Morgunblaðið - 06.03.1957, Side 15
Miðvikudagur 6. marz 1957
MORGUVRLAÐIÐ
15
- ISRAEL
Frh. af bls. 1.
vegis — nema Alþjóðadóm-
stóllinn gæfi annan úrskurð.
Aðspurður kvað hann
Bandaríkjasíjórn ekki hafa
gefið ísraol neinar leynilegar
tryggingar. ÖII viðskipti ísra-
els og Bandaríkjanna í þessu
máli hefðu verið opinber.
Seinustu fréttir frá Jerúsalem
herma, að þingmenn stjórnarand-
stöðunnar hafi gert hróp að Ben
Gurion, er hann gekk í þingsal
í kvöld — og flutti þinginu
skýrslu stjórnarinnar viðvíkj-
andi ákvörðuninni um að hverfa
með herinn úr Egyptalandi, og
bað um traustsyfirlýsingu til
handa stjórninni.
Kvað hann ísraelsmenn hafa
farið með sigur af hólmi í átök-
um þessum. Þeir hefðu tryggt
frjálsar siglingar um Akabaflóa
og endalok yfirráða Egypta á
Gazaræmunni. Hefðu ísraels-
menn sýnt heiminum, að þeir
hygðu ekki á landvinninga, held-
ur aðeins að leita réttar síns.
★
Seinustu fréttir frá New
York herma, að Golda Meier,
utanríkisráðherra ísraels hafi
látið svo um mælt í tali við
fréttamenn, að ísraelsmenn
mundu aldrei sætta sig við
það, að Egyptar fengju yfir-
stjórn Gaza-ræmunnar í sín-
ar hendur. Hún sagðist og
vona, að Ísraeísmemi þyrftu
aldrei framar að beita her sín-
um tii þess að fá réttlætis-
kröíum landsins framgengt.
EGGERT CLAESSEN
GtJSTAV A. SVEINSSON
hæílaréuarlögmenn.
Þórshamri við Templarasund.
~L0 FTUR h.t.
Faslelgnaeigenda-
félög utan Reykjav.
STJÓRN Fasteignaeigendafélags
Reykjavíkur, heitir á húseigendur
í kauptúnum og kaupstöðum
landsins, að efna til félagsskapar
innan vébanda hvers kauptúns og
kaupstaðar, og sé markmið félags
ins að vernda rétt húseigenda og
vinna að því að fasteignir á hverj-
um stað séu sem tryggust eign.
Fasteignaeigendafélag Reykja-
víkur, sem á 34 ára starfsferil
að baki um þessar mundir, og
hefur því öðlazt nokkra reynslu,
vill gjarnan styðja stofnun hús-
eigendafélaga í öðrum lögsagnar-
umdæmum landsins.
Félagsstjórnin biður þá húseig-
endur í kauptúnum og kaupstöð-
um ,sem kynnu að óska upplýs-
inga og aðstoðar í þessu skyni, að
skrifa framkvæmdastjóra félags-
ins, Fáli S. Pálssyni, hæstaréttar-
lögmanni, pósthólfi 1177, Reykja-
vík, eða gera honum aðvart á
annan hátt.
— f eltkleit
Framh. af bls. 9
vestur koma nú til okkar. Þeir
hafa ekki fundið neinar kindur.
Þegar við erum allir komnir í
bílinn, er hann hlaðinn fólki og
fénaði. Okkur er ekkert að van-
búnaði að halda heim. En kl.
er ekki nema rúml. 4 og leitar-
mönnum finnst þeir'hafa góðan
tíma til að skyggnast um í Lauf-
felli á heimleiðinni. Þrír þeirra
ganga yfir fellið meðan við ök-
um í bílnum meðfram því En
þessi leit ber engan árangur.
Þama er enga skepnu að sjá.
--------------o---
Nú er dagsetur. Fölum roða
slær upp á kuldablátt austurloft-
ið, hnúkarnir á Grænafjallgarði
loga í aftansólinni, landnorðan
kylja rennir kófinn yfir hvíta
auðnina á Lauffellsmýrum. >að
verður kalt hérna innfrá í nótt.
Ferðin heim gekk eins og í
sögu. Þegar við komum fram á
Hurðarbök, kom tunglið upp yfir
Lambatungur og lýsti okkur
heim. -
G. Br.
Styrktar- og sjúkrasjóður Verzlunarmanna- í Reykjavík
AÐALFUIMDUR
verður haldinn fimmtud. 7. marz í Tjarnarcafé kl.
8.30 e.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Tillögur um lagabreytingar liggja frammi hjá
Sigurði Einarssyni, Ritfangaverzlun V. B. K.
Stjórnin.
Skipstjóra- og stýrimanna-
Flyt Öllum þeim, er sýndu mér vinsemd á 65 ára afmæl-
inu, með heimsókn, gjöfum og kveðjum, hjartanlegt
þakklæti mitt og óska öllum vinum mínum velfarnaðar
á komandi árum.
Helgi Erlendsson, Hlíðarenda.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig á 70
ára afmæli mínu 28. f. mán., með heimsóknum, gjöfum,
skeytum, eða á annan hátt.
Lifið öll heil.
Guðjón Einarsson,
frá Gröf.
Vlálfundafélagið Öðinn
Félagsfundur verður haldinn í Valhöll við Suður-
götu,' fimmtudaginn 7. marz og hefst kl. 20,30.
Framsöguræður flytja:
Björn Óiafsson alþm.: Breyting á innheimtu skatta.
Gunnar Helgason, erindreki: Verkalýðsmál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Ljósmyndastofan
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma ' síma 4772.
fjölritarar og
/ r fjolntars
Einkaumboð Finnbogi Kjartansson
Austurstræti 12. — Sími 5544.
Samkomisr
Kristniboðshúsið Retanía
Laufásvegi 13.
Fórnarsamkoma í kvöld kl. 8,30.
Jóhannes Ólafsson, talar.
Allir velkomnir.
Fíladelfía
Almenn samkoma að Herjólfs-
götu 8, Hafnarfirði kl. 8,30. -—-
Allir velkomnir.
Féictgslii
Þjóðdansfélag Reykjavíkur
Allar æfingar falla niður í dag.
Sýningarfl. og unglingafl. æfing-
ar á morgun á venjulegum tíma.
Farfuglar
Munið grímudansleikinn í Golf-
skálanum í kvöld.
Farfuglar.
félagið ALDAIM
Spilað verður í Tjarnarcafé í kvöld klukkan 9, og hefst
þá keppni um flugferðir til Vestmannaeyja og stendur
í 3 kvöld.
Keppni um flugfar til Akureyrar, sem hófst 27. febr.,
heldur áfram.
Nefndin.
Siifurtunglið
Opið í kvöld til klukkan 11,30
Hin vinsæla hljómsveit R I B A leikur.
Söngvari Grétar Oddsson
Húsið opnað kl. 8 — Ókeypis aðgangur.
Sími: 82611. Silfurtunglið.
Skátaskemmtunin 1957
verður endurtekin miðvikudaginn
I. O. G. T.
St. Einingin nr. 14
Fundur á kvöld kl. 8,15 (uppi).
Venjuleg fundarstörf. Kl. 9 hefst
Öskndagsfagnaður. Þar verður
bögglauppboð, gamanvísnasöngur,
skemmtiþáttur og hljóðfæraleikur.
Félagar! fjölmennið stundvís-
lega.
Æðstitemplar.
St. Daníelsher nr. 4
fer I heimsókn til st. Sóley nr.
242 £ kvöld.
Farið frá Álfafelli kl. 8.
St. Sóley nr. 242.
Munið afmælisfundinn í kvöld,
sem jafnframt er 500. fundur
stúkunnar. — St. Daníelsher kem-
ur í heimsókn. Góð skemmtiatriði,
kaffi og dans.
Æ.t.
Vinna
Hreingerningar
Vönduð vinna.
Sími b462.
6. marz klukkan 8.
Aðgöngumiðar í Skátaheimilinu kl. 2 í dag.
Sjómannadagskabarettinn
Forsala
Aðgöngumiðasalan er í Austurhæjarbíói
daglega frá klukkan 2—10.
Miðapantanir í síma 1384.
Jarðarför konunnar minnar
FANNEYJAR JÓNSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudag 6. marz kl. 1,30.
Þorleifur Ó. Guðmundsson.
Útför
GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR
Hoftúni, Stokkseyri, sem andaðist 26. febrúar, fer fram
laugardaginn 9. marz og hefst með bæn að heimili hennar,
kl. 1,30 e. h. — Blóm afbeðin.
• Bjarnþór Bjarnason.
Útför móður okkar
SÓLVEIGAR JÓNSDÓTTUR
Kirkjubóli, fer fram frá Laugarneskirkju, fimmtu-
daginn 7. marz kl. 2 eftir hádegi. Blóm vinsamleg-
ast afþökkuð.
Regína Magnúsdóttir,
Björgvin Magnússon, Magnús J. Magnússon.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jeirðarför
AÐALSTEINS AÐALSTEINSSONAR
frá Þingeyri.
Aðstandendur.
Innilega þökkum við öllum þeim, fjær og nær, er auð-
sýndu okkur hjálp og hluttekningu við andlát og jarðarför
ÁSMUNDAR ÓLAFSSONAR
Suðurgötu 90, Akranesi.
Vandamenn.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur
hjálp og hluttekningu við andlát og jarðarför eiginmanns
mins og föður okkar
EINARS JÓNSSONAR
frá Vík í Mýrdal.
Sérstaklega þökkum við systkinum hans, tengdafólki,
starfsmönnum Ræsis, studentum frá M. R. 1956, stofu-
félögum hans og hjúkrunarliði Heilsuverndarstöðvar-
innar.
Kristín Pálsdóttir og dætur.