Morgunblaðið - 18.11.1956, Blaðsíða 11
Sunnudagur 18. nóv. 1956
MORCUMBLAÐIÐ
11
Leikfélag Reykiavlkur:
„Það er nMi'ei að vita”
finningum. Ekki get ég 1)0 fellt
mig við gervi Þorsteins, finnst
það allt að því afkáralegt, enda
er það ekki í fullu samræmi við
iýsingu höfundarins á þessari
persónu.
Gamanleikur eftir Bernard Shaw
Leikstjóri: Gunnar R. Hansen
í TILEFNI þess að hundrað ár
eru nú liðin frá fæðingu Bernards
Shaws hefur Leikfélag Reykja-
víkur tekið til sýningar einn af
gamanleikum skáldsins, „í»að er
aldrei að viía“. Fór frumsýningin
fram sl. miðvikudagskvöld fyrir
þéttskipuðu húsi. Óþarft er að
kynna þennan sérstæða og mikil-
virka rithöfund, sem allt að því
um tvo mannsaldra bar einna
nýja fyrirbæri, sem þá er farið að
láta til sín taka í þjóðfélaginu,
kvenréttindakonuna, er krefst
réttar síns úr hendi karlmanns-
ins, er leiðir til „baráttu kynj-
anna“, en sést yfir þau lífssann-
indi að í þeirri baráttu er það
hið „mannlega eðli“, sem ræður
úrslitum.
Leikstjóranum, Gunnari R. Han
sen, hefur tekizt með miklum
Gloriu Clandon, eldri dóttur
Cramptons og frú Clandon, leik-
ur Helga Bachmanii. Helga túlkar
einkar vel þessa ungu stúlku, sem
tekið hefur móður sína til fyrir-
myndar í einu og öllu og er méð
höfuðið fullt af kvenréttindagrill-
um og heimspekilegum kenni-
setningum, en verður þó að lúta
í lægra haldi fyrir hinu „mann-
lega eðli“, áður en lýkur.
Dolly og Philip Clondon, yngii
systkini Gloriu leika þau Kristin
Anna Þórarinsdóttir og Birgir
Brynjólfsson með mikilli prýði.
Kristín er blátt áfram heillandi
í ungæðislegxun gáska sínum og
glaðværð, en framsögn hennar er
ekki alltaf nógu greinileg. .—
Birgir á ekki langan leikferil að
baki sér, — hefur hingað til að-
eins farið með nokkur smáhlut-
verk, — en mér virðist ljóst af
leik hans í þessu hlutverki, að
hann búi yfir góðri leikgáfu.
Hreyfingar hans eru léttar og
eðlilegar og „replik" hans fui'ðu-
góS.
Brynjólfur Jóhannesson leikur
þjóninn, livíthærðan og fíngerðan
gamlan mann, glaðlegan og hóg-
væran, sem af langri reynslu hef-
ur numið speki lífsins. Leikur
Brynjólfs í þessu hlutverki er
frábær svo að hvergi skeikar og
gervi hans afbragðsgott. Hefur
Brynjólfur sjaldan sýnt dýpri og
Dolly (Kristín Anna Þórarinsdóttir), frú Clandon (Guðhjörg Þor- heilsteyptari leik og er þá mikið
bjarnardóttir), Phiiip (Birgir Brynjólfsson).
sagt.
hæst meðal leikritahöfunda
heimsins. — Bernard Shaw kaus
sér það hlutskipti sem rithöfund-
ur að aga samtíð sína, berjast
gegn þröngsýni og hvers konar
hleypidómum og í því efni var
hann vægðarlaus og lítt hneigður
til málamiðlunar. Hann var íri og
því voru vopnin honum nærtæk,
— napurt háð og markvís fyndi,
er hann beitti með þeirri kunn-
áttu og snilli, sem aðeins örfáum
er gefið. Hann gat verið óbilgjarn
í dómum sínum og menn verið
andvígir mörgum sjónarmiðum
hans, en hinn hraði, sterki og
hnitmiðaði stíll brást honum
aldrei. Hann lifði á langri ævi
mikla umbrotatíma, þegar ný fé-
lagshyggja, svo sem sósíalismi og
kvenréttindi voru að ryðja sér
til rúms, og voru á sínum tíma
mikil baráttumól, og byltingu
tveggja heimsstyrjalda, þar sem
ólíkar lífsskoðanir og hugmynda-
kerfi tókust á. í öllum þessum
umbrotum og átökum tók þessi
skarpskyggni og vígreifi bar-
dagamaður veigamikinn þátt,
enda eru leikrit hans öll nöpur
ádeila á menn og málefni sam-
tíðarinnar.
„Það er aldrei að vita“, er ekki
í tölu merkari leikrita Bernards
Shaws, en ber þó mörg beztu
einkenni skáldsins, napurt háð,
létta og leikandi fyndni og glitr-
andi tilsvör. En bak við ádeiluna
og háðið skín í hið mannlega við-
horf höfundarins til persónanna,
er hann leiðir fram á sjónarsviðið
og vandamála þeirra. — Leikrit-
ið er samið á síðasta tug aldar-
innar sem leið og fjallar um það
ágætum að skapa samræmi milli
ytri og innri gerðar leiksins og
glæða hvert atriði lífi, svo að
hvergi gætir tregðu eða tóm-
leika. Hraði leiksins er mjög góð-
ur og leikstjórinn hefur greini-
lega haft vakandi auga á hverju
smáatriði í heildarmyndinni, og
gætt þess að sérkenni skálasins
nytu sín sem bezt.
Leikendurnir fara allir vel með
hlutverk sín og sumir ágætlega.
Skal þar fyrst nefna Guðbjörgu
Þorbjarnardóttur, er leikur frú
Clandon, kvenréttindakonuna,
eitt af aðalhlutverkum leiksins.
Guðbjörg er glæsileg á sviðinu,
með reisn hefðarkonunnar og
hún túlkar ágætlega sjónarmið
kvenréttindarkonunnar, með
festu en þó hógværð og stillingu
og kvenlegum þokka eins og
skáldið ætlast til. Framsögn
hennar er skýr og eðlileg og
látbragð hennar alli, svo sem
hæfir hinni menntuðu konu.
Guðbjörg hefur að undan-
förnu unnið hvern leiksigurinn
af öðrum og er nú tvímælalaust
ein af mikilhæfustu leikkonum
okkar.
Þorsteinn Ö. Stephensen leikur
Fergus Crampton, ciginmann frú
Clandon, er hafði faiið frá
honum, en hann hittir nú aftur
eftir átján ára aðskilnað. Er leik-
ur Þorsteins afbragðsgóður,
fullur af glettni og góðri kímni í
upphafi leiksins og ynnilegur og
sannur, er hann túlkar við-
kvæmni og sársauka þessa hrjáða
og einmana manns, sem á yfir-
borðinu er hrjúfur og hrottaleg-
ur, en býr þó yfir heitum til-
Helgi Skúlason leikur hr. Val-
entin, fótækan tannlækni og
biðil Gloriu Clandon. Er leikur
Helga fjörlegur og oft skemmti-
legur en nokkuð laus í böndun-
um.
Jón Sigurbjörnsson leikur
Bohun málfærslumann, son
þjónsins, hrokafullan og háværan
Valentine (Helgi Skúlason) og
Gloria (Helga Bachmann),
náunga, sem ekki hefur þolað að
komast til nokkurrar mannvirð-
ingar. Túlkar Jón hlutv. þetta af
næmum skilningi og hefur tekizt
að draga upp þá mynd af per-
sóununni, sem er í fyllsta sam-
ræmi við það sem fyrir höfund-
inum vakir.
Guðjón Einarsson leikur virðu-
legan, roskinn lögfræðing. Er
Framh. á bls. 14.
Sviðmynd í 3. þætti.
RafmagnsrÖr
lampasnúra (plast)
Sendum gegn póstkröfu.
Lúðvík Guðmundsson,
Laugavegi 3 B — Sími 7775.
IVfierkingar
Merkjum handklæði og sængurfatnað.
Vélbróderum með silki, vír, plastikk
og flauelisþræði.
Zig—Zag og fleira.
Grettisgötu 90, I. hæð.
(Geymið auglýsinguna.)
Símavarzla — Skrlfstofustorf
Ábyggileg stúlka óskar eftir símavörzlu eða léttum
skrifstofustörfum.
Gjörið svo vel að senda tilboð á afgr. Morgunbl. fyrir
20. þ. m. merkt: „Ábyggileg —3373“.
Vana n&enn vanfar á togara
Upplýsingar hjá Bjarna Magnússyni, Rau5-
arárstíg 38 (ekki svarað í síma).