Morgunblaðið - 03.06.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.06.1955, Blaðsíða 1
16 síður *S árcanswr 122. tbl. — Föstudagur 3. júní 1955 PrentsmlXJa Morgunblaðsins Frá skriðuföllunum Við heimtum islenzku fiskinn — «- — segir ársþing brezkra fisksala Náttúruhamfar- irnar i Skagafirði Myndir þessar eru frá náttúru- hamförunum við Kotá og Vala- gilsá í Norðurárdal í Skagafirði. Efsta myndin sýnir, hvernig Valagilsá hefir hlaupið úr far- vegi sínum og myndað kvísl, sem hefir brovið skarð í veginn nokkru austan brúarinnar (til vinstri á myndinni). — Fyrir neðan er yfirlitsmynd frá Kotá. Áin fellur nú um breiðar eyrar, en féll áður í djúpum farvegi. Hringurinn sýnir, hvar brúin, sem nú er sokkin í grjót og leir, var áður. — Á neðstu myndinni sézt, er jarðýta dregur einn áætlunarbíl Norðurleiða h. f. yfir Kotá. —JLjósm.: V. Guðm. Líísspeki Krúsjeífs LUBLJANA, 2. júní — Formað- urinn í k jmmúnistaflokki Rúss- lands, Nik:ta Krúsjeff, Tét hafa eftirfarandi ummæli eftir sér í fyrradag á blaðamannafundi: Ég er aldvei þreyttur. Lífið er stutt og maður verður að lifa hvern dag sem væri hann manns síðasti". Er Krúsjeff var í makindum í veizlu einni og ræddi við júgó- slavneskan verkamann kom siða- meistari iúgóslavneska utanríkis ráðunevtis-ns, Smodlaka,, til hans og sagði, oð tíminn Tiði óðfluga. Krúsjeff svaraði og sagði: Hver fjárinn, aldrei hefir maður tíma til að draga andann rólega. —Reuter. Yfirlýsing Títós og Kmsjeffs ^J'JríáCj rjónaó tú ÍL ur i ueri RÓM, 2. jan. — Reuter-NTB. 15 5.0 0 0 ÍTALSKRA hrísgrjónastúlkna, sem urðu heimsfrægar eftir að kvikmyndin „Beizk uppskera" var gerð um líf þeirra og starf, hafa gert verkfall. Heimta stúlkurnar kauphækkun, að dag- laun þeirra hækki um 1,20 kr. á dag. Stúlkurnar flykkjast frá bæjunum á vorin út á hrísgrjónaekrurnar, sem eru stærstar í Pó- dalnum, og vinna þar að ræktunar og uppskerustörfum. Dveljast þær venjulega tvo mánuði á sumri við vinnuna og fá í kaup um 40 krónur á dag, fyrir utan mat. Atvinnuveitendúr hrisgrjónastúlknanna hafa nú hótað að hætta að veita þeim mat sinn, ef þær hverfi ekki þegar í stað til vinnu sinnar aftur. BELGRAD, 2. júní. — Yfirlýs- ing var í dag gefin út að loknum viðræðufundum þeirra Titós og Krúsjeffs. Aðalatriði hennar eru þessi: 1. Samstarf Júgóslaviu og Ráðstjórnarríkjanna í her- málum. ýý 2. Sovét Kína verði veitt inn- ganga í S. Þ. ★ 3. Ríkin skiptist á kjarn- orkuupplýsingum. Má nú segja að fullar sættir hafi komizt á með þessum tveim- ur ríkjum, en þau hafa ekki set- ið á sátts höfði síðan árið 1948. Reuter. Farið að fordæmi Færeyinga, segir „Fishing News" IBREZKA fiskimálablaðinu Fishing News, sem kom 27. maí, er stór frétt um ársþing brezku fiskheildsalanna, sem nýlega er lokið. í ársskýrslu samtakanna, sem gefin var út í Lundúnum fyrir viku, er nokkuð vikið að fisklöndunar- deilunni milli íslendinga og Breta. FYLGJA ÍSLENDINGUM Segir þar orðrétt: „Gerðar voru tilraunir af okkar hálfu og fyrir atbeina Fiskiðnaðar- sambandsins (Fish Industry Joint Council) til þess að fá ríkisstjórnina til þess að grípa til enn róttækari ráða til þess að leysa deiluna, en enn hafa þær tilraunir engan árangur borið. Eins og sakir standa er það augljóst, að þótt vera megi að brezki togaraflotinn hafi aukið landanir sínar lítið eitt, þá hefir löndunarbannið á ís- lenzka fisknum svipt fisksal- ana og allan almenning fiski, sem ella gæti og ætti að vera á markaðnum.“ BREZKI FISKURINN VONDUR í sömu grein er þess getið, að gæði fisksins á brezkum markaði séu f jarri því að vera slík, sem æskilegt væri, og er einnig frá þessu skýrt í fyrir- sögn. Því er jafnframt bætt við, að Iandanir fisks úr dönsk um, norskum, hollenzkum og belgiskum skipum hafi að mun aukið fjölbreytnina á brezka fiskmarkaðnum og gert fiskkaupmönnum kleift að veita neytendunum betri vöru en ella. Hafi landanir þessara erlendu skipa bætt mjög upp fiskinn úr brezku skipunum. ÓSANNGIRNI ÍSLENDINGA í sama tbl. af Fishing News er rætt um löndunarbannið í aðalleiðara blaðsins. Kveður þar við nokkuð annan tón en í ályktunum fisksalanna. Fyrst er þar getið um skýrslu brezku ríkistjórnarinnar um deiluna, sem út kom fyrir skömmu og sagt hefir verið frá hér í blaðinu. Er brezku skýrslunni sérstaklega hrósað í blaðinu og þá einkum hinu „hógværa orðalagi“ hennar og „rólegum rökstuðningi", sem styngi nokkuð > stúf við and- ann í skýrslu íslenzku ríkis- stjórnarinnar um málið. Sú skýrsla skýri ekki frá málun- um í réttu Ijósi og sé hálf- gerð bænarskrá íslendinga til Evrópuráðsins um að taka af- stöðu til deilunnar þeim í vil. FYLGIÐ FÆREYINGUM! „Ef íslendingum er sérstak- lega umhugað um að leysa deiluna“, heldur blaðið áfram, „þá muni skjótrar lausnar miklu fremur að vænta ef upp yrðu teknar beinar samninga- umleitanir, og í þeim farið eftir sömu forsendum og sjón- armiðum og giltu í samning- um Bretlands og Færeyja um landhelgi eyjanna.“ Blaðið lætur þess þó ógetið í þetta sinn, hvernig þeir samningar voru, en þar var samið um, að landhelgi Fær- eyja skyldi að höfuðreglu til vera aðeins 3 sjómílur, og brezkum togurum því heim- ilt að stunda veiðar allt inn að þeirri Iínu. Schumansamlagið stóraukið Ráðstefna á Slkiiey LUNDÚNUM, 2. júní. — Reuter-NTB DAG ræddu fulltrúar þeirra landa, sem þátt taka í stál- og kolasamlagi Evrópu (Schuman-samlaginu), um tillögu í þá átt, að samlagið verði einnig látið ná til flutninga og raforku- vinnslu þátttökuríkjanna. Var fundur um þetta haldinn í Messina á Sikiley. EINN MARKAÐUR Hugmyndin er komin frá þremur af sex ríkjanna, Belgíu, Hollandi cg Luxemborg. Jafnframt leggja þau til að stofnað verði til sérstaks mark- aðar, sem undanþeginn sé öllum gjaldeyrishömlum og kvotakerf- inu. Ítalía hefir lýst fylgi sínu við tillöguna og kveður hana stuðla mjög að sameimngu Evrópu. Lagt var til að efnt yrði til ráðstefnu um málið og Bretlandi m. a. boðið þangað. Fréttamemi til Rússlands BERLÍN, 2 júní — 10 vestur- þýzkum scjórnmálafréttariturum hefir verið veitt vegabréísáritun til Rússlands. Er þetta í fyrsta sinn sem hópi fréttamanna hefir verið hleypt inn í landið frá styrjaldarlokum. Fréttzt hefir að fleirum shkum heimsóknum muni komið á síðar. —Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.