Morgunblaðið - 22.07.1955, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.07.1955, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 22. júlí 1955 Las ísienzk blöð uppfíátt til að halda íslenzkukunnáttunni ú Rætt við vestur-íslenzka konu frá Scskafehewan í Kanada UNDANFARNAR vikur hefir dvalizt hér á landi vestur-ís- lenzk kona að nafni frú Jóna Halvorson. Frú Jóna er dóttir Bjarna Jónassonar frá Asi í Vatns dal í Húnavatnssýslu og konu hans Þórunnar Magnúsdóttur 'frá Kolgröf í Skagafirði, systur séra Jóns Magnússonar frá Mælifelli. Faðir hennar fluttist til Norð- ur-Dakota í Bandaríkjunum árið 1884, og er frú Jóna alin þar upp, en fluttist til Kanada árið 1911 og er nú búsett í Regina í Saskat- chewan í Kanada. Maður hennar var af norskum ættum. Lét hann mikið til sín taka í opinberum málum í Sastkatchewan og sat um skeið á þingi, en gegndi lengst um ábyrgðarmiklum stöðum á stjórnarskrifstofum. ★ ★ ★ Frú Jóna talar merkilega vel íslenzku, þó ao ’nún hafi ekki haft tækifæri til að nota málið neitt að ráði síðan árið 1933. íslenzka var að sjálfsögðu töluð á æsku- heimili hennar, og síðan hefir frú Jóna haldið íslenzkukunnáttunni við með því að kaupa íslenzk blöð og lesa fréttir og greinar upphátt fyrir sjálfa sig, enda er framburð- ur hennar tiltölulega laus við er- lendan hreim. Er þetta í fyrsta skipti, sem frúin kemur til Ísíands. Það var hreint ekki auðhlaupið að því að hitta frú Jónu að máli. Hún hefir verið önnum kafin við að hitta íslenzka kunningja, er hún kynnt ist í Vesturheimi, og kynnast skyldfólki sínu. Og hún hefir not- að hverja stund til að sjá sig um í landi forfeðra sinna, sem svo oft barst í tal á heimili henn- ar í Norður-Dakota. ★ ★ ★ — Og hvernig líkar yður rign- ingin? — Ég man aðeins eftir björtu dögunum og gleymi rigningunni, segir frú Jóna hressilega og fjör- lega. Þetta heíir verið reglulegt ævintýri, og ég hefi átt hér marga yndislega daga. Ég trúi því varla enn, að ég sé raunverulega stödd hér. Það eru að vísu mikil við- brigði að koma í svo rakt lofts- lag, en öll sú hlýja og vinsemd, sem ég hefi mætt hér hjá öllum, er ég hefi kynnzt, hefir sannar- lega bætt það upp. Hér í Revkja- vík hefir frú Jóna dvalið hjá Þor- steini Jónssyni, ritböfundi og konu hans. Það kom mér nokkuð á óvart, hvað framfarirnar hafa orðið hér gífurlega miklar. Þó að ég hafi lesið um það, þá stingur það svo mjög í stúf við það ísland, sem foreldrar mínir töluðu um — en fjöllin, lækirnir og dalirnir eru samt þeir sömu. ★ ★ ★ Frú Jóna hefir farið austur til Þingvalla og skoðað umhverfi Reykjavíkur og vonast eftir því að fá tækifæri til að sjá Gxillfoss og Geysi í sólskini, þó að nú fari að styttast í dvöl hennar hér. Einnig hefir hún farið til Norður- lands, Akureyrar, Húsavíkur og um æskustöðvar foreldra sinna í Húnavatnssýslu og í Skagafirði. Leiðin frá Húsavík til Akur- eyrar er mjög falleg. Fyrir þann, ■ sem ekki á slíku að venjast er yndislegt að sjá lækina spretta upp undan klettunum í fjallshlíð- tinum, segir frú Jóna. Saskatche- wan-fylkið liggur — eins og kunn ugt er — á sléttunum miklu í Mið | Kanada, og frú .Jóna hefir aðeins tvisvar haft tækifæri til að fara vestur í Klettafjöllin. Sat frú Jóna fund Sambands norlenzkra kvenna meðan hún dvaldist fvrir norðan, og kvaðst hafa haft mikla ánægju af því að kynnast hús- Ný bók eftir Kiljan NÝ bók er komin út eftir Halldór Kiljan Laxness. Nefnist hún Dag- ur í senn og ber undirtitilinn Ræða og rit. Helgafell gefur bók- ina út. í bókinni eru um 40 rit- gerðir og ræður um hin sundur- leitustu efni. Þar er grein um Kjarval, vegi og viskí, listkúgun, afmælisgreinar og margar grein- ar um afstöðu höfundar til frið- armálanna í heiminum og um sósíalismann. Viðbætir er við bókina. Eru það ritgerðir skrifaðar af ýmsum tilefnum, ýmist á ensku eða dönsku og birtast óþýddar. Efnugos Frú Jóna Halvorson freyjunum frá bændaheimilun- um, er sátu fundinn. ★ ★ ★ Skagafjörður og Vatnsdalur þótti henni fallegar og búsældar- legar sveitir og dáðist að því, hve víða væri þar vel hýst, sími á hverjum bæ og svo víða nýtízku upphitun, olíukynding eða jarð- hiti. Einnig vakti vélvæðingin í sveitunum mjög athygli hennar. Á Sauðárkróki dvaldi ég í heila viku í góðu yfirlæti hjá séra Helga Konráðssyni og konu hans, Jóhönnu Þorsteinsdóttur. Vegirnir hér finnst mér merki- lega góðir, segir frú Jóna. Ég hafði að vísu heyrt miklar sögur af því, hve vondir þeir væru, svo að sennilega hefi ég átt von á öllu illu. Ég held, að það sé ástæða til að geta þess, að á fá- um stöðum hefi ég hitt fyrir jafn prúða og lipra menn og bifreiða- stjórana á langferðabílunum hér á landi. ★ ★ ★ — Fannst yður landið ekki gróðurlítið? — Heiðarnar finnst mér reynd- ar auðar og hraunin grá og dimm — a.m.k. í rigningunni. — En hér er mjög mikið af fallegum görðum í bæjunum og sveit- irnar búsældarlegar. Það, sem hafði hvað mest áhrif á mig, er kyrrðin, sem mér finnst ríkja hér, meira að segja í Reykja vík. Ég held, að fólk hljóti að lifa hér kyrrlátara lífi en við gerum vestan hafs. ★ ★ ★ Eftir lát manns síns árið 1943 tók frú Jóna aftur til við sín fvrri störf, en hún hafði unnið á stjórn- arskrifstofu, áður en hún giftist. Eftir að hafa unnið í 12 ár ákvað hún að hætta í vor og leggja upp í ferðalagíð, sem hún hafði lengi áformað. Við hjónin höfðum lengi ætlað að ferðast til Norðurlanda, einkum um Noreg og ísland, en aldrei varð úr því, og nú þótti mér tími til kominn að leggja land undir fót, segir hún. Frú Jóna fer flugleiðis til Kaup mannahafnar á laugardaginn. Mun hún þar hitta dóttur sína — eina af þrem — og ferðast með henni og tengdasyni sínum, sem er lútkerskur prestur, á skemmti ferðaskipinu ,,Stockholm“ þvert yfir Atlantshafið til New York. Þaðan fara þau með bifreið heim til Regina. ★ ★ ★ Kveðst hún hlakka til þess að geta nú lesið fréttir að heiman af meiri áhuga og skilningi, þar sem hún hefir haft tækifæri til að sjá sig hér um. Áðu.r hafði ég mesta gleði af því að lesá fréttir frá þeim héruðUm, sem ég þekkti vel af umtali foreldra minna, en nú þekki ég svo margt héðan af eigin sjón og raún, segir frú Jóna. Bað frú Jóna blaðið að koma SIKILEY, 21. júlí — Eldfjallið Etna á Sikiley tók að gjósa aft- ur seint á fimmtudagskvöldið. Nýr gígur opnaðist á austurhlíð- um eldfjallsins og sprengingar í honum sendu glóandi hraungrjót- ið hátt í loft upp. Fyrstu fregnir herma að hraunið streymi nú frá gígnum og þetta gos er talið mun hættulegra en gosið í norð- austurhlíðinni nú nýlega. —Reuter. Minningarorð Gylfa Kristins verzlnnoracBB nm in w ENN setur hljóða, þegar þeir heyra slíka harmafregn, að tvítugur maður, hraustur og hress, hafi farizt, lífsskeiði hans sé í einni svipan lokið. Þá eins og oft endranær er erfitt að átta sig á lögmálum lífs og dauða. Gylfi Kristinsson, sem er bor- inn til grafar í dag, var fæddur 7. marz 1935 hér í Reykjavík. Foreldrar hans eru Emilía Björg Fétursdóttir og Kristinn J. Mark- ússon, kaupmaður í Geysi. Gylfi heitinn ólst upp við óvenju mikið ástríki á hinu myndarlega og fagra heimili for- eldra sinna, en hjá þeim hefur ávallt verið efst í hugg ham- ingja og velferð barnanna fimm og þá ekki sízt yngsta barnsins og einkasonarins. Gylfi gekk í Verzlunarskóla ís- lands og útskrifaðist þaðan með góðri 1. einkunn vorið 1953. Fór hann þá til Englands til fram- haldsnáms, en hóf starf í verzl- uninni hjá föður sínum s.l. haust. Undirbúningi var lokið, starfið var að hefjast, og framundan virtist liggja beinn og breiður Þorsteinn Þorsteinsson sýslumaður og frú Áslaug Lárusdóttir. DalameRn kveifa frá- farandl sýsSunsas3B3 slnn Þorsteini Þorsteinssyni og frú Áslaugu Lárusdétfur haSdið veglegt samsœti í Búðarda! SÍÐASTL. laugardag kvöddu Dalamenn Þorstein fyrverandi sýslumann og frú Áslaugu Lárusdóítur konu hans með veglegu samsæti, sem þeim var haldið í Búðardal. Var þar saman komin fjöidi fólks úr öilum hreppum Dalasýslu, samtals um 140 manns. Voru þarna haldnar margar ræður og fráfarandi sýslumanni þökkuð mikil og góð störf, bæði sem yfirvald sýslunnar í 35 ár og alþingismaður hennar í fjölda ára. RÆBUR OG ÁVÖRP Friðjón Þórðarson, hinn nýi sýslumaður Dalamanna, setti sam sætið með ávarpi og bauð gesti velkomna. Aðal ræðurnar fyrir minni heiðursgestanna fluttu hreppstjórarnir Jón Sumarliða- son á Breiðabólsstað og Sigtrygg- ur Jónsson, Hrappsstöðum. Þá mælti séra Eggert Ólafsson á Kvennabrekku sérstaklega fyrir minni frú Áslaugar Lárusdcttur. Aðrir ræðumenn voru þessir: Séra Pétur T. Oddsson prófast- ur, Hvammi, séra Þórir Stephen- sen, Tjaldanesi, Ásgeir Bjarna- son alþingismaður, Ásgarði, Hall d.ór Sigurðsson frá Staðarfelli, Guðmundur Ólafsson oddviti, Ytrafelli, Geir Sigurðsson bóndi, þökkum áleiðis til allra þeirra er gert hefðu henni dvölina hér svo skemmtilega og ánægjulega. Við þökkum frú Jónu spjallið og ósk- um henni góðrar heimferðar. Slík ir gestir sem hún eru alltaf au- fúsugestir á íslandi. G. St. Skerðingsstöðum, Hallgrímur Jónsson póstafgreiðslumaður, Búðardal, Klemenz Samúelsson, bóndi, Gröf, Guðmundur Ás- mundsson bóndi, Krossi, og Aðal- steinn Baldvinsson oddviti, Braut arholti. Aliir báru ræðumenn fram þakklæti og árnaðaróskir til Þor- steins Þorsteinssonar fyrir langt og giftudrjúgt starf í þágu hér- aðsins. Við þetta tækifæri voru þeim Þorsteini Þorsteinssyni og frú Ás- laugu konu hans afhentar vegg- myndir úr eir af þeim sjálfum, gerðar af Ríkharði Jónssyni. Enn fremur skrautritað ávarp frá Dalamönnum. vegur. Gylfi sjálfur hafði marg- víslegar framtíðaráætlanir, og þá má nærri geta hvílíkar vonir foreldrar hans og ástvinir bundu við framtíð hans. Hann var ekki sízt dáður af systrum sínum, sem voru hreykn- ar að eiga þennan myndarlega bróður, og með honum og mág- um hans höfðu myndazt sterk vináttubönd, þótt aldursmunur væri töluverður. Þótt Gylfi byggi við góðar efnalegar aðstæður foreldra f uppvextinum, myndaðist fljótt sú löngun hjá honum að sjá sjálf- um sér sem mest farborða. Vann hann ýmist í sveit eða var við verkamannavinnu á sumrum meðan hann sat í skóla, og verzl- unarstarfið hóf hann með mikl- um áhuga. Gylfi var bjartur og fríður sýnum, mjög hár vexti, karl- mannlegur á velli og bauð af sér sérstaklega góðan þokka. Hann var hressilegur, en um leið eðli- legur og glaðlegur í framkomu, ræðinn, og skemmtilegur í við- ræðum, hjálpfús og greiðvikinn, enda sérstaklega vinmargur og vinsæll, en að sama skapi trygg- ur vinum sínum. Mér hefur ver- ið sagt, að aðeins þá hafi hann sézt bregða skapi, ef hallað var einu orði á vini hans. Gylfi hafði mikið yndi af úti- veru og varði tómstundum sín- um oft við Þingvallavatn, þar sem foreldrar hans áttu sumar-: bústað. Stundaði hann þar veiðar oft á tíðum og hafði rétt áður en hann lézt aílað sér nýs utan- borðsmótors. Fór hann gjarnan, þegar tök voru á, austur, eftir Þorsteinsson ! vinnutíma á kvöldin. Síðasta ferðin var farin fimmtudags- kvöldið 14. júlí, eftir að hannj sótti lyklana að sumarbústaðn- um og kvaddi foreldra sína með þeim ummælum sínum og áminn- ; ingu þeirra, að vera ekki mjög seint á ferðinni heim. Orðum hans var hægt að treysta og því voru foreldrarnir íarnir að undr- ast um hann ókominn nokkru í eftir miðnætti. Barst þeim þá harmafregnin um sonarlát. En á banastund kom fram æðruleysi, ósérhlifni og ábyrgð- artilfinning Gylfa, sem aðstand- endur og vinir minnast nú með þakklæti og virðingu. Við biðjum, að góður Guð mildi sorg ástvina og hugljúfar minningar græði harmasár. Blessuð veri minning Gylfa Kristinssonar. Geir Hallgrímsson. ÞAKKIR SÝSLUMANNS Þorsteinn Þorsteinsson kvaddi sér að lokum hljóðs og minntist veru sinnar í Dölum. Þakkaði SKiPAttTCiCRÐ L RIKISINS hann Dalamönnum með hlýjum orðum allt samstarf í 35 ár og árnaði þeim allra heilla fyrir sina hönd og konu sinnar. Samsætið stóð fram á nótt og fór í öllu hið bezta fram. ici inp“ fer til Vestmannaeyja Vörumóttaka í dag. kvöld. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.