Morgunblaðið - 06.03.1957, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 6. marz 1957
MORCUNBLAÐ1Ð
11
Valur heíur
fengið góðan
enskan þjdlfara
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ VALUR hefur ráðið til sín enskan
knattspyrnuþjálfara. Er það gamalkunnur enskur knattspyrnu-
maður úr hópi atvinnumanna og heitir hann Alexander Weir. Mun
hann þjálfa alla flokka félagsins og verður það æði umfangsmikið
starf, því Weir vill engan „mömmuleik11 í kringum sig. Hann krefst
þess af mönnum að þeir leggi sig fram. Hann hefur og hvar vetna
náð góðum árangri og víða farið sem þjálfari.
★ GLÆSILEGUR FERILL
Nokkrum blaðamönnum gafst
færi á því að ræða við hann og
stjórn Vals í fyrradag. Kynnti
Gunnar Vagnsson, form. Vals,
hinn nýja starfsmann félagsins á
þessa leið:
Weir er fertugur að aldri. —
Hann er fæddur og uppalinn í
Skotlandi og lék þar ungur knatt-
spyrnu og þótti góður leikmað-
ur. Þegar hann var 17 ára var
hann „keyptur“ af atvinnuliði.
Fór hann inn á braut atvinnu-
mannsins og náði góðum árangri,
lék m. a. lengi með Preston N.E.
Var hann síðan með ýmsum öðr-
um atvinnumannaliðum jafn-
framt því sem hann aflaði sér
staðgóðrar menntunar til þjálf-
arastarfa.
Mikið orð fer af Mr. Weir sem
þjálfara. Hann var um þriggja
ára skeið þj'álfari í Sviss, þjálf-
aði þar m. a. landsliðið, sem stóð
sig vel í heimsmeistarakeppninni
1954.
Síðan réðist Mr. Weir til
Burma. Var hann yfirmaður í-
þróttafræðslu þar, en kenndi
sjálfur knattspyrnu. Náði hann
miklum og skjótum árangri og á
Manilaleikunum 1955 tapaði lið
Burma engum leik.
í haust sem leið tók Weir við
áhugamannaliðinu „Hayes“. Það
var þá mjög neðarlega í mótum,
en Weir hefur rifið það upp og
er það komið í undanúrslit bik-
arkeppni áhugamannaliða og
mætir það Bishop Auckland, en
kjarni þess liðs myndaði enska
áhugamannalandsliðið sem
keppti hér í ágúst sl.
Weir er ráðinn hjá Val til 1.
okt. en mun ef báðum líkar vel
verða lengur. Hann var ráðinn
hingað fyrir milligöngu Axels
Einarssonar, en hefur beztu með-
mæli enska knattspyrnusam-
sambandsins, m. a. Sir Stanleys
Roushs.
Mr. Weir kveðst vilja fá
unglinga og aðra með af full-
um áhuga. Hann vill aga, en
Alexander Weir
ekki þvingaðan aga. Hann vill
að hver maður finni og skilji,
að aðeins með því að leggja sig
fram nær maður árangri sem
sótzt er eftir. Knattspyrnulið,
sem er þrautþjálfað, hefur á-
huga á verkefnum sínum og
vill ná langt, það á .alltaf sig-
urmöguleika, þó við sterkan
mótherja sé að etja, segir þessi
þaulreyndi knattspyrnumað-
ur. —
Við spurðum hann að því,
hvort hann kenndi ensku knatt-
spyrnuna eða meginlandsknatt-
spyrnuna með stuttum samleik.
Hann kvaðst telja bezt fara á því
að sameina kosti þessara leikað-
ferða.
Stjórn Vals kvað mikinn á-
huga ríkja á æfingum og væntir
hins bezta af starfi hins enska
þjálfara. Ákveðin er hjá Val ut-
anferð 2. flokks til Brumunddal-
en í Noregi til endurgjalds heim-
sóknar norskra pilta þaðan í
fyrra. Taka Valsdrengir þátt í
móti í Brumunddalen.
Félagslíf hefur verið gott hjá
Val í vetur, reglulegir fundir,
fræðslu- og skemmtunar, með
yngri flokkunum og hafa þeir
verið fjölsóttir mjög.
Þá er fyrirhuguð ferð til Rúss-
lands en svar KSÍ og ÍSÍ við
beiðni félagsins um ferðaleyfi
hefur ekki borizt ennþá.
Landsgangan á skíðum:
Sextug kona og 2 ungir drengir
gengn 4 km fyrsta daginn
MikiII óhugi d gengunni
LANDSGANGAN á skíðum sem Skíðasamband íslands hefur for-
göngu um, hófst á sunnudaginn, og virðist áhugi manna um
land allt vera mikill. Mun láta nærri að fast að 1000 manns hafi
lokið göngunni fyrsta daginn. Var þar um að ræða fólk á öllum
aldri, allt frá 4, 5 og 6 ára drengjum til fólks á sjötugsaldri. Mjög
margir hafa hug á að taka þátt í göngu þessari, sem er 4 km án
tímatakmarks, og öðlast rétt til að bera hið fallega skíði, sem er
merki göngunnar.
Á REYKJAVIK
137 Reykvíkingar gengu þenn-
an fyrsta dag. Voru þó mun fleiri
á skíðum en lítill sem enginn
undirbúningur hafði farið fram
fyrir gönguna en því mun von-
andi kippt í lag fyrir næstu helgi.
Menn voru mjög misjafnlega
lengi á göngunni enda skipti tím-
inn engu máli, en sá sem lengsí
var, var 5 ára snáði, um 1M>
klst.
★ AKUREYRI
Á Akureyri mun mest við-
höfn hafa verið við opnun göng-
unnar. Hermann Stefénsson, for-
maður KSÍ, flutti ávarp, lúðra-
sveit þeytti lúðra og síðan hófst
gangan. Göngubrautin þar hefst
við íþróttahúsið og síðan er geng-
ið spölRorn út fyrir bæinn og til
baka. Á Akureyri gengu fyrsta
daginn 160 manns, en þar er geng
ið á hverjum degi eftir kl. 5. í
dag gengur þar kunnur þingeysk-
ur fræðimaður og sýnir hvernig
Þingeyingar gengu í snjó forð-
um. Meðal þeirra sem gengið hafa
á Akureyri er Jón Einarsson sem
keppti á skíðum fyrstur Akureyr-
inga 1916.
★ AKRANES OG AÐRIR
STAÐIR
Á Akranesi hófst gangan með
því að bæjarstjórinn flutti rseðu.
Fyrsta daginn gengu 66, en nær
200 Akurnesingar höfðu gengið
fyrstu þrjá dagana. Elzt þeirra
er gengu fyrsta daginn var 60
ára kona, Þóra Hjartar. Yngstur
var 6 ára drengur, Oddur Pétur
Jakobsson.
Á ísafirði gengu fyrsta daginn
257 og 225 á Siglufirði.
Víðar mun hafa verið gengið
í þessari ,,landsgöngu“ en á öðr-
um stöðum er unnið að undir-
búningi. Um hann sjá sérráð
og héraðssambönd, en þeim ber
að panta merki hjá íþróttafúll-
trúa ríkisins.
■Á UNDIRBÚNINGUR
í REYKJAVfK
Það var leitt til þess að vita
að undirbúningi skyldi ekki lok-
ið hér í Reykjavík. En það mun
stafa af því að skjöl frá Skíða-
sambandinu lágu í pósti um 5
daga. Allt ætti því að verða til-
búið um næstu helgi og hægt að
ganga við hvern skíðaskála.
Einnig þyrfti Iþróttabanda-
lag Reykjavíkur að hafa for-
göngu um, að skólabörn —
heilu bekkirnir — færu sam-
an til göngunnar. Á meðan
öll tún í nágrenninu — t. d.
golfvöllurinn við Öskjuhlíð,
eru full af snjó, er það auðvelt
í framkvæmd. Nú ætti þegar
að stofna til skíðaviku í skól-
unum. Það er verkefni sem
börnin hafa gaman af, og þau
eru ekki latari vi ðnámið á
eftir, þó þau fái dagsfrí til
þess að vera þátttakendur í
fyrstu skíðalandsgöngu sem
fram fer á Islandi.
Svíor
heimsmeisiarar
í ískBottleik
MOSKVU, 5. marz. — Svíar unnu
heimsmeistara- og Evrópumeist-
aratign í ísknattleik í dag með
því að gera jafntefli við Rússa
4:4. Heimsmeistarakeppnin og
Evrópukeppni þessi hefur staðið
undanfarna daga. Var þetta síð-
i asti leikur mótsins og úrslit.
f kvöld hefjast afmælishátíðahöld ÍR með fimleikasýningu og
körfuknattleikskeppni að Hálogalandi. — Kvennaflokkur félagsins
sýnir undir stjórn frú Sigríðar Valgeirsdóttur, en ráðgert er að
þessi flokkur taki þátt í alþjóðlegu fimleikamóti í Lundúnum í
sumar. — Þá keppa ÍR-ingar í meistarafl. karla í körfuknattleik
við fslandsmeistarana IKF og ÍR-stúlkur keppa við stúlkur úr KR.
Myndin sýnir nokkrar fimleikastúlkur ÍR á íþróttavellinum s. L
sumar.
sjöffa hundraö bóka á markaði
í Listamannaskálanum
t D A G 11 opnum við útsölu á bókum, sem innkallaðar hafa verið undanfarið og eru margar seldar
með stórlækkuðu verði. Um 100 bókategundir frá Bókaforlagi Guðmundar Gamalielssonar seljast á
6.00 til 10.00 kr. hver. — Einnig eldri bækur M.F.A.
Spennandi happdrætti: Hver sá’ sem kauPir fyrfr kr- ÍOO.OO fær happdrættismiða, sem dregið verður um
í hverjum degi kl. 5, þannig að þriðji hver miði fær vinning kr. 100.00, svarar það
til þess að afsláttur verði gefinn, sem nemur einumþriðja verðs. Auk þess fá 30 þeir heppnustu Brekkukots
»nnál, er hann kemur út.
Allir í Listamannaskálann — Opinn kl. 11—6 alla daga