Morgunblaðið - 30.12.1955, Page 1
16 síður
42. árgangur
298. tbl. — Föstudagur 30. desember 1955
Prentsmiðja Morgunblaöetns
Uppdráttur af svæðinu við norðurenda Tjarnarinn ir. Ramminn sýnir það svæði, sem Ráðhúsinu er
ætl ð
Ráðhúsinu valinn staður
Æðstaráðið lauk fundum í gœr
Hefur Krusjeff
ndð yfirhöndinni?
Moskva, 29. des. Reuter-NTB.
ÆÐSTARÁÐ Sovétríkjanna lauk í dag fundum sínum eftir að
hafa samþykkt skýrslu Krusjeffs og Bulganins um för þeirra
suður til Indlands, Burma og Afghanistans. Tóku þeir báiðk til
máls — og sagði Krusjeff m. a., að brezkir ráðamenn í Indlandi
hefðu verið ránsmenn í orðsins fyllstu merkingu.
viú n&rðurenda
íjarnarinnar
Allii bæiarfalitrúiir samþykkja
tillöga borgarst|óra ó fundi
bæjarstjérnorinnar í gærkvöldi
1G Æ B kom til umræðu og atkvæðagreiðslu á bæjar-
stjórnarfundi sú till. borgarstjóra, sem skýrt var frá
i blaðinu í gær, að Ráðhúsi Keykjavíkurbæjar yrði valinn
staður við norðurenda Tjarnarinnar.
Borgarstjóri tók fyrstur til máls; gerði hann grein fyrir
aðdraganda og efni tillögunnar og fer útdráttur úr ræðu
hans hér á eftir.
LANGUR AÐDRAGANDI
Hugleiðingar og umræður um
Ráðhús í Reykjavík eiga sér lang-
an aldur og aðdraganda. Eitt hið
íyrsta, sem um þetta mál er rit-
að, er í ritgerð eftir Tómas Sae-
mundsson, sem birtist í tímarit-
inu Fjölni árið 1835. Þar ræðir
Tómas framtiðarskipulag Reykja-
víkur og vikur að torgi, þar sem
meðal annara stórhýsa þurfi að
standa „ráðstofa“.
Það elzta sem er um þetta mál
í plöggum bæjarstjórnarinnar er
írá árinu 1918, en þá ræðir Knud
Ziemsen borgarstjóri, á bæjar-
stjórnarfundi um skipun nefnd-
ar til að athuga stað fyrir Ráð-
hús. Upp úr þessu var það, að
borgarstjórinn skrifaði ríkis-
stjórninni bréf, þar sem óskað er
eftir, að hún láti bænum í té lóð
á Arnarhólstúni fyrir Ráðhús. —
Ekki sést að svar hafi íengizt eða
máiinu hafi síðar verið haldið
íram.
Frá 1920 til 1940 er oft rætt um
stað fyrir Ráðhús, bæði í bæjar-
stjórn, blöðum og mannfundum.
Stungið var upp á mörgum stöð-
um, m.a. var talað um Skóla-
vörðuhæðina, en það þótti fjar-
stæða, vegna þess hve langt hún
væri út úr bænum. Á árinu 1941
var kosin ráðhúsnefnd, en í henni
voru Guðmundur Ásbjörnsson,
Bjarni Benediktsson, Jónas Jóns-
•on, Jón Axel Pétursson, Helgi
H. Eiríksson og Sig. Thoroddsen,
yngri
Þessi 6 manna undirbúnings-
nefnd fjallaði um málið og í maí
1943 samþ. nefndin einróma að
Sex manna undirbúningsnefnd
fjallaði um málið og í maí 1943
samþykkti nefndin einróma að
mæla með því að Ráðhúsið yrði
staðsett á uppfyllingu nyrzt í
Tjörninni, en að Tjörnin yrði
stækkuð annars staðar því tii
uppbótar, sem þarna misstist. —
Máiið var rætt á bæjarstjornar-
fundi 20. maí 1943, en tillagan
um staðinn kom ekki til atkvæða.
HUGiMYNDASAMKEPPNI
Þessi uppástunga vakti mikil
blaðaskrif og ýmsar éistæður
voru færðar fram gegn henni.
Það helzta var að slík stórbygg-
ing mundi skerða Tjörnina um
of og auk þess væri þarna því-
líkt kviksyndi, að það væri bæði
illt og dýrt að byggja.
Á næsta ári er bæjarstjórn bú-
in að taka aðra stefnu því þá
ákveður hún að reisa skrifstofu-
hús fyrir bæinn og stofnanir
hans norðanvert í Arnarhólst-
túni. Málið var undirbúið og út-
boð gert, en framkvæmdir féllu
niður. í árslok 1945 var efnt til
hugmyndasamkeppni um Ráðhús.
Skyldi þar miðað við þrjá staði,
norðurenda Tjarnarinnar, Grjóta
þorpið gegnt Austurstræti og
loks syðri hluti Grjótaþorps-
ins að Túngötu. Dómnefndin
vnai engin ryrstu verðlaun veita
en 2. verðlaun voru veitt fyrir til-
lögu um Ráðhús á lóð Miðbæj-
arbarnaskólans og á lóðinni sunn
an tíOKmöðustigs. 3. verðlaunum
var skipt milli tveggja manna,
sem iögðu til að húsið yrði byggt
í Vonarstræti. Allar tillögurnar,
sem Komu fram miðuðust við
j Tjörnina, en engin við Grjóta-
þorpið.
I
EINROMA TILLAGA UM STAÐ
NORÐAN VIÐ TJÖRNINA
j í marz 1952 ósKaði núverandi
borgarstjóri eftir því, að skipu-
lagsnefnd léti í té álit um alla
staði, sem orðaðir hefðu verið í
sambandi við ráðhúsbyggingu.
Álit barst í ágúst 1952 og
fjallaði það um 16 staði, sem
ncfndin sérstaklega tók til
ineðferðar, en niðurstaðan var
sú, að hún mælti einróma með
norðurenda Tjarnarinnar.
Nefndin tók fram, að ef það
yrði álit bæjarstjórnar að Ráð-
húsið ætti að standa fyrir utan
hinn gamla kjarna bæjarins, þá
yrði því valinn staður við Háa-
leiti, við syðri bakka grjótnáms
hafnarinnar.
Borgarstjóri fól síðan bæj-
arverkfræðingi að athuga
aðstöðu til byggingar við norð
urenda Tjarnarinnar. Voru
boranir gerðar og gáfu
4 verkfræðingar það álit að
ekkert væri því til fyrirstöðu,
tæknilega séð eða vegna kostn
aðar, að byggja Ráðliúsið við
Tjarnarendann.
HVE STÓRT Á RÁÐHÚSID
AÐ VERA
Skerðing Tjarnarinnar var allt
af helzta mótbáran, en þó er
stærð hússins auðvitað meginat-
riðið, en í því sambandi verður
að gera sér grein fyrir nokkrum
megin sjónarmiðum, svo sem
þeim, hvaða hlutverki slikt hús
eigi að gegna, hvort eigi að safna
saman öllu, sem viðkemur bæn-
um og stofnunum hans. Fyrir 10
til 12 árum var jafnan hugsað um
stórt hús eða minnst 40—50 þús.
rúmrn., en það er jafn stórt hús
og Háskólinn, Sjómannaskólinn
og Heilsuverndarstöðin til sam-
ans. Augljóst var að svo stórt
hús væri ekki hægt að byggja,
Frh. á bls. 2
Selwyn L!oyd
LONDON, 29. des. — Hinn nýi
utanríkisráðherra Breta, Selwyn
Lloyd, tók í dag í fyrsta skipti á
móti sendifulltrúum erlendra
ríkja. Það er venja erlendra
sendimanna í London, að ganga á
fund utanríkisráðherra eftir að
ráðherraskipti hafa orðið. í dag
var það ambassador Norðmanna,
sem fyrstur gekk á fund hins ný-
skipaða utanríkisráðherra. Hon-
um fylgdu ambassadorar Svíþjóð-
ar, Kúbu, ísraels og Brazilíu.
— Reuter.
yfirtýsing
LONDON, 29. des. — Undirbún-
ingi að stofnun lýðveldis í Súdan
fer nú brátt að verða lokið.
Egypska stjórnin lét þess getið
í dag, að Egyptaland og Bretland
mundu viðurkenna sjálfstæði
Súdan í sameiginlegri yfirlýs-
ingu. Nefnd stjórnarinnar er nú
á förum héðan til Kairo til þess
að vinna að yfirlýsingu þessari.
ÓTTAST ER UM
HOLLENSKT
SKIP
BLYTH, 29. des. — Saknað er
hollensks skips, Rudy, að nafnl.
Er skipið 211 smálestir að stærð
og áhöfnin 10 menn. Ekkert hef-
ur til skipsins spurst í tvo daga
— eða frá því að það lagði upp
frá Elva Tees á leið til Blyth á
austurströnd Englands. Skipstjór
inn er eigandi skipsins. Ef enn
verður ókunnugt um afdrif Rudy
á morgun, mun enski flugherinn
hefja leit að skipinu i birtingu.
—Reuter.
Páfinn fordæmir
kommiíniskt réttarfar
RÓM, 29. des. — Píus páfi 12.
fordæmdi enn í dag hina órétt-
mætu fangelsun Wyszynski
kardínála og hinar taumlausu og
ofstækisfullu aftökur kirkjunnar
manna í Póllandi. Kardinálinn
var handtekinn í Varsjá í sept.
1953 og hefur verið í haldi þar
síðan án réttarhalda eða sekt-
arsönnunar. Sagði páfi, að slíkt
framferði væri fordæmt af öllum
þjóðum þar sem frelsi væri ekki
orðið tómt. —Reuter.
TVÍÞÆTT STEFNA
í UTANRÍKISMÁLUM
Fundur ráðsins hefur staðið
frá 26. þessa mánaðar, og hafa
mörg mikilvæg mál veríð þar
til umræðu. Eftir umræðurnar
um utanrikismálin er það sýnt,
að stefna Rússa í utanríkismálum
og samvinna þeirra við önnur
lönd mun í framtíðinni verða
tvíþætt.
í fyrsta lagi munu þeir hafa
nána samvinnu við öll þau
ríki, sem þess óska — og þá
sérstaklega A.úurikin. I öðru
lagi mun samband þeirra og
samvinnuviðleitni viff Vestur-
veldin verða takmörkHff svo
sem hingað tii, og' mm verða
bundin þeim ályktunum, er
leiðtogarnir gerðu eftir Genf-
arfund utanríkisráðherranna í
haust.
FORDÆMDI BANDALÖG
ANDKOMMÚNISTA
Bulganin lagði á það megin-
áherzlu í ræðum sínum, að Rúss-
ar fordæmdu alla nýlendupólitík
— og að Rússar væru jafn fúsir
sem áður til þess að ganga til
samstarfs við Vesturveldin. Hann
fordæmdi varnarbandalög þau,
sem andkommúnisku ríkin í Asíu
hafa gert með sér og réðist
harkalega á Breta fyrir hlutdeild
þeirra í Bagdad-bandalaginu.
VÖLD KRUSJEFFS VAXA
Ræða Krusjeffs var mun
styttri en Bulganins, en þrátt
fyrir það vék hann að fleiri
ágreiningsatriðum í sambúð
austurs og vesturs. Mátti ráða
það af ræðu hans, að hann talaði
bæði sem formaður kommúnista-
flokksins og sem utanríkisráð-
herra. Ber það þess vott, að völd
Krusjeffs fara nú sívaxandi, svo
sem ýmsir hafa spáð.
Einkar athyglisvert má telja
þaff, aff sjálfur utanríkisráff-
herrann, Molotov, skyldi ekki
taka til máls, þar eff utanríkis-
málin voru til umræffo.
Ekbi hentnr tíl
sætta í Moloya
MALAYA, 29. des. •— Tilraunin
til þess að binda endi á hina
átta ára gömlu deilu og styrjald-
arástand' í Malaya virðist hafa
farið út um þúfur. Kommúnistar
hafa rofið vopnahléið, sem gert
var til þess að reyna að koma
á sættum. Yfirvöldin í Malaya
■ gerðu kommúnistum tvð úrslita
tilboð. Var annað þess efnis, að
þeir gæfu sig fram og hin lög-
lega stjórn landsins hæfist handa
og tæki mál þeirra til rannsókn-
ar, eða þá, að þeir hyrfu á brott
hið skjótasta og færu aftur til
Kína, en þaðan eru þeir flestir
komnir. Kommúnistar hðfnuðli
báðum kostum, sem að líkindum
llætur.