Morgunblaðið - 03.06.1955, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIB
Föstudagur 3. júní 1955 |
Nýr barnaskóli verður
i J
bvs’íður við Breiðaserði
I Mjög ör ijölgun skólaskyldra barna
Þýzkt fjármagn til höfuðs
innlendum iðnaði
Á bæjarstjórnarfundi í
gær urðu nokkrar umræð-
ur urn framkvæmdir í
skólabyggingum.
BORGARSTJÓPJ kvað það lengi
hafa verið ljóst, að í Reykjavík
þyrfti mjóg örar framkvæmdir
í skólamálum, vegna mikillar
fjölgunar skólaskyldra barna.
Árið 1950 hefði verið skipuð
ýefnd til að gera tillögur um
byggingar skóla á næsta áratug.
í þeirri nefnd voru fræðslufull-
-trúi Jónas B. Jónasson, formað-
ar fræðsluráðs, Helgi H. Eiríks-
son og Þór Sandholt, forstöðu-
uraður sk'pulagsdeildar bæjar-
jns. Þessir menn skiluðu ýtarlegri
skýrslu í ársbyrjun 1953. Var
þar gerð áætlun um, hve mikið
þyrfti að byggja af skólahúsum,
skifting bæjarins í skólahverfi,
staðsetning skóla o. s. frv. Það
var mikill fengur og góður stuðn-
ingur við væntanlegar fram-
kvæmdir að fá álit þremenn-
inganna, sem var mjög vel unn-
ið. En erfi’.t er að gera nákvæm-
ar áætlanir fyrir mörg ár vegna
breytinga á byggingu bæjarins.
En þegar búið er að gera grein
fyrir þörfunum, kemur að því,
að athuga möguleika á fram-
kvæmdum. Það er ljóst, að fram-
kvæmdir verða að miðast við,
að hæfilegur fyrirvari sé til að
gera nauðsynlega leiknivinnu,
og að fjármagn og vinnuafl sé
fyrir hendi. Hraði framkvæmda
lilýtur að miðast við þessi atriði.
Hinsvegar væri æskilegt, að unnt
væri að byggja svo sem tvo skóla
á ári, en íiJ slíkra bygginga er
okki úr öðru að spila, en árlegri
íjárveitingu bæjarstjórnar og til-
lagi ríkissjéðs.
Borgarstjóri tók fram nokkur
atriði í sambandi við ástand og
horfur í skólamálunum nú:
1) Fyrir skömmu var lokið
byggingu Langholtsskólans
nýja.
2) Á síðastliðnu ári var ljóst,
að gera þyrfti bráðabirgða
ráðstafanir og ekki þýddi að
bíða eftir byggingu nýs stór-
skóla, því bygging þeirra tek-
ur nokkur ár. Því var ákveðið
að byggja tvo litla skóla i
leikskóiastíl, og eru 3 kennslu-
stofur í hvorum. Byrjað var
að byggja þessa skóla um
vorið 1954, og voru þeir tekn-
ir í notkun fyrir s. 1. áramót.
Þessir skólar eru í Mosgerði
og í Hhðunum og taka sam-
tals um 500 börn.
3) Á síða'vtliðnu ári var húsa-
meistara bæjarins og fræðslu-
fulltrúa falið að undirbúa
byggingu skóla við Breiða-
gerði. leikningu hans er um
það bil að verða lokið, og má
búast við, að bygging hans
hefjist ; lok þessa mánaðar.
í þessum skóla verða 9 stof-
ur. Ætlunin er að byggja
helming hússins fyrst, og er
búist við, að sá hluti geti að
forfallalausu komist í notkun
fyrir næstu áramót. Þessi skóli
verður með nokkuð nýju sniði
og frábrugðinn storu skólun-
um. Verða þeir einfaldari og
ódýrari að gerð en stóru skól-
arnir.
Borgarstjóri taldi, að æskilegt
hefði verið, ef unnt hefði verið
að byggja tvo nýja skóla í ár,
en ekki er enn vitað um, hve
opinber fjárveiting verður mikil
til skóla i Reykjavík, og ekki er
vitað, hve mikið fellur í hlut
Reykjavíkur af því fé, sem Al-
þingi hefur veitt til greiðslu á
skuldum ríkissjóðs vegna skóla-
bygginga, en ríkissjóður skuldar
Reykjavíknrbæ mikið fé vegna
þeirra.
Arngrímur Kristjánsson (A)
lýsti þeim vandræðum, sem nú
blasa við, vegna hinnar öru
fjölgunar skólaskyldra barna, og
taldi, að nú þyrfti að hefjast
handa um byggingu stærri og
smærri skola, sem tekið geti við
þessari fjöigun.
Sigurðui Sigurðsson (S) taldi,
að gefnu tílefni, að mikil kvilla-
semi í skó'vm í vetur, hefði staf-
að af því, að magnaðar farsóttir
hefðu borist til landsins, og sýkt
mikinn fjöida barna.
Akveð ið að sérslök hljómlisla-
kvöld verði helguð Isaac Slern
Hefur gefið háskólanum mjög vönduð hljómfæki
IGÆR fór fram vígsla hljómtækja þeirra er hinn heimsfrægi
fiðluleikari Isaac Stern, sem hér var staddur í vetur, hefur
gefið Háskóla íslands, í hátíðasal Háskólans. Var við það tæki-
læri viðstaddir nokkrir gestir, þar á meðal bandaríski sendiherr-
ann hér á landi. — Háskólarektor dr. Þorkell Jóhannesson, flutti
stutta ræðu og sagði tildrög þessarar höfðinglegu gjafar.
ÁGÓÐA HLJÓMLEIKANNA
VARIÐ TIL HLJÓMTÆKJA-
KAUPA
Komst rektorinn svo að orði,
nð er Stern var hér staddur í
vetur, á hljómleikaför á vegum
*Tónlistarféjagsins, bauð hann
liáskólanum að halda hljómleika
fyrir stúdenta hér í háskólan-
um. Að sjálfsögðu þáði háskól-
inn þetta vinsamlega boð. Að
liljómleikunum loknum lýsti
Stern þvi yfir, að hann gæfi
háskóianum allan þann hagnað
er verða kynni af hljómleikum
sínum hér á landi að því sinni.
Yrði fé þessu varið til kaupa á
hinum vönduðustu tækjum til
hljómlistarflutnings ásamt völdu
-.safni af hljómplötum, enda yrðu
tækin einkum notuð til þess að
gefa ungu fólki kost á að kynn-
ast úrvalstónlist, við þægilegar og
góðar aðsíæður.
Nú er þessi gjöf komin, sagði
ijr^ktor, tækin hafa veríð gett.upp
í hátíðasal háskólans og verða
þar þangað til háskólinn eignast
betri stað xyrir þau.
MJÖG FULLKOMIN TÆKI
Síðan lýsti prófessor Gylfi Þ.
Gíslason, tækjunum en þau eru
mjög fullkomin og vönduð.
Fylgja þeim þrír hátalarar, lamp-
ar og nálar af sérstakri gerð og
er hljómbvrður allur hinn full-
komnasti. 55 úrvalsplötur fylgja
þeim eftir allra frægustu tón-
snillinga. Að lokum voru leikin
þrjú verk á hljómtækið, fyrir
gestina.
Er tilætlunin að haga notkun
tækjanna þannig næsta vetur, að
haldin verði sérstök hljómlista-
kvöld í hátíðasal háskólans, sem
nefnd verði eftir gefanda þeirra.
Einnig mun stúdentum á Nýja
Garði gefast kostur á að fá plöt-
urnar lánaðar til flutnings tón-
verka þar, en þar hefur nýlega
verið kornið fyrir vönduðum
.raúÍGifóni. ■ ,f * | í; í * t j f ?«l
UM þessar mundir má heyra og
lesa af fréttum útvarps og blaða,
að yfir standi samningar um
þýzkt fjármagn til byggingar
hraðfrystiluisa á Akureyri og í
Hafnarfirði. Af þessu tilefni
sendi ég frá mér þessar línur til
hugleiðingar fyrir alla þá, er
þessi mál varðar og vegna þess
að hér er um að ræða mjög ó-
venjulegar^leiðir til öflunar fjár-
magns. Virðist fyllsta ástæða til
þess að athuga hvað hér er að
gerast og hverjar afleiðingar
þetta ráðat.rugg getur haft fyrir
atvinnulíf ísiendinga.
Á síðast'.iðnum 15 til 20 árum
i hefur verio að þróast hérlendis
öll uppbygping einnar mikilvæg-
ustu útflutningsframleiðslu þjóð-
1 arinnar, maðfrysting sjávaraf-
urða. Fyrir stríð var þessi mikil-
vægi atvinnuvegur skammt á
veg komim og á tilraunastigi hjá
framsýnurn framleiðendum, sem
meira af vilja en mætti réðust í
að koma upp hraðfrystihúsum,
oft af miklum vanefnum en í ó-
bilandi trú á þýðingu hinnar
ágætu framleiðslu á ókomnum
árum eins og síðar reyndist rétt.
í byrjun stríðsins og öli stríðs-
1 árin jókst eftirspurn eftir hinum
ágæta hraðfrysta fiski og hrað-
frystihús þóttu sjálfsögð eitt eða
fleiri í öl.um helztu útgerðar-
stöðvum landsins. En hvernig var
þetta hægt á stríðstímum? Jú,
vélsmiðjur og fleiri inðnfyrirtæki
tóku hönd.um saman við útvegs-
menn, gerðu allt sem hægt var
til þess að byggja upp það, sem
með þurfti í fiskiðjunni. Mönnum
var kennt eins fljótt og hægt var
að setja upp frystivéiar, annast
vélgæzlu og í sumum vélsmiðj-
um var smíðað oft dag og nótt,
frystitæki, kælispíralar, kon-
densatorar, þvottavélar, hreist-
urvélar, færibönd og allt, er með
þurfti. Ini voru fluttar frysti-
vélarnar sjálfar og aflvélar, en
íslenzkar hendur og þeir örfáu
tæknimenntaðir menn er hér
voru til á stríðsárunum, sigruð-
ust á hlut"erkinu. Byggðu upp
tugi af nýjum frystihúsum og
stuðluðu að því með útvegsmönn
um, a ðaf'n þjóðinn hundruð mill
jóna í gjaldeyri fyrir auðseljan-
lega vöru. Auk þess héldu vél-
smiðjurnav gangandi óllum eldri
vélum öll rtríðsárin og smíðuðu
varahluti, og sannaðist hér hið
fornkveðna: „hollt er heima
hvað“.
Að stríðinu loknu voru hér
starfandi mjög fullkomnar vél-
smiðjur, sem þróuðust við hlið
blómlegra otvinnuvega, sem þær
stuðluðu að ásamt ótal iðngrein-
um öðrum, að koma upp. Þegar
hér var komið sögu, bættist þjóð
vorri góður liðskostur. Heim
komu ungir menn, sem aflað
höfðu sér staðgóðrar menntunar.
Verkfræðingar og vélfræðingar,
og nú kom ennþá fjörkippur í
afkastagetu og fjölhæfni vél-
smiðjanna, vélar voru teiknaðar
og nýsmiði jókst hröðum skref-
um. Framleiðslan varð fallegri
og betri og skipulagning fiskiðju
veranna batnaði, allt reynt að
miða við íslenzka staðhætti.
Byggð hafa verið glæsileg frysti-
hús síðustu árin, bæði hraðfrysti-
hús fyrir fiskafurðir og mjög
vönduð kjötfrystihús. En oft
verður efnahagur eigandast þess
valdandi rð iðnfyrirtækjum er
ekki leyft að gera eins vel og
þau geta. l'. d. er lítið um að full-
gera allan ytri frágang. Einangra
köld rör, flísleggja vélasali,
smíða úr ryðfríum efnum og þ. u.
I., en það má ekki skrifa slíkt
á kostnað verkfræðinga eða iðn-
aðarmanna. Allt er þetta hægt og
þannig langar okkur til að vinna
þegar efnahagur fyrirtækjanna
leyfir og allt stendur þetta til
bóta. Risaframkvæmdir hafa átt
sér stað í uppbyggingu hraðfrysti
húsa, beinmjölsverksmiðja og
allskonar íiskiðjuvera, og síðast
en ekki sízt hafa stærstu vél-
siijiðiumar snaíðað,. stájakip. Píu
hefur verið hafizt handa af svo
miklum nr.vndarskap, að furðu
gegnir hvorsu vel þeir eru vand-
anum vaxmr í byrjun, skipaverk-
fræðingar og iðnaðarmenn.
En af hverju er ég að rifja
þetta upp núna? Jú, það er vegna
þess, að h j/■ mér og mörgum öðr-
um vaknar spurningin. Á nú að
rífa fra’rtíðarmóguleika vél-
smiðjanna og ýmsra annarra iðn-.
greina niður með því að láta
Þjóðverja, í skjóli mikils fjár-
magns og fyrir milligöngu for-
stjóra Elliheimilisins, Gísla Sig-
urbjörnssonar, útvega og setja
upp öll pau tæki, sem íslenzkar
vélsmiðjur hafa annast í fjölda
mörg ár? Eðlilegra væri að því
fjármagni, sem aflað væri utan-
lands, væn varið til þess að
kanna nýjar leiðir og gera at-
vinnulífið fj.ölþættara, t. d. að
koma upp efnaiðnaði og til þess
að nýta n Vttúruauðæfi landsins,
svo sem með virkjun fallvatna
og hvera, svo nokkuð sé nefnt,
heldur en að afia erlends fjár-
magns, sem virðist bundið þeim
skilyrðum, að brjóta niður eina
eða fleiri af þeim iðngreinum,
sem hvað lengst er komin hér-
lendis, þ. e. járniðnaðinn.
Hér virðist því full ástæða til
þess að íhuga vandlega hvort
stofnanir eins og Framkvæmda-
bankinn ætti ekki einmitt að hafa
það hlutverk, að afla lána og sjá
svo um, að innlend fyrirtæki
annist allat þær framkvæmdir,
er þau geta leyst, því að láns-
fjárskortur þjáir svo innlend iðn-
fyrirtæki að til vanræða horfir.
Ástæða virðist einnig til þess
að íhuga, hvert fordæmi skapast
hér, ef íslenzk stjórnarvöld sam-
þykkja umrædda samninga og
veita þau ieyfi, sem ætlast er
til, sem ég þó vona að verði alls
ekki.
í Hafnarfirði eru þrjú hrað-
frystihús öll með ágæta stækk-
unarmögr.leika. Væri ekki full
ástæða til þess að stjórnarvöldin
skipuðu nefnd til þess að athuga
hver frystihúsaþörf er á hverjum
stað þegar um siíkt leyfi, sem
hér, er að ræða. Að slíkri athug-
un lokinni ætti að sjálfsögðu að
gefa innlendum fyrirtækjum ein-
um saman kost á, að gera tilboð
í öll slík verk, sem þau hæglega
geta leyst af hendi.
Hvað ætli Hafnfirðingar segðu
um það, að til boða stæði þýzkt
lán til þess að byggja samskonar
fyrirtæki og „Rafha", ætli þeim
fyndist það tilhlýðilegt, eingöngu
ef auðfengiff væri, að fá lanið t. d.
með því skilyrði, að vélarnar
verði allar þýzkar? Eg býst við
að mjög Tjðvelt værj fyrir Elli-
heimilisforstjórann að útvega
það og hata góða þóknun fyrir,
en ég tei, að aliir aðilar, sem
unna ísl. iðnaði, myndu mótmæla
því líku gerræði. Ég bendi að
eins á þetta eina atriði til þess
að sýna hverjar afleiðingar það
getur haft fyrir íslenzkan iðnað,
ef þessi ótögnuður verður ekki
stöðvaður. Ég vil einnig benda
hér á það. að vélsmiðjunum eru
nýsmíðar ’ífsnauðsyn til þess að
brúa bilið milli þeirra árstíma,
sem mest er að gera. Þegar skip
og öll framleiðslutæki starfa er
mikið unmð við viðhald og við-
gerðir, en þess á milli eru ný-
smíðar framkvæmdar. Það er oft
talað um árstíðabundið atvinnu-
leysi og hvernig bægja megi því
frá. Bezta lausnin er nýsmíðar,
en ef flytja á inn í iandið full-
unnar vélar og tæki, sem hér er
hægt að smíða, þá er árstíða-
bundnu atvinnuleysi boðið
Vélsmiðjurnar geta heldur ekki
risið undir því fjármagni, sem
bundið er í öllum hinum þjóð-
nauðsynlegu vélum, sem verða
að vera til i landinu vegna við-
gerða á skipum og stórvirkum
tækjum, ef nýsmíðinni verður
rænt af þeim.
Hér hafa verið settar fram hug-
leiðingar til athugunar íyrir þá,
sem vilja líta raunhæft á það,
hvaða aflo'ðingar lánastarfsemi
Gísla Sigurbjörnssonar getur
haft til ófarnaðar, ef lánin verða
ekki veitt án þess að binda þau
við kaup á fullunnum véium og
tækjum.
Þrátt fyrir alla tækni Þjóð-
verja, sem viðurkennd er, þá má
fullyrða, að þeir geti margt af
íslendingum lært við hraðfryst-
ingu fiskjar, og eitt er víst, að
ótal margt er það í rekstri hrað-
frystihúsanna íslenzku um
vinnubrögð og hagsýni, sem gæti
komið sér vel hinum þýzku verk
fræðingum sem hér eiga að
kynna sér hraðfrystihúsarekstur
og framieiða síðan tæki eftir ísl.
staðháttum. Menn ættu að íhuga,
að það bezta af hraðfrystihúsa-
framleiðslunni hér er talið það
bezta á heimsmarkaði. Varlegt
er því að álíta, að eigi muni þeir
hafa í huga meiri verkefni en
f'r”ír Hafnarfjörð og Akurcyri.
Nei, eftirmyndir af tækjunum í
frystihúsunum hér, framleiddar
í dýrum og góðum málmum, fyr-
ir þá sem nóg fjármagn hafa,
myndu koma sér vel fyrir keppi-
nauta íslands á heimsmarkaði
hraðfrystra sjávarafurða.
Væri ekki eimnitt núna hægt
að vænta þess, að Iðnaðarmála-
stofnunin léti til sín taka sem
ráðgefandi fyrir ríkisstjórnina
og gerði það að prófmáli, að sýna
hvaða áhrif sú öfgaþróun, sem
hér virðist vera um að ræða,
kann að hafa á gang iðnaðar-
málanna í landinu. Gæti það
einnig orðið leiðbeining iðnaðar-
mönnum hvernig hún tæki á
slíku máli, hvers þeir mega
vænta úr þeirri átt, þegar mikið
liggur við eins og nú.
Að lokum þetta. Iðnaðarmenn,
iðnverkfræðingar og vélsmiðju-
eigendur, mótmælið öllu þessu
ráðabruggi. Krefjist þess að
samningarnir verði iagðir á borð
ið og að öilum verði eert kunnugt
hvað hér er að gerast. Heimtið
öll þau verk, sem þið getið vel
af hendi leyst í hendur íslenzkra
verktaka.
fslenzkum stjórnarvöldum
treystum við iðnaðarmenn til
þess að veita engin þau leyfi, sem
eyðileggja starfsskilyrði iðnað-
arins í landinu.
Að endingu aðeins ein spurn-
ing til Gísla Sigurbjörnssonar,
forstjóra. Er það satt að greiða
eigi þeim þýzku milliliðum
600,000,00 — sex hundruð bús-
und krónur — í þóknun fyrir
undirbúning, eða 10% af sex
milljón króna láninu til hvors
frystihúss, auk 6% vaxta af allri
upphæðinni? Ef rétt reynist,
hvar er þá hin nýkjörna Okur-
nefnd? Þess má geta í þessu
sambandi, að þau erlend frysti-
vélafirmu, sem ég þekki til, láta
í té allar teikningar og upplýs-
ingar innifalið í verksmiðju-
verði, ef þau útvega allar vélar,
tæki og efftu Þessi sami háttur
er einnig á hgfður hér þegar um
samskonar illboð er að ræða.
Reykjavík 30. maí 1955'
Björgvin Fredriksen.