daga hefur fiugher kínverska alþýðulýðveld- isins haldið uppi látlausum loft- árásum á Nanchi-eyjaklasann. • Það gengur því á ýmsu fyrir Formósu-stjórninni. M. a. berst stjórnin nú gegn stöðugt vaxandi verðbólgu innanlands, er á rætur sínar að rekja til ógnana Rauða Kína um að gera innrás á eyjuna. Á þremur vikum hefur Formósu-dolíarinn fallið svo í gildi, að 36 Formósu-dollarar jafngilda einum bandarískum dollar. ð NÝJU DELHI, 25. febr. — í dag ræddi Nehru, forsætisráð- herra Indlands, um Formósu- málin í indverska þinginu. Drap hann einnig nokkuð á hernaðar- | bandalög þjóða í milli og þýð- ingu þeirra. ^ Nehru lýsti yfir því, að Ind- verjar litu á kommúnistastjórn- ina sem hina einu sönnu stjórn Kina. Kvað hann kröfu komm- únistastjórnarinnar til Formósu I vera reista á réttmætum rökum, ekki aðeins af þvi að Formósa ! hefði tilheyrt Kína um aldaraðir, i heldur einnig þar sem þetta hefði verið viðurkennt á ráðstefnum þeim, er kenndar eru við Kaíró og Potsdam. > Kvaðst hann álíta, að það sem lægi næst fyrir í Formósu- málunum væri afsal þjóðernis- sinna á eyjunum úti fyrir megin- landi Kína, t.d. Quemoy og Mat- su, í hendur kommúnistum. ♦ Forsætisráðherrann taldi hernaðarbandalög gagnslítil nema í ógnunarskyni, og jafrrvel þesskonar ógnanir væru orðnar all úreltar á öld kjarnorkuvopn- anna. 25 þns. manns heimilislousir — 19 druhhnu O CANBERRA, 25. febr. — Mikil flóð eru nú í Nýja Suður- Wales í Ástralíu, einkum í norð-vestur og miðhluta fylkis- ins, og fer vatnsflaumurinn stöð- ugt vaxandi. Taiið er, að um 25 þús manns hafi orðið að yfirgefa heimili sín, a. m. k. 19 manns hafa drukknað og margra er saknað. • Fimmtíu borgir og þorp hafa orðið illilega fyrir barðinu á flóð- unum, og ferðir járnbrautarlesta um flóðasvæðin hafa ýmist tafizt eða stöðvast alveg, svo að elztu menn muna ekki aðrar eins sam- göngutruflanir í Suður-Wales. 9 Þyrilvængjur hafa unnið að því að bjarga fólki af húsþökum og úr trjátoppum. — Flugvélar ástralska hersins hafa -varpað niður birgðum matvæla og læknislyfja til staða er einangr- ast hafa á flóðasvæðunum. Sveit- ir hermanna og lögreglumanna vinna að mannbjörg á bátum. PARÍS, 25. febr. — Óstaðfestar fregnir herma, að á fyrsta ráðu- neytisfundi hinnar nýju stjórnar Edgars Faure, hafi samkomulag orðið um að leggja Parísar-samn- ingana um endurhervæðingu V.- Þýzkalands fyrir efri deild franska þingsins til löggildingar fyrir lok næsta mánaðar. Edgar Faure tjáði blaðamönnum, að hann myndi gera sitt bezta til að fá Parísar-samningana löggilta Ottó Strasser, þýzki stjórnmálamaðurinn, er var um tíma náinn samstarfsmaður Hitlers, en síðar hans versti óvinur, hefur fengið þýzkan borgararétt að nýju og er kominn lieim eftir að hafa verið landflótta í mörg ár í Kanada. Á myndinni sjást Strasser og kona hans, sem allan þennan tíma hefur búið í litlu húsi nálægt Herrli- berg við Zurich-vatnið í Svisslandi og stundað kennslustörf. Bankok-ráðstefnunni lauk í dag Aðildomhin viljo vinna í onda Sþ. Bangkok, 25. febr. — Reuter-NTB. IDAG lauk ráðstefnu utanríkisráðherra Suðaustur-Asíu banda- lagsríkjanna í Bangkok. Ráðstefnan hefur staðið í þrjá daga. í skýrslu ráðstefnunnar lýstu ráðherrarnir yfir því, að stjórnir aðildarríkjanna vildu vinna í anda SÞ og gera allt, sem í þeirra valdi stæði til að vinna að friði þjóða í milli. Lögðu þeir áherzlu á, að framkvæmdir bandalagsins á sviði hermála yrðu eingöngu bundnar við varnir aðildarríkjanna. * UNDIRRÓÐURSSTARF- SEMIN ÓGNAR FRELSI OG SJÁLFSTÆÐI Ráðherrarnir lýstu yfir óbeit sinni á hvers konar árásaráform- um, t. d. undirróðursstarfsemi, er græfi undan frelsi og sjálfstæði þjóða. í skýrslunni var skýrt frá, að talsverð brögð væru að undir- róðursstarfsemi á vegum or- lendra rikja á yfirráðasvæði bandalagsins. Fullt samkom > varð um þær greinir Man:l ítt- málans, er gera ráð fyrir eina- hagsaðstoð við SA-Asíulöndin. — Var sérstaklega getið um slíka aðstoð til handa Indó-Kína ríkj- unum þremur, Laos, Cambodgia og Suður-Vietnam. Ákveðið var, að utanríkisráð- herrar aðildarríkjanna kæmu saman til fundar einu sinni á ári Fimmveldaráðstefna í London um afvopnun Nutting: Allt mannkynið veit, að cngin von er um varanlegan frið fyrr en þjóðir heims hafa allar afvopnazt London, 25. febr. — Reuter-NTB. UNDIRNEFND afvopnunarnefndar SÞ hóf í dag ráðstefnu sína í Lundúnum. Tilgangur þessarar lokuðu ráðstefnu er að reyna að finna leið til alþjóða afvopnunar, en undanfarin 10 ár hefur alþjóða afvopnun verið eitt helzta ágreiningsatriði milli austurs og vesturs. ---------------;--—-----^OPINBERAR RÁDSTEFNUR — OF MIKIL ÁRÓÐURS- STARFSEMI Fimm lönd eiga aðild að ráð- stefnu þessari: Bandaríkin, Bret- land, Frakkland, Kanada og Ráð- stjórnarríkin. Aðstoðarutanríkis- ráðherra Breta, Anthony Nut- ting, bauð fulltrúa velkomna og lýsti yfir því, að fundur þessi færi fram fyrir lokuðum dyrum samkvæmt fyrirmælum allsherj- arþings SÞ frá því í nóvember s.l. ár. Talið er, að Nutting hafi beint þessari athugasemd sérstaklega til fulltrúa Ráðstjórnarríkjanna, þar sem Rússar hafa tjáð sig vilja heldur opinbera ráðstefnu. Afstaða vesturveldanna skapast af þeirri skoðun, að opinbcr ráðstefna leiði til þess, að of mikill áróður verði hafð- ur í frammi af hálfu hinna ýmsu landa, 'og tillögur til úr- lausnar verði meira miðaðar við að þær líti vel út á prenti. Nutting minnti fulltrúana á, að SÞ hefði falið þeim að reyna að ná samkomulagi um alþjóða afvopnun, og enginn mætti láta sitt eftir liggja í því að verða við því trausti, er þeim væri sýnt. Allt mannkynið veit, að það er engin von um varanlegan frið fyrr en þjóðir heims hafa allar afvopnazt, sagði Nutting. Fulltrúi Ráðstjórnarríkjanna Framh. á bls. 2 og oftar ef nauðsyn krefði. — Skyldu fundir þessir að öllum jafnaði haldnir á yfirráðasvæði bandalagsins. Næsta ráðstefna bandalagsins verður haldin i Manila í apríl að ári. Síðasti fundur ráðstefnunnar var opinber. Eden, utanríkisráð- herra Breta, lét þar svo um mælt, að mikill og góður árangur hefði náðst með ráðstefnunni, og hún hefði tekizt jafnvel betur en bú- ast hefði mátt við. Dulles, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna. kvaðst vera sannfærður um eitt: Ekki yrði nú eins auðvelt og áð- ur að hefja árásarstyrjöld í SA- Asíu. Hernaðarsérfræðingar banda- lagsins munu halda með sér fund á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.