Morgunblaðið - 18.11.1956, Qupperneq 18
18
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 18. nóv. 1956
Píslarvætti Ifiagverja
RUGLXNGUR varð á köflum í
síðari hluta ræðu Sigurðar Lín-
dals, sem birtist á æskulýðssíðu
Mbl. s. 1. föstudag. Endir ræð-
unnar fer því hér á eftir:
MANNGERÐ ,
KOMMÚNISMANS
Einn sagnfræðinga kommún-
ista segir í tímaritinu Rétti árið
1949: „Sósíalisminn hefur skap-
að nýja manngerð". Þegar haft
er í huga, að hér er kommúnismi
kallaður sósíalismi, er það ljóst,
að sagnfræðingurinn hefur hitt
naglann á höfuðið.
Það er einmitt önnur mann-
gerð, sem kommúnisminn þarfn-
ast og hana er leitazt við að
skapa.
Þessa manntegund einkenn-
ir einkum, þumbaldaleg sjálf-
umglöð þröngsýni, þannig að
ákveðnar aðfengnar hugmynd
ir um æskilegt þjóðfélag telj-
ast einar réttar og það hvernig
sem allt veltist, ískaldur, and-
laus og jafnframt þaulhugs-
aður ruddaskapur, sem rétt-
lætt getur allt ofbeldi og öll
hryðjuverk, er teljast í þágu
framkvæmda á þessum fyrir-
fram gefnu hugmynðakredd-
um, einfeldnisleg aðdáun á
öllu því sem hægt er að kenna
við kommúnisma, algert and-
legt þurftarleysi og helstirðn-
aðar hugsanavenjur.
Þar, sem þessi nýja mannteg-
und hefur verið sköpuð, skipta
atburðir eins og þeir, sem eru að
gerast í Ungverjalandi engu máli.
Þeir hafa eftir sem áður „jafn
bjargfasta trú á sósíalismanum
og kommúnismanum".
Þetta er sá fagnaðarboðskapur
um manninn sem kommúnistar
hafa flutt og flytja enn.
Ég veit ekki hvernig þessari
sköpun nýrrar manngerðar miðar
hér á fslandi. Það mun þó senni-
IMYTÍZKIi, FRÁBÆRiR VARA-
HLUTIR TIL RAFLAOIMA,
STERKVR OG ÁFERÐAFALLEGIR
Lampaxtæðí, utanáliggjandi
rofar og takkarofar,
alls konar vartappar,
spennubreytar.
Stungur og tenglar
af öllum gerðum
til heimilisnota
og iðnaðarþarfa.
ÖTFLYTJENDUR
WMBSLÉMMO
Hungarian Trading Company for Electrical Equipment and Supplies.
Letters: Budapest 62, P.O.B. 377/h /Hungary/ Telegrams: TRANSELECTRO BUDPEST
lega koma í Ijós áður en langur
tími er liðinn, þegar viðbrögð
kommúnista gagnvart atburðun-
um í Ungverjalandi koma í ljós.
Hitt er víst, að sáralítið hefur
ágengt orðið um endursköpun
þessa í Ungverjalandi, það hafa
atburðirnir síðustu daga sannað
rækilega, svo að ekki verður um
villzt.
Sá boðskapur verður hér eftir
ekki kæfður, hversu margir sem
þeir skriðdrekar verða, er Rússar
senda inn í landið, og sú skot-
hríð sem þeir nú halda uppi
mun heldur ekki þagga hann
niður.
HLUTUR ÍSLENDINGA
Ungverjar hafa fórnað lífi sínu
og útheít blóði sínu.
Eftir er þá okkar hlutur ís-
lendinga. Hann er að vísu drjúg-
um minni einungis sá að við
höldum vöku okkar og gætum!
grundvallarverðmæta. Kommún-1
istar hreiðra um sig í þjóðfélagi!
okkar og það fyrir tilstilli ým-
issa lýðræðisafla. Slíkar og því
líkar aðfarir eru gjarnan réttlætt-
ar með orðunum: frjálslyndi,
öfgaleysi og víðsýni.
Hitt verður öllum mönnum
að vera ljóst, að allar eiga
dyggðir þessar sér nokkur tak-
mörk — það er ekki hægt
að sýna yfirlýstum fjandmenn
um þjóðfélagsins takmarka-
lítið umburðarlyndi, og vissu-
lega er hægt að vera bæði
frjálslyndur og víðsýnn, þótt
slík samtök sem kommúnista-
flokkar séu eigi til oddaað-
stöðu leidd í þjóðfélaginu.
Það er sannarlega mál til þess
komið, að íslendingar leggi niður
þann molbúa og útskagahugsun-
arhátt sem hér er að verki og
þó framar öðru að þeir hætti
að afsaka hann og réttlæta með
einhverju yfirskinsfrjálslyndi.
VESTRÆN MENNINGAR-
ARELEIFÐ
Innsti kjarni sameiginlegrar
menningar vesturlanda er enn
óspilltur, og við höfum ástæðu
til þess að vona, að yngingar-
máttur hans sé slíkur, að sigra
megi aðsteðjandi vandamál.
Á okkur hvílir sú ábyrgð að
ávaxta þennan arf, svo að frarn-
þróun megi haldast.
En þegar slíkt verk er fram
undan, stendur okkur næst að líta
í eigin barm á þann þátt menn-
ingararfsins, sem frá þjóð okkar
er runninn og lífga með sjálf-
um okkur það, sem hann hefur
að geyma lífrænast á sviði mann-
ræktar og heimsskoðunar.
Yrði það allri framþróun drjúg
um hollara en þær dauðu 19.
aldar bókstafskenningar komm-
únista, sem allt mannkynið er
löngu vaxið upp úr, og leitt hafa
slíkt böl yfir einstaklinga og
þjóðir sem nú er ljóst orðið.
Fjarlæg þjóð er nú að úthella
blóði sínu fyrir málstað frels*
isnis. Hún hefur vísað veginn.
Á þetta höfum við viljað minna
í dag um leið og við hvetjum
til þess að gefa atburðum þessum
nákVæman gaum. Svo og öðrum
þeim atburðum sem í aðsigi vhð-
ast vera handan járntjalds.
UMMÆLI ÞÓRBERGS
Þá vil ég um leið biðja menn
að hafa í huga ummæli eins
höfuðrithöfunda kommúnista,
Þórbergs Þórðarsonar, en á þau
held ég, að allir geti fallizt:
„Og valdhafar þjóðanna
myndu hafa gott af að minn-
ast þess, áður en það er um
seinan, að ekkert það ríki, sem
beitir þegna sína kúgun og
ofbeldi á sér siðferðilegan til-
verurétt“.
PÍSLARVOTTAR FRELSISINS
Það svartnætt kúgunar, morða
og mannréttindarána, sem komm-
únisminn hefur nú leitt yfir Ung-
verjaland gefur vissulega ekki
nein fyrirheit um það siðferðis-
afl, sem megna mundi að létta af
fári þessu.
En neyðarköllum ungversku-
þjóðarinnar, sem við höfum heyrt
í dag, munum við aldrei gleyma,
og þau verða hvorki kæfð með
dreyra né dýflissum.
Enn hefur frelsið eignazt
marga píslarvotta og enn sem
fyrr mun hlóð píslarvottanna
verða útsæði frelsishugsjón-
anna.
IHatvontverzlunin
Til sölu er matvöruverzlun og einbýlishús á mjög
góðum stað í bænum. Báðar eignirnar seljast saman.
Eignaskipti æskileg. Tilboð sendist Mbl. fyrir 25. nóv.
merkt: „Verzlun 1957 —3369“.
KNATTSPYRMJFELAGIÐ VIKIMGUR
TAV
f BREIÐFIRÐINGABÚÐ í DAG - HEFST KL. I E. H.
7 500*
VINNIIMGAR ★
1200 nýjar hljómplötur
Piötuspiiarar — Eplakassa — Leikföng
— Spiladósir.
Aðgöngumiðar á dansieiki
í hundraðatali.
AGÆTT TÆKIFÆRI TIL AÐ:
NJÓTA ÁNÆGJULEGRAR STUNDAR
HLJÓTA VERÐMÆTAN VINNING
OG STYÐJA UM LEIÐ GOTT MÁLEFNI
KK-sextettinn og Þórunn Pálsdóttir leika
og syngja milli klukkan 3,30 og 4.30.
M. a. hin vinsælu Rock ’n’ Roll lög.
GLÆSILEGT HAPPDRÆTTI