Morgunblaðið - 06.03.1957, Side 10
10
MORCVWBIAÐIÐ
Miðvikudagur 6. marz 1957
Aukin verðjöfnun mjólkur er rétt-
iætismúl sem verður uð nú frum
í Reykjavík,
Laugavegi 166
Mámskeið í modelteikningu
nefst í kvöld (lifandi
model), miðvikudag kl. 8
;. h.
Yæntanlegir nemendur
næti há.
Nokkrir nemendur geta
;innig komist að í teikni-
deild skólans, sem starfar
mánudaga og fimmtudaga
Kl. 8—10 e. h. Uppl. í síma
1990 og 80901.
íbúðaskipti
Sá, sem á góða 2ja—3ja herbergja íbúð, getur
fengið nýja 4ra—5 herbergja íbúð á hitaveitusvæði
í skiptum.
Milligjöf þarf ekki að greiðast út.
KRISTINN Ó. GUÐMUNDSSON hdl. ,
Hafnarstræti 16.
Sími 82917, klukkan 3—6.
EINKARIT ARI
Ung stúlka, sem hefur dvalizt erlendis að undan-
förnu og hefur góða málakunnáttu, óskar eftir skrif-
stofustarfi, helzt sem einkaritari, annað hvort hér
eða á íslenzkri skrifstofu érlendis.
Tilboð merkt: „EIINKARITARI —2204“, leggist inn
á afgreiðslu blaðsins fyrir næstkomandi laugardag.
Ný sending af
STRIGASKÖM
fyrir kvenfólk
Bláir — Bleikir
Hvítir — Svartir.
Skóverzlun Þórðar Péturssonar,
Aðalstræti 18.
LjóskopieB*ing
Tökum ljóskopíur af gagnsæjum og ógagnsæjum fyrir-
myndum svo sem teikningum, prentuðu og vélrituðu
máli, nótum, munstrum o. fl. Fljót afgreiðsla.
Vönduð vinna.
LANDSTÓLPI HF.
Ingólfsstræti 6, sími 82757.
Verzlunarhúsnæði
Á góðum stað í bænum óskast rúmgott verzlunarhús-
næði til leigu strax. — Tilboð leggist inn á afgr. blaðsins
sem fyrst, merkt: „Verzlunarhúsnæði —7754“.
Tilboð óskast
í nokkrar bílgrindur og bílboddý, er verða til sýnis að
Skúlatúni 4, föstudaginn 8. þ. m.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri sama dag kl. 5.
Sölunefnd vamarliðseigna.
iæiffl Jóns Signrðssonor olþm.
við þriðjn nmræðn fjórlaga
MORGUNBLAÐINU er kunn-
ugt að um þessar mundir
eru staddir hér í bænum sér-
stakir fulltrúar norðlenzkra
bænda til þess að fylgja eftir
kröfum þeirra um aukna verð-
jöfnun til mjólkurbúa norðan-
Iands. Þykir blaðinu því rétt að
birta greinargerð Jóns Sigurðs-
sonar alþm., er hann mælti fyrir
tillögu sinni um framlag ríkis-
sjóðs tii aukinnar verðjöfnun-
ar við 3ju umr. fjárlaganna:
„Herra forseti. Ég á hér eina
brtt, á þskj. 292, og er sú 9. og
síðasta í röðinni á því þskj. Til-
laga þessi, sem er við 22. gr.
fjárl., er að mestu samhljóða
atkv. því nær allra fundarmanna.
Stjórn Stéttarsambandsins sendi
ríkisstj. að sjálfsögðu þessa á-
skorun, og auk þess hafa viðræð-
ur farið fram um málið milli
formanns Stéttarsambandsins og
vissra manna innan ríkisstjórnar-
innar. En þar sem enn liggur
ekkert fyrir opinberlega um af-
stöðu ríkisstj. til þessara mála,
og 3. og síðasta umr. fjárlaganna
er hafin, þá taldi ég það skyldu
mína sem stjórnarnefndarmanns
í Stéttarsambandi bænda, og
þess eina, sem á sæti hér á hv.
Alþ., að bera þessa till. fram hér
á Alþingi og gera grein fyrir
henni.
MIKILL MUNUR Á
ÚTBORGUNARVERÐI
Það, sem veldur því að þessi
till. er fram borin, er hinn mikli
munur á útborgunarverði mjólk-
ur til bænda frá mjólkurbúun-
um á Suðvesturlandi og á Norð-
urlandi. I fjórum búum á Suð-
vesturlandi var meðalverðið fyr-
ir árið 1955 kr. 2.89 pr. lítra, en
í norðanbúunum fjórum var
mjólkurlítrinn á sama tíma kr.
2.48 til 2.59, og meðalverðið kr.
2.55 lítrinn. Mismunurinn á
meðalverði til bænda sunnan-
lands og norðan var því 34 aurar
á litra.
Það, sem veldur þessum mikla
mismun, er, að norðanbúin hafa
miklu minni neyzlumjólkursölu,
og verða því að vinna úr miklu
af sinni mjólk, smjör, skyr, ost
og þurrmjólk, og birgja Reykja-
vík og aðra bæi víðs vegar um
land af þessum vörum. Þetta gef-
ur miklu minna í aðra hönd en
nýmjólkursalan hér í Reykjavík
og nágrenni, sem sunnanbúin
sitja ein að, lögum samkvæmt.
Verðmiðlunargjaldið, sem nú
er tekið til að jafna þennan mis-
mun, nemur sjö aurum á lítra á
alla selda mjólk og er notað til
verðjöfnunar milli norðanbú-
anna, en er aðeins um helming-
ur af því, sem þyrfti að vera.
Áskorun aðalfundar Stéttarsam-
bands bænda á ríkisvaldið er því,
að ríkið greiði til viðbótar sem
næst sjö aurum á hvern seldan
mjólkurlítra , til verðjöfnunar
milli þessara búa, sem lægst verð
fá.
MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ JAFNA
ADSTÖÐU FRAMLEIDENDA
Má ætla, að þetta mundi
kosta ríkissjóð í kringum tvær
millj. króna, því mjólkurfram-
leiðsla norðanbúanna er tæpur
þriðjungur af mjólkurmagni
allra mjólkurbúanna. Það, sem
hrindir þessari áskorun af stað,
er almenn óánægja norðanbænda
með mjólkurverðið. Bændum
norðanlands er reiknuð mjólkin
til tekna í verðlagsgrundvellin-
run á miklu hærra verði en þeir
fá nokkru sinni fyrir hana, þeg-
ar stéttarbræður þeirra hér sunn-
anlands fá sumir hverjir fullt
verðlagsgrundvallarverð. En
kostnaður við búreksturinn er
mjög líkur á báðum stöðum.
Þessi aðstöðumunur veldur því,
að ástæða er til að óttast aultið
aðstreymi til Suðvesturlandsins
úr þessum héruðum, ef ekki
tekst að jafna svo um munar
þennan mikla verðmismun.
Tillagan miðar að því að jafna
aðstöðu þeirra mjólkurframleið-
enda, er mjólkursölu stunda, án
þess að rýra kjör þeirra bænda,
er betur vegnar, enda væri það
hin mesta ósanngirni, meðan
sunnanbændur fá ekki almennt
einu sinni það verð, sem þeim
er reiknað í verðlagsgrundvellin-
um, þótt nokkrir þeirra nái þvL
Þá m^, benda á, að í Noregi
fá bændur, sem mjólkursölu
stunda, en eiga við erfiðleika að
etja, t.d. í fjallabyggðunum
norsku, eins konar erfiðleikaupp-
bót í hærra mjólkurverði, sem
ríkið greiðir, og miðar að því
að halda fólkinu í þessum byggð-
um.
AÐSTREYMIÐ TIL
S.-V.LANDS
Fanney Jónsdótlir
IVfinireiiig
í HÚSINU Háaleitisveg 24
bjuggu hljóðlát og hamingjusöm
hjón. Þau gengu í hjónaband
fyrir sextán árum, reistu sér vist-
legt og aðlaðandi heimili og út-
hýstu einveru beggja með sam-
búð sinni. Nú er konan látin, en
maðurinn lifir einn eftir og
kveður lífsförunaut sinn með
sárri sorg.
Kveðjuathöfnin er í dag.
Fanney Jónsdóttir var fædd í
Reykjavík hinn 15. febniar 1905.
Foreldrar hennar voru hjónin
Jón heitinn Guðmundsson, sjó-
maður hér í bæ og Jónína Sig-
urðardóttir, sem enn lifir í hárri
elli. Föður sinn missti Fanney
af slysförum á sjó, er hún var
aðeins tveggja ára gömul. Hún
ólst síðan upp hjá móður sinni
og fósturföður, Helga Jónssyni,
bónda að Fellsenda í Þingvalla-
sveit. Þar dva'ldi .hún fram til
18 ára aldurs, er hún skyndilega
Hjólharðar
og siöngtor
700x15
500x16 (Ford Junior)
525x16 (Moskowitch)
600x16 (Fordson-Jepp)
750x20
Ford-umhoSið
Kr. Kristjánssen h.f.
Laugavegi 168—170
Sími 82295
veiktist og varð að fara í sjúkra-
hús. Var hún um tíma bæði á
Farsóttarhúsinu og á Vífilsstöð-
um. Strax og heilsa hennar aft-
ur leyfði varð Fanney að taka
höndum til vinnu, því daglegt
brauð fæst ekki án fyrirhafnar.
Strit imgrar stúlku fyrir nauð-
þurftum var í þann tíma fólgið
í vinnumennsku í sveit og síðar
saumaskap í kaupstað.
Hinn 27. sept. 1941 giftist
Fanney Þorleifi Guðmundssyni,
verkstjóra hjá byggingafélaginu
Stoð, og lifðu þau hjónin æ síðan
saman í farsælu og göfugu
hjónabandi, enda þótt þeim yrði
ekki barna auðið.
Fanney var vinnuglöð og hæg-
lát ágætiskona, sem unni manni
sínum og húsmóðurstarfi. Hún
gerði heimilið að hinum sanna
hvíldar- og ánægjustað þeirra
og gerði gestum og gangandi svo
vel með alúð sinni og myndar-
brag, að enginn fór þaðan ó-
glaður í bragði. Það var ávallt
eitthvað rammíslenzkt sem snerti
mann, þegar maður heimsótti
þau hjónin, Fanneyju og Þorleif.
Maður varð aðnjótandi þeirrar
ánægju, .sem íslenzk gestrisni,
krydduð sögufróðleik og gaman-
semi, ein megnar að veita. Það
var afþreying í að flytja sig um
stimd úr prjálstól nýtízkunnar og
setjast á gestabekk upp á gamla
móðinn. Ég mun alla tíma minn-
ast þessa vistlega og þjóðlega
heimilis með þakklæti og hlý-
hug.
Nú er Leifi minn aftur orðinn
einn, en Fanney er laus undan
oki sjúkdómsþjáninga, sem voru
langvarandi og erfiðar hið síð-
asta ár. Með rósemi hjartans og
af meðfæddu þreki mættí
Fánney veikindum sínum og
hvergi uggandi um framtíð nýs
lífs lézt hún hinn 22. íebrúar sl.,
en góður Guð styður Leifa í sorg
og eftirsjá.
Guðl. Ein.
Það er mikið talað um hætt-
una af látlausu aðstreymi fólks
til Suðvesturlandsins frá öðrum
landshlutum. TilL, sem hér liggur
fyrir, er ein af þeim leiðum,
sem verður að fara til að sporna
við þessum flótta úr sveitunum.
Ég skal játa, að það er hægt að
fara aðra leið, og sem verður
að fara, ef Alþ. og ríkissj. kýs
hana heldur. Það er hlutverk
framleiðsluráðs að hlutast til um,
að bændur fái að meðaltali það
verð fyrir afurðir sínar, sem
verðlagsgrundvöllurinn segir til
um hverju sinni, þar á meðal
fyrir mjólkina. Til þess að bænd-
ur fái almennt eitthvað í áttina
við það mjólkurverð, þarf að
hækka, eins og ég sagði áðan,
sölumjólkina um sjö aura lítr-
ann, og nota alla hækkunina til
verðmiðlunar milli norðanbú-
anna. Slík hækkun á söluverði
mjólkurinnar mundi valda vísi-
töluhækkun, sem gizkað er á, að
mundi kosta ríkissjóð álíka upp-
hæð að greiða niður og þær tvær
millj. króna, sem hér er farið
fram á, að ríkisstj. megi verja
til verðjöfnunar milli mjólkur-
búanna utan fyrsta verðjöfnunar-
svæðis. Fyrir ríkissjóðinn er því
nokkurn veginn sama, hvor leið-
in er farin. Með till. minni er
Alþ. gefinn kostur á að velja
milli þessara tveggja leiða.
Skýjaldjófar
í Laugarásmim?
SAMVINNUNEFND bæjarins um
skipulagsmál, hefur nú gert til-
lögu til bæjaryfirvaldanna, um
að á einum fallegasta stað hér í
bænum, í Laugarásnum, skammt
þaðan frá sem Dvalarheimili
aldraðra sjómanna stendur, verði
reistir nokkrir skýjakljúfar, fimm
fjölbýlishús 12 hæðir hvert.
Á fundi bæjarráðs lagði nefnd-
in þessar áætlanir fyrir bæjar-
ráðsmenn.