Morgunblaðið - 06.11.1956, Síða 9
ÞriðjucJagur 6. nóv. 1958
MORGXJTSBLAÐIÐ
9
Það er ekki nóg að ð/óða
útlendingum andrúmsloftið
BIRGIR ÞÓRHALLSSON skrif-
stofustjóri Flugfélags íslands
í Kaupmannahöfn ræður yfir
mjög skemmtilegri bækistöð, sem
félagið hefur í Vesterbrogade 6c.
Það er í hjarta borgarinnar, í
nýrri byggingu rétt við sjálft
Ráðhústorgið. Þarna er miðstöð
félagsins og þangað sækja fjölda
margir íslendingar og útlend-
ingar.
Sendiráðin og konsúlötin ís-
lenzku hafa látið í ljós mikla
ánægju með starfsemi flugskrif-
stofanna, sem létta af þeim ýms-
um vanda og kvabbi einstakra
manna. Það er líka lögð á það
áherzla að afgreiðsla sé öll sem
liprust.
Birgir Þórhallsson er ungur
maður, ættaður af Seyðisfirði
Hann er mjög áhugasamur í
starfi sínu og vildi koma miklu
til leiðar í sambandi við aukinn
ferðamannastraum til íslands en
þar eru margir örðugleikar í
vegi.
Tíðindamaður Mbl. átti fyrir
nokkru lauslegt rabb við Birgi
um ýmislegt, sem að ferðamál-
um lýtur, en þau eru auövitað
efst í huga hans.
MÖGULEIKARNIR FYRIR
AUKNUM FERÐAMANNA-
STRAUM
Spurningunni um það hvað
Birgir teldi um möguleika á
auknum ferðamannastraum til
landsins og gildi hans svaraði
hann í þessa átt:
Það þarf ekki mörgum orðum
að því að eyða, að mögulegt
mundi vera að auka að miklum
mun aðstreymi ferðamanna til
íslands. Sú staðreynd dylst eng-
um, sem við þessi mál fæst. Gildi
sliks iiggur auðvitað fyrst og
fremst í þeim tekjum, sem ferða-
lögin veita. Öll þau lönd, hverju
nafni sem nefnast, sem hafa
nokkra möguleika til að laða til
sín ferðamenn reyna það eftir
mætti og hví skyldu íslendingar
ekki gera hið sama?
MIKLIR ERFIÐLEIKAR
Hvað er örðugast viðfangs í
sambandi við ferðalög erlendra
manna til íslands?
Það, sem gerir okkur, sem við
þessi mál fást, einna mesta erf-
iðleika, er ástandið í hótelmál-
unum heima. Það þarf að rísa
upp hótelrekstur með nýtízku
sniði. Þess er ekki að dyljast að
útlendingar láta mjög misjafn-
lega af hótelunum heima. M.a.
er kvartað yfir því að hótelþjón-
ustan sé kuldaleg og ekki nægi-
leg natni gagnvart ferðamann-
inum. í Reykjavík þarf að rísa
upp myndarlegt nútímahótel,
með öllu því, sem krafizt er af
slíkum rekstri á okkar tímum.
Við, sem fáumst við þessi mál
gleðjumst yfir því að heyra um
nýja og fallega veitinga- og gisti-
staði eins og „Naustið“, „Röðul“
eða „Bifröst" og hótelið í Borgar-
nesi. En það eru vonbrigði, að
hótelmálin í Reykjavík, skuli ekki
vera komin lengra og nýtt og
veglegt gistihús risið upp. Meðan
svo þröngt er um ferðamenn,
Rætt v/ð Birgi Þórhallsson skrifstofu-
stjóra Flugfélags íslands i Kauprnanna-
höfn um feróamál
eins og nú má heita alger ó-
gerningur að skipuleggja ferða-
lög til landsins svo nokkru nemi.
Það þýðir ekki að gera átak til
að hæna ferðamenn til landsins,
í nokkrum verulegum mæli,
meðan svona er ástatt.
En það þarf auðvitað að hugsa
um fleira en Reykjavík, því fæst-
ir ferðamenn fara til að sjá hana
eingöngu. En nú eru að rísa
upp ýmsir boðlegir gististaðir
utan Reykjavíkur, svo sem í
Borgafirði og sú þróun mundi
jafnvel halda hraðar áfram, ef
séð væri vel fyrir nógu húsrúmi
þar sem gestirnir stíga fyrst á
land eða í Reykjavík. Það mætti
margt gera til að greiða fyrir
ferðamönnum úti á landi: Þar
sem ekki eru gististaðir mætti
taka upp skráningu herbergja á
velhýstum sveitabæjum eða í
þorpum, þar ætti að verðleggja
þau, leiðbeina húsráðendum um
viðurgerning gesta o. s. frv.
Þannig mætti „opna“ ýmis falleg
svæði fyrir ferðamönnum, sem
nú mega heita lokuð vegna skorts
á gistirúmum.
LAX, SILUNGUR OG HESTAR
Ferðamáijn okkar eru auðvitað
næstum því ótæmandi umræðu-
efni, heldur Birgir áfram, því
þar er svo 'margt, sem þarf að
breyta og bæta og ómögulegt að
víkja að því öllu. Margir útlend-
ingar spyrja t.d. um aðstöðu til
lax eða silungsveiða á íslandi, en
slíka aðstöðu er mjög erfitt að
veita. Það er, eins og nú stendur,
ekki hægt að gera veiðiréttindi
að þætti í sölustarísemi á far-
miðunum til fslands. Hvað sem
laxveiðinni líður, sem er nú mjög
upptekin af innlendum mönn-
um, ætti þó að vera
hægt að fá silungsveiðirétt til
ráðstöfunar, en slík veiði við
fallegt vatn eða á, væri eftir-
sóknarverð. Þá spyrja ýmsir um
ferðalög á hestum, menn hafa
lesið í ferðabókum um hestferða-
lög í óbyggðum og dreymir um
ævintýri, sem ekki aðrir eiga
völ á. Það er nefnilega hin sterka
hlið okkar lands, hversu upp-
runalegt og ósnortið það er. En
mér er ekki kunnugt um að unnt
sé að auglýsa skipulagðar ferðir
á hestum um landið.
Það hefur verið sagt að ísland
væri seinasti „óasinn“ í Evrópu,
og ef til vill er mikið satt í
því. Það liggur auðvitað í aug-
um uppi að það er ekki nóg að
bjóða upp á andrúmsloftið, meira
verður til að koma og ísland
hefur meiri fjölbreyttni að bjóða
en flest eða öll Evrópulönd.
ÚTLENDINGARNIR
OG VERDLAGIÐ
Kvað segja útlendingar um
verðlagið hjá okkur?
Birgir Þórhalisson við skrifborð sitt.
Það er skemmst af að segja, að
flestum Evrópumönnum a. m. k.
finnst það óbærilega hátt. Marg-
ir gefast upp við íslandsferð af
þeim sökum og ýmsir hafa ferð
sína miklu styttri en ella mundi,
vegna þess að farareyrinn endist
illa þegar til íslands kemur.
Það mundi bæta aðstöðuna stór
lega ef tekin væri upp sérstök
gegnisskráning fyrir ferðamenn,
eins og dæmi eru til í mörgum
löndum.
ÁLIT FERÐAMANNA
Á ÍSLANDI
Hvernig bera erlendir ferða-
menn íslandi söguna?
Að því leyti, sem ég þekki til
eru ferðamenn stórkostlega hrifn-
ir af landinu og líkar vel við
þjóðina. Sérstaklega veröur þeim
tíðrætt um góð kynni af íslenzk-
um almenningi. Það er sorglegt
til þess að vita að við íslend-
ingar skulum vera jafnaðgerða-
litlir í ferðamálum, eins og víð
erum. Ég efast ekki um áhuga
margra manna en hjá því getur
ekki farið að við, sem störfum
erlendis að því að auka ferðalög
til landsins séum dálítið óþolin-
móðir. Við eigum líka bágt með
að skilja að við íslendingar get-
um leyft okkur að varpa frá
okkur, eins og gert er, þeirri
miklu tekjulind, sem ferðalögin.
eru.
Það er mikið spurt um ferðir
til landsins á vegum Flug-
félags íslands, sagði Birgir
Þórhallsson að lokum. En ef
til vill megum við Islendingar
búast við að ferðamenn trén-
ist upp á að spyrja ef ekki
verða bráðlega sköpuð betri
skilyrði til að skipuleggja ferð
ir til landsins, en nú er. Það
er áreiðanlega ekki hættu-
iaust, ef það dregst öllu Iengur
að gera verulegar umbætur á
ferðamálunum heima.
MURVERK
Þrlr röskir múrarar geta
bætt við sig verki strax. —
Höfum hrærivél. Tilboð send
ist blaðinu fyrir föstudag —
merkt: „Múrverk — 3213“.
íbúð til leigu
3 herb. og eldhús til leigu
strax, í Smáíbúðarhv. Fyr-
irframgreiðsla nauðsynleg.
Tilb. ásamt uppl. um fjöl-
skyldustærð, sendist Mbi.
fyrir kl. 6 í kvöld, merkt: —
„íbúð — 3216“.
Tveggja berbergja
ÍBÚÐ
til leigu fyrir fámenna f jöl-
skyldu. Tilb. sé skilað á algi
Mbl. merkt: „Leiguíbúð —
3217“.—
Einhleyp, reglusöm
STÚLKA
sem hefði sjálfstæða atvinnu
og vildi tryggja sér hús-
næði í vor, eða vildi taka að
sér ráðskonustöðu hjá ein-
hleypum reglusömum manni
og hefði ástæður til að taka
eða útvega honum fæði og
helzt húsnæði á sama stað,
til vors, þarf að hafa sér-
stakt fæði. Vinsaml. sendið
tilboð til blaðsins fyrir föstu
dagskvöld, merkt: „Hag-
kvæmt — 3215“ og verða þá
veittar nánari upplýsingar.
Bifreiðar til sölu
Kaiser ’54; Vauxhall ’50;
Citroen ’47; Oldsmobile ’41;
Renault sendiferðabifreið,
jninni gerð, fæst án útborg-
unar. Jeppi, 1 mjög góðu á-
sigkomulagi með kerru. —
Greiðsluskilmálar mjög góð-
ir á öllum þessum bifreiðum
BifretSasalan
Njálsgötu 40. Sími 1963.
DÆGURLAGASCEPrftll
S. K. T.
Al-íslenzk skemmtun, sem enginn ætti að missa af í Austurbæjar-
bíó í kvöld kl. 11,15. — Atkvæðagreiðslan um úrslitalögin. —
Sigurður Ólafsson
syngur:
Nóttin og þú.
Akranesskórnir
Sonarkveðja
Þú gafst mér allt
Á gömlu dönsunum
Svava Þorbjarnard.
syngur:
Heim vil ég.
Adda Ömólfsd.
syngur:
Haukur Morthens
syngur:
Hvítir svanir
í maí
Við gluggann.
Svava og Sigurður syngja: Greikkum spor.
Adda og Haukur syngja: Þú ert vagga mín, haf,
6-manna hljómsveit Karls Billich aðstoðar.
Bláu augun
Kveðja förusveins
Viltu koma?
Gunnar Kristinn Guðmundsson, 20 ára, einhentur, leikur með vinstri hendi og
hægri handleggsstubb á harmónikku á undraverðan hátt.
Lárus íngófsson og Kar Guðmundsson, leikarar fara með svo gráthlægilegan gaman-
þátt eftir Guðmund Sigurðsson, að hláturmildu fólki er ráðlagt a"o hafa með sér
hláturstillandi pillur, til vonar og vara.
Sigríður Hannesdóttir og Hjálmar Gíslason syngja nýjar, óbærilegar GAMANVÍSUR.
Kynnir: SVAVAR GESTS
Aðgöngumiðar hjá Fálkanum — Sigríði Helgadóttur — Vesturveri og í Austur-
bæjarbíói.