Morgunblaðið - 06.03.1957, Síða 13

Morgunblaðið - 06.03.1957, Síða 13
Miðvikudagur 6. marz 1957 MORCUNBLAÐ1Ð 13 Sigrí&ur Jónsdóttir, Cerði Minning HINN 10. október sl. lézt að heimili sínu Gerði í Innri-Akra- neshreppi, veglynd heiðurs-kona Sigríður Jónsdóttir, áttatíu og tveggja ára að aldri. Var hún fædd á því rnikla merkisári 1874, er íslendingar fengu stjórnar- skrá og fjárforræði þeirra í op- inberum málum var viðurkennt. Sigríður var fædd á Tyrfings- stöðum í Innri-Akraneshreppi, en þar bjuggu þá foreldrar hennar, Jón Ólafss. frá Litlu-Fellsöxl og Sesselja Þórðardóttir, en hún var systir hins landskunna stórbónda Bjarna á Reykhóum vestra. Það kom snemma í ljós í fari Sigríðar, að henni var í brjóst borin einlæg löngun og sterk þrá til þess á eigin spýtur að brjóta sér braut til öflunar þeirrar fræðslu og menntunar, er hún byggi að, og greitt gæti götu hennar til sjálfstæðra starfa og athafna í lífinu. Mun það engan veginn ofmælt, að einbeitni hennar til þess að koma þessum vilja sínum fram, hafði verið nokkru meiri en algengt var hjá þeim, sem þá ólust upp í ein- angrun og umkomuleysi. En það sannaðist hér sem oftar, að sig- ursæll er góður vilji. Sigríður fór ung úr föðurgarði og farnaðist vel á þroskabraut sinni. Hún kynntist mörgu góðu fólki, er reyndist henni vel og kunni að meta störf hennar og bar traust til hennar í hvívetna. Hún var um nokkurra ára bil á heimili Hannesar Hafsteins skálds og ráð herra og Ragnheiðar konu hans. Var Sigríði jafnan rík í huga minningin um dvöl sína á heimili þessara göfugu heiðurshjóna, er hún taldi sig eiga svo margt gott upp að unna. Árið 1903 giftist Sigríður eftir- lifandi manni sínum Bjarna Jóns syni frá Gerði. Tvö fyrstu bú- skaparár sín bjuggu þau Bjarni og Sigríður í Reykjavík. Stund- aði Bjarni þá trcsmíði. En hug- ur þeirra beggja stefndi að því að lifa sjálfstæðu lífi á heimili, sem byggt væri upp á lífrænu starfi. Rætur þeirra beggja stóðu í íslenzkri mold, þar var föðurtún þeirra. Og þótt þau veldu sér í æsku annan vettvang um skeið, meðan þau voru að sækja í sig veðrið, þá lá leið þéirra aftur heim í sveitina. Þar skyldi lífs- starf þeirra verða unnið. Þau Bjarni og Sigríður bjuggu jafn- an góðu búi á eignarjörð sinni, Gerði, og voru samvistir þeirra farsælar. Kunni Bjarni vel að meta mannkosti konu sinnar, ráðdeild hennar, röskleik og Bíóu bondinu beist 10 þús. kr. gjöf FYRIR NOKKRU barst Bláa- stjórnsemi. En Sigríður mat eigi síður hinn athafnasama mann sinn og undi vel hag sínum í skjóli þeirrar glaðværðar og hlýju, sem jafnan mótaði dag- far þessa hugþekka drengskapar manns. Sigrígur var brjóstgóð kona. Hún rétti mörgum hjálparhönd. Var henni það mikil ánægja að geta létt raunir þeirra, sem bágt áttu og grætt sorgarsár þeirra, er hryggir voru. Hún var rausnar kona. Hún unni kirkju sinni, er hún bjó í næsta nágrenni við, og sýndi það oft í verki. Létu þau hjón af hendi rakna myndarlega gjöf til kirkjunnar eigi alls fyrir löngu. Sigríður var kona mjög frænd rækin. Var sá þáttur ríkur i eðli hennar. Bróðir Sigríðar, Gísli bóndi í Galtarvík, dó frá mörgum ungum börnum sínum. Tóku þau Gerðishjónin tvo af sonum hans, Geir og Jón, til fósturs og ólu upp sem sín eigin börn. Einnig ólst upp hjá þeim dóttursonur Sigríð- ar. Vilhjálmur að nafni. Móður Vilhjálms Vilhelmínu, átti Sig- ríður áður en hún giftist Bjarna. Þeim Bjarna og Sigríði varð þriggja barna auðið og eru þau öll á lífi: Böðvar, trésmíðameistari, bú- settur í Reykjavík, kvæntur Ragnhildi Jónsdóttur. Eiga þau fimm börn upp komin. Seselja Ásta, gift Ármanni Guð mundssyni trésmíðameistara i Reykjavíír, eiga þau sex upp komin börn. Guðríður Indíana, gift Guðna Eggertssyni, sem tekið hefur við búi í Gerði, og dvelur Bjarani hjá dóttur sinni og tengdasyni. Þau Indíana og Guðni eiga tvo börn upp komin. Sigríður var fríðleikskona og gjörfuleg, háttprrúð í framgöngu og bar svipmót hennar vott um röskleik og stjórnsemi. En hið innra sló raungott og hlýtt hjarta. Pétur Ottesen. Fyrir Fermingars túlkur Lakk- og russkinnsskór með lágum hæl Skinnskór, með kvarthæl. svartir, bláir og ljósbrúnir. Skóverzlun Þórðar Péturssonar, Aðalstræti 18. MB-WICK - UR-WICK Lykteyðandi og lofthreinsandi undraefni. Njótið ferska loftsins innan húss allt árið. Aðalumboð: ÖLAFUR GÍSLASON & CO. H. F. Sími 81370 2 ja. herbergja íbúð Höfum til sölu 2ja herbergja íbúð í Eskihlíð. Stærð 65—70 ferm. Nánari upplýsingar gefur Fasteigna & Verðbréfasalan, (Lárus Jóhannesson hrl.) Suðurgötu 4. Símar: 3294 og 4314. Bandinu stórgjöf frá frú Ingi- björgu Magnúsdóttur, prests- •kkju frá Laufási við Eyjafjörð. Var það sparisjóðsbók með tíu þús. kr. innstæðu, og er gjöf þessi geSin til minningar um for- Vekið stónaukna aðdáun... eldra frú Ingibjargar, séra Magn ús Jónsson prest í Laufási, hinn alkunna bindindisfrömuð og konu hans Vilborgu Sigurðar- dóttur. Frú Ingibjörg leggur svo fyrir að af þessu fé skuli stofna sjóð er beri nafn foreldra hennar og tekur sjóðurinn við gjöfum og á- heitum. Tilgangur hans er „að Styrkja bindindis og hjálparstarf það, sem áfengisvarnafélagið Bláa-Bandið hefir með höndurn". Stjórn Bláa-Bandsins nefir a hendi stjórn sjóðsins og veitir fé úr honum, og meðan eitthvert af börnum frú Ingibjargar er á lífi skal eitt þeirra eiga sæti í sjóð- stjórninni. Fyrir hönd Bláa-Bandsins hefi ég tekið við þessari rausnarlegu gjöf frú Ingibjargar Magnúsdótt- ur og þakka hana hér með fyrir félagsins hönd. Hún sýnir hug þessarar ágætu konu til þess mál efnis sem faðir hennar bar svo mjög fyrir brjósti, og jafnframt skilning hennar á því verkefni, sem Bláa-Bandið er að reyna að leysa af hendi. Sjóðnum, sem heitir Minning- arsjóður séra Magnúsar Jóns- sonar og Vilborgar Sigurðardótt- ur, hefir nú verið sett skipulags- skrá og tekur hann hér eftir við gjöfum og áheitum. Verður því fé sem sjóðnum kann að ber- ast varið til starfsemi Bláa- Bandsins eða til styrktar sjúkl- ingum þar. Ég þakka frú Ingibjörgu Magn úsdóttur þessa höfðinglegu og vinsamlegu gjöf og óska henni allra heilla. Reykjavik 5. febr. 1957. Jónas Guðmundsson. HIÐ BLÁA WVHJ SKIUB lfDUR Hmsim ummm matrn [ K-OMO 19/3-2187-50 Munið, að augu fjöldans hvíla á yður, — það verður tekið eftir fötum yðar. Þér getið fengið hreinan þvott með algengu þvotta- dufti, en ekkert nema hið bláa Omo skilar yður mjallhvítum þvotti. Mislitu fötin koma líka skærari úr ilmandi Omo froðu heldur en þér hafið áður séð. Þetta er af þvf, að Omo nær burtu hverskonar óhreinindum, hverjum bletti, hversu grómtekin sem föt- in eru. Reynið hið bláa Omo næst. Þér finnið muninn, þegar þér notið Omo.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.