Morgunblaðið - 17.03.1956, Qupperneq 16
Veðurúifif í dag:
Allhvass austan, skýjað og dá-
lítil rigning.
Ræða
Bjarna Benediktssonar við út-
varpsumræðurnar. Sjá bls. 9.
65 tbl.
Laugardagur 17. marz 1956
íéEagsdeifdir Norræna félapins
stofnaiar vls vegar um land
STJÓRN Norræna félagsins hefur ákveðið að beita sér fyrir
stofnun félagsdeilda víðs vegar um land á næstu mánuðum til
að stuðla að aukinni starfsemi félagsins. — Auk aðalfélagsins í
Reykjavík eiu nú 3 deildir- starfandi, sem sé á Siglufirði, ísa-
firði og Patreksfirði. — Samkvæmt. lögum félagsins cr hægt að
stofna deild með minnst 20 félagsmönnum.
Á Norðurlöndunum eru víða
starfandi deildir innan Norrænu
félaganna í borgum, kaupstöð-
um, kauptúnum og jafnvel í
sveitum.
Starfsemi félaganna getur orð-
ið mikill stuðningur að slíkum
deildum. Þær auka anuga fólks
á norrænni samvinnu. En 6am-
starf norrænu þjóðanna gerist nú
víðtækara með ári hverju
Hlutverk slíkra félagsdeilda
er m. a. að efna til kynninga-
og fræðslufunda með aðstoð
aðalfélagsins, efla tengsl viðkom-
andi staðar við vinabæi meðal
frændþjóðanna á Norðurlöndum
og vera tengiliður xnilli aðal-
félagsins og félagsmanna þess
utan höfuðborganna.
Norrænu félögin vinna að gagn
kvæmri kynningu norrænu þjóð-
anna og þau þurfa því að ná til
sem flestra einstaklinga. Virkar
félagsdeildir eiga hér mjög mikil-
vægu hiutverki að gegna.
Norræna félagið hefur einnig
í hyggja að stuðla að sem flest-
um vinabæjatengslum á þessu
ári.
Undir forystu Norræna íélags-
ins í Noregi er nú unmð að und-
irbúningi hópferðar til íslands
frá Norðurlöndunum sumarið
1957. Mun þá fulltrúum frá þeim
borgum og bæjum, sem eru í
vinabæjatengslum við bæi hér á
landi, gefast tækifæri til að koma
hingað og mun Norrama félagið
hér skipuleggja kynnisferðir út
um land.
Vinabæjastarfsemin er tiltölu-
lega nýr þáttur í starfi Norrænu
félaganna Starfsemi pessi hófst
í lok síðari heimsstyrjaldarinnar
og er í pví fólgin, að tveir bæir,
helzt svipaðir að stærð, sinn í
hvoru íandi, ákveða að hafa
menningarleg eða persónuleg
samskipti eftir því sem við verð-
ur kormð
Hér er um fjölþætt samskipti
að ræða, sem skapað hafa traust
vináttunönd milli fjölskyldna í
tugþúsunda tali á Norðurlöndum.
Einstaklingar, hópar, félög og
ýmsar stofnanir hafa með sér
samstarf rneð bréfaviðskiptum,
bókagjötum, skiptum á blöðum
og tím.iritum og gagnkvæmum
heimsóknuin. Fólk tengist þannig
böndutn kunningsskapar og vin-
áttu.
Þegar hópferðir eru farnar til
vinabæjar búa gestirnir oftast
á heimilum, til þess að nánari
kynni geti orðið með einstakl-
ingum. Gestirnir fá ókeypis dvöl,
en taka síðar £ móti gestum á
sínu heimili Þannig verða heim-
sóknirnar og kynnin gagnkvæm.
Norræna félagið vili stuðla að
því, að sem flestir íslenzkir kaup-
staðir og kaupíún tengist vin-
áttuböndum við norrænar borg-
ir eða hæi. einn i hverju landi.
CFrétt frá Norræna félaginu).
kíla- 0® yviiyi
Feri?í<Hawii!S
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
göngu- og skíðaferðar á morgun,
sunnudag, og er það fyrsta slík
ferð vetrarins. Lagt verður af
stað frá Austurvelli kl. 9 um
morguninn og ekið að Fossá í
Kjós. Þaðan hefst gangan bæði á
skíðum og án skíða.
Gengið verður yfir Kjöl, en
hann er 787 metra hár. Þaðan er
mjög fagurt útsýni, yfir Þing-
vallasveitina og út yfir Faxaflóa.
Þaðan sér til Súlnanna í norðri.
Farið verður niður að Kárastöð-
um í Þingvallasveit, en þar taka
bíiar við sem flytja fólkið til
Reykjavíkur.
1. Teflt verður öll kvöld nema
fimmtudagskvöld frá ki. 8 til 12
á miðnætíi, annaðhvort umferð
eða biðskákir og þar að auki á
sunnudögum frá kl. 1—5 síðd. j
2. Strætisvagnaferðir að tafl- j
stað eru sem hér segir: Leið nr. i
9 fer 10 mín. yfir heilan og hálf- 1
an tíma frá Lækjartorgi að vega-
mótum Háteigsvegar og Skafta- ‘
hlíðar beint á móti Sjómanna- j
skólanum. Leið nr. 17 hraðferð j
frá Lækjartorgi 10 mín. fyrir
heilan og hálfan tíma að vega-
mótum Lönguhlíðar og Háteigs-
vegar.
3. Skákskýringar munu að jafn
aði fara fram í efri salnum.
Fjórða umferð verður tefld á
laugardagskvöldið kl. 8. Fimmta
umferð verður tefld kl. 1 á sunnu
dag og biðskákir kl. 8 um kvöld-
ið.
Hér eru Meðillendingarnir í björgunarsveit Slysavarnaíélagsins,
; sem í fyrradag bjöguðu brezku skipbrotsmönnunum 20. Var myndin
tekín í fyrrasumar, í»á var björgunarsveitarmönnum veitt viSur-
; kenning brezkra tcgaraeigenda og tryggingafélags fyrir björgunar-
afrek sín. Fór sú athöfn fram í samkomuhúsinu og tók þá Ársæll
Jónasson kafari þessa ljósmynd, en hann hefur lengi átt sæti í
stjórn Slysavarnafélagsins og var viðstaddur þessa athöfn.
Skákmótið
9 í GÆRKVÖLDI voru íefldar
biðskákirnar úr 1., 2. og 3. um-
ferð skákmótsins. •
<9 Þeir Benoný og Taimanov
gerðu jafntefli. Talið er að
Taimanov hafi átt betri leið
er þeir byrjuðu á biðskákinni,
scm að minnsta kosti hefði
verið erfiðari fyrir Benóný að
tefla, en þó er ekki víst að hún
hefði leitt til vinnings fyrir
Taimanov.
Ilivitsky vann Gunnar Gunn-
arsson, Ilivitsky vann Frey-
stein (2. umferð), Jón Þor-
steinsson og Guðmundur
Ágústsson gerðu jafntefli, og
ennfremur gerðu þeir Benóný
og Gunnar jafntefli og Guð-
mundur og Sveinn.
# Síðast er til fréttist í gær-
kvöldi voru þeir enn að teíla
Baldur Möller og Friðrik Ól-
afsson og bentu þá aliar líkur
til að skákin mundi aftur fara
í bið eftir 74 leiki.
# Röðin er þá þessi eftir 3 um-
ferðir: 1. Ilivitsky 3 v., 2. Tai-
manov 214 v., 3. Gúðmundur
Ágústsson 2 v., 4. Gunnar
Gunnarsson 114 v., 5. Benóný
Benediktsson 1 v. og biðsk.,
6.—7. Jón Þorsteinsson og
Sveinn Kristinsson með 14 v.
og biðsk., 8. Friðrik Ólafsson
3 biðsk., 9. Baldur Möiier 2
biðsk. og 10 Freysteinn með
engan vinning.
% Rétt er blaðið var að fara í
pressuna bárust þær fréttir,
ofan úr Sjómannaskóla, að
Baldur Möller hefði leikið af
sér manni og þar með tapað
skákinni á móti Friðrik. —
Breytist þá röðin samkvæmt
því.
KEFLAVÍK, 16. marz: — Allgóð-
ur afli var hjá bátunum í dag,
eða frá 6 upp í 1314 lest. Hæstur
var Sævaldur með 1314 lest. Þá
voru þeir Heimir, Gunnar Há-
mundarson og Helgi Flóventsson
með 1214 lest hver. Allmargir
voru með um og yfir 10 lestir.
— Ingvar. :
AKRANESI, 16. marz: — Flestir
bátar hér eru nú komnir að og
er aflinn í dag 2—6 lestir á bát.
Er þess að gæta að þeir höfðu
línuna beitta með frystri síld. í s
gær, fimmtudag, var afli bát-
anna alls 170 lestir. Hæstir voru
Sigrún með 1114 lest og Sigur-
fari með 10 lestir. í róðrinum í
gær missti Bjarni Jóhannesson |
stýrið um það leyti, sem lokið var |
að leggja línuna. Fór Bjarni af j
roíðunum beint til Reykjvíkur og !
var bátnum stýrt með fokku og I
aftursegli. Guðmundur Þorlákur
dró línuna fyrir Bjarna. Kom
hann hingað seint í nótt með fisk
af tveim bátum, um 17 .lestir alls.
Hingað komu Skógarfoiss með
50 tunnur og Freyja með 100 tunn
ur af loðnu, sem hún hafði fengið
í einu kasti. Helming loðnunnar
landaði Freyja á Akranesi, hitt
flutti hún til Reykjavíkur. F.r nú
komin ný loðnuganga, sem er nær
eingöngu karlsíli. Togarinn
Bjarni Ólafsson er nýbúinn að
landa hér 243 lestum, sem er að
mestu karfi. — Oddur.
SANDGERÐI, 16. marz: — Síðast
liðinn hálfan mánuð hefur afli
verið fremur tregur hjá Sand-
gerðisbátunum. Þrátt fyrir að
beitt hefur verið með loðnu, hef-
ur ekki fiskazt. Lítur út fyrir, að
þorskurinn sinni ekki þeirri loðnu
sem nú er í Miðnessjó.
Á þessum tveim vikum, hafa
bátarnir farið alls 142 róðra, en
þeir eru 17, eða að meðaltali
9—10 róðra hver. Heildarafli
þennan tíma er 1.098 lestir, en á
sav.ia tíma í fyrra öfluðust 1.476
lestir í 145 róðrum.
Mestur afli í róðri hér var 6.
marz, en það var hjá Muninn,
sem fékk þann dag 17 lestir. Þann
dag fékk Þorsteinn 15 lestir og
þriðji bezti róðurinn var 15. marz,
þá fékk Víðir rúmar 13 lestir.
Afiahæstur í gær frá byrjun
vertíðarinnar, var Mummi frá
Garði með 412 lestir, næstur hon-
um er Víðir með 409 lestir- og
þriðji aflahæsti báturinn frá ver-
tíðarbvrjun er Muninn með 364
lestir.
í dag hafa alls borizt á land
frá vertíðarbyrjun 4704 lestir, en
á sama tíma í fyrra höfðu aflazt
5510 lestir, — Axel.
NEKAUPSTAÐ, 16. marz: •- Bát-
ar eru nú að búast til veiða á
Langanesmið og cveir'bátar eru
byrjaðir róðra á nálægari miðum.
Ógæftir hafa fram að þessu haml
að veiðum að mestu ieyti.
Piír vcru slasaðir 03 !Mr að Kirkjisbæjarklaustri
Rannsókn fer fram á strandstað
hvort um landhelgisbrot sé að ræða
Vík, 16. marz.
SAUTJÁN skipbrotsmenn af brezka togaranum St. Crispin, sem
strandaði á Meðallandsfj'öru í fyrradag, komu til Víkur á
áttunda tímanum í kvöid. Höfðu þeir lagt af stað úr Mcðallandinu
kl. 4 í dag. Hinir þrír, sem ahir voru talsvert slasaðir, voru fluttir
austur að Kirkjubæjarklaustri undir umsjá læknisins þar.
Mennirnir, sem fluttir voru að
Kirkjubæjarklaustri, munu hafa
verið rifbeinsbrotnir og fótbrotn-
ir. Tveir af mönnunum sem flutt-
ir voru til Víkur eru nokkuð
meiddir á fótum, annar þeirra er
skipstjórinn. Meiðsli þessi hlutu
mennirnir er skipið var að velt-
ast í brimgarðinum.
6 kmdíss-
KLUKKAN um 7 á mlðvikudags-
morgun þann 14. þ. m. var komið
að steinsteyptu útihúsi innarlega
við Strandgötu í Neskaupstað.
Var húsið þá hrunið. Á húsinu
var steinsteypt þak nál. 20 sm.
þykkt. Talsvert vinkiijárn var í
VARPAN FÓR í SKRÚFUNA
Togarinn er frá Hull, byggður
; 1946. Áhöfnin er einnig frá Hull.
Skipið fór frá Englandi s.l. mánu
dag. Var það að veiðum að sögn
skipbrotsmanna, undan suður-
ströndinni, í gær, er varpan fór
í skrúfuna. Varð skipið þá stjórn-
laust, og rak undan veðrinu upp
að ströndinni.
TOKST AÐ SNUA STEFNINU
TII. LANDS
Skipið mun hafa strandað um
tvö leytið. Lá það þá flatt fyrir
áföllum. Var það síðan að veltast
í brimgarðinum og færðist smám
saman að landi. Eftir strandið,
héldu allir skipverjar til á stjórn-
palli. Tókst þeim með herkju-
mæni þaksins, haíði það bognað, brögðum að rétta skipið við og
sennilega undan þunga þaksins,
og þakplöturnar spyrnt hliðar-
veggjunum út. en gaflamir síóðu.
í húsinu varu 20 kindiar og nokk-
uð af heyi. Sex kindur fórust.
Reyndust þær allar hafa verið
tvilembdar. Varð eiganginn,
Sveinn Guðmundsson, hví iyrir
tilfinnanlegu tjóni. HúsiS var áð-
ur llfrarbræðsluhús, en hafði um
margra ára skeið verið f járhús. eða hálfri annarri klst. síðar.Voru
snúa stefni til lands. Voru þá sjö
menn við stýrið í einu.
BJÖRGUN TÓKST
GIFTUSAMLEGA
Af stjórnpallinum var mönn-
unum síðan bjargað í björgunar-
stóli, eftir að þeir höfðu skotið
línu á land. Björgunin hófst kl.
8 um kvöldið og var lokið kl. 9,30,
Talið er að hristingur frá vöru-
bíl, sem ók þarna fram hjá um
kl. 6 um morguninn, hafi valdið
hruni hússins.
Heimskunnur organ-
leikari spilar
í Dómkirkjunni
HINGAÐ kemur í dag þýzki orgel
snillingurinn, prófessor Förste-
mann, frá Hamborg. Kemur hann
hingað á vegum Tónlistarfélags-
ins.
Próf. Förstemann er víðkunnur
maður um alla Evrópu fyrir orgel
tónleika sína, sérstaklega fyrir
túlkun sína á meisturunurn
Hándel og Bach. Kona prófessors-
ins kemur með honum. Þessi
mikli listamaður
báðum augum.
er blindur á
Próf. Förstemann heldur
tvenna tónleika fyrir styrktarfé-
laga Tónlistarfélagsins í Dóm-
kirkjunni, mánudag og þriðjudag.
Auk tónverka eftir Hándel og
Bach og fleiri, mun hann leika
stórt orgelverk eftir sjálfan sig.
Þess má geta að einn Islend-
ingur hefur stundað um skeið
nám hjá próf. Förstemann, en það
er Guðmundur Gilsson, skóla-
stjóri Tónlistarskólans á Selfossi.
skipbrotsmenn allir síðan fluttir
til bæja í Meðallandi.
KVIKMYNDAÐ VERÐUR
Á STRANDSTAÐNUM
í nótt og í dag hefur skipið
færzt allmikið upp í sandinn. Um
f iöru í dag, var næstum fært út í
það þurrum fótum. Tveir menn
frá Landhelgisgæzlunni fóru
austur á strandstaðinn í morgun.
Munu þeir ætla að athuga hvort
togarinn muni hafa verið að veið-
um innan landhelgi. Einnig ætl-
uðu menn að fljúga austur í dag,
til þess að kvikmynda og taka
ljósmyndir af togaranum, en flug
vélin varð að snúa við, Mun verða
reynt að fljúga austur á morgun.
Flugvél þessi átti að flytja slös-
uðu mennina þrjá frá Kirkjubæj-
arklaustri til Reykjavíkur.
Á sunnudaginn eru væntanleg-
ir tveir fulltrúar frá vátrygg-
ing.arfélagi því, er togarinn er
tryggður hjá. Ætla þeir að fara
á strandstaðinn og athuga mögu-
leika á björgun skipsins. — Jónas.