Morgunblaðið - 17.10.1956, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 17.10.1956, Qupperneq 24
Veðrið Y-kaldi, skúrir eða slydduéi. Ræða Bjarna Benediktssonar á blaff- síffu 13—15. Olafur Thors svarar forsætisrá^herra Varðarfundurinn í kvold FRÁ því núverandi ríkisstjórn tók viff völdum, hefir það ver iff ein meginuppistaðan í áróðri stjórnarflokkanna að ráðast á stefnu og framkvæmdir fyrrver- ríkisstjórnar. Einkum hafa Fram sóknarmenn verið ákafir í árás- Skemmdarverk fi •amm á vita I SÉÐASTA blaði Siglfirðings er skýrt frá því að skemmdarvarg- ar hafi framið mikil spellvirki á Selvíkurnefsvita. — Segir blað- ið frá því að vitinn sé bókstaf- lega sundurskotinn, — ljósker, hurðir og vitahúsið sjálft. Segir greinarhöf. að þess verði að krefj ast af yfirvöldunum í bænum, að öll byssuleyfi, sem gefin hafi verið út þar, verði kölluð inn. um sínum á stjómina. Kemur þetta raunar úr hörðustu átt, þar sem Framsóknarflokkurinn átti 3 ráðherra af 6 í ríkisstjórninni og átti að sjálfsögðu sinn þátt í að móta stefmu hennar og ráða framkvæmdum. Meðal annars hefir ráðherra Framsóknarflokks ins haft á hendi stjórn fjármála undanfarin 6 ár. Nú alveg nýlega hefir núver- andi forsætisráðherra haldið þessum árásum áfram í langri ræðu, er hann hélt á fundi Fram- sóknarmanna hér í Reykjavík. Á Varðarfundinum í kvöld mun Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræða sér- staklega þessar árásir forsætis- ráðherrans. Allt Sjálfstæffisfólk er vel- komið á fundinn og er hvatt til að mæta stundvíslega. — Fund- urinn hefst klukkan 8,30. Blanche Thebom Mænusóttarbólusetningin í fullum gangi hér í bænum jVTÆNUSÓTTARBÓLUSETNINGIN er nú i fullum gangi hér f J.*!- Reykjavík. Jafnframt bólusetningu skólabarna, er bólusetn- ing hafin í framhaldsskólum bæjarins svo og á börnum undir skóla- skyldualdri. f fyrradag var byrjað að bólu- setja börn innan skólaskylduald- urs, 6 mánaða til sex ára, í Heilsuverndarstöðinni. Hefur bólusetningin gengið ágætlega. Eru götur bæjarins teknar eftir stafrófsröð. Munu í gær og í fyrradag hafa verið bólusett alls um 2200—2300 börn. Hér í bæn- um eru börn, fædd á árunum 1950—1956, um 12000 talsins. Það hefur ekki orðið vart TryggíngafélÖgin hafa stórtapað á bílaflufn- ingunum TRÚLEGA munu vátrygginga- félögin taka til strangrar yf- irvegunar bílaflutninga með skip um til og frá landinu. Hafa fé- lögin orðið 'fyrir stórtjóni við þessa flutninga, sagði Ágúst Bjarnason, forstjóri vátrygginga- félagsins íslenzk endurtrygging, í stuttu samtali við Mbl. í gær. Ágúst Bjarnason sagði að það væri ekki rétt hermt í Mbl. á sunnudaginn að tryggingafélögin hefðu neitað skipafélögunum um að flytja notaða bíla í lestum skipanna. Slíkt hefur ekki verið gert. Það er meira að segja lægra iðgjald í lest en á þilfari, sagði Ágúst. Lestariðgjaldið af bil er 1,25% en þilfarsiðgjald 2%, og þá miðað við flutning á bílum til og frá landinu og Norðurlöndum, Vestur-Evrópulöndum og Banda- ríkjunum. Spilakvöld Sjálfstæðis- félaganna á Akureyri Vátryggingafélögin hér hafa undanfarin ár stórtapað á þess- um flutningum. Bílar hafa iðu- lega stórskemmzt, sagði Ágúst. Það er mjög sennilegt að trygg- ingafélögin muni reyna á næst- unni að koma því á að bílar sem fluttir eru með skipum, hvort heldur í lest eða á þilfari, verði látnir í kassa. Með því ætti hætt- an á skemmdum að minnka veru- lega, sagði Ágúst Bjarnason. Mefropolitan-söngkonan B. Thebom komin í söngför AMÁNUDAGSKVÖLDIÐ kom hingað til lands í söngför, með flugvél Loftleiða frá Osló, bandaríska óperusöngkonan Blanche Thebom. Er hún Reykvíkingum að góðu kunn síðan hún hélt hér tónleika á vegum Tónlistarfélagsins sumarið 1954. Undanfarna mánuði hefur Blanche Thebom dvalið í Stokk- hólmi og sungið þar við ríkis- óperuna við mikinn orðstír. Er hún á leið vestur um haf, en mun dvelja hér á landi um vikutíma og heldur hér tvenna tónleika fyrir styrktarmeðlimi Tónlistar- félagsins, auk þess sem hún mun syngja með Sinfóníuhljómsveit- inni á tónleikum hennar í Þjóð- leikhúsinu í byrjun næstu viku. Blanche Thebom er ein af kunnustu og vinsælustu söng- konum Metrópólitanóperunnar í New York og telst í fremstu röð messó-sópransöngkvenna heims. Auk þess að vera frábær og glæsi leg óperusöngkona er hún mjög 80 færeyskir sjómenn fóru í jólaleyfið í gærkvöldi GÆRKVÖLDI er Gullfoss lét úr höfn um klukkan 10 var með skipinu fjöldi Færeyinga, sjómanna sem verið hafa á togurum og fiskibátum. Eru þeir að fara heim í jólafríið, því svo stopular eru ferðir þangað, að hinir færeysku sjómenn vildu ekki draga för sína frekar og eiga á hættu að komast ekki heim fyrir jól. i eftirsótt sem einsöngvari og túlk- andi söngljóða. Á efnisskrá þeirra tónleika, sem Blanche Thebom heldur fyr- ir styrktarmeðlimi Tónlistarfé- lagsins, eru m. a. söngvar eftir Beethoven, Strauss og Sibelius og aría úr óperunni Herodiade eftir Massenet. Á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar mun söngkonan syngja þrjár aríur úr óperunni Carmen eftir Bizet, aríu úr óper- unni Samson og Dalilah eftir Saint-Saens og loks aríu úr óper- unni Euredice eftir Gluck. Innbrot um hábjartan dag í FYRRADAG brutust fjórir menn inn í íbúð í húsinu Kára- stíg 11 hér í bænum. Höfðu þeir á brott með sér öll húsgögnin í íbúðinni, eldavélina og annað lauslegt sem þar var að finna. í íbúðinni bjuggu ung hjón með son sinn, og var maðurinn, sern vinnur hjá Vitamálaskrifstofunni að starfi vestur við Breiðafjörð og konan einnig fjarstödd. Hús- ráðandi mun ekki hafa orðið mannaferðanna var, en hann kærði innbrotið í gær til saka- dómara og er það nú í rannsókn. neinna eftirkasta hjá börnunum, sagði Ólafur Jónsson aðstoðar- læknir borgarlæknis í gærkveldi, er blaðið leitaði hjá honum fregna af bólusetningunni. í áætlun þeirri, sem gerð hefur verið um bólusetninguna hér í Reykjavík, er gert ráð fyrir að í byrjun desember verði lokið annarri bólusetningu á öllusm þeim börnum og skólafólki, sem nú er búið að bólusetja og bólu- sett verður á næstunni. í gærdag var byrjað í gagn- fræðaskólum bæjarins og eins voru námsmeyjar í Húsmæðra- skólanum bólusettar. f dag verða nemendur í Menntaskólanum bólusettir. Varðandi bólusetninguna sem fram fer í Heilsuverndarstöð- inni, á börnum 6 mánaða til 6 ára aldurs, sagði læknirinn að fólk ætti að fylgjast nákvæmlega með því í blöðum, hvenær röðin kæmi að því. Er þetta mjög nauff synlegt til þess aff hægt sé aff framkvæma bólusetningaráætl- unina þannig, aff annarri umferff bólusetningarinnar geti veriff lokiff í desemberbyrjun, sagði Ólafur Jónsson læknir aff lokum. Sæmilegur síldar- afli í gærdag AKRANESI, 15. okt. — f dag mun síldaraflinn hjá reknetja- bátunum úr verstöðvunum hér og við Faxaflóa hafa verið mjög sæmilegur, þegar heildarmagnið er tekið, en misjafn á einstök skip. Hingað komu 14 bátar með alls kringum 1300 tunnur og var hæsti báturinn Höfrungur með 230 tunnur, Keilir 173 og Heima- skagi og Ver um 100 tn. hvor. Rúmur helmingur aflans var salt aður, en hitt fór til frystingar. Trillubátamir voru líka á sjff í dag og var hæsti báturinn með um 1000 kg., en aðrir minna, en enginn imdir 700 kg. afla. — Um daginn fékk einn báturinn, Skallagrímur, 200 punda lúðu hér skammt fyrir utan. — O. ANNAÐ KVÖLD efna Sjálfstæff- isfélögin á Akureyri til annars spilakvöldsins á vetrinum. Hiff fyrra var mjög vel sótt og urffu margir frá aff hverfa, enda eru vinningarnir á spilakvöldum þessum mjög glæsilegir. Þeir sem sóttu fyrsta spilakvöldiff ganga fyrir meff affgöngumiffa annáff kvöld, en mæti þeir ekki allir, geta affrir tekiff þeirra sæti. Eldur kviknaði , In^ólfi Arnarsyni HAMBORGARBLAÐIÐ „Bild- Zeitung“ skýrir frá því 9. okt., að eldur hafi komið upp í togaran- um Ingólfi Arnarsyni, þar sem hann lá við bryggju í Cuxhaven. — Var verið að vinna við radar skipsins með logsuðutækjum(?) og höfðu neistar fallið niður um ventil og ofan í vélarrúm. Kvikn- aði þar í olíu og varð af nokkurt bál. Slökkvilið borgarinnar kom á vettvang og slökkti eldinn áð- ur en brunabátar hafnarinnar komu á vettvang. Það sem veldur því að sjó-1 mermirnir tóku sér far með Gull- fossi í gær en biðu ekki næstu ferða, mun vera það, að ekki mun það hafa verið almennt á vitorði útgerðarmanna eða Fær- eyinganna sjálfra að um fleiri ferðir væri að ræða fyrir jól. En Gullfoss á að koma aftur við í Færeyjum 6. nóv., og síðasta ferðin fyrir jól er ferð Dr. Alex- andrine 15. des. héðan, en mjög er þegar pantað með henni. Það munar um minna fyrir mannfáa útgerðina, en þegar 80 menn ganga úr skiprúmi, sagði Hafsteinn Baldvinsson fulltrúi hjá L.Í.Ú. Mbl. í samtali í gær Mun þetta valda mörgum út gerðarfyrirtækjum miklum erf iðleikum. Geta má þess sem dæmis, að hér í Reykjavík liggur albúinn til veiða togarinn Guð- mundur Júní frá Flateyri. Allur fjöldinn af áhöfninni voru Fær- eyingar, sem fóru með Gullfossi í gær. Margir þessara sjómanna eru búnir að vera hér samfleytt síðan í vertíðarbyrjun í fyrra. — Guðmundur Júni komst ekki á veiðar í gær. Tekjum varið til menning- ar- og heilbrigðismála ef Akureyringar opna vinbúð BÆJARSTJÓRN Akureyrar samþykkti á fundi sínum í dag með 6 atkvæðum gegn 1 tillögu bæjarráðs um að fram verði látin fara 1. nóv. atkvæðagreiðsla meðal bæjarbúa um, hvort opna skuli útsölu áfengisverzlunar ríkisins á Akureyri. Þá voru í þessum hópi Fær- eyingar af Hafnarfjarðartogurum og margir af vélbátaflotanum. Hafsteinn Baldvinsson sagði, að fyrirsjáanlegt væri að á kom- andi vetrarvertíð myndi verða leitað eftir mönnum á skipaflot- ann í Færeyjum, sem og í fyrra, er hingað voru ráðnir rúmlega 800 sjómenn. Færeyingarnir hafa verið dug- 'egir og dugandi sjómenn. Flest- ir þeirra eru þess fýsandi að omast hingað aftur í skiprúm. — En þá þarf að sjálfsögðu, sagði lafsteinn, að komast að sam- omulagi við Eimskip um heppi- sgri tíma til flutnings á mönn- .inum heim til sín í jólafríið. Það er með öllu ófært fyrir út- gerðina sem gengur mjög erfið- lega að fá menn til starfa, að Færeyingar þurfi að ganga úr skiprúmi á miðri síldarvertíð við Faxaflóa, svo sem nú, því í hópi þeirra, sem nú fóru, voru margir menn, sem verið höfðu á rek- netjabátum úr verstöðvum hér við Faxaflóa, sagði Hafsteinn Baldvinsson að lokum. Síðan var samþykkt með sam- i hljóða atkvæðum, að leiddi at- kvæðagreiðslan til opnunar skuli tekjum bæjarins af henni einvörð ungu varið tií heilbrigðis- og menningarmála. ★ Héraðsbann hefur verið hér síðan 9. janúar 1954, en það var samþykkt með atkvæðagreiðslu, er fram fór í sambandi við al- ' þingiskosningarnar 1953. — Job. Ökeypis kvik- myndasýning UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA Bandaríkjanna sýnir eftirtaldar kvikmyndir í kvöld, miðvikudag, kl. 8,30, að Laugavegi 13 (gengið inn frá Smiðjustíg); Víðsjá — 5, um Súezdeiluna o. fl. Arthur Rubinstein leikur á píanó. Þættir úr sögu Bandaríkjanna, II. hluti. Á leið til frelsis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.