Morgunblaðið - 16.02.1956, Síða 12
12
MORGVN BLAÐIÐ
Fimmtudagur 16. febr. 1956
- Kekkoneo
99á
Frh. af bls. 1
Sylvi Salome Uino, dóttur síra
Kauno Edvards Uino og k. h.
Emilíu Stenberg. Þau eiga tvö
böm, tvíburana Matti og Taneli.
Dr. Kekkonen varð stúdent
1919 og lauk embættisprófi í lög-
fraeði 1928. Var hann lögfræðing
ur bændafiokksins 1927—31 og
fulltrúi landbúnaðarráðuneytis-
ins 1933—36. Á þingi hefur hann
setið síðan 1936. Var hann fyrsti
varaforseti þingsins 1946—47 og
þingforseti 1948—50.
Hann hefur gegnt þessum ráð-
herraembættum: dómsmálaráð-
herra og vara-innanríkisráðherra
1936— 37, innanríkisráðherra
1937— 39, forstöðumaður fólks-
flutninga 1940—43, dómsmálaráð-
herra 1944—46, forsætisráðherra
og innanríkisráðherra 1950—51,
forsætisráðherra 1951—52, for-
sætis- og utanríkisráðherra 1952
-—53, forsætisráðherra 1953, utan-
ríkisréðherra 1954 og forsætis-
ráðherra síðan haustið 1954.
Hann hefur auk þess átt sæti í
bankastjórn Finnlandsbanka síð-
an 1946 og í stjórn íþróttasam-
bands Finnlands 1929—31 og
1931—47.
Enda þótt dr. Kekkonen sé ekki
formaður bændaflokksins, þá
hefur hann síðan ófriðnum lauk
verið aðalleiðtogi hans, enda hef-
ur hann aukið mjög fylgi flokks-
ins.
Dr. Kekkonen er mikill ræðu-
maður og kunnur rithöfundur.
Auk doktorsritgerðar sinnar, sem
fjallar um kosningarétt til sveita
stjóma, hefur hann skrifað fjölda
greina fyrir blöð og tímarit, þ. á.
m. greinaflokka undir dulnefninu
„Pekka Peitsi“. Hann hefur verið
í hópi nánustu samverkamanna
Paasikivi forseta og mikill stuðn
ingsmaður hinnar svonefndu
„Paasikivi-stefnu“, þ. e. að halda
uppi vinsamlegum samskiptum
við Ráðstjórnarríkin án þess þó
að fórna nokkru af landsréttind-
um.
Dr. Kekkonen er skapfastur
maður og stefnufastur. Engu að
siður hefur hann oft og tíðum J
neyðzt til að breyta gegn vilja
flokksbræðra sinna, þegar erfitt I
hefur reynzt að mynda stjóm. |
Margir íslendingar eru kunn- j
ugír dr. Kekkonen Og munu I
fagna því, að hann hefur nú val- |
izt til forseta Finnlands. Meðal
kunningja hans eru bæði stjóm-
málamenn íslenzkir og íþrótta-
menn, en íþróttamálefni hefur
hann löngum látið sig miklu
skipta. Hann hefur, auk fjöl-
margra æðstu heiðursmerkja,
innlendra og erlendra, einnig ver
ið sæmdur stórkrossi iþrótta-
manna, en hann bera einungis
tveir menn, j
Frú Sylvi Kekkonen er kona
hámenntuð og aðlaðandL Er hún
kunn sem rithöfundur fyrir
greinasöfn og srnésögur, sem
þykja frábærar að máli og stíl.
- Rannsóknarstofa
Frh. af bls. 0
að hann þurfi að hafa fastan að-
stoðarmann, sem gæti þá verið
t. d. verkfræðistúdent. Reksturs-
koetnaður þessarar rannsóknar-
stofu myndi tæplega fara yfir
100 þúsund krónur á ári, að því
er talið er, og eru þá meðtalin
verkfræðingslaun.
Er hér um hið merkasta
mál að ræða og mun það hafa
í för með sér aukíð öryggl í
sambandi við notkun inn-
lendra byggingarefna.
Císli Einarsson
héraðsdóinslihrmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Laugavegi 20B. — Sími 82631.
Kristján Guðlaugsson
hæstaréttarlö imaður. ('i
,Peíia vil ég heyra“
— var ágæt skenamtun
ÞAÐ var ekki fullskipaður salur
Austurbæjarbíós í fyrrakvöld er
30 manna sinfóníuhljómsveit und
ir stjórn Jans Moraveks lék létt-
ari klassiska tónlist og létt lög
með aðstoð ýmissa ágætra söng-
krafta. En vonandi verður það
ekki til þess, að tónleikar sem
þessir verði ekki aftur haldnir
hér, því hér hefur verið farið inn
á braut sem áreiðanlega á vin-
sældum að fagna og gæti orðið
fastur og góður liður í skemmt-
analífi bæjarbúa.
„Þetta vil ég heyra“ var nafn
tónleikanna og er það sannnefni.
Bæjarbúar — hin breiða fylking
þeirra — vilja heyra slík lög sem
þessi.
Efnisskráin var tvískipt. I hin-
um fyrra helming hin klassiskari
lög undurfögur og skemmtileg.
Það byrjaði á „Sögum úr Vínar-
skógi“ og endaði á „Elddansin-
um“. Innan þess ramma voru svo
unaðsleg lög sem „Claire du
Lune“ og sönglögin sem þau
Vincenzo M. Demets og Svanhvít
Egilsdóttur sungu við ágætar
undirtektir. En hápunktur söng-
kafla tónleikanna var er þau
sungu duett í Musica prohibita.
í hinum síðari kafla tónleik-
anna voru hin léttari lög, — þrjú
lög Gershwins, nýtt lag eftir Ingi
björgu Þorbergs og dægurlagið
„Love me or leave me“. í þessum
þætti tónleikanna lék Carl Billich
einleik á píanó með hljómsveit-
inni og söngkonurnar Hanna
Ragnarsdóttir' og Ingibjörg Þor-
bergs komu fram. Var söngur
Ingibjargar áferðarfagur og gott
lokaatriði þessarar ágætu skemmt
unar. Jan Moravek á þakkir
skildar fyrir framtakið, „Þetta
vil ég heyra“ 'var góð skemmtun
og von Jans rættist, sem hann lét
í ljós í upphafi skemmtunarinn-
ar — skemmtunin var auk þess
að vera fyrir eyrað, „eitthvað
fyrir hjartað“. Mætti verða fram-
hald á slíku Og þá yfirvinnur
hljómsveitin, sem skipuð er svo
ágætum einstaklingum, þann
litla galla sem á henni var í
fyrrakvöld — en hann var, að
mciri samæfingu hefði þurft.
- Bílaslyrkleiki
Framh. af bls. 9
þingheimi nú þegar upplýsingar
um hver þessi opinberi starfs-
maður væri. Það væri nauðsyn-
legt, því að slíkt væri sviksam-
legt og refsivert athæfi. Slík
svik mættu ekki viðgangast.
Bergur kom aftur upp í ræðu-
stólinn og nú reiðilegur og
skömmustulegur. — Ég neita al-
gerlega að segja hver þessi opin-
beri starfsmaður er. Ég segi það
bara þegar mér sýnist. Og ég
skal segja ráðherranum það þeg-
ar enginn annar heyrir.
Á EKKI AD VERA
LEYNDARMÁL
Morgunblaðið telur, að það
eigi ekki að vera neitt leynd-
armál milli Bergs Sigurbjörns
sonar og Eysteins Jónssonar,
ef einhver opinber starfsmað-
ur vinnur slíkt sviksamlegt
athæfi. Furðar blaðið að
þessi réttlætiskempa, þing-
maður Þjóðvarnar, skuli
nú ætia að hylma yfir slík
svik. Eða var þessi þing-
maður aðeins rétt einu
sinni með Gróusögu og lyga-
sögu, sem hasin getur ekki
staðið við?
♦ ♦
♦ D ♦
♦ Dezt að acglýsa í ♦
♦ ♦
♦ Morgunblaðinc *
♦ ♦
•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*•
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Aldan
Munið spilakvöldið
í kvöld í Breiðfirðingabúð (uppi) kl. 9.
Spiluð verða 36 spil.
Fjölmennið!
Skemmtinefndin.
8. landsþing
Slysavarnafélags íslands, hefst í Reykjavík sunnu-
daginn 22. apríl n. k.
Stjóm Slysavarnafélags íslands.
REVÍU-KABARETT
ÍSLENZKRA TÓNA
sem hefst 15. marz —
Efmr til samkeppni mcðal íslenzkra dægurlagahöfunda
011 Nf ÍSLEiK DÆGUBLÖG
Verða véitt þrenn verðlaun fyrii beztu lögin
1. Verðlaun kr 1.000.00
2. Verðlaun kr. 500.00
3. Verðlaun kr. 200.00
Verða leikin 5 dægurlög á hverri sýningu REVYU-
KABARETTS ÍSLENZKRA TÓNA er hefjast 15. mar/,
og munu áhorfendur grciða atkvæði um lögin.
Það er skilyrði fyrir þátttöku í kcppninni
að lögin hafi ekki verið flutt opinberlega áður
Lögin skulu sendast til íslenzkra Tóna, Laugaveg 58.
ekki síðar en 5. marz, og er nægilegt að laglína sé upp-
gefin, æskilegt væri að ljóð (texti) fylgdi laginu.
Nafn höfundar og heimilisfang skal fylgja í lokuðu um-
slagi, sem sé merkt á sama hátt og lag það, sem sent er.
Ölliun er heimil þátttaka í þessari kcppni.
RfVÍU-KABARETT ÍSLEM2KRA TÍA
LAUGAVEG 58
Samtök herskálabúa
/* >
ARSHATIÐ
félagsins verður haldin að Aðalstræti 12 laugardaginn
18. febrúar klukkan 9 síðdegis.
Skemmti atriði:
1. Ávarp
2. Karl Guðmundsson, leikari, skemtir
3. ?
4. Dans
Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skemmtinefndin.
Bátavélar til sölu
2 nýjar 20 ha. BUKH DIESEI, bótavélar eru til sölu.
Upplýsingar hjá
MAGNÚSI Ó. ÓLAFSSYNI
Hafnarhvoli — Sími 80773
Sjálfstæðismenn
Kópavogi
Spilak¥öld
Sjálfstæðisfélaganna verður í Tjamarcafó næstk.
fimmtudag 16. febr. kl. 8,*9 e.h.
Skemmtinefndiruar.
MARKfs Eftir F.d Tlodd
.v- MAJQS, VQy KEMEMSER -
öiGVENS?.„MAJOR.l\ OLD ANDV. THE SAINT WE
AAH4 TRAILm.THANÍC J U5ED ON VhE ALEUTIAN&-
oNfCE TD TT LK J WELL, HE'S IN TROUBLE,
AND HERES WHAT l WANTL.
W" k
DONT/Btó^tó' li!
'ANCVlSEE BLTT ONE< BERT/;,.,.AN&)
WASNT y SET OF \ THEY'fiE
ONLY Tf TRACKS MARK/ ) ANDY'S/
SOMEBODV
lil.ZT Af) AVGLÝSA
I MORGVlSBLAÐim
1) — Hrólfur, komdu sál'il og 3) — Það er gott, Markús, að
blessaður, þetta er Markús. þú hefur funcíið spor eítir aðra
2) — Þú manst eftir honum hunda í Þyrnirósarlundi.
Anda. Nú er hann i lí’'"F'Pítu, 1
— Já, það sannar, að Andi var — Já, hvsð er þetta, og þetta
ekki eini hundurinn þar. eru sporin eftir Anda. Einhver
4) — En ég sé ekki för nema hefur máð hin sporin út.
eftir einn hund. I