Morgunblaðið - 06.03.1957, Side 4
4
mokCTJNnr, 4ðið
Miðvi'kudagur 6. marz 1957
— Dagbók —
Fyrir skömmu var skýrt frá því í „Utan úr heimi“, a3 kominn væri fram á sjónarsviöið í Bandaríkj-
unum ný „stjarna“, sem líkleg þætti til þess að skáka „rock and roll“ og Presley. Þetta er ungur
maður, Pat Boon að nafni. Syngur hann og stígur um leið hægan dans. Myndirnar hér að ofan eru af
honum í dansinum — og er glöggt, að þessi dans er mjög frábrugðinn „rock and roll“. Engu að síður
er hrifning unga fólksins mjög mikil.
son, gjaldkeri og Steingrímur
Bjarnason, ritari. Varamenn eru
þeir: Guðmundur Ásbjöi’nsson,
varaformað r; Þorkell Nikulás-
son, varagjaldkeri og vararitari
Hálfdán Viborg.
Blinda fólkiS á Grundarstíg 11,
hefur beðið blaðið að flytja stúk
unni Fróni beztu þakkir fyrir vin-
samlegt boð, og ágæta skemmtun
ásamt veitingum í Bindindishöll-
inni hinn 28. febr.
Blöð og tímarit
KirkjuritiS,
2. hefti þessa árgans er komið
út. Efni: Þorhallur biskup Bjarna
son, Pistlar, Sálmur, Sitt af
hverju, Sólskin á jólum, Kveðja
íslendinga, Vers eftir Bólu-Hjálm
ar, Olnbogabörn samfélag»His, Við
áramót, Málning og fegrun
kirkna, Afríkusvertingjar og
tæknin, Andlegt frelsi, Bækur,
Fréttir, Óveitt prestaköll og
• Gengið •
Gullverð ísl. krónu:
100 gullkr. = 738,95 pappírskr.
Sölugengi
kr. 45.70
— 16.32
— 16.90
— 236.30
— 228.50
— 315.50
— 7.09
— 46.63
— 32.90
— 376.00
— 431.10
— 226.67
— 391.30
— 26.02
1
1
1
100
100
100
Sterlingspund .
Bandarík j adollar
Kanadadollar
danskar kr. ...
norskar kr......
sænskar kr. ...
100 finnsk mörk ...
1000 franskir frankar
100 belgiskir frankar
100 svissneskir fr. .
100 Gyllini ........
100 tékkneskar kr. .
100 vestur-þýzk mörk
1000 Lírur ...........
w -rntff
níar^tuífcliffími
f dag er 65. dagur ársins.
6. marz.
Miðyikudagur.
Öskudagur.
Árdegisflæði kl. 7,50.
Síðdegisflæði kl. 2(1,12.
Slyrtava rð-tof'a Reykjavíkur í
Heilsuvemdarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R. .(fyrir vitjanir) er á sama stað
frá kl. 18—8. Sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs-apó-
teki, sími 1330. — Ennfremur
eru Holts-apótek, Apótek Austur-
bæjar og Vesturbæjar-apótek op-
in daglega til kl. 8, nema á laug-
ardögum G1 kl. 4. Þrjú síðast tal-
in apótek eru öll opin á sunnudög-
um milli kl. 1 og 4.
Garðs-apótek, Hólmgarði 34, er
opið daglega kl. 9—20 nema á
laugardögum 9—16 og á sunnudög
um 13—16. Sími 82006.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi
9, er opið daglega 9—19, nema á
laugardögum kl. 9—16 og á sunnu
dögum 13—16. Sími 4759.
Hafnarfjarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—16 og helga daga frá kl. 13—
16.
Hafnarfjörður: — Næturlækn-
ir er Ólafur Ólafsson, sími 9536.
Akureyri.
Næturvörður er í Akureyrar-
apóteki, sími 1032. Næturlæknir
er Sigurður Ólason.
I.O.O.F. 7=138368% =
• Messur •
Laugarneskirkja. Föstuguðs-
þjónusta í kvöld kl. 8,30, séra
Garðar Svavarsson.
Hallgrímskirkja. Föstumessa í
kvöld kl. 8,30, séra Sigurjón Áma-
son.
Fríkirkjan. Föstumessa í kvöld
kl. 8,30. — Þorsteinn Björnsson.
SkíSafélögin t Reykjavík
efna til skíðaferðar í dag í
Hveradali kl. 10,30 frá BSR.
SkíSafélag Reykjavíkur
Aðalfundur í kvöld kl. 20,30 í
Kaffi Höll.
Sólheimadrengurinn
Ó. Þ. 50 kr. Þakklát móðir 25
kr.
SlasaSi maSurinn
Ástbjörg kr. 50. Henny kr. 150.
Hringurinn
Fundur í kvöld kl. 8,30, Garða-
stræti 8.
• Brúðkaup •
í fyrri viku voru gefin saman
í hjónaband af séra Guðmundi
Guðmundssyni á Útskálum, ung-
frú Guðný Árnadóttir og Höskuld
ur Goði Karlsson íþróttakennari.
Heimili ungu hjónanna er að Suð
urgötu 49 í Keflavík.
Laugardaginn 2. marz voru gef-
in saman í hjónaband af séra
Garðari Svavarssyni, Margrét
Erla Bjömsdóttir, Kleppsveg 184
og Páll Pétursson, Ásvallagötu
33. Heimili þeirra verður að Ás-
▼allagötu 33.
• Hjónaefni •
S. 1. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Anna Sigur-
bergsdóttir, Laugateig 4 og Tómas
Símonarson, Guðrúnargötu 7.
• Skipafréttir •
Skipadeild SÍS
Hvassafell er á Skagaströnd, fer
þaðan til Stykkishólms, Vest-
mannaeyja og Borgamess. Am-
arfell er í Borgarnesi. Jökulfell
losar áburð á Austf jarðahöfn-
um. Dísarfell fór framhjá Gíbralt-
ar 3. þ. m. á leið til Reykjavíkur.
Litlafell er í Reykjavík. Helga-
fell er á Siglufirði. Hamrafell er
í Reykjavík.
SkipaútgerS ríkisins
Hekla, Herðubreið og Skjald-
breið eru í Reykjavík. Þyrill kom
til Karlshamn í gær. Skaftfell-
ingur fer* frá Reykjavík í dag til
Vestmannaeyja. Baldur fór frá
Reykjavík í gær til Gilsfjarðar-
hafna.
Eimskipafélag íslands
Brúarfoss fer í dag frá Thors-
havn til Reykjavíkur. — Dettifoss
er í Reykjavík. — Fjallfoss fór I
gær frá Hamborg til Antwerpen,
Hull og Reykjavíkur. — Goðafoss
kom til Ventspils 3. marz fer það-
an til Reykjavíkur. — Gullfoss er
í Reykjavík. — Lagarfoss kom til
New York 2. marz fer þaðan til
Reykjavíkur. — Reykjafoss er í
Reykjavík. — Tröllafoss kom til
New York 2. níarz fer þaðan til
Reykjavíkur. — Tungufoss er í
Reykjavík.
• Flugferðir •
Flugfélag fsland
Millilandaflug:
Millilandaflugvélin Sólfaxi fer
til Osló, Kaupmannahafnar og
Hamborgar kl. 8,00 í dag. Flug-
vélin er væntanleg aftur til
Reykjavíkur kl. 18,00 á morgun.
Innanlandsflug:
1 dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar, ísafjarðar, Sands og
Vestmannaeyja.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir),. Bíldu-
dals, Egilsstaða, Isafjarðar,
Patreksf jarðar, Kópaskers og
V estmannaeyj a.
Kvenfélag ISeskirkju
Bazar verður haldinn laugar-
daginn 9. marz í félagsheimili
kirkjunnar. Tekið á móti gjöfum
til bazarsins í félagsheimilinu
fimmtudag og föstudag milli kl.
3.30 og 5 síðdegis.
Lungnakrabbi og lóbaksneyzla
Brezka læknablaðið, British
Medical Journal, hefur fyrir
nokkru birt niðurstöður rann-
sókna á dauðsföllum lækna af
lungnakrabba síðustu fimm árin.
Slík dauðsföli urðu 40 sinnum
fleiri meðal lækna, er voru miklir
reykingamenn, en hinna sem
reyktu alls ekki.
Meðal þeirra, sem reyktu ekki,
var dánartalan 0,07 á hver tíu
þúsund, en hinna miklu reykinga-
manna var dánartalan af völdum
lungnakrabba 1,66.
Vitnunum um skaðsemi tóbaks-
neyzlunnar fjölgar nú óðum í
hópi vísindamanna og hinna sér-
fróðu. Má telja líklégt, að æsku-
menn færi sér í nyt þann vitnis-
burð og láti tóbaksnotkunina deyja
út með eldri kynslóðinni. Reyk-
ingamenn eru einnig flestir á
sama máli um það, að bezt sé að
vera laus við þann vana. — P. S.
FiskmiSstöSin
1 frétt Mbl. af stofnun Fiskmið-
' stöðvarinnar, féllu niður nöfn
manna í stjórn hlutafélagsins, en
í stjórn þess eiga sæti: Ari Magn-
ússon, formaður; Jón Guðmunds-
— Kemst ég gegnum þetta húsa
sund niður að höfninni? spurði
feitlagin kona, drenghnokka, á göt
unni.
— Það hugsa ég, ég sá að mjólk
urbíll frá Selfossi fór þarna í
gegn áðan.
★
— Skyldi gíraffinn ekki fá
hálsbólgu þegar hann er alltaf að
vaða í lappirnar?
— Jú, eflaust, en sennilega
ekki fyrr en tveimur mánuðum
seinna.
5 mínútna krossgáta
Lárétt: 1 hreinsa — 6 pening-
ur — 8 vond — 10 elska — 12
reynt að framkvæma — 14 eiiding
— 15 dýraliljóð — 16 stjórn —•
18 líkamshluta.
Lóðrétt: 2 hróp — 3 tvíhljóði
— 4 hljóta — 5 mörinn — 7 tanga
— 9 herdeild — 11 nokkur — 13
vitleysa — 16 fangamark — 17
tveir eins.
Lausn síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 stafn — 6 aða — 8
orf — 10 ung — 12 Sólskin —■
14 SS — 15 ða — 16 ögn — 18
megnaði.
Lóðrétt: 2 tafl — 3 að — 4
fauk — 5 kossum — 7 ógnaði —
9 rós — 11 nið — 13 sögn —
16 ÖG — 17 Na.
k~ERDINAIM!Þ Farið á slysavarðstofuna
★
— Þér haldið því sem sagt
fram að þér hafið ekki skotið hrein
dýrið, sem fannst hjá yður við
húsrannsóknina?
— Herra dómari, ég er reiðu-
búinn að sverja að ég held að ég
hafi ekki skotið hreindýrið.
— Þetta er ekki nóg. Þér verð-
ið að hafa það ákveðið.
—• Ég sver það, að ég held á-
kveðið að ég hafi ekki skotið hrein
dýrið, sagði maðurinn.
— Þetta verður alltaf verra og
verra, sagði dómarinn. Þér verðið
að sverja að annað hvort hafið
þér drepið hreindýrið eða þér haf-
ið ekki drepið það.
— Já, það skal ég sverja.