Morgunblaðið - 06.01.1957, Page 13
Sunnuctagur 6. janúar 1957
MORClJiyBLAÐlÐ
1S
Sjötug í dag:
Ingibjörg Pétursdóttir
húsfreyja að Suður-Bár
Sjötug er í dag Ingibjörg Pét-
ursdóttir, fyrrum húsfreyja að
Suður-Bár í Eyrarsveit. Hún er
fædd að Brimilsvöllum 6. jan.
1887. Foreldrar hennar voru Þór-
katla Jóhannsdóttir frá Fossár-
dal, Þorsteinssonar og seinni mað
ur hennar Pétur Guðmundsson.
Er hún af merku fólki komin.
Árið 1907 giftist hún Sigurði
Eggertssyni skipstjóra frá Látr-
um í Rauðasandshreppi, mætum
og dugandi manni. Fyrstu sam-
veruárin voru þau í Brimilsvalla-
hreppi, Ólafsvík og Haukabrekku
í Fróðárhreppi. Vorið 1919 flutt-
ust þau að Suður-Bár í Eyrar-
sveit, sem þau höfðu þá keypt.
Sigurður maður hennar andaðist
vorið 1922. Þeim hjónum varð 7
barna auðið, eitt dó í fyrstu
æsku, en hin voru öll innan ferm
ingar, þegar faðirinn féll frá.
Stjúpsonur hennar, sem alinn var
upp hjá þeim hjónum, var þá
kominn nokkuð yfir fermingu, og
var hann henni mikið til hjálp-
ar fyrstu árin.
Það voru sannarlega erfiðir
tímar fyrir Ingibjörgu, árin, sem
í hönd fóru eftir fráfall manns
hennar Efnin voru lítil, bújörð-
in í lélegu ástandi, og húsakost-
ur allur að sama skapi, eins og
svo víða í afskekktum sveitum á
þeim tíma.
Félagsmálalöggjöfin var þá
harla skammt á veg komin. Þá
var ekki um ekknastyrki eða
barnalífeyri að ræða. Lífsbarátt-
an var því hörð fyrir fátæka
ekkju með stóran barnahóp. En
erfiðleikunum var mætt með
manndómi og skapfestu, í þeirri
trú að Drottinn myndi hjálpa
þeim, sem vilja hjálpa sér sjálfir
1. O. C. T.
Víkingur
Fundur annað kvöld, mánudag.
Skyrslur og kosning embættis-
manna o. fl. Fjölsækið stundvís-
lega. — Æ.t.
St. Framtíðin nr. 173
Fundur annað kvöld kl. 20,30.
Ungmennastúkan Framtíðin nr. 5
kemur í heimsókn. Samfelld dag-
skrá. Sameiginlegt kaffiborð.
Barnastúkan Æskan nr. 1
heldur fund í Góðtemplarahús-
inu í dag kl. 2. Inntaka nýrra fé-
laga. Lestur framhaldssögunnar.
Kaffidrykkja. Danssýning. Spurn-
ingaþáttur og leikrit. Félagar,
mætið stundvíslega. ,
— Gæzlumenn.
Jólagjaf arf élagar!
Munið fundinn í dag kl. 14,00.
Hafnarf jörður!
St. Morgunstjarnan nr. 11
Fundur mánudagskvöld. Ára-
mótahugleiðing. Embættismanna-
kosning o. fl. Fjölmennið. — Æ.t.
BEZT AÐ AUGLÝSA
/ MORGUNBLAÐINU
leiða allt til farsællegra lykta,
þegar lífsbaráttan. væri háð í
nafni hans, með hann fyrir aug-
um. Bömin studdu strax móður
sína, þó ung væru, lögðu sína
krafta fram, heimilinu til hags og
heilla, og því betur eftir þvi sem
þroskinn færðist yfir þau. Sam-
búð og samstarf móður og barna
var fagurt og innilegt, svo að
naumast verður á betra kosið.
Erfiðleikarnir voru sigraðir með
samhug og samvinnu. Allt breytt-
ist í blessun um síðir.
Vorið 1937 brá hún búi og flutt-
ist með syni sínum að Staðarfelli
í Dölum, þar sem hann hóf þá bú-
skap og þar átti hún heimili þar
til vorið 1955 að sonur hennar lét
af búskap. Annars hefur hún
dvalið hjá bömum sínum á víxl,
sem öll bera hana á höndum sér
og vilja allt fyrir hana gera.
Með hækkandi aldri hnignar
heilsu og kröftum. Þá er gott að
njóta launa langs dagsverks hjá
ástríkum börnum og tengdabörn-
um. Þeirra launa nýtur Ingibjörg
nú í ríkum mæli að verðleikum.
Hún getur á þessum tímamótum
æfinnar litið yfir farinn veg og
glaðst yfir vel unnu dagsverki.
Hún hefur með vaxandi gleði séð
börnin sín verða nýta þjóðfélags-
borgara, sem öll skipa sæti sitt
með prýði. Og hún getur enn-
fremur glaðst yfir stórum hóp
velgefinna og myndarlegra barna
barna. Að heill og velgengni
barna sinna hefur hún alltaf
starfað og það starf hennar hef-
ur borið mikinn og góðan ávöxt.
Ingibjörg er fríð kona sýnum
og góðum gáfum gædd. Kippir
henni þar mjög í kyn feðra sinna
og mæðra. Margt gáfumanna eru
í ætt hennar. Bróðir hennar var
Sigurður Kristófer Pétursson,
rithöfundur og skáld. Hugur
hennar er opinn fyrir allri Ijóð-
rænni fegurð, hvort heldur í
bundnu eða óbundnu máli, og
prýðilega er hún dómbær á allt,
sem vel er sagt í ræðu og riti.
Skapgerð hennar er heil og
traust. Hún er einlægur vinur
vina sinna. Til þeirra ber hún
órofatryggð, og þeim getur hún
ekki gleymt. Þær eiga áreiðan-
lega vel við um hana þessar ljóð-
línur:
Ættgeng er í Egils kyni
órofatryggð við forna vini.
Vér hinir mörgu, vinir hennar,
óskum henni allra heilla á sjö-
tugsafmælinu, biðjum Guð að
blessa hana og ástvini hennar
alla. Hann gefi henni friðsælt og
hlýtt æfikvöld.
í dag dvelur hún á heimili son-
ar síns og tengdadóttur að Kvist-
haga 3 í Reykjavík.
Júsef Jónsson.
^ MANUFACTURAS DE CORCHO
/ymstrong
Sociedad Anónlma
Einangrunarkorkur
2” þykkt fyrirliggjandi
Hamarshúsinu, sími 7385
|
BIFVÉLAVIRKJA
eða mann vanan bifreiðaviðgerðum, vantar oss nú þegar.
Upplýsingar gefur verkstæðisformaður, Kjartan Filippus-
son.
Hverfisgötu 18.
Vasahandbók bœnda
1957
er komin út. Áskrlftarverð sama og síðastliðið ár.
Áskrifendur, sem geta komið því við, vitji bókar-
innar á Akureyri í Prentverki Odds Björnssonar,
en í Reykjavík á skrifstofu félagsins.
Bú'naðarfélag ísBaaufis
nr. 3/1957
TILKYNNING
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið, að innlendar
framleiðsluvörur, sem ekki er auglýst sérstakt hámarks-
verð á, megi hækka í heildsölu um 2.83%, þar sem það
á við vegna hækkunar opinbera gjalda við stofnun út-
flutningssjóðs. Smásöluverð sömu vara má þó ekki hækka
frá því sem verið hefur. Hinsvegar nær tilkynning verð-
lagsstjóra nr. 1. frá 2. jan. 1957 um lækkun á smásölu-
verði vegna afnáms söluskatts ekki til þessara vara.
Reykjvík, 4. janúar 1957.
V er ðl agsst j órinn.
Laugaveg 33
$ Sökum breytinga á verzluninni hefst
• Rýmingarsala á morgun.
i Allar vörur verzlunarinnar eiga að seljast. ^
s Notið þetta einstæða tækifæri til að byrgja yður i
\ upp af ódýrum vörum.. i
i___________________________________________________________1
stórkostleg
Laugarveg 33