Morgunblaðið - 06.11.1956, Síða 2
MORCVMtr 4Ð1B
■Þriðiudagwr 6. n&v. 1956
Egypfaiandf
Framh. af bls. 1.
Gaitskell fór hörðum orðum
um aðgerðir Breta og Frakka í
Egyptalandi og kvað þær hafa
gefið Rússum hina æskilegustu af
sökun á grimmdarlegu framferði
þeirra í Ungverjalandi. Eden
svaraði því til, að hann hefði les-
ið skeytið, sem honum barst frá
herstjórninni á Kýpur, og gæti
hann ekki að svo stöddu sagt
neitt um, til hvaða svæða vopna-
hléð næði.
Lloyd utanríkisráðherra tók
einnig til máls og gaf skýr-
ingu á því, hvers vegna Bretar
sátu hjá, þegar Allsherjar-
þingið greiddi atkvæði um
myndun öryggissveita. Kvað
hann þessar sveitir ekki lík-
legar til að koma á friði við
Súez-skurðinn, og ennfremur
væri það Bretum á móti skapi,
að stórveldin ættu ekki að eiga
hermenn í þessum sveitum.
Jafnframt sagði Lloyd að
það væri fjarstæða að
jafna saman „lögregluaðgerð-
um“ Breta og Frakka við
Súez-skurðinn, sem miðuðu að
því að stöðva styrjöld, og árás
Rússa á Ungverja, sem væri
til þess faliin að koma af stað
styrjöld.
Gaitskell hafði áður lýst yfir
því, að hver sá íhaldsmaður, sem
steypti stjórn Edens og breytti
wh stefnu gagnvart Egyptum,
ætti vísan stuðning Verkamanna-
flokksins.
Talsmaður egypzku sendisveit-
arkmar hjá S.Þ. mótmælti harð-
lega yfirlýsingu Edens um vopna-
hié í Port Said, og kvað hana upp
spuna einn. Sagði hann, að kon-
ur og ungir drengir og stúlkur
berðust nú hraustlega gegn inn-
rásarher j unum.
Fyrr í dag tilkynnti herstjórn
Breta og Frakka á Kýpur, að her-
flutningaflugvélar hefðu farið frá
Kýpur í dögun. Fallhlífasveit-
irnar, sem sendar voru til Port
Said, mættu nokkurri mótspyrnu,
en misstu engan mann. 6 franskir
fallhlíiamenn voru særðir. Fyrir
landgönguna voru ekki gerðar
neinar ioftárásir, þar sem egypzki
flugflotinn var algerlega lamað-
ur eftir loftárásir síðustu þriggja
daga. Loftvarnabyssum var held-
ur ekki beitt að neinu marki.
Allar flugvélarnar sem fluttu
fallhlífarsveitirnar til Port Said
komu til baka heilu og höldnu.
Keithley yfirhershöfðingi sagði
fréttamönnum í morgun, að bar-
dagar hefðu í fyrstu verið snarp-
ir, en brezk-frönsku hersveitirn-
ar hefðu fljótlega náð fótfestu og
unnið bug á mótspyrnunni. Loft-
árásir voru ekki gerðar, sagði
hann, vegna þess að herstjórnin
legði áherzlu á að vinna sem
minnst tjón á lífi og eignum al-
mennra borgara. Hefði hún
þannig af ráðnum hug sagt skilið
við eitt helzta bragð styrjalda,
nefnilega skyndiárásir án fyrir-
vara. íbúar landsins hefðu fengið
margar viðvaranir fyrir hverja
árás. Hershöfðinginn sagði, að
Egyptar hefðu átt tvöfalt stærri
flugflota en þann, sem Bretar og
Frakkar notuðu til árása sinna,
en hann hefði strax verið lamað-
ur. Næsta verkefni væri að
hrekja bæði Egypta og fsraels-
menn tíu mílur frá skurðinum og
hreinsa hann af þeim skipum,
sem sökkt hefði verið í hann.
Einnig mun reynt að fá heri
fsraels til að hverfa inn fyrir lög-
boðin landamæri sín.
Frétíir seint í kvöld hermdu, að
samkomulag hefði náðzt um skil-
mála vopnahlésins í Port Said, að
egypzki herinn hefði lagt niður
vopn og að algert útgöngubann
væri nú í borginni. Kairó-útvarp-
ið tilkynnti hins vegar í kvöld, að
fallhlífasveitir Breta og Frakka
hefðu verið þurrkaðar út í Pert
Said. Útvarpið hóf sendingar aft
ur í ’dag eftir að það haföi verið
óvirkt í 3 daga.
í morgun skýrði herstjórn
Frakka á Kýpur frá því, að
franskar flugvélar hefðu eytt 18
egypzkum Ilj úsín-spr engjuflug-
vélum, sem voru að búa sig undir
að flýja til Saudi-Arabíu. Jafn-
framt var tilkynnt á Kýpur í
morgun, að í nótt hefðu verið
gerðar öflugri loftárásir á hern-
aðarmannvirki hjá Kairó og
Alexandríu en nokkru siani fyrr.
Það voru flugvélar frá Möltu,
sem gerðu þessar árásir.
Kairó-útvarpið skýrði frá
því í dag, að Nasser hefði farið
til Ismalíu í gærkvöldi og átt
þar fundi við herforingja sína.
Lét hann í ljós ánægju yfir
frammistöðu hersins og fólks-
ins, sem væri staðráðið að berj
ast þar til yfir lyki. Hann
fylgdist með fréítum frá Port
Said í bækistöðvum Súez-fé-
lagsins í Ismalíu og fór afíur
til Kairó í morgun.
Fregnir frá herjum Breta og
Frakka í Port Said herma, að
síðustu 48 klukkustundirnar hafi
Egyptar lagt á það megináherzlu
að eyðileggja allt, sem koma
mætti árásarherjunum að liði.
Talsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins lét svo ummælt í
dag, að Bretar væru ekki í styrj-
öld við Egypta, og að þeir muni
þvinga ísraelsmenn til að hverfa
heim strax og færi gefst. Bar
hann til baka fullyrðingar Rússa
þess efnis, að Bretar hafi hindrað
siglingar um austanvert Miðjarð-
arhaf og Súez-skurðinn. Þeir hafi
ekki sett hafnbann á egypzkar
hafnir, heldur ráðið erlendum
skipum frá að sigla á hættusvæð-
inu.
Það hefur kvisazt í Tel Aviv,
að ísraelsmenn hafi hertekið ým-
is nýtízku rússnesk vopn, áður ó-
þekkt, af Egyptum á Sínaí-skag-
anum.
Výjuslu fréttir
LONDON, 5. nóvember:
Einkaskeyti til MbL
frá Reuter.
SHEPILOV utanríkisráðherra
Rússa hefur beðið forseta ör-
yggisráðsins að kalla saraan
skyndifund og jafnframt lagt
fram tillögu til ályktunar, þar
sem þess er krafizt, að öllum
bardögum verði hætt í Egypta-
landi innan 12 klukkust. og að
hersveitir ísraelsmanna, Breta og
Frakka verði tafarlaust kallaðar
heim. Er þess farið á ielt, að öll
meðlimaríkin, en fyrst og fremst
Bandartkjamenn og Rússar leggi
fram herstyrk til hjálpar Egypt-
um, ef árásarríkin hlýðnist ekkl.
Kvað hann Rússa reiðubúna að
senda her á vettvang.
Bandaríkin tilkynntu í kvöid,
Alþýðubandalagið tekur
á sig nýtt dulargervi
FRÉTTATlMINN í Ríkisútvarp-
inu kl. 8 í gærkvöldi hófst
með því að Hermann Jónasson
forsætisráðherra hélt ræðu og las
upp ályktun ríkisstjómarinnar
frá í gær, sem birt er á öðrum
stað í blaðinu. Var í útvarpinu
getið stuttlega um ofbeldi Einars
Olgeirssonar, forseta Neðri deild-
ar Alþingis, er hann neitaði Ólafi
Thors, form. Sjálfstæðisflokksins
um orðið. Einnig var lesin upp
ályktun Alþýðuflokksins, sem
fór í þá átt, að flokkurinn for-
dæmdi ofbeldi Rússa í Ungverja-
landi og hernað Breta og Frakka
í Egyptalandi.
Loks var lesin ályktun Al-
þýðubandalagsins, þar sem átald-
ar voru harðlega „blóðsúthell-
ingar“ af völdum Breta og
Frakka í Egyptalandi, og einnig
vítt „íhlutun" Rússa um innan-
landsmál Ungverja, eins og það
var orðað.
Yfirlýsing Alþýðubandalagsins
er augljós tilraun til að taka upp
enn einn nýjan grímubúning til
að hylja hirtn raunverulega til-
gang og kœræti. Vakti m. a. at-
hygli, að í yfirlýsingu Alþýðu-
bandalagsins voru „blóðsútheU-
ingar“ Breta og Frakka í Egypta-
landi ætíð nefndar á undan því,
sem kallað var „íhlutun“ Rússa
um mál Ungverjalands. Einnig
var lögð á það sérstök áherzla,
að flokksmenn Alþýðubandalags-
ins hefðu algerlega frjálsar hend-
ur um skoðanir sínar á þessum
málum!
Var ljóst, að Alþýðubandalag-
ið taldi sig ekki lengur eiga ann-
arra kosta völ en að fela sig bak
við nýja grímu. Hitt var eftir-
tektarverðara, að sjálfur forsæt-
isráðherrann hafði alla tilburði
í þá átt að hjálpa kommúnist-
vsm við að gera þetta nýja gerfi
sem áiitlegast og forða þeim, ef
verða mætti, frá þeirri algera
einangrun, sem isienzka þjóðin
krefst nú að þeir verði settir L
að þau muadu leggjast gegn þvi,
að Rússar eða nokkurt annað
ríki sendi herafia til Egyptalands.
Síðustu fréttir herma, að Ör-
yggisráðið hafi verið kvatt saman
seint í kvöld, og situr það þá
samtímis Allsherjarþinginu, sem
kallað var til aukaf undar í kvöld,
samkvæmt kröfum meðlimaríkj
anna frá Asíu og Afriku. Er bú
iut við að Arabaríkin leggi fram
strangar kröfur um einhverjar að
gerðir gegn Bretum, Frökkum
og ísrae! mönnum, jafnvel að
þeim verði vikið úr S.Þ.
Allur hsimuriim iordæmir ofbeldisúrds Riíssu
Lundúnum, 5. nóv.
Frá Reuter-ivTB.
A ALLS STAÐAR er árás Rússa
T á ungversku þjóðina mót-
mælt. í dag fóru 100 þús. Vestur-
Berlínarbúar í mótmælagöngu
un götur borgarinnar.
A Indverska stjómin hefur sent
T Sovétstjóminni harðorð mót-
maeli vegna atburðanna í Ung-
verjalandi. — Segir indverska
•tjómin að hún hafi haldið að
slík framkorna heyrði fortiðinni
ta.
A Hafnarverkamenn í Rotter-
T dam neituðu í dag að afferma
tvö rússnesk skip sem þar liggja.
í Belgíu og Hollandi hafa fánar
hvarvetna blakt í hálfa stöng
vegna atburðanna í Ungverja-
landi. — Mótmælagöngur fara
fram í Haag, Amsterdam og
Rotterdam á morgun. í Rotter-
dam hefur hópur manna ráðizt
á aðalstöðvar kommúnistaflokks-
jns í borginnL Tók mikill mann-
fjöldi þátt í aðgerðum þessum.
Á Frá Gautaborg berast þær
T fregnir að stjóm tónlistar-
félagsins í borginni muni ekki
*já um hljómleika rússneska
fiOluleikarans Igors Oistraks, sem
átti að leíka á vegum félagsins
21. nóv. næstkomandi. — í skeyti
tii fiðluleikarans segir að stjóm-
in taki heimboð sitt aftur vegna
atburðanna í Ungverjalandi.
Miklar mótmælagöngur fóru
frsm í Danmörku í dag, m. a.
í Esbjerg. íbúar borgarinnar mál-
uðu á aðalstöðvar kommúnista-
flokksins I baenum: MORÐ-
INGJAR.
Norræna verkalýðsnefndin
heldur fund um þessar mundir í
Helsingfors. Þar hefir ofbeldis-
árás Rússa á Ungverja verið
harðiega mótmælt. — „Hið hetju-
lega frelsisstríð", segir í ályktun
nefndarinnar, „sem Ungverjar
heyja nú, sýnir svart á hvítu,
að ofbeldið getur aldrei brotið
niður frelsisþrá kúgaðra þjóða“.
Verkaiýðssamband Vestur-
Þýzkalands biður félaga sína, 6
milljónir að tölu, að m' ; -Ung
verjalands með einnar mínútu
þögn á morgun.
Þúsund stúdentar fóru í mót-
mælagöngu til rússneska sendi-
ráðsins í París í dag.
Bandaríska stórblaðið New
York Times segir m. a. í dag:
„Við ákærum Rússa fyrir morð.
Við ákærum Rússa fyrir mestu
svik, sem framin hafa verið við
ungversku þjóðina — og mann-
kynið. Atburðirnir í Ungverja-
landi gleymast aldrei".
Nýjnstu fiéttir
• ANNA KETHLEY, sem
sseti áttí í síðasta ráð»»eyti
Nagy og verið hefur einn af
leiðtogum jafnaðarmanna í
Ungverjalandi, kom tii New
York í dag. Hún mw fiytja
Allsherjarþinginu skýrslu um
athurðina í UngverjalandL —
Þegar Anna Kethley keu tii
New Ywk, sagði hún: „Við
biðjum ekki um vopu. Við
biðjum um siðferðilegan
styrk frá S. Þ.“ — Þegar hún
var spurð að því, hverjir
hefðu einkum staðið á bak við
frelsisbaráttuna í Ungverja-
landi síðustu 10 daga, svaraði
hún: „Æska Ungv ids
hefur staðið þar í f r-
brjósti. Ungir ver’ '
ungir stúdentar h
stríð okkar.“
^ Búdapestútvarpió
eftir rússceskum .
ingjum í Ungverjalandi í
„algjör ringulreið“, eins og ...
izt var aS orði, ríkti í landinu.
^ í kvöld heyrðist í stuttbylgju
stöð ungversku frelsissveit-
anna einhvers staðar í landinu og
skýrði hún frá því að Mð úr frels-
issveitunum hefði í kvöld u*n-
kringt rús«aieskt fótgöngulið sem
hefði veríð á leið til Búdapest.
En stöðin bætti við: „Yið erum
aS fyliast örvæntingu, þvi að far-
ið er að ganga á sfeotfwrabúrgðir
okkar“. Og enn fremur: „Rússar
fremja fjöldamorð hér í Ung-
v«rjaiandi“.
® í kvöld bárust þær fregnir
frá Budapest að tbúar horgar
hutar héldu áfram að byggja
götuvigi og skriðdrekahindramr
í dag. Rússneskir skriðdrekar
fara aðeins um getur borgarinaar
i hópum — og er augljóst að
áhafnir þeirra óttast áráatr líug-
verja.
{£ Sfðuetu fregnlr hermdu að
15 þús. ungverskir Hóttamenn
hefðu komið til Austurríkis. Þar
á meðal eru mörg börn. Frétta-
ritari brezfea útvarpsins skýrði
frá því í kvöld að eitt barnanna
hefði haft með sér mynd af föður
sínum og á henni stóð nafn barns
ins og svohljóðandi athugasemd:
„Gætið harnsins mins“.
Tónleikar
Sinfóníuliljóm-
sveitarinnar
í gærkvöldi
HLJÓMLEIKAR Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Þjóðieikhúsinu í
gærkvöldi voru geysifjöimennir.
Lék hljómsveRin fyrst sinfóníu
nor. 6 í h-moll eftir Tsehaikovsky
og síðar píanókonsert í a-moll
opus J6, eftir ©rieg. Lék Árni
Kristjánsson einleik. Leik hljóm-
sveitarinnar og einleikara var frá
beerlega vel tekið.
1 lok hijómleikanna mæiti Ragn
ar Jónsson nokkur orð, þakkaítt
hljómlistarmönriunum ágætan
letk og minntist síðan hinnar
hetjulegu baráttu Ungverja fyrir
feekú sínu. Risu áheyrendur úr
sætum sínum í samúðarskyni við
Umgverja. Yi« útgöngudyr Þjóð-
letkhússins voru hj úkrunarkonur
ae*n tóku á móti samskotum til
ungversku þjóðarinnar, og söfn
uðust þegar bráit á fimmta þús
und krónuí.
— Ungveqoliuid
Framh. af bls 1
Skömmu eítir kl. 6 f.h. útvarp-
aði Budapestútvarpið áskorun til
rússneskra hermanna þess efnis
að skjóta ekki á almenna borg-
ara: „Forðumst blóðsúthelling-
ar“.
Síðan kom önnstr orðsend-
inc frá fréttastofu Szabat Nep:
Nú er orrustan hafin að nýju.
Skriðdrekasveitir og stórskota
lið Rússa ræðst á okkur. Við
höfum fengið dálitlar skot-
færabirgðir, en það nægir
ekki. Við þurfum vopn. Hjálp-
ið okkur. Þið geíið ekkl horft
aðgerðalausir á berhent fólk
ráðast gegn rússneskum skrið-
drckum. Hvað gera Samein-
uðu þjóðirnar? — Veitið okk-
ur ofurliíla hughreystingu.
Hvað gerir aliur heiimirinn
okkur til hjálpar?
Um þetta leyti voru liðnar 48
stundir síðan Rússar höfðu reynt
að fullvissa ungversku stjórnina
um það, að Rauði herinn, sem til
Ungverjalands streymdi, hefði
ekki árás í hyggju. Þetta voru bar
áttuaðferðir Hitlers, baráttuað-
ferðir einræðis- og kúgunarafla.
Ekki löngu síðar barst ein
orðsending enn frá fréttastjóra
Szabat Nep: — Mér er alveg
sama um aHt. Endalokin nálg
ast. Mig iangar til þess a®
skjóta þessa glæpamens.
Rússneskar orrustuflugvéiar
skjóta á borgina. Ég sá það
bæði og heyrðL Byggingar
hrynja alit í kring. Hávaðinn
er svo mikill, að við heyrum
ekki hver til annars. Skrið-
drekar hafa hafið skothríð á
hús okkar, en enginn þó særzt
ennþá. Rússnesku skriðdrek-
arnir æða yfir allt. — Síðan
hætti hann skyndilega sending
unni, og kom þá stuttorð orð-
sending: „Bíðið augnablik —
ég ætla að fara út að gluggan-
um og skjóta á fantana.“
í þessu hefur fjarritarinn eyði-
lagzt, því að ekkert heyrðist til
hans eftir það. Fréttaritari AP í
borginni flutti hins vegar orð-
sendingu frá fréttastjóra Szabat
Nep til vina hans í Englandi. —
Bar hún hinztu kveðjur og í lok-
in segir: „Við munum berjast".
★ ★
Ungverska stjórnin hafði þá út-
varpsstöðina enn á sínu valdi.
Hjálparbeiðnum var útvarpað
með stuttu millibili — á ýmsum
tungumálum. Ættjarðarsöngvar
voru leiknir — og þá „Ave Maria“
eftir Sehubert. Milli kl. 7 og 8
um morguninn var komið upp
sendístöð í þinghúsinu, og hefur
útvarpsstöðin þá sennilega verið
failin og hún eyðilögð.
Rétt fyrir kl. 8 heyrðist síðast
í útvarpi frá Budapest. Það var
hjálparbeiðni frá ungverska rR-
höfundafélaginu — og segir þar:
„VkJ eigum ekki langan
tíma eftir. Hjálpið Ungverja-
lancti, hjálpið ungversku þjóð-
iimi — rMhöfundum, vislnda-
mömium, verkamönnum,
bændum og menntamönnum
henrnir — HJÁLP, HJÁLP,
HJÁLP."
Siðan v-ar byrjað að leika
hljómplötur, en skyndilega þagn
aði stöðin. Klukkan var eúaa
mínútu yfir átta. Síðan hefir ekk.
, eet heyrst írá Budapest.