Morgunblaðið - 17.03.1956, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.03.1956, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 17. marz 1956 SYSTURNAR ÞRJÁR EFTIR IRA LEVIN - Annar hluti: ELLEN Framhaldssagan 46 „Hvers vegna?“ „Bara til þess að vera örugg- ari“. „Hann heldur að ég sé Evelyn Kittredge“. „En hringdu nú til mín samt. Það getur þó aldrei skaðað neitt. Auk þess er mér svo hætt við að verða gráhærður". „Jæja, þá geri ég það“. „Þakka þér fyrir, Ellen. Góða nótt“. „Góða nótt, Gordon". Hún lagði frá sér símtólið og sat kyrr á rúmstokknum, beit í neðri vörina og barði með fingr- unum í bríkina eins og hún var vön að gera, þegar hún glímdi við ráðgátur, á einu eða öðru sviði. 7. kafli. Ellen lokaði veskinu sínu, leit upp og brosti til Powells, sem kom skálmandi til hennar yfir gólf forsalarins. Hann var í ljósbláum fötum og gráum yfirfrakka, með sama brosið á vörunum og kvöldið áð- ur. — Hann lét fallast niður á skinn- fóðraðan legubekkinn, við hlið hennar, um leið og hann bauð góðan dag, léttum róm. „Þú lætur ekki aldeilis karl- mennina bíða eftir þér“. „Jú, suma þeirra". Brosið á andliti hans varð enn breiðara. „Hvernig hefur at- vinnuleitin gengið?“ „Mjög vel“, sagði hún. „Ég held næstum, að ég sé búin að krækja mér í starf, nú þegar. Það er hjá málaflutningsmanni". „Ágætt. Þá verðurðu hérna í Blue River eftirleiðis. Er það ekki?“ „Það er allt útlit fyrir það.“ „Ágætt....“ Hann sagði það með seim og virtist nærri gæla við orðið. Svo leit hann niður á armbandsúrið sitt. „Við verðum víst að koma okkur sem fyrst af stað. Á leiðinni hingað, fór ég framhjá Glo-Ray-samkomustaðn- um og þar var allt að fyllast af fólki, þá....“ „Æ“, sagði hún í uppgerðar kjökurtón. „Hvað er nú að?“ Ellen leit afsakandi á hann: „Ég verð að ljúka smáerindi fyrst. Það er viðvíkjandi þessum málafærslumanni. Ég þarf að færa honum bréf .... meðmæli". Hún klappaði með annarri hendinni létt á veskið sitt orð- unum til frekari áréttingar. „Ég vissi ekki að skrifarar þyrftu að leggja fram meðmæli, ég hélt að kunnátta þeirra í hrað- ritun væri bara reynd og það. látið nægja“. „Já, en ég gat þess í óspurðum fréttum, að ég hefði þetta með- mælabréf frá síðasta húsbónda mínum og þá sagðist hann gjarn- an vilja líta á það. Hann verður á skrifstofunni sinni til klukkan hálf níu í kvöld“. Hún andvarpaði og svipurinn varð raunamóður: „Mér þykir þetta alveg óskaplega leiðinlegt". „Þetía gerir ekki vitund til“. Hún þrýsti hönd hans. „Mér er nú reyndar alveg sama, þó að við förum ekki á dansleik“ sagði hún og reyndi að brosa ósköp ástúðiega til hans. „Við getum alveg eins vel farið eitthvað og fengið okkur eitt eða tvö glös og svo...." „Prýðilegt", sagði hann og það glaðnaði aftur yfir honum. Þau risu á fætur. „Hvar er þessi mála' færslumaður þinn til húsa?“ spurði Lowell, sem stóð fyrir aft- an hana og hjálpaði henni í frakk ann. „Er langt þangað?“ „Ekki mjög langt“, ságði Ellen. , „Skrifstofan hans er í byggingu ríkisskrifstofanna" Powell nam staðar á efsta þrepinu framan við hina risa- vöxnu býggingu. Ellen, sem kom- in var fast að hurðinni, lét hönd- ina, sem þegar lá á snerlinum, síga aftur og leit á Powell. — Hann sýndist fölur yfirlitum, en það gat stafað af hinu grá-hvíta ljósi, sem skein út úr anddyrinu. „Ég ætla að bíða þín hérna niðri, Evelyn“, sagði hann. Kjálk- arnir voru samanbitnir og orðin voru sögð með undarlega hljóm- lausri^röddu. „Ég vildi heldur að þú kæmir með mér upp“, sagði hún. „Ég hefði getað farið með bréfið fyr- ir klukkan átta, en mér þótti það dálítið grunsamlegt, að hann skyldi biðja mig að koma með bréfið að kvöldi dags. — Mér virðist líka maðurinn dálítið var- hugaverður á svipinn". Hún brosti. „Þú ert verndari minn“. Eitthvert óskiljanlegt: „Ah“ heyrðist í Powell, en ekkert beint svar við orðum hennar. Ellen hratt up hurðinni og eftir andartaks hik, fylgdi Powell á eftir henni inn í anddyrið. Hún hafði snúið sér við, beið og virti hann fyrir sér, þegar hann gekk inn um dyrnar. Hann andaði með hálfopnum munni og andlitið var gersamlega svip- laust. Hinn stóri forsalur var alger- lega mannlaus og í honum ríkti grafarþögn. Þrjár lyfturnar, af fjórum alls, voru lokaðar og ljós- lausar, en hin fjórða var eins og lítill klefi með brúnum viðar- veggjum, lýst upp með daufu, gulu ljósi. Þau gengu samhliða í áttina til hennar, en skóhljóð þeirra end- urómaði, eins og lágt, hvíslandi bergmál, uppi í þakhvolfinu. Inni í lyftunni stóð svartur lyftukarl og las í hefti af Look. Hann stakk tímaritinu í vasa sinn, steig á takann í gólfinu, sem stjórnaði járn-renffihurð- inni og dró innri limlahurðina fyrir. „Hvaða hæð?“ spurði hann svo. „Fjórtánda“, svaraði Ellen og leit til Powells. Þau stóðu þögul og fylgdust með ljósinu, sem færðist frá einni tölunni til annarrar, sífellt og jafnt, í svartri töíiuröðinni fyrir ofan dyrnar. 7....8....9.... Powell strauk yfir mjóu skegg- rákina á efrivörinni með vísi- fingri vinstri handar. Þegar ljósið þokaðist frá 13 til 14, nam lyftan staðar mjúklega og af sjálfu sér, eins og alltaf á efstu hæðinni. Lyftuvörðurinn kippti í stöngina sem opnaði dyr lyftunnar, oð hleypti innri rimla- hurðinni frá. Ellen gekk út á mannlausan og eyðilegan ganginn og Powell kom á eftir henni, en að baki þeim lokuðust dyr lyftunar með dimm- um smelli og svo heyrðu þau þungan hvininn í lyftunni, þegar hún brunaði aftur af stað niður. „Þetta er víst leiðin“, sagði Ellen og sneri til hægri. „Her- bergi nr. 1405“. Þau gengu ganginn á enda og beygðú þar til vinstri. í þeim hluta af ganginum, sem fram- undan þeim blasti, voru aðeins sýnileg ljós innan við hinar skyggðu glerrúður í tveimur hurðum. Ekkert hljóð heyrðist, nema fótatak þeirra á bónuðu gólfinu. Ellen reyndi að finna eitthvað til að segja: „Þetta verður ekki langrar stundar verk. Ég afhendi honum bara bréfið og fer svo strax“. „Heldurðu að þú fáir starfið?“ „Það held ég áreiðanlega Þetta eru ágæt meðmæli, sem karlinn gaf mér“. Þau voru kominn inn í enda á þessarri gangálmu og enn beygðu þau til vinstri. Nú sást ljós í að- eins einni hurðarrúðu framundan þeim, hægra megin á ganginum og Powell ætlaði að ganga hik- laust þangað. „Nei, það er ekki þarna“, sagði Ellen og gekk að annarri hurð, beint á móti. Á henni stóð nafnið: Frederic H. Clausen, málflutn- ingsmaður, en innan við rúðuna ELDFÆRIIM / Danskt ævintýri 3. „Hérna er það“ sagði kerling, „og hérna er blátiglótta svuntan mín.“ Dátinn klifraðist nú upp í tréð og lét hlammast niður um opið, og óðara stóð hann, eins og kerling hafði sagt, í víða ganginum, þar sem logaði á lömpum svo hundruðum skipti. Nú lauk hann upp fyrstu dyrunum. Hú! Þar situr hundur- inn með augun stór sem undirskálar væru og starblíndi á hann. „Þú ert fallegur karl,“ sagði dátinn, setti hann niður á svuntu kerlingar og tók eins marga koparskildinga og kom- ust fyrir í vasa hans, læsti síðan kistunni, setti hundinn upp á hana og gekk inn í hitt herbergið. — Æ, æ! Þar sat hundurinn með augun, sem voru eins stór og mylnuhjól. „Þú ættir ekki að glána svona á mig,“ sagði dátinn. „Þér gæti orðið illt í augunum.“ Þar með setti hann hundinn niður á svuntu kerhngar, en þegar hann sá hvílík kynstur voru af silfurpeningum í kist- unni, þá fleygði hann öllum koparskildingunum og fyllti vasa sína og hertöskuna með skínandi silfrinu. Eftir það fór hann inn í briðja herbergið. Nei, það var riú ljóta sjónin^Það var orð og að sönnu, að hundurinn þar inni hafði’augu. sem voru eins stór og kringlóttur turn og snarsnerust í hausnum eins og hjól. „Gott kvöld!“ sagði dátinn og brá hendinni upp að húfu- derinu, því að slíkan hund hafði hann aldrei séð á ævi sinni. Eiste prentmyndagerð iandsins hefur nú hafið starfsemi sína á nv. að Laugavegi 27 III. hœð. Framleiðum 1. fl. myndamót. fyrir blöð, bækur, tíma:rit o. fl. með nýjum fullkomnum véium. Munið Laugaveg 27 III. hœð. PPCNTMYNDAGERDIN f ÓiACUP J.l Sveinn Ingvarsson Simi 80165 heima. Þorsteinn Oddsson Sími 80013 heima. Röskur piitur óskast strax til innheimtu og sendistarfa. 6.ÞORSIMIÍSXOH E JOHNSIN t Grjótagötu 7 Z2ye?gisagrarló3 Stærð 500—600 ferm. á hitaveitusvæðinu í Vestur- bænum er til sölu. Einnig getur komið til greina að taka mann í félag um byggingu á lóðinni. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 22. þ. m., merkt: „Byggingarlóð — 1069“. MAGG Spergil Sveppa Julietta Blómkál Gartner Anita Spinat Hænsna Kálfa Eggja Uxahala súpur eru uppáhald allra. ISnjnfólpóáon (S? uaran

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.