Morgunblaðið - 24.11.1955, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 24. név. 1955
yfirtitsmyml yiir i»órshöjn tekin í suntar. Við brygsju eiu bæði færeyska farþegaskipið „Tjaldur" og hin danska „Dronning Alexandrine“. — Ljósm.: Gunnar Skúlason.
Þórshöfn i Færeyjum á þrjii nýtízku hótei en menn
vekCn ni pnnlu uiit úfengi i pósti frd Kunpmonnnhöfn
I^ÖFUBSTAí-UR Færeyja her-
'11 ir á1:ka marg* ibúa og Hafn-
arfjörður eða urn t.00'0. Liggur
Þórshöfn rnjög miðsvæðis í eyi-
unum og er því afar h'ntug sem
miðpunktur sarngangna innan
eyja.
"Aðal athafnasvæði bæjarins er
sjjálf hö'nin' og er’hún mjög rúm-
g$ð. Getur hún rúmað fjölda
fiskiskipa í einu. s'’c og nokkur
millilanda- og fiutningaskip. Hafa
undanfarin ár farið fram tölu-
verðar endurbætur á höfninni.
Steyptur hefir verið allstór hafn-
argarður og var grjótið í hann
sott í klöpp eina allháa, sem stóð
alvég niður við höfnina, en er nú
að rriestu leýti horfin. og við það
hefir skapazt allstórt athafna-
svæði í viðhót. sem notað verður
til geymslu á kolum og salti,
brotajárni o. fl.
KOLAGEYMSLUR OGÍ
SALTFISKVERZLUN
Er þegar hafin bygging á húsi
tii geymslu kola, á þessu nýja
svæði, en eins og kunnugt er, eiga
Færeyingar sinar eigin kolanám-
ur á Suðurey náiægt bænum
Kvalba. Eru lcolin flutt til Þórs-
ar er sjálfvirkur sími, bussur
eg eitskur dansur
hafnar á smábátum. Mikfll út-
ilutningur á brotajárni er frá
Færevjum árlega.
Við höfnina stendur allstór
saitfiskverkunarstöð, sem Færey-
ingar nefna Baccalaho-virkið. Er
þessi stöð alveg ný og framleiðir
mikið af saltfiski til útflutnings.
NÝTÍ7KU IIÓTEL
í Þórshöfn eru fjögur gistihús,
Rctel Hafnia, Hótel Fþroyar, Sjó-
mannaheimið og Hótel Perlan.
Kin þrjú fyrst nefndu voru bvggð
árið 1950 og síðar. Eru þetta ný-
tízku liótel og mjög glæsileg.
LÖGÞINGSHÚS
VI» HÆNSNAPRIKIÐ
Lögþingshúsið i Þórshöfn er
gamalt, en virðulegt timburhús,
sem stendur við fallegan trjágarð
við „Lækjartorgið“ í bænum,
Hótel Fproyar, eitt af þremur riýtízku-gistihúsum, sem reist hefur
verið í Þórshöfn siðustu ár.
sem heitir að vísu Vaglið, á fær-
evsku. (Vagl þýðir aftur á móti
hænsnaprik og Vaglið merkir þá
þann stað, þar sem fólk safnast
saman. hallar sér upp að grind-
verki og ræðist við). Lögþing
Færeyja kemur saman á Ólafs-
vökunni, sem haldin er í Þórs-
höfn 28.—29. júlí ár hvert. Er
það sett með hátíðlegri viðhöfn
við þinghúsið, að aflokinni guðs-
þjónustu í Havnar-kirkju.
DÖNSK FRÍMERKI
I Færeyjum sér danska póst-
stjórnin um póstmálin. í Þórs-
höfn er nýtt, allstórt pósthús, sem
byggt var fyrir nokkrum árum.
Er afgreiðslusalurinn í því tölu-
vert stærri en afgreiðslusalurinn
í pósthúsinu í Reykjavík. Notuð
eru dönsk frímerki á póstsend-
ingar. Á stríðsárunum síðustu
komust póstafgreiðslurnar í Fær-
eyjum næstum því í þrot með frí-
merki. Var þá tekið til þess ráðs
að klippa í tvennt, horn í horn,
þau frímerki, sem eftir voru og
þau límd á bréf og aðrar send-
ingar þannig. Eru þessi sömu
merki í háu verði á frímerkja-
markaði heimsins nú.
VÖRUR PANTAÐAR í PÓSTI
Langmestur póstur til Færeyja
herst að sjálfsögðu frá Kaup-
mannahöfn. Mikið magn af vör-
um kemur póstleiðis, enda eru
póstgjöld fremur lág. Fólk pantar
mibið af vörum, einkum fatnaði,
frá vöruhúsunum í Kaupmanna-
höfn, aðallega Daells-vöruhúsi og
Sommers. Koma þessar vörur i
pósti. Mest allt áfengi kemur
einnig með pósti til Færeyja. Eng
in opinber áfengisútsala er í Fær-
eyjum, en fólki er heimilt að
panta áfengi í 12 flaskna kössum
minnst, frá Danmörku, að fengn-
um áfengisskömmtunarseðli, sem
heitir á færevsku, rúsdrekka-
skammtanakort. Á þessu ári hefir
mikið verið um það rætt á Lög-
þinginu, að breyta þessu fyrir-
komulapi og um leið allri áfengis-
löggjöfinni, en endanleg ákvörð-
un hefir ekki verið tekin ennþá.
SJÁLFVIRKUR SÍMI
OG STRÆTTSVAGNAR
Sjáifvirkur sími er í Þórshöfn
og símsföðin er nýtt hús, byggt
fyrir fáum áru. Stendur það á
fallegum stað, miðsvæðis í bæn-
um, við smekklegan trjá- og
blómagarð, og rennur lækur í
gegn um hann og áfram undir
Vaglið (Lækjartorg) og Áar-
veginn (Lækjargat.a). Er Áar-
vegurinn byggður yfir lækinn,.
líkt og Lækjargatan í Reykjavík. 1
Við Vaglið er aðalstöð strætis- I
vagna bæjarins, sem Færeying- '■
ar kalla bussurnar. Töluvert er
af bílum í Þórshöfn. Er það at- •
hyglisvert, að það eru nær ein-
göngu Fordbílar. Er umferð mjög
hröð á götum bæjarins og flauta
bílar fyrir hvert horn. En það er
nauðsynlegt vegna þess hve flest-
ar göturnar eru þröngar og mörg
hættuleg horn, einkum við hús.
sem skaga út í götu. Þrjár leigu-
bílastöðvar eru í bænum.
skógi, en að vísu mest á sumrin.
Skóginum er mjög vel við haldið,
grisjaður öðru hvoru og hreins-
aður. í honum miðjum er Htil
tjörn, þar sem svanir og endur
synda. Við þessa tjörn fer fram
hátíðleg athöfn á hverju sumri,
þegar stúdentar útskrifast úr
menntaskólanum i Þórshöfn, í
lok júní. Eru þá ræðuhöld, lúðra-
sveit spilar, og hrópað er húrra
Frh. á bls. 19
PARADIS
FORNLEIFAFRÆÐINGA
í Þórshöfn er til allgott forn-
gripasafn, sem Forngripagoymsl-
án heitir. Er þar geymt mikið af
gömlum munum, sem fundizt
hafa víða um eyjarnar, en því
miður fer mikið af slíkum grip-
um á Þjóðminjasafnið í Kaup-
mannahöfn. Margt hefir fundizt
af forngripum í Kirkjubæ á und
aníörnum árum, enda er stöðugt
unnið að uppgreftri þar. Má
segja, að Kirkjubær sé heil para-
dís fyrir fornleifafræðinga, svo
mikið hefir fundizt þar og komið
í ljós við uppgröftinn þar.
HÁTÍÐAHÖLD STÚDENTA
Rétt fyrir ofan Þórshöfn er
fallegur skógur með allháum
trjám. Var honum plantað fyrir
mörgum árum, og hefir árangur-
inn orðið góður. Margar fugla-
tegundir, sem áður fundust ekki
í Færeyjum, eru nú í þessum
Minnismerki á fæðingarstaff
fjrsta íslendingsins, sem hlaut
Nóbelsverðlaunin, Níelsar Fin-
sens. En, sem kunnugt er, var
faðir hans landstjóri danska rík-
isins í Færeyjum. Hafði Níels i
æsku höggvið staíina sína, N R F,
í steinklöpp, sem nú hefur veriff
rammlega afgirt og vernduð. —
Húsið í baksýn er aðsetur ríkis-
umboðsmannsins, sem nú er El-
kjær Hansen. Þetta er samt ekki
sama húsið og Finsen bjó í.
1
Þessi hluti Þórshafnar nefnist Kóngabúðin við Vestaravog. í júli
1954 var í þessari vík eitthvert mesta grindadráp, sem þekkzt
hefur í mörg ár. Um 150 hvalir voru drepnir. Fyrir miðri mynd-
inni er Sjóvinnubankinn, sem frægur varð fyrir hið mikla sakamál,
sem við hann er kennt og nýlega var dæmt í.