Morgunblaðið - 18.11.1956, Blaðsíða 2
2
MORGUABLAÐ1Ð
Sunnudagur 18. nóv. 1956
STAKSTEINAR
Hvenær er mælirinn
fullur?
Þann4r spyr Tíminn í gær um
afstöðu þeirra „foringja Alþýðu-
bandalagsins, sem ekki játa
kommúnistískan átrúnað“. Tím-
inn segir það spurningu dagsins,
hvort þeir aetli að hrökkva eða
stökkva og gerir nánari grein
fyrir þeirri spurningu svo:
„Þessir atburðir 5 öðrum lönd-
um leiða hugana að því, sem
hér hefur gerzt, eða öliu heldur
að því, sem hér hefur
ekki gerzt. Það er engu lík-
ara en Moskvumennirnir hafi
rétt sig úr kútnum aftur, eftir
að fyrsti bylurinn lagði þá flata
um stund. Enn bólar lítið á opin-
berum uppsteit liðsmanna, og
ekki er annað að sjá en að allt
sé með kyrrum kjörum hjá Þjóð-
viljanum. Þar virðast allir þræð-
ir liggja í eina átt. Ýmsir liðs-
menn þvo sér ákaflega um hend-
urnar í saltvatni Súez-skurðar.
Skáld og spekingar hafa afneit-
að einu sinni, en þegar kom að
hinni seinni afneitun, varð fyr-
irgreiðsla og gistivinátta ærið
þuxvg á metunum. Yfirlýsing
stjómar MÍR minnti á flugur,
sem engjast í kóngulóarvefnum.
Þráðurinn er teygjaniegur til
ýmissa átta og lætur undan hér
og þar, þegar á er tekið, en
slitnar aldrei. Til þess skortir
augsýnilega kraft.
Á þessar æfingar horfa fleiri
en fólk í gömlu lýðræðisflokk-
unum. Á þær horfa einnig þeir
foringjar Aiþýðubandalagsins,
sem ekki játa kommúnistískan
átrúnað, og þær þúsundir lands-
manna, sem kusu Alþýðubanda-
lagið til þess að framkvæma
vinstri stefnu í iandinu, en ekki
til þess að þjóna undir Moskvu-
vald. Hvenær skyidi mælirinn
verða fuliur að þeirra dómi?
Ætla má, að óbreyttum liðsmönn-
um þyki þegar ærið langur sá
frestur, sem forsvarsmenn Al-
þýðubandalagsins hafa fengið til
að gera hreint fyrir sínum dyr-
um. Ætla þeir að hrökkva eða
stökkva? Það er spuining dags-
ins-“
Er Hannibal að biia?
Hér gleymir Tíminn því, sem
mestu máli skiptir, að kommún-
istar á íslandi hafa höfuðstöðv-
ar í sjálfri ríkisstjórninni og af
hverju skyldu þeir óróast meðan
þeir njóta slíkrar vemdar, sem
er einstök vestan járntjalds?
Hvað sem því líður, gefur þessi
grein til kynna, að Tíminn hafi
von um að Hannibal muni kljúfa
sig frá kommúnistum. E. t. v.
á nýtt hlaup Hannibals á milli
flokka að verða síðasta hald-
jreipi stjórnarinnar.
Allt annað viðhorf.
.[ Tímanum I gær birtist og
aðsend grein, sem segir:
,Á siðastliðnu vori var það
áli. margra, að ástandið í heim-
im m væri orðið svo gott, að
tín i væri kominn til að ræða
vi& Bandarikin um að herinn
færi héðan.
Siðan hefur margt breytzt, með-
al annars sú mikla ófriðarblika
fyrir botni Miðjarðarhafsins, sem
að minnsta kosti um stund varð
að logandi báli. Órói og bylting
í Póllandi og sú ógnaröld, sem
gengið hefur yfir Ungverja-
land.
Allt annað viðhorf er nú í
heiminum en var á síðastliðnu
vorú
Örlög þjóða eins og einstakl-
inga eru mismunandi.
Mikil er gæfa íslendinga að
hafa ekki orðið fyrir þeim þungu
örlögum, sem Ungverjar og aðr-
ar Austur-Evrópuþjóðir hafa orð
ið að þola, mikil er gæfa ís-
lands og íslendinga að hafa átt
þess kost að mega áfram eiga
trausta samstöðu við hinar vest-
Einn af hinum glæsilegu vögnum Uandleiða h. f. á Hafnarfjarð-
arleiðinni.
Landleiðir hf. fjölga ferðum
Hafnarfjarðarleiðinni
Félagið hefur frá byrjun keypf átfa nýja vagna
ITILEFNI ÞESS, að Landleiðir h. f. fjölga í dag ferðum á
Hafnarfjarðarleiðinni, skýrði framkvæmdastjóri félagsins,
Ágúst Hafberg, fréttamönnum í gær frá rekstri félagsins þau
sex ár, er bað hefur haít sérleyfi á leiðinni Reykjavík—Hafnar-
fjörður.
Fyrirtækið hefur síðan það hóf
starfsemina, keypt átta nýja bíla
og hyggst enn auka vagnakostinn.
Mun félagið fá leyfi fyrir nýjum
vagni einhvern næsta dag, og
mun hann verða tekinn í notkun
eins fljótt og auðið er. Öllu fé fyr
irtækisins hefur verið varið til
þess að bæta aðbúð farþega.
Ferðafjölgun nemur nú meira
en helmingi, eða 78 ferðir á dag
FERMING
Ferming í Laugarneskirkju
sunnud. 18. nóv. kl. 10,30.
(Séra Garðar Svavarsson)
Drengir:
Árni Már Magnússon Waage,
Laugateigi 30.
Björn Hergils Jóhannesson,
Hraunteigi 26.
Eiríkur Sigurjónsson, Smyrils-
vegi 29.
Franklin Brynjólfsson, Hlégarði
25, Kópavogi.
Guðmundur Gunnar Ásbjöms-
son, Kleppsveg 18.
Guðmundur Hallvarðsson, Hrísa-
teigi 37.
Halldór Bjarnason, Höfðaborg 77.
Hermundur Haukur Björnsson,
Mávahlíð 17.
Sigurður Þorláksson, Hraunt. 24.
Stúlkur:
Anna Lisa Michelsen, Hverfis-
götu 108.
Elín Lára Ingólfsdóttir, Sigtúni
21.
Gerður Ólafsdóttir, Hofteigi 10.
Guðrún Þorgeirsdóttir, Lauga-
teigi 14.
Ingibjörg Harðardóttir, Langa-
gerði 126.
Ingibjörg Skarphéðinsdóttir,
Suðurlandsbraut 103.
Jóna Ágústína Magnúsdóttir,
Suðurlandsbraut 7A.
Rannveig Árnadóttir, Sundlauga
vegi 10.
Ragnheiður Þórunn Magnúsdótt
ir Waage, Laugateigi 30.
Erla Sigurlaug Indriðadóttir,
Langagerði 80.
Unnur Bryndís Þorsteinsdóttir,
Laugarnescamp 21.
rænu þóðir um varðveizlu frels-
isins í heiminum.“
Enginn efi er á því, að þama
eru túlkaðar skoðanir mikils
fjölda af kjósendum Framsókn-
ar. Spurning dagsins er sú: Þora
íoringjarnir að framfylgja þess-
um vilja kjósendanna af ótta við,
að upp úr slitni við kommúnista?
í stað 36 ferða árið 1950, er félag-
ið tók til starfa. Fjölgun farþega
hefur orðið mest í Kópavogi, og
þess vegna hefur ferðum mest
verið fjölgað þangað. Ferðafjölg-
unin, sem kemur til framkvæmda
í dag er sem hér segir.
Til Hafnarfjarðar fjölgar ferð-
um milli kl. 17 og 19 þannig,- að
aðeins 15 mínútur verða milli
ferða í stað 20 mínútna áður. Ferð
um um Kópavog fjölgar þannig,
að framvegis verða tveir vagnar
á klukkutíma frá kl. 6,30 að
morgni til kl. 21 að kvöldi, en áð-
ur voru tveir vagnar á klukku-
tíma á tímabilinu frá kl. 13—-20,
en einn vagn á klukkutíma aðra
hluta dagsins.
Forráðamenn Landleiða hjf.,
buðu fréttamönnum í ökuferð um
Kópavog, í fyrstu bifreiðinni,
sem félagið flutti inn, og er nú
fimm ára gömul. Hefur henni
verið ekið yfir 800 þús. km., en
haldið svo vel við, að hún er Sem
ný.
Sýning skrifstofn- og heimilis-
vélo í Listomannashólanum
Vélarnar eru frá Addo-verksmiðjunum
og Hooververksmiðjunum
IGÆR var opnuð í Listamannaskálanum sýning á heimilistækj-
um og skrifstofuvélum. Það er Heildverzlun Magnúsar Kjaran
sem sér um sýningu þessa. Þegar kl. 2 í gær var kominn fjöldi
gesta á sýninguna.
Magnús Kjaran stórkaupmaður,
bauð gesti velkomna með stuttri
ræðu. Hann sagði að vissulega
væri sýning þessi auglýsing, en
eins og skrumauglýsingar væru
til tjóns, eins væru auglýsingar
á góðri vöru og gagnlegri,
nauðsynlegar og sjálfsagðar.
Því að hvernig á neytandinn
að geta eignazt góða vöru, ef
hann veit ekki hvar hana er að
fá?, spurði stórkaupmaðurinn.
HOOVER og ADDO VÉLAR
Þá sagði Magnús Kjaran að
hér á þessari sýningu gæfist fólki
kostur á að sjá margs konar gerð-
ir af Hooverheimilistækjum svo
sem þvottavélum, ryksugum, bón
vélum og gufustraujárnum. Ann-
ar hinna stærstu liða sýningar-
innar eru margs konar skrifstofu-
vélar frá sænsku Addo-verk-
smiðjunum svo sem reiknivélar,
margföldunarvélar og bókhalds-
vélar, einnig eru þarna Hugin-
búðarkassar og Friden kalkula-
torar. Af öðrum heimilistækjum
en Hoover tækjunum má nefna
Fridor saumavélar með innbyggð
um zig-sag fæti og Bauknecht
hrærivélar, eu þeim fyígir
fjöldi tækja.
FULLTRÚAR FRÁ VERK-
SMBOJUNUM SÝNA
OG KENNA
Þá kynnti Magnús Kjaran tvo
fulltrúa, sem hingað eru komnir
á vegum stærri fyrirtækjanna,
Mrs. Faulkner á vegum Hoover-
verksmiðjanna og G. Stáhl á veg
um Addo-verksmiðjanna. Er ætl
unin að fulltrúa þessir sýni vélar
þær, sem þarna eru á sýningunni
og kenni meðferð þeirra. *
Auk þessa verða kvikmyndasý*
ingar daglega. Sýningin verðú*
opin alla daga vikunnar frá kL
1—10. Öllum er heimill aðgang-
ur án endurgjalds. Allir fá að-
göngumiða, sem jafnframt er
happdrættismiði, en vinningur-
inn er Hoover þvottavél.
Þá skýrði stórkfcupmaðurinn
frá því að við undirbúning þess-
arar sýningar hefði verið haft
samráð við Neytendasamtökin og
félagið Sölutækni. — Er sýning-
in hin glæsilegasta.
Frá sýningunni á skrifstofuvélum og heimilistækjum, sem opnuð
var í Listamannaskálanum í gær. •—Ljósm.: P. Thomsen.
5 siuidm&Miii frá A-Þýzkalandi á sund-
mótinu á þriðjudaginn
Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ verður Sundhöllin vettvangur stór-
it viðburðar á sviði sundíþróttarinnar. Fyrsta sundmót vetrar-
ins, sundmót Ármanns, hefst það kvöld og meðal keppenda á mót-
inu eru 5 sundmenn og konur frá Austur-Þýzkalandi. Þetta þýzka
sundfólk hefur náð góðum árangri, en þó verður keppni í sumum
greinum afar tvísýn — og án nokkurs efa mjög skemmtileg.
Hanna Kúnast, 16 ára. Hún
keppir í 100 og 400 m skriðsundi
og beztu tímar hennar á þeim
vegalengdum eru 1:10,8 og
5:47,4 mín.
Roderich Wolf, 17 ára, keppir
í 100 og 400 m skriðsundi og hef-
ur náð bezt 1:00,4 og 4:45,5 mín.
Bemd Bludau, 16 ára, keppir í
100 og 400 m skriðsundi og hefir
náð bezt 1:04,0 og 4:54,2 mín.
Wolígang Fricke, 18 ára, kepp-
ir I 100 og 200 m bringusundi
og hefur náð mjög glæsilegum
tímum, 1:10,9 mín. og 2:38,5
mín., en bæði þessi afrek eru
langt undir ísl. metunum.
Karl Schneider, 21 árs, keppir
í 100 m baksundi. Bezti tími hans
er 1:08,0 mín., rúml. 6 sek. betra
en ísl. metið.
Fararstjóri Þjóðverjanna er
Gert Bartheímes og með í för-
inni er þjálfarinn Max Reihe.
Hann er víðþekktur og reyndur,
enda 51 árs að aldri. Sumir nem-
enda hans hafa náð mjög langt.
★ GAGNKVÆMT BOÐ
Þessi heimsiókn er gagn-
kvæm, þ. e. a. s. Ármenning-
ar fara utan næsta ár í boði
Þjóðverjanna. Má fagna því
að slík kjör hafi fengizt og
er það í fyrsta sinn sem ísl.
sundmenn eiga því að fagna.
Á SKEMMTILEG KEPPNI
Mótið stendur í 2 daga (þriðju-
dag og miðvikudag). MeSal
annarra þátttakenda eru allir
beztu sundmenn landsins. Víst
er um það að keppnin verður
afar hörð, einkum einvígi þeirra
Kúnast og Ágústu Þorsteinsdótt-
ur, mestu skriðsundkonu íslands,
í 100 m og 400 m skriðsundi. —
Pétur ætti að eiga nokkuð ör-
uggan sigur í 100 m skriðsundi,
en Þjóðverjamir verða þeim
mun sleipari í 400 m skriðsund-
inu, en þar munu Ari Guðmunds-
son og Helgi Sigurðsson berjast
við þá. 1 bringusundinu og bak-
sundinu verða Þjóðverjarnir
öruggir sigurvegarar, ef allt fer
að líkum, en aðalmótstöðumenn
þeirra eru Sigurður Sigursðson
frá Akranesi og Sigurður Frið-
riksson frá Keflavík.
Ýsa með gúmband
um Iiausinn
UM DAGINN er vélbáturinn
Brynjar var á veiðum hér úti í
Faxaflóa kom á línuna þessi hor-
aða ýsa. Við athugun kom í ljós,
að einhver óþokki, sem einhvern
tíma hefir dregið hana áður er
hún var minni, hefir sleppt henni
aftur í sjóinn eftir aðhafasmeygt
upp á hausinn á henni gúmmí-
bandi. Nú þegar hún veiddist,
var bandið gengið langt inn í
fiskinn og rétt aftan við hausinn
var djúpt far ofan í hrygginn
eftir bandið. Blöðin eiga alltaf að
segja frá svona fólskuverkum,
sagði maðurinn, sem með ýsuna
kom til blaðsins. Það verður að
benda fólki á, að svona illvirki
má ekki frekar fremja á fiskum
þó að þeir séu með kalt blóð, en
öðrum skepnum, sem allir myndu
fordæma harðlega.