Morgunblaðið - 16.12.1956, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.12.1956, Blaðsíða 24
Veðrið N. A. stinnmgskaldi, léttskýjað. dagar tU JÓLA Kynning á Ijóðum Críms Thomsens í Háskól- anum í dag IDAG KL. 5 e.h. efnir Stúdentaráð Háskóla íslands til kynn- ingar á ljóðum Gríms Xhomsens og fer kynningin fram í Hátíðasal Háskólans. Verður flutt erindi um skáldið, lesið úr ljóðum hans, og þau sungin. Andrés Björnsson cand. mag. annast kynningu þessa fyrir Stúdentaráð. — Öllum er heimill aðgangur. GÓÐ KYNNING Stúdentaráð hefir um nokkurra ára hil gengizt fyrir bókmennta kynningum sem þessari. Hafa þær verið prýðilega vel sóttar og vin- sælar meðal almennings, en kynn ingar þessar eru haldnar fyrir almenning en ekki ei’nungis fyrir háskólastúdenta. í dag kl. 5 mun Andrés Björns son cand. mag. flytja erindi um skáldið Grím Thomsen, þá verða lesin ljóð eftir Grím og flytja þau Lárus Pálsson, Kristín Anna Þórarinsdóttir, Gunnar G. Schram og Konráð Sigurðsson. Þorsteinn Hannesson óperusöngv ari mun syngja lög við nokkur ljóð Gríms. Jólafundur Húsmæðra Vilhjálmur i Laugarnesskólanum félags Reykjav. á mánudag Þar gefa konur lærf hvernig hægf er að léffa sér undirbúning jólanna NÆSTKOMANDI mánudag, 17. þessa mánaðar, heldur Hús- mæðrafélag Reykjavíkur hinn árlega „Jólafund“ félagsins í Borgartúni 7, kl, 8 síðdegis. Reykvískar konur bíða ævinlega með eftirvæntingu þessa fundar, og hafa þegar margar fyrir- spurnir Um, hvenær hann yrði haldinn borizt Húsenæðrafélaginu. AÐ LETTA SÉR JÓLABAKSTURINN Á fundinum segir frú Hrönn Hilmarsdóttir, frá, á hvern hátt húsmæður geti létt sér undirbún- ing jólanna, bakstur og matartil- býning, og sýnir ýmiss konar vinnubrögð í sambandi við það. Þá sýnir hún einnig á hvern hátt j má skreyta jólaborðið og jóla- tréð án mikils tilkostnaðar. Á fundinum á mánudaginn gefst reykvískum húsmæðrum kostur á að sjá dúkað borð og skreytt, sem mikið má af læra. Þá verða til sýnis uppskriftir af hvers kyns mat, kökum og ábæt- isréttum. Þá verða kökur til sölu þar, \éð vægu verði. Allt þetta er konum látið í té endurgjalds- laust og eru allar konur vel- komnar, á meðan húsrúm leyfir. DAGURINN í gær var mikill gleðidagur hjá börnum í Laugar- nesskólanum. Vilhjálmur Einars- son kom þangað að beiðni skóla- stjórans Jóns Sigurðssonar og íþróttakennarans Stefáns Kristj- ánssonar og sýndi börnum k\ik- mynd sína frá Ástralíuförinni og skýrði hana. Skemmtu börnin sér einkar vel, enda er myndin ágæt. Skólastjórinn, íþróttakennar- inn og Vilhjálmur töluðu nokk- ur orð við börnin, hvöttu þau til íþróttaæfinga og brýndu fyrir þeim ástundun og iðjusemi við hvaðeina er þau taka sér fyrir hendur. Ríkti mikil ánægja meðal barnanna að hafa fengið Vilhjálm með mynd sína í heimsókn, þenn an síðasta kennsludag fyrir jólin. Kveikt á norska jólatrénu á Austurvelli í dag í DAG, sunnudag, verður kveikt á jólatré því, sem Oslóarborg hef- ur sent Reykvíkingum aðgjöf, svo Vilhjálmur sat með hljóðnemann í hendi og skýrði myndir sínar á skemmtilegan hátt fyrir börnin. Æskulýðsróð Reykjuvíkur gengst fyrir kynningu jólusongvu I DAG mun fara fram kynning og skóla bæjarins, sem stendur jóljsöngva fyrir almenning í Gamla Bíói og hefst kl. 2,30 e.h. Það er æskulýðsráð Reykjavíkur í samvinnu við söngnámsstjóra Hver ók á bílinn? RANNSÓKNARLÖGREGLAN í Reykjavík hefur snúið sér til blaðsins og beðið það að koma á framfæri beiðni um upplýsingar vegna bifreiðaárekstrar. Svo er mál með vexti að bif- reiðin R-1220 stóð í fyrrinótt á Bergþórugötu hér í bænum skammt sunnan við barnaheimil- ið við Barónsstíg. Bifreiðin snéri í austur og stóð á norðurbrún götunnar. Hafði verið ckið á hægra frambretti hennar um nótt ina og það ásamt framh. skemmt talsvert. Þetta mun hafa gerzt á tímabilinu frá því á miðnætti að- faranótt dagsins i gær og til kl. 11 í gærmorgun. Rannsóknarlögreglan biður alla þá, sem veitt geta upplýsingar um árekstur þenna að snúa sér til hennar. Ennfremur fer hún þess á leit við þann, sem árekstrinum olli að hann geri viðvart. fyrir samsöng þessum. Unglingakór undir stjórn Ing- ólfs Guðbrandssonar mun kynna ýmis fögur jólalög, innlend og erlend, en hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit íslands munu annast undirleik, en ætlunin er, að allir viðstaddir taki undir sönginn. Þá munu söngflokkar úr nokkrum skólum koma frarti og syngja sitt lagið hver undir stjórn söngkennara sinna. Það er víst, að margt, barna og unglinga mun sækja samsöng þennan, en einnig verður fullorðn um gefinn kostur á að sækja hann og væri mjög ánægjulegt að foreldrar kæmu og syngju með börnum sínum. Hér er um nýbreytni að ræða, en erlendis er slíkur samsöngur víða vinsæll og veigamikill þátt- ur í jólaundirbúningnum. Það er von þeirra, sem að þessum sam- söng standa, að svo verði einnig hér. SEYÐISFIRÐI, 15. des. — Á morgun, sunnudag, verður vígt og tekið í notkun hið nýja félags- heimili Seyðfirðinga, sem verið hefur í smíðum undanfarið. Er það hið reisulegasla hús og vand- að i alla staði. Húsið hefur hiot- ið nafnið „Herðubreið". sem hún hefur gert undanfarin ár. Hefst athöfnin klukkan 4. e.h., en Lúðrasveit Reykjavíkur mun leika nokkra stund, áður en hún hefst. Ambassadör Norðmanna, Torgeir Anderssen-Rysst afhend- ir tréð, en Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, veitir því viðtöku. Frú Elise Jónsson kveikir á trénu. Dómkirkjukórinn syngur, og að lokum leikur Lúðrasveit Reykja- víkur þjóðsöngva Noregs og fs- lands. Fólk skal hvatt til þess að klæða börnin vel og sjá um, að þau fái að vera fremst, næst girðingunni umhverfis tréð. <*> Mikil síldveiSi AKRANESI, 15. des. — Þrettán bátar voru úti á veiðum í nótt. Veiði var ágæt og voru flestir þeirra með 100—250 tunnur. Afla- hæst var Sigurvon sem fékk yfir 400 tn. Fram tapaði 25 netjum og var hann eini báturinn sem lít- ið aflaði. Bátarnir taka netin í land jafnskjótt og búið er að landa síldinni að fimm undan teknum, sem halda veiðum áfram. —Oddur. Yfirlýsing frá stjórn FFSÍ IAFNFRAMT ÞVÍ að stjórn F.F.S.Í. vill lýsa samúð og affdáun á hinni ungversku hetjuþjóff í hörmungum hennar og neyff, lýsir F.F.S.f. því sem skoðun sinni, aff allar þjóðir, sem Sýni ofbeldi beri að fordæma mjög harðlega. Hún bendir og á þá móffgun, sem í ofbeldinu felst, viff sáttmála Sameinuffu þjóffanna. Nýjasta dæmi þessu til sönnunar er kúgun sú, er Rússar beita nú ungversku þjóðina. Vill stjórnin ennfremur lýsa því sem skoð- un sinni, aff allar tilraunir til aff leggja aff jöfnu þaff þjóðarmorð, sem nú er veriff aff fremja í Ungverjalandi, og þaff sem gerffist við Súez, nái engri átt, því þaff sé algjörlega ósambærilegt. Meff þessu teljum viff aff hinn alþjóðlegi kommúnismi hafi sýnt sitt sanna effli og beinir stjórn F.F.S.f. því til allra góffra manna, aff taka höndum saman, um aff vera vel á verffi, gegn ásælni lians. Sérstaklega ber aff gæta þess vel, aff flækjast ekki í efnahagslega fjötra þessa kúgunarveldis, og varar stjórn F.F.S.f. því viff stór um lántökum af fslendinga hálfu, fyrir austan járntjald. Þá skorar stjórn F.F.S.f. eindregiff á rétta affila aff tryggja varnir íslands, og hafa í huga aff veikar varnir geta veriff verri en engar, því hiff stórkostlega hættuástand, sem nú ríkir í heiminum gerir þaff aff verkum aff verja verffur ísland eins og önnur þjóðlönd. Reykjavík, 14. des. 1956 3tjórn Farmanna- og fiskimannasambands íslands. Skúk-keppnin 1. BORÐ Svart: Akureyri (Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.) abcdefgh ABCDSFGH Hvítt: Reykjavík • (Ingi R. Jóhannsson) 6..... e7—e5 2. BORÐ Svart: Reykjavík (Björn Jóhanness.- Sv. Kristlnss.) ABCDEFGH ABCDEFGH Hvítt: Akureyri (Ingimar Jónss. - Kristinn JónssJ 6. Rgl—f3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.