Morgunblaðið - 06.11.1956, Side 12
n
MÖRGUNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 6. nðv. 1956
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Ásmundsson.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 25.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
Þjóðarmorð, sem vekur
harm og reiði
IUNGVERJALANDI er hinn
Rauði her Sovét Rússlands nú
að fremja þjöðarmorð. Skrið-
drekum, fallbyssum og flugher
er nú einbeitt að því að brytja
niður smáþjóð, sem hefur risið
einhuga upp gegn kúgurum sín-
um.
Um það verður naumast deilt,
að hér er um að ræða einhverjar
svívirðilegustu og ljótustu aðfar-
ir, sem sagan greinir. Allur heim-
urinn er vitni að því, að ung-
versk alþýða reis upp og mót-
mælti kúgun kommúnista. Ung-
verski herinn og ungverskir
menntamenn studdu þessi mót-
mæli. Jafnvel sumir leiðtogar
kommúnista í Ungverjalandi
þorðu ekki annað en að láta und-
an vilja fólksins og krefjast þess
að oki Rússa og Rauða hersins
yrði létt af þjóðinni.
Quislingsstjórn
kommúnista mynduð
Þegar hér var komið sá hin
fámenna klíka kommúnista í Ung
verjalandi hvert stefndi. Hún og
Rússar voru að missa tökin á
Ungverjum. Eitt leppríkjanna
var að sprengja af sér fjötra
kommúnismans. Þessari þróun
vildi Moskvuvaldið ekki una. Það
sendi heri sína gráa fyrir járnum
til árása á hina fámennu en
frelsisunnandi ungversku þjóð.
Budapest, hin fagra ungverska
höfuðborg á bökkum Dónár varð
fyrst fyrir hrammi ofbeldisins.
Jafnhliða létu Rússar einn lepp
sinn mynda Quislingsstjórn í
Ungverjalandi.
Ungverjar eiga samúð
alls heimsins.
Ungverjar eiga í dag samúð alls
heimsins. Hinn frjálsi heimur hef-
ur heyrt neyðaróp þeirra og ör-
væntingarfulla bæn um hjálp.
Fyrr eða síðar munu grimmdar-
seggirnir, Quislingarnir og hinir
rússnesku kúgarar, verða sigrað-
ir og hraktir burt af ungverskri
grund. En í bili er hætt við því
að Ungverjar séu ofurseldir kvöl-
urum sínum.
Hjarta íslendinga slær
með Ungverjum
Hér á íslandi slær hjarta
hvers ærlegs lýðræðissinna
með ungversku þjóðinni. ís-
lenzkir menntamenn hafa
vottað henni og öllum þjóðum
er fyrir slíkum ofbeldisárásum
verða, einlæga samúð sína.
Á hverju einasta íslenzku
heimili lýðræðissinnaðs fóiks
vekja fregnirnar um þjóðar-
morð kommúnista í Ungverja-
landi djúpan harm og réttláta
reiði.
Bregða íslenzkir komm-
únistar enn yfir
gærunni?
Það hefur vakið athygli að ís-
lenzkir kommúnistar hafa til
þessa forðazt að segja eitt styggð
aryrði um hið svívirðilega
grimmdaratferli Rússa í Ung-
verjalandi. En nú finna leiðtog-
ar íslenzkra kommúnista að svo
kalt andar að þeim að erfitt er
um skjól. Þess vegna má búast
við því, að „Alþýðubandalag“
Einars Olgeirssonar reyni enn
einu sinni að bregða yfir sig
nýrri gæru og þykist nú hvergi
vilja nærri koma grimmdarverk-
um Rauða hersins og „félaganna"
í Moskvu.
En fslendingar muna dýrðaróð
kommúnista hér á landi til Rauða
hersins, sem þeir oft hafa sagt
að hafi „frelsað“ leppríkin, sem
nú stynja undir hinu rússneska
oki. Kommúnistum þýðir þess
vegna ekki að bregða á ný yfir
sig dulargervi. Það vita allir að
þeir eru „félagar“ og skoðana-
bræður mannanna í Kreml, sem
gáfu fyrirskipanirnar um það að
myrða hina ungversku þjóð og
ræna hana frelsi sínu. Einar Ol-
geirsson er nýkominn frá viðræð-
um við þá á vegum hinnar ís-
lenzku ríkisstjórnar.
Smánarblettur
inni.
Það er vissulega sorglegur
smánarblettur á íslenzku þjóð-
inni, en kommúnistar, skoðana-
bræður og „félagar" mannanna,
sem standa að þjóðarmorðinu og
Quislingsstjórninni í Ungverja-
landi, skuli nú sitja í ríkisstjórn
á íslandi og eiga hvað drýgstan
þátt í að móta utanríkisstefnu
landsins. Af því leiðir það einn-
ig, að hér er allt öðru vísi brugð-
izt við harmleiknum í Ungverja-
landi af hálfu þings og stjórnar
en t.d. meðal frændþjóða okkar á
Norðurlöndum. í Danmörku flyt
ur forsætisráðherrann útvarps-
ávarp, þar sem hann lýsir yfir
samúð dönsku þjóðarinnar með
Ungverjum og hvetur Rússa til
þess að láta af hermdarverkum
sínum.
í Svíþjóð flytja forsetar beggja
deilda sænska þingsins einnig
svipuð ávörp og sænska útvarpið
beitir sér fyrir samskotum fyrir
ungversku þjóðina.
Á íslandi beitir forseti ann-
arar þingdeiidarinnar, sem er
kommúnisti, hins vegar sví-
virðilegu ofbeldi tii þess að
hindra leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar í að flytja Ung-
verjum samúðarkveðjur.
Ungverjum vottuð
samúð.
Morgunblaðið er þess fullvíst,
að leiðtogar Sjálfstæðisflokksins
á Alþingi hafa mælt fyrir munn
mikils meirihluta íslenzku þjóð-
arinnar er þeir vottuðu ung-
versku þjóðinni samúð í hörm-
ungum hennar og baráttu fyrir
frelsi sínú. Morgunblaðið tekur
undir þessar samúðarkveðjur um
leið og það lætur þá von í ljós,
að hinn góði málstaður hennar
megi að lokum sigra hið kald-
rifjaða og sálarlausa mannhatur,
sem stjórnar því þjóðarmorði, er
Rússar og heimskommúnisminn
eru nú að fremja í Ungverjalandi.
UTAN UR HEIMI
^Jö^rumu á
fo^rumuöurinn, óem
uunn neiminn
•r að gerðist eitt sinn,
er eftirlitsmaður nokkur var að
ferðast um hérað sitt í Belgíska
Kongo, að til hans bárust örvænt
ingaróp og innan stundar hljóp
hjá honum hópur innfæddra hróp
andi orð, sem hann hafði aldrei
heyrt fyrr: „Mikimus! Mikimus!"
Hann tók fram byssu sína og lædd
Mikki Mús
ist nær til að ganga úr skugga
um, hvað væri á seyði. Við þorps-
hliðið mætti honum sjón, sem
gerði hann máttlausan af undrun.
Þarna 2000 mílur frá allri menn-
ingu staulaðist á móti honum
gríðarstór og klunnaleg eftirlík-
ing af Mikka mús. Það var þá
galdramaður þorpsins, sem hafði
gripið til þess bragðs, þegar hin
gömlu töfrabrögð hans voru hætt
að hafa áhrif á þorpsbúa. Hann
hafði kallað frám anda töfra-
mannsins mikla, sem hefur lagt
heiminn undir sig, Walt Disneys.
útgáfum á þessum myndabókum.
Söngvar úr kvikmyndum Disneys
eru seldir fyrir um 250.000 doll-
ara árlega, bæði nótur og plötur.
Og síðan 1933 hafa alls konar
vörur með dýramyndum Disneys
verið seldar fyrir 750 milljónir
dollara. Eins og stendur fram-
leiða 740 fyrirtæki 2928 vöru-
tegundir með dýramyndum Disn-
eys. Af þessu er augljóst, að
Disney er einn áhrifamesti ein-
staklingur samtímans. Hann hef-
ur, ef svo má segja, gert barna-
sögur og ævintýri fyrri alda úr-
elt fyrirbæri eða gefið þeim nýtt
líf. Nú er talað um Mjallhvítu
Disneys og Öskubusku Disneys.
Hann hefur skapað Gæsamömmu,
eða réttara sagt Gæsapabba, 20.
aldarinnar. Og þannig mætti lengi
telja.
i rátt fyrir allt þetta
segja þeir sem til þekkja, að
Disney hafi hvorki verzlunarvit,
kímnigáfu né listræna hæfileika.
Hann er talinn eiga forvitni, á-
ræði og ímyndunarafl „upp-
finningamannsins í bílskúrnum“,
sem Edison og Ford áttu í svo
ríkum mæli. Hann hefur til að
bera öll einkenni hins ameríska
sérvitrings.
Di
isney er algerlega
sjálfmenntaður maður og hefur
unnið sig upp af frábærum dugn-
aði. Hann vinnur að jafnaði 14
A hundruðum þúsunda
kvikmyndatjalda um gervalla
jörðina hafa sköpunarverk Disn-
eys glatt hjörtu manna af öllum
litum, tungum og háttum: mýs
sem tala og keðjureykja, íkornar
í samfestingum, gullfiskar með
kynþokka, málhaltar endur, hund
ar á skautum, grísir sem leika á
píanó, hænur sem syngja óperu-
aríur o. s. frv. Til viðbótar við
þessar skemmtilegu óraunveru-
legu stælingar úr dýraríkinu hef-
ur Disney framleitt stórfróðlegar
kvikmyndir um líf náttúrunnar
eins og það er í verUleikanum,
vöxt og líf jurta og dýra í allri
sinni fegurð og grimmd.
liðnum 25 árum
hefur'um billjón manns — rúm-
ur þriðji hluti allra íbúa jarð-
arinnar — séð a. m. k. eina
af þeim rúmlega 660 kvikmynd-
um, sem Disney hefur gert. Flest-
ar þeirra eru til á 14 tungumál-
um. Og þeir sem kynnast verk-
um Disneys verða aldrei full-
saddir. Mánaðarlega seljast 30
milljónir eintaka af ódýrum
myndabókum Disneys í 26 lönd-
um. Og síðan 1935 hafa selzt
um 100 millj. eintaka af dýrari
tíma á dag og tekur sér aldrei
sumarfrí. Einasta tómstundaiðk-
un hans er barnalest á teinum,
sem hann ekur um garðinn heima
hjá sér. Teinarnir eru um hálfrar
mílu langir. Hann hefur aldrei
getað lesið bók, en lætur aðra
segja sér efni þeirra bóka, sem
hann hefur áhuga á. Hann lifir í
dagdraumum sínum og skapar
verk sín úr þeim. Hann er vinnu-
harður og ráðríkur og þolir ekk-
ert glens. Hann hefur rekið menn
fyrir að tala háðulega um eitt-
hvert dýranna, sem hann skap-
/
ASvörunarspjöld fyrir gangandi
VEGASPJÖLDIN, sem sett voru
upp hér rétt utan við bæinn í
vor með áskorun til ökumanna
um að fara gætilega, hafa tví-
mælalaust haft mikil áhrif. En
væri ekki rétt einmitt nú þegar
dagurinn styttist óðum, að setja
upp stór spjöld í úthverfunum,
þar sem gangandi eru áminntir
um að ganga á móti bílaumferð-
inni. Og til þess að þetta sjáist
sæmilega í myrkrinu, mætti lýsa
spjöldin upp, því ella koma þau
að takmörkuðu gagni eftir að
dimmt er orðið. Þetta er hug-
mynd sem einn af lesendum Mbl.
hreyfði við það í gær. Hann taldi
að hér hefði Slysavarnafélagið
mikið verk að vinna. Slysavarnir
á landi eru ekki ómerkilegri þátt-
ur í slíku starfi en varnir á sjó.
Hve mörg slys hafa ekki einmitt
orðið vegna þess að bílamir hafa
ekið aftan á hina gangandil
aði. En hann er jafnframt mjög
blátt áfram í allri umgengni
og hefur ímugust á yfirdrifinni
kurteisL
S alvador Dali, sem einu
sinni vann fyrir Disney í 3 mán-
uði, segir um hann: „Töfrarnir
við Disney eru sakleysi í fram-
komu. Hann hefur til að bera
sakleysi og feimnisleysi barnsins.
Hann lítur enn á heiminn af ó-
spilltri undrun og hefur ótrúlega
samúð með öllu sem lifir. Ekkert
var honum eðlilegra eða sjálf-
sagðara en að hugsa sér, að mýs
og íkornar hefðu alveg sömu til—
finningar og við“. Disney mundi
eflaust taka undir þessi ummæli.
„Margt skemmtilegasta fólkið,
sem ég hef hitt, eru dýr“, sagði
hann einu sinni. Og auðvitað eru
mýs honum hjartfólgnastar alha
dýra. Hann leyfir engar músa-
gildrur í híbýlum sínum. En hitt
er jafnsatt, að í rauninni eiga
„dýr“ hans ekkert skylt við dýr
merkurinnar, enda hefur hann
alið allan sinn aldur í borgum.
Ðisney fæddist 5. des.
1901, hinn fjórði af fimm börn-
um foreldra sinna. Faðir hans var
húsasmiður. Bróðir hans Roy var
mjög samrýndur honum, og hafa
þeir um langt skeið starfað sam-
an við kvikmyndirnar. Þegar
hann var 16 ára, fóru Bandaríkja-
menn í stríðið, og ákvað hann
þá að fara til Frakklands sem
sjúkrabílstjóri, falsaði fæðingar-
ár sitt og fékk móður sína til að
skrifa undir leyfið til að fara.
Þegar hann kom heim’eftir stríð-
ið, ákvað hann að gerast list-
málari eða leikari. Hann hóf að
teikna skrípamyndir og græddist
brátt svo mikið fé, að hann hélt
til Hollywood, þar sem hann hitti
Roy bróður sinn, nýkominn af
berklahæli. Á næstu árum fram-
leiddu þeir 24 myndir í safni, sem
þeir nefndu Alice í Myndalandi
og 52 myndir um Osvald kanínu.
f upphafi tók það 8 menn heilan
mánuð að framleiða hverja mynd,
og hún seldist fyrir 750 dollara,
svo oft var þröngt í búi. Árið
1927 lenti Disney í deilum við
stuðningsmenn sína og varð að
hætta framleiðslu. Það var þá,
sem hann fékk hugmyndina að
Mikka mús, og á næstu 20 ár-
um óx starfslið hans úr 20 upp
í 1000.
Fyrstu löngu kvikmynd
ina, Mjallhvítu, gerði hann 1937,
og hún hefur fært honum um 15
milljónir dollara tekjur. Fantasía
borgaði sig ekki, en síðar komu
aðrar kvikmyndir, sem allar hafa
fært honum offjár: Pinocchio,
Dumbo, Bambi, Öskubuska, Alica
í Undralandi, Peter Pan og marg-
Andrés Önd
ar fleiri. Á árunum 1950—53
gerði hann nokkrar venjulegar
kvikmyndir með góðum leikur-
um, svo sem Gulleyjuna,
Hróa Hött, Sverðið og rósina og
Rob Roy. Síðasta kvikmynd hans
er Sæfarinn, sem fékk Óskar-
verðlaunin og er nú sýnd í Gamla
bíói.