Morgunblaðið - 17.10.1956, Page 3

Morgunblaðið - 17.10.1956, Page 3
Miðvíkudagur 17. okt. 1956 MORGVNBLAÐIF 3 Er samveldi kommúnisfa- ríkjanna í uppsiglingu? MOSKVU, 15. okt. — ÞaS er mál sumra vestrænna kunn- áttumanna í Moskvu, aS fyrir dyrum standi einhvers konar bandalag allra kommúnista- ríkja. Er þetta taliS vera einn af ávöxtunum af viSræSum Títós viS Sovét-leiðtoga. Umræðurnar um þetta bandalag eiga að hafa byrjað skömmu eftir að Krúsjeff og Búlganin fóru í opinbera heimsókn til Júgóslavíu vor- ið 1955. Ekki er talið, að þetta bandalag komi í staðinn fyrir Kominform eða Komintern, heldur verði það eitthvað í líkingu við brezka samveldið, þ. e. a. s. mjög lausiegt banda- lag allra kommúnistaríkja heims, frá Kína í austri til Júgóslavíu í vestri, sem sam- einist um kenningar Marx og Lenins og tryggi sambandið sín á milli með efnahagslegri samvinnu. Hernaðarsamvinna komm- únistaríkjanna er þegar grund völluð í Varsjársáttmálanum. Þetta hernaðarbandalag hefur sameiginlegt herráð með að- setur í Moskvu, og er Ivan Konev marskálkur herráðs- foringi. Það er talið ólíklegt að Tító fáist til að gerast að- ili að Varsjár-bandalaginu, sem er hin austræna hliðstæða Atlantshafsbandalagsins, en líklegt þykir að hann muni í framtíðinni hafa þar áheyrn- arfulltrúa eins og Kínverjar gera nú. Fróðir segja, að svo vel hafi gengið að afmá áhrif Stalins í Austur-Evrópu, að tregða Júgóslava til að taka þátt í kommúnisku samveldi verði brátt úr sögunni. Er í því sam- bandi minnt á orð Títós, þegar hann var í opinberri lieimsókn í Moskvu í júní, þess efnis að Júgóslavar fögnuðu því að geta nú aftur snúið til hinnar sósialísku fjölskyldu. Kflar unglángabækut FIMM nýjar unglinga- og barna- bækur komu 1 bókaverzlanir í gær frá „Lieiftri“. Fyrst ber að nefna „Hönnu“, prýðilega stúlkna bók eftir danska rithöfundinn Brittu Munk í þýðingu Knúts Kristinssonar læknis. Þetta er fyrsta bókin í bókaflokknum um Hönnu. í Danmörku hafa bækur Brittu Munk náð mikilli út- breiðslu og hlotið óskiptar vin- sældir. Hinar bækurnar eru þessar: Fangi Indíánanna, eftir Hilde- garde Hawthorne. Það er ung- lingasaga, sem segir frá ferðalagi pilts og stúlku um frumbyggðir Ameríku í leit að foreldrum sín- um. Þau verða að fara yfir hrika- legt landslag, komast í kast við Indíána, villinaut, villidýr skóg- anna og margt fleira drífur á daga þeirra. Stóri-Björn og Uitli-Björn er ágæt unglingasaga í þýðingu Freysteins Gunnarssonar. Gömul ævintýri í þýðingu Theódórs Árnasonar, með mynd- um eftir Halldór Pétursson. — Ævintýrin eru þessi: Kátur og hvergi hræddur, Gullfuglinn, Ein kennilegur piltur, Biðillinn, Prestur og meðhjálpari, Ásbjörn öskubuskur, Litli klárinn, Ham- ingjan og skynsemin og Guð- björn skyggni og töfrakrukkan. Grái úlfurinn er ævintýri með 63 myndum. Bókin er samin við barnahæfi, og er mynd á hverri síðu efninu til skýringar. HONG KONG, 13. okt.: — Lögreglan hefur gengið hart fram í málinu gegn þeim er hún teiur að hafl átt upptökin að óeirðunum miklu er urðu á þjóð- hátíðardegl þjóðernissinna í s.l. viku. Hafa 3450 menn verið hand- teknir. 45 menn létu lífið í óeirðum þessum, þar á meðal kona svissnesks sendiráðsmanns í Hong Kong svo og barn brezks manns. Jörgen Biukdahl Norrcen bókmenntasaga Jörgens Bukdahts kemur Áskvifendur fá nafn sitt prentað í bókina SVO SEM áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu mun danskt bókaforlag gefa út á næstunni mikið verk eftir Jörgen Bukdahl ríthöfund. Er það bókmenntasaga Norðurlandanna og er gefin út í tilefni af 60 ára afmæli þessa kunna menningarfrömuðar og rit- höfundar 6. des. n.k. ÍBR-húsið flutt í burtu FYRIR dyrum stendur að stærsta íþróttahús bæjarins, íþróttahúsið við Hálogaland, verði rifið. — Hverfið þar innfrá er nú sem óðast að byggjast upp. Er nú svo komið að húsið er í vegi fyrir þeim framkvæmdum. Hefur bæjarráð samþykkt að borgarritari, ásamt bæjarverk- fræðingi og skrifstofustjóra bæj- arverkfræðings hefji viðræður við stjórn íþróttabandalags Reykjavíkur um brottflutning hússins. AÐALLEGA FRÁ HVERA- SVÆÐUM OG ELDFJÖLLUM í mynd þessari sjást meira af eldfjöllum og hverum, en verið hefur í íslenzkum kvikmyndum hingað til. Eru myndirnar teknar mjög víða á landinu, og bæði af jörðu og úr lofti. M.a. sýnir mynd in sérlega vel hraunrennslið í Heklu í gosinu 1947. HVERASVÆÐI Þá eru einnig ágætar myndir frá Lakagígum, en eins og kunn- ugt er, kom úr þeim, á ofanverðri 18. öld, mesta eldgos er sögur geta um, síðan land byggðist. Þá eru myndir frá Kerlingafjöllum, Hveravöllum, Geysi, frá Náma- skarði, Mývatni, Þeystireykjum, Krísuvík, Hveragerði, Land- mannalaugum og mörgum fleiri stöðum. DANS TIL KL. 1 Að kvikmyndasýningunni lok- inni verður dansað til kl. 1 e. m. Gera má ráð fyrir fjölmenni á þessa fyrstu kvöldvöku Ferðafé- lagsins á haustinu, en vökur þess hafa ætíð verið mjög vel sóttar. MIKIÐ VERK Allir þeir sem gerast áskrif- endur að bókinni fá nafn sitt prentað á sérstakan hamingju- óskalista fremst'í bókinni. Þetta ritverk Bukdahls er bók um 350 síður. Nefnist hún á dönsku Nordisk Litteratur- historie og fjallar um bókmennt- ir Norðurlanda allt frá öndverðu til 1914. Eftir því sem bókaútgáf- an skýrir frá hefur Bukdahl unn- ið lengi að ritverkinu, kemur þar víða við og gerir efninu glögg skil. Bókin er prentuð á mjög vand- aðan pappír og öll verður útgáf- an veglega af hendi leyst. Tekju- afgangurinn af sölu bókarinnar Er ánægjulegt fyrir fólk, er skammdegið sezt nú að, að geta notið sólar og sumars á kvöldvökum Ferðafélagsins, í góðum vinahópi, og þannig átt ánægjulega kvöldstund og rifj- að upp feraðlög frá sumrinu. rennur allur til rithöfundarins sem afmælisgjöf. Er það bókaút- gáfan Arnkrone sem að útgáf- unni stendur. Verð bókarinnar er d.kr.28.50 VINMARGUR HÉR Er ekki að efa að marga vini Bukdahls muni fýsa að eignast þetta ritverk hans, en hér á landi er hann mönnum að góðu kunn- ur. íslendingar minnast hans og fyrir drengilega framgöngu hans í handritamálinu og greinar um það í dönskum blöðum. Afmælisnefnd Bukdahls á ís- landi skipa þeir Valtýr Stefáns- son ritstjóri, Guðmundur G. Hagalín rithöfundur og Árni Óla ritstjóri. Þeir sem vildu gerast áskrif- endur að bókmenntasögunni eru annaðhvort beðnir að snúa sér beint til dönsku útgáfunnar eða íslenzku nefndarinnar, sem gef- ur allar upplýsingar. AKRANESI, 13. okt. — Aðal- fundur Taflfélags Akraness var haldinn 9. þ. m. Rædd voru ýmis félagsmál. Samþykkt var að fé- lagið gengi í Skáksamband ís- lands. Ákveðið var að halda sér- stakt haustmót, sem hefst 18. okt. en fresta skákþinginu fram yfir áramót. Teflt verður í þremur flokkum og unglingaflokki. Þátt- taka tilkynnist fyrir kvöld þess 16. okt. Teflt verður í Bæjar- þingsalnum, en þar eru jafnað- arlega haldnir fundir á þriðju- dögum og fimmtudögum. í stjórn félagsins eru: Hjálmar Þorsteins- son, form., Karl Helgason, ritari og Leifur Gunnarsson gjaldkeri. — Oddur. Unglinga vantar til blaðburðar Lynghagi Nesvegur Sörlaskjól Sími 1600 Fyrsta kveldvaka Fer^afélagsins í Sjálfstæðiskúsínu á morgun INNAÐ kvöld, fimmtudag, heldur Ferðafélag fslands, fyrstu ■f*- kvöldvöku sína á þessu hausti, í Sjálfstæðishúsinu. Verður til skemmtunar kvikmyndasýning, frumsýnd litkvikmynd, sem tekin er af bandarískum jarðfræðingi Donald White, er hann var á ferð hér. Skýringar verða fluttar með myndinni og gerir það Hallgrímur Jónasson kennari. FUNDAREFNI: 1. Olafur Thors formaÖur §jólfslæölsfBokksins svarar ræðu forsætisráðherra Frjálsar umræður Allt Sjállfstæðisfólk velkomið á fundinn. Stjórn Varðar. «<

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.