Morgunblaðið - 17.03.1956, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.03.1956, Blaðsíða 7
Laugardagur 17. marz 1956 MORGUNBLAÐIÐ 7 r jr ^ 4 ahstrakt sýningu LIS TIN er slæm nú í dag, er því andstæð, og þar með er skáldskapurmn lika, við er- j það mál útrætt að fullu. um öll stödd í einum miklum oo^oo' bylgjudal, þar sem listin er langt | Núna þessa dagana er Valtýr niðri. Þetta segja menn núna, og! Pétursson málari að sýna í Lista- það hið sama hefir víst verið sagt mannaskálanum. Hann málar oft áður. En það er þó ein gleði-1 abstrakt, og í sama bylgjudaln- leg staðreynd í hinu mikla alls- j um og við hinir. Hann málar ekki herjar basli listarinnar nú á dög- j eins vel og surnir hinir eldri um, þetta, að áðurnefndur bylgju abstrakt listamenn okkar, eins og daiur hlýtur óhjákvæmilega að Snoiri, Þorvaldur eða Svavar, en ekapa öldu, og þar upp á er þeir hafa lika að baki lengri vitanlega hinn mikli og dýrlegi starfsferil og þar með reynslu í topppunktur listarinnar. Það er vinnuskóla málverksins. En þessi ekM öll von úti ennþá, því þó síðasta sýning Valtýs er mikið i 1 Helgi Daníelsson, 5 ár, flyftur i — Ég á alit mitt skyldfálk á ÁkrGnesÍ, segir hamn NATTSPYRNUUNNENDUR eru nú famir að hugsa til sum- l arsins. Þeim kann að þykja það nokkur frétt að Helgi Daníels- j son, sem um 5 ára skeið hefur verið í marki Valsliðsins, hefur nú j ákveðið að Hytjast til fæðingar- og uppeldisstaðar síns, Akraness, og mun nú aftur leika með Akranesliðinu. ★ GAMALL FÉLAGI — AFTUR NÝR Við segjum hér að Helgi muni aftur leika með Akranesliðinu, því hann stóð í marki fyrir Akra- nes árið 1950. Þá var hann 17 ára gamall. Þá hafði hann ákveð- ið að stunda nám í prentaraiðn og réðist sem námsmaður til ísa- foldarprentsmiðju. Fyrir nokkru er hann fullnuma prentari og hyggst nú aftur flytja til æsku- stöðvanna. j ★ GLÆSILEGUR FERILL ! Helgi er flestum þeim sem knattspyrnumál þekkja, vel kunn ur. Þó hann sé nú aðeins 23 ára gamall, hefur hann 5 sinnum leik- allt sé bölvað í dag, þá verður gott á morgun og það mun verða mikil list og hana mun ekkert bresta, þegar listamenn og skáld okkar tíma skapa sín verk, bæði mikil og fögur, íslenzkri þjóðar- sál til verðugrar dýrðar, þá verður komið á föt nýjum ráða- gerðum til þess að efla listina. i>ær ráðagerðir þarfnast nýrra skatta, og það verða fleiri krón- ur í buddu listamannsins þegar hann fær sinn styrk, útborgaðan á kontómum hjá ríkinu, en jafn- framt íleiri krónur sem þarf að láta af hendi á öðrum ríkis- kontórum, og að síðustu verða jafn margar krónur eftir í budd- unni og áður var, því að það verður ekkert eftir, og verði list- inni í landinu svo að góðu. Það er sagt, að listinni hafi brakað mikið frá því, sem áður var. Þetta gildir, að því er sagt er, ekki einungis hvað heildinni við kemur, heldur líka einstaka listamenn. Skáldið A orkti vel fyrir þrjátíu árum og sama er að segja um málarann Ö, hann málaði vel fyrir tuttugu árum. Nú eru báðir búnir að vera. — Svona fór það. • En hvað er þá að ske? Ekki jþó það sama og alltaf er að ske, það sem hefir verið, er og mun verða? Þetta að ungt fólk ruglar saman reytum og byrjar að hokra. Ungt fólk getur ekki alltaf og að eilífu setið heima hjá pabba og mömmu, hve ágæt sem þau annars kunna að hafa verið. En það er venjulega svo, að ungt fólk, sem byrjar búskap, er ekki eins vel á vegi statt, efnalega eða hvað nauðsynlega lífsreynslu snertir, eins og þeir, sem lengi hafa búið. Svo að haldið sé áfram samlíkingu á list, og venju legum búskap, hverrar einstakrar kynslóðar, mætti hér minnast þess, að þrátt fyrir þröng húsa- kynni og erfiðar aðstæður frum- býlisins, er þar innan dyra nýr kraftur lífsms, sem er horfinn úr gamla húsinu heima hjá for- eldrum. Svona er lífið, hvort sem okkur kann að líka það betur eða ver og það er tilgangs- laust að segja ungu fólki, sem byrjar búskap, að halda aftur heim til sinna foreldra. Og á sama hátt er jafn tilgangslaust, og jafn hlægilegt að segja við einn abstrakt málara eða eitt atomskáld, að taka sönsum, og yrkja eins og Einar Benedikts- son eða mála eins og Þórarinn Þorláksson. Ungir listamenn taka engum sönsum, hvað þessu við- víkur, því framvinda lífs okkar betri en hinar fyrri og allt svip- mót myndanna fastara en áður var, en jafnframt fjörmeira og lífrænna. Það er mikill dugur í þessum myndurn, og mikil gleði yfir að lifa í heimi vinnunnar. Abstrakt list er að ýmsu leyti ólík hinni eldri list, og ýmsir þeir erfiðleikar, sem fyrri tima listamenn áttu við að etja, hafa beytzt í ný vandkvæði. í leit sinni við að fullnægja fyrir- inynd eða mótívi, lá oft áður falin sú hætta, að litir, ljós og form töpuðu lifi og krafti, mynd- in átti á hættu að kvolast í með- ferð, hún gat orðið leiðinleg. Eftirlíking náttúrunnar krefst oft þeirrar nákvæmni, sem ekki er ^ á allra valdi að ná, nema á kostnað myndlægra verðmæta. 1 Hinn óhlutkenndi eða abstrakti listamaður á ekki í þessum vand- kvæðum, en það er ýmislegt í eðli hins nýja listforms, sem ber með sér nýja hættu, en það er hressilegur yfirborðsháttur. Eldri listin á það til að vera leiðinleg, þung og kvoluð, þegar illa tekst, hin unga á ekkert af þessu, en í, þess stað leynist sú hætta að það jfrelsi, sem hún gefur listamann- ! inum, geti í sumum tilfellum leitt | hann til of greiðlegra vinnu- bragða, og þar með til yfirborðs- háttar. Valtýr hefir þægilegan lit og hressandi, hami er djarfur og hugmyndarOcur í myndsköpun og sýningin verkar vel á mann sem heild. En samt saknar maður hér, sem svo oft endranær, á ís- lenzkum listsýningum, þeirra hygginda, manni liggu við að segja þeii-rar undirhyggju, sem leyniát og liggur svo djúpt undir niðri í hinni beztu list. En þessi hyggindi fást aðeins við viimu margra kynslóða, sem sigrað hafa vandkvæði, mismunandi aðferðirj og stíla, á hverjum tíma. j Sýning Valtýs er skemmtileg, og hann er alvarlegur dugmildll í verki. — Eg þakka honum fyrir myndirnar — og ég þakka lika öðrum ungum listamönnum fyrir það að þeir vinna eins og þeim sýnist, og að þeir taka ekki söns- um. Gunnlaugur Scheving. Mótatimbur Er kaupandi að talsverðu magni af notuðu móta timbri. Upplýsingav í síma 82560. — Helgi Daníelsson ið í íslenzka landsliðinu og veríð varalandsliðsmaður 3 sinnum. Hann hefur því verið viðriðinn landsliðið íslenzka meirihluta af leikjum þess. Margoft hefur hann verið í úrvalsliðum og í liði Vals, sem um langt árabil hefur verið meðal sterkustu knattspyrnufé- laganna, hefur hann verið að jafnaði hinn öruggi markvörður sem treysta mátti. Þegar slíkir menn sem Helgi fara úr einu fé- lagi er oftast mikill skaði að, en því liði sem slíka menn fær er hins vegar styrkur að. * ÞAÐ SEM RÉDI ■— Allt mitt fólk er á Akra- nesi, sagði Helgi er ég hitti hann að máli í gær. En ég held, að mestu ráði um að ég flyt sé, að ég á auðvcldara með að fá ibúð við mitt hæfi á Akranesi. — Tekurðu þá upp vinnu við prentverk þar efra? — Nei, fyrst um sinn verð ég í byggingarvinnu við Sements- verksmiðjuna. Það ér gott að hvíla sig um eitthvert skeið frá prentverkinu, þó ég kunni mjög vel við það. En svo vona ég að ég komist aftur í prentið að hæfi- legum tíma liðnum. •— Hefurðu æft vel í vetur? .— Já, ég hef verið með i æfing- unum. En það er ekki fyrr en út kemur að maður finnur hvort maður er í æfingu eða ekki. Ég vona ég verði í góðri þjálfun í sumar. ★ ÆFINGAR — Veiztu hvort þeir æfa vel á Akranesi núna? — Ég átti tal við Ríkharð um daginn, og mér heyrðist á hon- um að hann væri ánægður með æfingar liðsins. Meira veit ég ekki. — Hvenær verður þinn fyrsti leilcur með Akranesi? — Þegar menn skipta um félög verður að sækja um leyfi með 3 mánaða fresti. Um mitt leyfi var sótt í marzbyrjun, svo lagalega séð get ég verið fullgildur kepp- andi fyrir Akranes fyrst í júní. En í maí eiga þ< ir afmælisleik við Reykjavík og slíkir leikir munu víst ekki háðir ströngustu reglum, svo ætli ég verði elcki með í þeim leik. — Hvert er sjónarmið þitt til framtíðarinnar? — Ja, maður er nú svo heppinn að vera svona ungur, svo margt getur skemmtilegt skeð. — Já, þú verður í knattspyrn- unni ef til vill 10—15 ár ennþá. — Það veit, ég ekki, en þeir hafa margir enzt lengi markmenn irnir og má í því sambandi minna á Hermann Hermannsson í Val og svo Magnús Kristjánsson, sem síðast. lék með Akranesliðinu. ★ ★ ★ Það var mikill hugur 1 Helga er ég hitti hann í gær, og mun meiri en ummæli hans bera með sér. Helgi hefur um árabil verið í hópi okkar allra beztu mark- manna eins og ferill hans sýnir. Það er oft leiðinlegt, í olckar fá- menni þegar íþróttamenn hrökl- ast á milli félaga, en mál Helga I er annars eðlis. I-Iann kom til náms frá Akranesi og snýr heim. Það gerði Ríkharður og það haf« fleirí gert. Við því er ekkert att segja. Gleðilegast er að íþrótta - menn líti björtum augum til fram tíðarinnar og hyggist æfa vel of* lengi. — A. St. í frjáls- Á MORGUN fer fram í íþrótta húsi Háskólans meistaramót ís- lands í frjálsum íþróttum innan- húss. Hefst keppnin kl. 2,30 e. h- og er öllum heimill aðgangur. Keppt verður í atrennulausunx stökkum. hástökki, langstökki og þristökki. Auk þess eru tvæ<* aukagreinar, kúluvarp og hástökk með atrennu — Meðal keppenda má nefna frá KR Guðmund Valct'. max-sson og Guðmund Hermanns - son. Frá ÍR, Valbjörn Þorláksson og Daníel Halldórsson og frá ÁI manni Gísla Guðmundsson ojí Sig. Lárusson. ráðsíns á morgun Á sunnudaginn kl. 2 e.h. hefst við Sidðaskálann í Hveradölum.) firmalceppni Skíðaráðs Reykja- víkur. í þeirri keppni taka þátt 61 fyrirtæki og keppir reykvísk- ur skíðamaður fyrir hvert þeirra. Meðal skíðamannanna eru allir beztu skiðamenn hér syðra, en svo er keppninni fyrir komið, að þetta er forgjafarlceppni, þannig að sá bezti stendur sízt betur að vígi en sá hinn lakasti skíðamannanna. Er þetta gert til þess að fyrirtækin hafi jafna möguleika til sigurs. Skíðaráðið væntir þess, að sem flestir sjái þessa keppni og ekki sízt, að einJhverjir frá þátt- tökufirmunum 61, séu þar við- staddir. Að lokinni keppni verður kaffi samsæti og verðlaunaafhending. Handknaftleikur HANDKNATTLEIKSMEIST- ARAMÓTI íslands var haldið áfram á fimmtudagskvöldið. Úr- slit urðu þá þessi: 3. fl. A FH—Valur 10:12 Mfl. karla Fram--yík. 16:12 Mfl. karla Valur—Ármann 22:17 í kvöld heldur mótið áfram og þá í meistaraflokki kvenna KR gegn Þrótti og Ármann gegn Fram. í 2. fl. karla ÍR gegn FH og KR g'egn Víking. í 1. fl. karla Þróttur gegn FH. Á sunnudaginn eru tveir leikir í meistaraflokki, Valur gegn Vík- ing og Afturelding gegn Fram. Þeir leikir tveir eru á getrauna- seðli vikunnar og eru fyrstu hand knattleikskappleikirnir, sem á slíkum seðli eru. Vestirbsr vbbjd S.L. mánudagskvöld fóru fram úrslitaleikir Innanfélagsmóts KR í innanhússknattspyrnu og fóru leikar þannig: 4. flokkur: Mélar — Skjólia 4— 4 og Vesturbær -— Austurbær 2—0. 3. flokkur B: Melar — Skjólin 5— 2 og Austurbær — Vesturbæv 7—5. 3. flokkur A: Vesturbær - • Austurbær 3—2 og Melar -- Skjólin 5—4. 2. flokkur: Skjólin — Austur- bær 6—1 og Melar — Vesturbæe 7—5. Meistaraflokkur-^Vesturbær — Melar 14—6 og Austurbær — - Skjólm 6—5. Mót 4. flokks vann Austurbæj - arliðið með 4 stigum, 3. fl. B urðu 3 lið jöfn, Vesturbær, Melar og Austurbær með 4 stig hvert, 3. flokk A vanri Vesturbæjarliðicí með 6 stigum, Melar unnu 2. flokk með 6 stigum, og meistara - flokk unnu Austurbæingar með 5 stigum. í meistaraflokksliði Austurbæjar voru þessir liek menn: Atli Helgason, Reynir Þórðarson, Ólafur Gíslason, Helgi Jónsson og' Helgi H. Helgason. Heildarúrslit mótsins: L U J T Mrk Sí Vesturbær 15 8 2 5 63-58 18 Melar 15 8 1 6 66-68 17 Austurbær 15 7 1 7 56-61 1S Skjólin 15 4 2 9 58-56 10 Fékgslífið iíKR S.L. sunnudag tefldi Guðmunduv Ágústsson fjöltefli í KR-heimil- inu við 55- KR-inga, eldri og yngri. Vann hann 46 skákir, gerði 2 jafntefli og tapaði 7 skákum, Þeir sem unnu hann voru: Hann- es Hall, Sigurgeir Guðinannsson, Gunnar Felixson, Gunnar Huse- by, Sigurður Guðmundsson, Bergur Adolphsson og Björn Halldórsson. Jafntefli gerðu Ed- gar Guðmundsson og Sigurður Valgarðsson. Árangur Guðmund- ar er um 85.5%, en 'iölteflið tók um 5 klst. t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.