Morgunblaðið - 18.11.1956, Blaðsíða 1
24 síðuc
Rússar halda áírcr.i brottflutn-
ingi ungverskra æskumanna
Rússar fallast á tillögu
Eisenhowers - með skilyrði
MOSKVU, 17. nóv. — Rússar
vilja nú kalla saman fimm-
velda ráðstefnu, þar sem rætt
verði um afvopnun og bann
gegn kjarnorkuvopnum. —
Segjast Rússar geta fallizt á
tillögu Eisenhowers Banda-
ríkjaforseta um kvikmyndun
úr lofti. Þó fylgir sá böggull
skammrifi að kvikmyndatakan
má aðeins nú til svæðis er
liggur 800 km frá markalín-
unni milli austur- og vestur-
veldanna í Evrópu. Á þessu
svæði er mikill hluti herja
Atlantshafsbandalagsins og
Yfirlýslngar utanríkis-
ráðherra og Alþý&u-
bandalgsins
nUBMUNDUR f. GUBMUNDSSON sagði sl. föstudag á
Alþingi m. a.:
„Ágreiningurinn er ekki um það út af fyrir ság, að þannlg
skuli á málum haldið við endurskoðun varnarsamningsins,
að nauðsynlegar varnir séu tryggðar“.
Ennfremur lét hann svo ummælt:
„Jafnákveðnir og þessir tveir flokkar (Alþfl. og Fram-
sókn) hafa verið í þvi, að hér væri ekki herlið á tímum,
sem ekki gefa tilefni til slíks, þá hefur hitt og verið stefna
þeirra, að á íslandi væri vamarlið, þegar öryggi landsins
krefst þess“.
Og enn mælti hann:
„Öll vonum vér að sjálfsögðu, að Sameinuðu þjóðunum
megi auðnast að leysa þennan vanda, sem í er komið fyrir
botnl Miðarðarhafsins og öll fylgjumst við af samúð og
aðdáun með baráttu ungversku þjóðarinnar fyrir frelsi og
almennum mannréttindum. En allt þetta eru aðeins fróm-
ar óskir, og þeir, sem fara með og bera ábyrgð á okkar eigin
vörnum, hljóta að fylgjast af gaumgæfni og vaxandi áhyggj-
um með þeim atburðum öllum og haga sér eftir þeim stað-
reyndum, sem fyrir liggja eins og þeir vita þær sannastar og
réttastar".
Þetta áréttaði utanrikisráðherra með þvf að segja:
„En fyrst hv. 1. þm. Reykvíkinga spurði, þá hef ég ekk-
ert á móti þvi að svara, og ég scgi það sem mína skoðun,
að ef við stæðum fyrir þeirri spurningu í dag, hvort við
vildum láta herinn víkja úr landi á morgun eða næstu daga,
þá mundi ég ekkl vilja láta hann gera það. Svo alvarlegum
augum lít ég á ástandiö eins og það er nú. Ég álít, að nú
sé slíkt hættuástand að varnarlið sé íslandi nauðsyn.“
Loks lýsti hann yfir þessu:
„Ut af þelm efasemdum, scm hæði hv. þm. Reykvíklnga
er hv. þm. Gullbr. hafa verið með um það, hvort að sú
stefna, sem ég túlkaði hér áðan, væri raunverulega stefna
ríkisstjórnarinnar eða ekkl, þá vil ég taka það fram, að
sjálfur hefl ég enga ástæðu til þess að efast um, að það
sé stefnan og sjálfur ætla ég ekkl að taka þátt í því að
halda á málunum á annan veg en þar er lýst yfir. Það er sú
stefna, sem ég mun fylgja og fara eftir á meðan ég fjalla
um þessl mál“.
En hvernig koma þessl ummæll utanrikisráðherra heim
við yfirlýsingu Alþýðubandalagsins frá 5. nóv., þar sem
m. a. segir: „— Atlantshafssamningurinn er því í raun réttrl
úr gildi fallinn. — Alþýðubandalagið álítur emifrcmur, að
þessir atburðir sýnl ljóslega hvílik nauðsyn það er, vegna
heimsfriðarins, að hemaðarbandalög stórveldanna, Atlants-
hafsbandalagið og Varsjárbandlagið verði formlega leyst
upp og allt herlið stórveldanna, sem nú dvelur í herstöðv-
um utan heimalanda þeirra, víkl þaðan og hverfi heim“.
Hvort sjónarmiðið verður ofan á í samningunum við
Bandaríkjamenn?
Rússneskir hermenn sfanda með alvæpni í
verksmiðjum landsins
BÚDAPEST, VÍNARBOHG, 17. nóv.
Einkaskcyti til Mbl. frá" Reuter.
IGÆRKVÖLDI bárust þær fregnir frá Ungverjalandi aS
byltingarráð menntamanna í Búdapest hafi gefið út orð-
seridingu sem víða má sjá í borginni. — Þar segir m. a. að
Ungverjar séu andvígir stjórn Kadars og ný stjórn verði að
taka við. I»á vill ráðið efna til þjóðfundar þar sem gengið verði
frá frjálsum kosningum í landinu. Því er mótmælt að fasistar
hafi staðið fyrir frelsisbaráttu þjóðarinnar, eins og kommún-
istar halda fram. Þar hafi þjóðin öll verið einhuga að verki.
Byltingarráðið krefst þess að Rússar hverfi með her sinn
á brott úr landinu, en kveðst geta sætt sig við stutta hersetu
á vegum S. Þ., ef nauðsyn þyki.
★ ★ ★
UiREGNIR frá Búdapest herma, að verkamenn hafi í dag haldið
til vinnustöðva sinna daprir í bragði, en ekki til að vinna.
Þeir stóðu bara þöglir og niðurlútir í smáhópum hér og hvar og
iétu í ljós orðlausa gremju og vonleysi. Fréttaritarar, sem áttu
tal við verkamenn, sögðu að yfirgnæfandi meirihluti þeirra manna,
sem þeir komu að máli við, hefði tjáð þeim, að verkamennirnir
mundu ekki hverfa aftur til vinnu, þrátt fyrir tilmæli verkalýðs-
leiðtoga.
Eisenhower
Warsjárbandalagsins. Rússar
vilja ekki leyfa kvikmyndun
úr lofti af öðrum herstöðvum
en þeim sem eru á fyrrnefndu
svæði. —Reuter.
Krúsjeff óftasf hrun
kommúnismans
• I RÆÐU, sem Krúsjeff hélt
í veizlu fyrir Gómúlka og pólsku
sendinefndinni, sem nú er í
Moskvu, sagði hann m. a., að
„heimsvelðasinnar og fasietar“
væru að eyðileggja kommúnista-
flokkana í Frakklandi, Ítalíu og
fleiri löndum. En hann kvað hin-
ar vinnandi stéttir vera sér með-
vitandi um hættuna, og mundu
þær koma í veg fyrir slika eyði-
leggingarstarfsemi!
Mikil síluvciði
í FYRRADAG og í gær voru fá-
ir bátar á síldveiðum, en mok-
veiði var hjá þeim. Hæsti bátur-
inn á Akranesi í gær, en þaðan
fóru 18 í róður, var Bjarni Jó-
hannesson með tæplega 370 tunn
ur, en þar var alls landað í gær
2700 tunnum.
í gærkvöldi var róið úr öllum
verstöðvum.
í gær mun söltun Faxasíldar
alls hafa verið kringum 90.000
tunnur, en sölusamningar heim-
ila söltun á um 115.000 tunnum.
I NÆSTU VIKU
Ýmsir leiðtogar verklýðsfé-
laganna hétu á verkamenn að
taka upp vinnu að nýju, eftir að
þeir höfðu setið ráðstefnu með
Kadar forsætisráðherra Kvislings
stjórnarinnar, en fæstir þeirra
voru bjartsýnir á árangur þess-
ara áskorana. Sumir þeirra
bjuggust ekki við því, að vinna
yrði hafin að nýju fyrr en í
fyrsta lagi síðari hluta næstu
viku.
Fréttaritarar sögðu, að
nauðungarflutningur Ung-
verja til Sovétríkjanna hefði
valdið almennri gremju í
Ungverjalandi og aukið við-
nám ungverskra verkamanna
við tilmælum leiðtoga sinna
og stjórnarinnar um að hefja
vinnu. Þeir hafa einsett sér
að halda áfram verkfallinu,
þangað til stjórnin verður
við þeim kröfum þeirra:
1) að Nagy verði aftur for-
sætisráðherra,
2) rússneskir herir hverfi
hurt úr landinu og
3) frjálsar kosningar fari
fram.
MIKIL REIÐI
Þeir, sem til þekkja, segja,
að hin sameiginlega yfirlýsing,
sem gefin var út í gær eftir við-
ræður Kadars við verkalýðsleið-
togana, hafi vakið mikla reiði
meðal Ungverja, þar sem hún
hafi sýnt það svart á hvítu,
að það var Kadar-leppstjóm-
in, sem kallaði á rússneskar
hersveitir til að hjálpa sér til
aö sigrast á „fasistiskum and-
byltingarsinnum“, eins og það
er orðað í yfirlýsingunni.
Ennfremur feli hún í sér við-
urkenningu á stjóm Kadars,
sem er eitur í beinum flestra
Ungverja.
„FRAM í DAUÐANN“
Rússneskir skriðdrekar ®g
hersveitir hafa nú verið send-
ar til allra meiri háttar iðju-
vera og standa þar með gap-
andi byssukjafta. Einn þeirra
verkamanna, sem fréttamenn
tóku tali, sagði: „Það er ekki
hægt að vinna undir byssu-
stingjum og byssuhlaupum.
Og það er liættulegt að koma
út fyrir hússins dyr, því
Rússarnir ræna öllum okkar
ungu mönnum“. Þegar hann
var spurður, hve lengi Ung-
verjar gætu haldið áfram
mótstöðu sinni, svaraði hann
blátt áfram: „Fram í dauð-
ann“.
UNGVERJAR
VONSVIKNIR
Sumir verkalýðsleiðtoganna,
sem hvöttu menn til að hefja
vinnu að nýju, kváðust vera von-
sviknir. Þeim fýndist sem Vest-
urveldin og jafnvel Tító hefðu
brugðizt Ungverjum, og flutn-
ingur Ungverja úr landi hefði
mjög lamandi áhrif á siðferðis-
þrek þjóðarinnar. Þeir létu einn-
ig í ljós vonbrigði sín með Sam-
einuðu þjóðirnar, sem virtust
ekki hafa miklu meira vald en
Þjóðabandalagið hafði á sínum
tíma.
Fréttir um skæruliSaliernað
FREGNIR hafa bor
izt um það að mikil
ókyrrð hafi verið
meðal ungverska
minnililutans í
Ukrainu. Þar búa
um 100 þús. Ung-
verjar. Ungverjarn-
ir fóru í mótmæla-
göngur í borginni
Stanislav sem er
um 100 mílur frá
tékknesku landa-
mærunum.
Frétzt hefir um
ókyrrð í Búlgaríu.
í Búlgaríu
Einkum hefir henn-
ar orðið vart meðal
liðsforingja í búlg-
arska hemum. Þá
hefir heyrzt í út-
varpsstöð skæruliða
þar í landi og hefir
þar verið ráðizt
harkalega að leið-
togum búlgarska
kommúnistaflokks-
ins. —
Alþjóðasamband
flutningaverka-
manna hefir í
hyggju að „bann-
færa“ rússneskar
vörur, þ. e. a. s.
hyggst hvetja fé-
laga sina til þess að
neita að afgreiða
rússneskar vörur.
Sennilegt þykir
að Eden, forsætis-
ráðherra Breta,
muni hætta við för
sína til Sovétríkj-
anna. Ráð var fyrir
þvi gert að hann
færi í opinbera
heimsókn til Rúss-
lands að vori.
(Newsweek).