Morgunblaðið - 22.06.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.06.1955, Blaðsíða 1
16 sáður STÓRPÓLITÍSKIR DAGAR FRIÐARSAMTÖL í í SAN FRANCISCO • • KVOLDVEIZLUM Fegurstu stúlkurnar i Evrópu ; --------------------------* Spár Eisenhovrers og Churchiils um fjórvelda- fundinn TVEIR forystumenn vestrænna þjóða hafa lýst því, hvers þeir vænta af fjórveldafundinum í Genf. Eisenho-.ver forseti sagði í ræðu sinni í San Francisco í fyrrakvöld að fjórveldafundurinn kynni að skapa möguieika til þess að hægt væri að taka í sundur hina hræði legu vél ótta og kvíða, þó að því tilskyldu að aðilar skuldbindi sig til þess að fylgja stofnskrá Sam- einuðu þjóðanna. Winston S. Churchill sagði í ræðu í London í gær, að fjór- veidafundurinn kynni að þessu sinni e. t. v. aðeins að leiða til tímabils hvíldar, en á þessu tíma bili myndi vísindunum gefast tækifæri til þess að sýna blessun sína í öllum sínum mikilleik. Ef þetta tækifæri biðist kynnu við- horf manna að breytast og við- sjár að minnka. Enn dekraS við Nehru í Moskva MOSKVA, 21. júní. — Á stór- feldri samkomu, sem haldin var á Dynamo íþróttavellinum í kveðjuskyni við Nehru hinn ind- verska, sagði Bulganin m. a., að Sovétríkin og Indland muni reyna með sameiginlegu átaki að leysa Formósudeiluna með hagsmuni kínversku þjóðarinnar fyrir augum. Þegar Nehru steig í stólinn, var honum fagnað af 80 þús. viðstöddum með hrópinu: Frið- ur. — Nehru sagði að þátttaka Kína- kommúnista í Sameinuðu þjóð- unum væri skilyrði fyrir því að friður heldist í austurvegi. Nehru upplýsti í dag, að Bulg- ' anin hefði þegið boð um að koma ~ í vinarheimsókn til Indlands. — Bulganin fer þessa för sennilega ' næsta vetur. i Franskir íögreglu- menn handteknir vegna banatilræð- anna í Marekkó ' PARÍS, 21. júní. — Edgar Faure, forsætisráðherra Frakka, upp- ’ lýsti í franska þinginu í dag, að franska lögreglan hefði komizt á snoðir um félagsskap, sem 'vinnur gegn hermdarverkamönn- 1 um í Marokko. í þessum félags- skap taka þátt franskir menn. Mörg tilræðin, sem gerð hafa verið í nýlendunni undanfarið, hafa verið verk þessa félags- skapar. Átta menn hafa verið handteknir, þ. a. m. fjórir franskir lögreglumenn. Molotolf „lyftir hulunni“ í dug SAN FRANCISCO, 21. júní. ^NNAR fundur utanríkis- málaráðherra fjórveld- anna, sem haldinn er við veizluborð, hófst hér í San Francisco í kvöld. Gestgjaf- inn í kvöld var Pinay> utan- ríkismálaráðherra Frakka. í gærkveldi var gestgjafinn John Foster Dulles, utanríkis- málaráðherra Bandaríkjanna. — Að lokinni veizlunni í gærkveldi var tilkynnt að samtöl ráðherr- anna hefðu reynzt gagnleg til undirbúnings fjórveldafundinum í Genf í næsta mánuði. Fréttaritarar hér telja sig hafa heimildir fyrir því, að Molotov hafi ekki ennþá fallizt á tillögur vesturveldanna þriggja um til- högun stórveldafundarins í Genf, en segja að almennt sé álit- ið að hann muni ekki koma með mótbárur. (Fregnir frá París i gærkvöldi hermdu, að Frakkar myndu fall- ast á tillögu, sem væntanlega kemur fram um að stórvelda- fundurinn í Genf standi í sex daga í stað fjögurra). RÆÐA MOLOTOVS Sumir telja að hulunni, sem hvílir á samtölum utanríkismála- ráðherranna í San Francisco kunni að verða lyft á morgun, miðvikudag, er Molotov flytur afmælisræðu sína á þingi Sam- einuðu þjóðanna. Molotov hefir rætt við marga fulltrúa á þinginu og gefið í skyn við þá að ræða hans muni verða í anda friðar og sátta. (Bulganin forsætisráðherra Rússa, sagði á fjöladfundi, sem haldinn var í Moskvu í gær, að Sovétríkin myndu á Genfarfund- inum gera allt, sem í þeirra valdi stæði til þess að draga úr við- sjám í heiminum). í fylgdarliði Molotovs eru 47 menn, þar af margir lífverðir, en það hefir þó sérstaklega vak- ið athygli hve margir sérfræð- ingar í Austur-Asíumálum eru í fylgd með ráðherranum. Á þingi Sameinuðu þjóðanna í dag töluðu m. a. Harold Mcmill- an, utanríkisráðherra Breta, Spaak, utanríkismálaráðherra Belga, H. C. Hansen, forsætisráð- herra Dana. — Macmillan : sagði að Bretar myndu leitast við að gera Sameinuðu þjóðirnar að fullkomnu verkfæri í alþjóðlegri samvinnu. Spaak sagði, að einasta friðar- vonin í heiminum væri sú, að þjóðirnar hefði í heiðri grund- vallarreglur Sameinuðu þjóð- anna. ÞETTA eru fallegustu stúlk- urnar í Evrópu, en sú sem kjörin var sú allra fallegasta, er sjötta í röðinni, talið frá vinstri. Hún heitir Inga Britt Soederberg og er finnsk. Kjörið fór fram í Helsinki, höfuðborg Finnlands. Sú sem líklegust þótti til þess að hreppa titilinn „Ungfrú Evrópa“ er níunda í röðinni, talið frá vinstri og heitir ungfrú Suna Soley. Hún er frá Tyrklandi. Hún var kjörin önnur fegursta ung-! frúin í Evrópu og þriðja fegursta ungfrúin er á myndinni önnur í röðinni frá vinstri. Hún er frá París. Annars er röð ungfrúnna þessi (talið frá v.): Grikkland, Frakk- land, Svíþjóð, Holland, Ítalía, Finnland, Danmörk, Austurríki, Tyrkland, Þýzkaland, Belgía, Bretland og Sviss. Til Evrópu á Kon-iiki MONTREAL, 13. júní: — Fjórir menn — Kanadamaður og þrír Frakkar — hafa lagt upp í ,,Kon- tiki“ ferð yfir Atlantshaf, á fleka gerðum úr trjábolum cedarviðs. Flekinn er búinn seglum, en engar árar eru um borð. Fjórmenningarnir kalla flek- ann: „Hinn glataði“. Molotoff á abstrakt sýningu í New York NEW YORK í júní: — Tveir ráð- herrar frá Evrópu voru nýlega á ferð hér vestra og vörðu báðir nokkru af tíma sínum til þess að skoða málverkasafn. Adenauer kanslari varði klukkustund í ríkissafninu í Washington og fór fyrst í ítölsku deildina. Virtist hann einkum hafa áhuga á Bottecelli. í hollensku deildinni stóð hann góða stund fyrir framan tvö mál- verk Rembrandts, „Mylluna" og „Sjálfsmynd“. Molotoff fór að skoða „Metro- politan listasafnið" í New York. Rússneski utanríkisráðherrann hafði ekki komið til New York síðan árið 1946 og vakti að þessu sinni athygli á sér með því að fara í skoðunarferð um borgina. M.a. gekk hann um tuttugu mín- útna skeið um götur borgarinn- ar og olli með því nokkrum ugg meðal varðmanna sinna. Hann fór í heimsókn til Sameinuðu í þjóðanna og skoðaði byggingar þeirra, en þær var ekki búið að j reisa árið 1946. i í listasafninu, þar sem sýnd er nýtízku abstrakt list, fór honum eins og mörgum öðrum ferða- manninum, að hann varð skrít- inn á svipinn og spurði leiðsögu- mann sinn: „Hvað táknar þetta?“ En abstraktistar og aðrir istar eru flestir kallaðir „úrkynjaðir" í Sovétríkjunum. Samt sem áður sýndi Molotoff af sér þá hreysti — og kurteisi — er hann fór út Frh. á hls. 12. Hundruð millj. kr. tjón ai verkföllum LONDON í júní: — Járnbrautar- verkfallið brezka, sem stóð í sautján daga, mun hafa kostað hinar þjóðnýttu járnbrautir um sex hundruð milljónir króna. Mörg önnur fyrirtæki töpuðu stórfé. Þess er m. a. getið að einn stórbankanna hafi orðið að taka í þjónustu sína 65 almennings- vagna, sem kostuðu á dag milli 500 og 600 króna. 300 þús. kréna KONKONG: — Lögreglan hér hefir heitið allt að þrjú hundruð þús. króna verðlaunum fyrir upp lýsingar um tilræðið við ind- verzku flugvélina, sem flutti kín- verzku fulltrúana á Bandung ráð stefnuna í apríl. Upp hefir kom- izt að lítilli sprengju hafði verið komið fyrir í flugvélinni. Hafnarverkfallið að leysast LONDON, 21. júní. — Loks eru horfur á að hafnarverkfallinu í Englandi linni. Hafnarverka- menn í London hafa samþykkt að hefja vinnu að nýju n. k. mánudag. Átök eiga sér stað milli liafn- arverkamanna í London og í öðrum brezkum hafnarborgum, en þar vilja menn halda verk- fallinu áfram. 46 mlllj. kr. bætur vegna Le Mans slyssins LONDON í júní: — Sennilega verður það Lloyds vátrygginga- félagið í London, sem verður að borga bróðurhlutann af tjóninu mikla, sem varð er Mercedes- bifreiðin þeyttist yfir á áhorf- endapallana á Le Mans-kappakst urbrautinni í Frakklandi fyrir nokkru. Tjónagreiðslurnar eru taldar munu nema um milljón sterlingspundum eða um það bil 46 millj. króna. Bætur verða greiddar aðstand- endum 82 manna, sem fórust og hinna mörgu, sem særðust. Slysið í Le Mens þ. 12. júní vildi til með þeim hætti, sem hér segir: Fjórar bifreiðar nálguðust aðalstöð kappakstursbrautarinn- ar, um tveim klst. eftir að keppni hófst. Fremstur fór Hawthorn, sá er síðar sigraði í kappakstrin- um, á Jaguarbifreið Á eftir hon- um kom Macklin á Austin-Healy bifreið. Þriðji í röðinni var Frak-k inn Levegh á Mercedesbifreið. Sá fjórði var heimsmeistarinn í kappakstri, einnig á Mercedes- bifreið. Hawthorn, sá er fyrstur fór, fékk skyndilega merki um að nema staðar við aðalstöðvarnar. Hann hægði ferðina ört og bevgði til hægri. Macklin, á Austinbif- reiðinni hemlaði og eins gerði Levegh á Mercedesbifreiðinni, um leið og hann reyndi að sveigja til vinstri. Levegh rétti upp hægri hendina til þess að gefa félaga sínum á Mercedesbifreið- inni, sem var næst á eftir, merki um að hægja ferðina. En Levegh hafði sjálfur ekki nægilegt svig- rúm. Hann ók aftan á Austin- bifreiðina. Mercedesbifreiðin hófst bókstaflega á/loft eins og þrýstiloftsflugvél og hentist gegnum 6 feta háan vegg inn á áhorfendasvæðið. Austinbifreið- in þeyttist áfram eftir brautinni og ók yfir nokkra bifvélavirkja, Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.