Morgunblaðið - 17.10.1956, Síða 1
24 síður
Jórdanía
f ærvopn
NEW YORK, 16. okt. — Öryggis-
ráSið kemur saman til fundar á
föstudaginn og rseðir þá kæru
Jórdaníu á hendur ísrael.
Talsmaður stjórnar Jórdaniu
hefur sagt, að ef um frekari
stórárásir fsraelsmanna á hendur
Jórdaníu yrði að ræða, þá myndu
Jórdaníumenn biðja írak um að-
stoð. Og talsmaðurinn bætti því
við, að hann væri viss um, að
Bretar myndu koma til hjálpar
ef Jórdaníumenn þyrftu á að
halda.
Sendiherra Sýrlands sagði í
dag, að „þungavopn“ væru nú
komin og að koma til Jórdaníu
frá Sýrlandi. Hann sagði að þessi
vopn væru gjöf sýrlensku þjóð-
arinnar til Jórdaníumanna og
mætti skoða þau sem styrk í bar-
áttu Jórdaníumanna gegn árás-
um ísraelsmanna.
LUNDÚNUM, 16. okt. — Á morg-
ur. (miðvikudag) opnar Elisabet
drottning nýtt orkuver við Cald-
erhall. Er það knúð kjarnorku
og er hið fyrsta og fullkomnasta
sinnar tegundar í heiminum. —
Bygging þess kostaði 16,5 millj.
punda og hefur verkið tekið 3%
ár. — Reuter.
Nauðlenti
— mann-
björg
SAN FRANCISCO, 16. okt.:
— 4 hreyfla farþegavél frá
PAA flugfélaginu nauðlenti
á Kyrrahafi í dag, miðja vegu
milli Honolulu og San Franc-
isco. 31 maður, þar af 5 kon-
ur og nokkur börn, voru í
vélinni, en allir björguðust í
veðurathugunaskip áður en
vélin brotnaði í tvennt og
sökk. Vélarbilun var orsök
nauðlendingarinnar.
Flugstjórinn ákvað er 2 hreyfl-
ar biluðu að nauðlenda. Tók hann
þá ákvörðun eftir að hann sá
veðurathuganaskipið. Sveimaði
hann yfir því nær 3 klukkutíma
og beið sólarupprásar, en þá
settist hann á sjóinn við skipið
og allir björguðust.
Samtalið í
vínstúkunni
NEW YORK — 66 ára gömul
kona, grísk, kom í dag til New
York til þess að hitta bróður sinn,
en þau hafa ekki sézt í 51 ár. —
Bróðirinn kom til Bandaríkjanna
1905 og síðar slitnaði allt sam-
band millí systkinanna.
En ekki alls fyrir löngu er
bróðirinn var að gamalli venju
að drykkju í vínstúku í New
York komst hann að því í samtali
við annan viðskiptavin vínstúk-
unnar, að systir hans var á lífi.
Hann komst í samband við hana
og nú er hún komin að hitta
hann. Heimurinn er stundum
furðu lítilL
Barátfunni mun ekki linna
fyrir réttri skipan Alþingis
Kommúnistar sviku allir sem einn
og samþykkfu hina ranglega kjörnu
uppbótarþingmenn
Gunnar Thoroddsen.
Uppþot
í Kína
HONGKONG, 16. okt. — Öryggis
lögregla rauða Kína tilkynnti í
dag, að hún hefði brotið á bak
aftur uppþot er þjóðernissinnar
efndu til í Canton. Stóðu sumar
byggingar í Canton í björtu báli
er uppþotið stóð sem hæst.
Sagt er að uppþot þetta sé í
sambandi við það sem gert var
í Hong Kong á dögunum.
3. flokkurinn
’ARÍS, 16. okt. — Nýr stjórn-
íálaflokkur var stofnaður í
’rakklandi í dag og eru þá flokk-
.rnir þar er fulltrúa eiga á þingi
orðnir 13 talsins.
Þessi nýi flokkur er til kom-
inn vegna deilu og klofnings í
Radikalaflokknum, sem nú hefur
starfað í 55 ár. Nýi flokkurinn
kallast „Sósíal-radikala“-flokk-
urinn. Foringi hans er Morice,
fyrrum verzlunarmálaráðherra.
Kjörbréfmálinu
gær
lauk
i
GÆR héldu áfram á Alþingi umræður um kjörbréfamálið.
Töluðu þar af hálfu Sjálfstæðisflokksins þeir Gunnar Thor-
oddsen, er flutti mjög ýtarlega ræðu um málið, Bjarni Benedikts-
son og Jón Pálmason, er í ræðum sínum svöruðu fram komnum
rökleysum andstæðinganna.
Af hálfu stjórnarsinna töluðu Finnbogi Rútur Valdemarsson,
Bernharð Stefánsson og Friðjón Skarphéðinsson. Það hefir aldrei
komið skýrar fram í umræðunum um þetta mál hve aumur mál-
flutningur andstæðinga Sjálfstæðisflokksins er heldur en i
gær, og hve gersamlega þeir voru orðnir rökþrota.
Tító róar Vesturveldin
BEDGRAD, 15. okt. — Talsmað-
ur jógúslavneska utanríkisráðu-
neytisins hefur gefið út yfirlýs-
X LUNDÚNUM, 16. okt. —
V Eden og Selwyn Lloyd fóru
í dag til Parísar til viðræðna við
forsætis- og utanríkisráðherra
Frakka. Þeir munu ákveða næstu
sporin í Súezdeilunni. Halda hin-
ir ensku aftur heim á morgun
(miðvikudag).
Stjórn Adenauers
JBIucher hélt velli
nýr landv.ráðherra
BONN, 16. okt. — frá NTB-Reuter
FJiRANZ Josef Strauss duglegum ungum „kjarnorkumanni", var í
t dag fengið það verkefni í hendur að stjórna uppbyggingu þýzka
hersins. Tók hann við embætti landvarnaráðherra af Theodor
,Blank. Var þetta tilkynnt í dag, eftir að samsteypustjórn Adenauers
hafði verið endurskipulögð.
★ ÁKVEÐNAR SKOÐANIR
Strauss fór áður með stjórn
kjarnorkumála. Hann er samt
sagður lengi hafa haft augástað
á landvarnaráðherraembættinu,
og hann hefur látið uppi ákveðn-
ar skoðanir á því, hvernig þýzki
herinn nýi eigi að vera. Hann
sagði blaðamönnum t.d. nýlega,
að vel búinn og vel þjálfaður
300 þús. manna her væri betri
í náinni framtíð en 500 þús.
manna her, sem ekki væri búinn
til kjarnorkustriðs. Blank fyrir-
rennari hans hafði hlotið mikla
gagnrýni bæði innan stjórnar og
utan.
Við „uppstokkunina" var ráð-
herrum fækkað um 4, en sömu
flokkar og áður standa að stjórn-
inni.
★ BLUCHER ÁFRAM
Mikla athygli vekur, að Bluc-
her heldur embætti sínu sem að-
stoðarforsætisráðherra. Var því
oftlega spáð að von Brentano
tæki við því embætti. En í dag
hermdu góðar heimildlr að Bluc-
her hafi haldið embættinu vegna
þess, að stjórnin gat ekki komið
sér saman um eftirmann hans
sem formanns í efnahagsnefnd
stjórnarinnar.
ingu um samræður Títós við
rússneska ráðameim, sem miðar
að því að bægja frá Vesturveld-
unum öllum ótta um væntanlega
stefnubreytingu Júgóslava í al-
.þjóðamálum. Stefna okkar er
óbreytt, sagði hann.
Þeir vestrænir menn sem til
þekkja, álíta að enn sé ýmiss
konar ágreiningur milli komm-
únistaflokka Júgóslavíu og Sov-
étríkjanna, en að hann sé ekki
alvarlegur og muni að líkindum
ekki trufla þá vinsamlegu sam-
búð, sem tekizt hefur með flokk-
unum upp á síðkastið. Hins veg-
ar getur þessi ágreiningur komið
í veg fyrir það, að Júgóslavar
ánetjist Rússum fyrst um sinn.
í dag var von á ungversku
sendinefndinni til Belgrad, en
fyrir henni er Emö Gerö, aðal-
ritari ungverska kommúnista-
flokksins. Mun hún hefja við-
ræður við Tító þegar í stað.
Frá Vínarborg berast þær
fregnir, að niðurstöðumar af við-
ræðum Títós og rússneskra leið-
toga hafi orðið þær, að Ungverj-
um, Rúmenum og Búlgörum
verði í sjálfsvald sett, hvort þeir
feti í fótspor rússneskra eða jú-
góslavneskra kommúnista í fram
tíðinni, en að Pólverjar, Tékkar
og Austur-Þjóðverjar verði áfram
undir áhrifavaldi Moskvu.
Hverjir tefja þingstörfin ?
íjAi) vakti sérstaka athygli á Alþingi í gær, að þegar
átti að fara að halda áfram þingsetningarstörfum
að loknum umræðum lun kjörbréf og afgreiðslu þess
máls, og kjósa forseta Sameinaðs þings, bað ríkis-
stjórnin um frest til morguns. Stakk þetta nokkuð í
stúf við ummæli og ósk Hermanns Jónassonar í fyrra-
dag þar sem hann fór þess á leit að þingfundi yrði
þá fyrirvaralaust haldið áfram um kvöldið og um-
ræðum lokið um kjörbréfamálið til þess að tefja ekki
þingsetningarstörf. En nú er komið á 6. dag síðan þing
koma saman og stjórnarflokkarnir eru ekki enn til-
búnir með forsetaefni sín. Það eru því ekki lengur
Sjálfstæðismenn sem tefja og draga á langinn þing-
setninguna.
HUGLEIÐINGAR
FINNBOGA RÚTS
Fyrstur á mælendaskrá var
Finnbogi Rútur Valdemarsson, M
hann flutti fyrri hluta ræðu sinn-
ar í fyrradag og lauk hennl »vo
í gær. Megin inntak ræðu hans
voru spurningar og bollalegging-
ar um það hvað myndi ska *f
Alþingi samþykkti að senda hina
umdeildu þingmenn heim. Virt-
ist hann helzt komast að þeirri
niðurstöðu, að það gæti ekkert
í málinu gert nema senda þing-
mennina heim, en ómöuglegt
myndi að fá gefin út kjörbréf
fyrir þá þingmenn er það teldi
rétt kjörna til þingsetu.
Hann taldi að eiginlega væru
þessir þingmenn rangt kjörnir á
þing, en það væri bara eiginlega
ekkert hægt í málinu að gera úr
því sem komið væri.
Sýnilegt var að ræðumaður var
algerlega rökþrota, enda var
ræða hans öll í molum.
MÓTMÆLI BERNHARÐS
Bernharð Stefánsson talaði
næstur og reyndi enn að bera
saman kosningabandalag Sjálf-
stæðisflokksins og Bændaflokks-
ins 1937 og Hræðslubandalagsins
nú. Gat þó engin rök fundið ný
í málinu og leiddi ræðu sína út
í það að mótmæla Jóni Pálma-
syni fyrir ádeilu hans á Friðjón
Skarphéðinsson. Ekki gerði hann
þó tilraun til þess að rökræða
einstakar ádeilur Jóns.
YFIRGRIPSMIKIL RÆÐA
GUNNARS THORODDSEN
Gunnar Thoroddsen flutti
mjög yfirgripsmikla og greina-
góða ræðu um málið í heild. —
Byrjaði hann með því að rekja
aðdragandann að breytingu
stjórnarskrár og kosningalaga,
sem gerð var 1933 þegar upp-
bótarsætunum var komið á. Þing
rofið 1931 og skeleggri baráttsi
Sjálfstæðis- og Jafnaðarmanna
fyrir réttlátari kjördæmaskipun
undir forystu þeirra Jóns Þor-
lákssonar og Jóns Baldvinssonar,
sem lauk með því að ákveðin
voru 11 þingsæti til jöfnurmr
milil þingflokka og samræmis á
kosningatölu flokkanna.
FRAMSÓKN ALLTAF
Á MÓTI RÉTTLÆTINU
Síðan ræddi hann þar er Al-
þýðuflokkurinn tók upp kjör-
Framh. á bls. 2