Morgunblaðið - 05.04.1957, Page 2

Morgunblaðið - 05.04.1957, Page 2
2 Fðstudagur 5. aprfl 1957 M /\ n r r v n r i n in Flaggskip færeyska fiski- flotans í Reykjavík í gær Stærsti togari norðan Frakklands HINN MIKLI TOGARI Færey- inga, Skálaberg frá Klakksvík kom hingað til Reykjavíkur í fyrsta skipti í gær, en togarann lét hinn kunni stórútgerðarmaður Kjörhro smíða í Þýzkalandi. Hef- ur togarinn verið á veiðum hér við land frá því um síðustu ára- mót. — 1 gærdag heimsóttu nokkr- ir kunnir togaraútgerðarmenn skip stjórann á Skálabergi og fengu að skoða skipið. Luku þeir hinu mesta lofi á togarann og fyrir- komulagi öllu þar um borð. Er Skálaberg stærsti togarinn sem gerður er út fyrir norðan Frakk- land. Skálaberg kom hingað inn til að taka vatn og olíu, en hann er að veiða í salt, hér við land. Hefur honum eins og reyndar öðrum skipum gengið seint að fiska, en Lítið hús stór- skemmist í GÆRDAG stórskemmdist af eldi og vatni lítið timburhús, Sólvellir á Seltjarnamesi, skammt frá Nesi. Talsverður eld- ur var í húsinu og varð að rífa þak þess töluvert til að komast aðeldinum. Þarna bjó með fjöl- skyldu sinni maður að nafni Magnús Stefánsson og mun vera rakari. Varð hann fyrir mjög til- finnanlegu tjóni. Dagheimili lokað nokkra claga DAGHEIMILINU Vesturbcrg hefur verið lokað um vikutíma vegna þess að þrjú böm þar á heimilinu veiktust yfir helgina og kom í ljós að um heilahimnu- bólgu var að ræða hjá þeim öll- um. Borgarlæknisembættið lét því loka heimilinu til þess að hindra frekari útbreiðslu meðal barn- anna, en skrifstofan tók fram í gærdag, í samtali við Mbl., að engin ástæða væri fyrir fólk að óttast frekari útbreiðslu sjúk- dómsins. Lokunin væri aðeins gerð í öryggisskyni. Dagskrá Alþingis Dagskrá efri deildar Alþingis föstud. 5 apríl: Iðnfræðsla, 2. umræða. Dagskrá neðri deildar. 1. Dýra- vernd; 2. Heilsuverndarlög; 3. íþróttalög. skipstjórinn, sem er meðal kunn- ari skipstjómarmanna í flota Fær eyinga, Kaj Jóhannssen, siglir með afla skipsins heim hinn 25. þessa mánaðar. MARGIR KOMU AÐ SKOÐA 1 gær brá fréttamaður Mbl. sér um borð í Skálaberg. Skipstjórinn var þá að sýna þeim Tryggva Ófeigssyni, Hafsteini Bergþórs- syni, Kolbeini Sigurðssyni, Krist- jáni Kristjánssyni og fleirum skip sitt. Dáðust þeir allir mjög að skipinu. Ibúðir skipsverja eru hinar vistlegustu. — Þegar tog- arinn veiðir í ís búa allir aftur í, en þar eru íbúðir fyrir rúmlega 38 menn, en þegar veitt er í salt, eins og nú eru 46 menn á togar- anum og búa nokkrir framm í lúkar. Undir hvalbaknum er stórt víra- og netaverkstæði. Þar er öll netavinna unnin í góðum vinnu- sal þar sem allt er til alls. Við vinnum alla netavinnu sem vinna þarf fyrir skipið hér. Hægt er að komast gegnum frammastrið niður í fiskilestimar. — Ef við fengjum fullfermi nú í þessari ferð, þá myndi aflinn trúlega vera kringum 550 tonn. Kolbeinn Sigurðsson spurði hvort þetta væri ekki úrvals sjó- skip. — Jú svaraði skipstjórinn, alveg sérstakt. Hér á þilfarinu hefur enginn fengið full stígvél- in í allan vetur, sem við höfum verið hér við land. T.d. er togar- inn svo hár að framan að það Þetta er hin mikla brú Skálabergs og merki útgerðarfélagsins sést á reykháf. Stærðina má marka af lögreglumönnunum tveim, sem sjást á myndinni. !— (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) kemur ekki fyrir að sjór komi af á veggnum eru myndir af Kjöl- hvalbak yfir mennina, þegar við erum að veiðum. TÚRBÍNA SPARAR En það sem þessum gömlu togara skipstjórum, sem þarna voru um borð að skoða, þótti einna mest til koma, var útbúnaður í vél skips ins. Við vélina er túrbína, en tog- arinn er olíukynntur með gufu- katli. Þegar gufan hefur gefið að- aðalvél fullan kraft, fer hún inn á turbínuna, sem hefur það í för með sér að afköst vélarinnar auk- ast um 25—30%. — En þetta þýð- ir aftur að mikill sparnaður fæst á olíu og fer þessi stóri togari með rúmlega 6 tonn af olíu á sól- arhring, sem er mjög lítið. Er við höfðum gengið um skip- ið bauð Kaj Jóhannessen okkur í hina glæsilegu skipstjóraíbúð. Þar Aðalfundur Njarðvíkings Kaj Johannessen skipstjóri í brúnni á Skálabergi. Hann mun miklu hafa ráðið um fyrirkomulag allt í skipinu. í brúnni eru tvö stýri út frá aðalstýrinu, sem hann stendur við á myndinni, en það er raf- magnsstýri. Eru þessi stýri við hliðargluggana á brúnni, sem staðið er við þegar kastað er. Þannig getur hann stýrt skipinu um ieið og hann fylgist með því hvernig kastað er og „stíma á vírana út“. — Þetta er fyrsti togarinn með slík stýri, en vafalaust þykja þau ómissandi upp frá þessu. Stúdentakvöldvaka IKVÖLD kl. 8.30 efnir Stúdentafélag Reykjavíkur til kvöldvöku í Sjálfstæðishúsinu. Verður þar margt til skemmtunar, en það sem helzt mun þó vekja athygli manna er að danski landkönnuður- inn Peter Freuchen flytur þar stutt ávarp til samkomugesta. Margt annað verður til skemmtunar á kvöldvökunni. imm m*... ÍH Freuchen Efnt verður þar til spurninga- þáttar, en ekki er vitað hvort Freuchen tekur þátt í honum, en hann er manna snjallastur í spurningaþáttum eins og Banda- ríkjamenn bezt vita, en hann vann þar á aðra milljón króna í spuringaþætti. m A kvöldvökunni mun Jon Sig- urbjörnsson syngja einsöng og fleiri skemmtiatriði verða. Peter Freuchen flytur fyrir- í lestur í Háskólanum á laugar- daginn kl. 3,30 fyrir stúdenta um Grænland fyrr og nú og á sunnu- daginn flytur hann annan fyrir- lestur £ Gamla Bíói kl. 2 og segir þar frá ferðum sínum á Græn- landi. Þar mun hann og sýna Grænlandskvikmynd. bro, sem er mestur atvinnuveit- andi í Færeyjum og á nú 25 stór og smá fiskiskip. Þar er mynd af Klakksvik, þar sem skipstjórinn býr með fjölskyldu sinni, konu og fimm börnum. Elzti sonur hans ætlar líka að leggja fyrir sig sjó- mennskuna og er hann með föður sínum sem háseti. Hann fer í Stýrimannaskólann næsta vetur. DUGANDI SJÓSÓKNARAR Við sátum þarna góða stund og röbbuðum saman. Skipstjórinn er af mjög kunnri sjósóknaraætt. Eru bræður hans f jórir skipstjór- ar eða stýrimenn á togurum i Færeyjum t.d. er yngsti bróðirinn 30 ára og skipstjóri á Jóhannesi Paturssyni. Faðir þessar:. dug- legu bræðra var skipstjóri á Rán, sem héðan var seld til Færeyja cg dó hann á skipinu af hjartaslagi. Jóhannessen skipstjóri hefur ver- ið skipstjóri á togurum hjá Kjö- bro í 20 ár, en hann er nú 46 ára. Okkur vantar ný fiskiskip í Færeyjum. Endurnýjun flotans hófst alltof seint hjá okkur. Það er nú orðið erfitt að manna suma kútterana því menn fást ekki til starfa á þeim. En nú vonar mað- ur að áframhald verði á því að endurnýja flotann og nú verða byggðir 3 togarar í Portugal nokkru minni skip en þessi. fiskveiðiAætlun Jóhannessen skipstjóri sagði og frá því að útgerðarfyrirtækið gerði alltaf nákvæma fiskveiðiá- ætlun fyrir skip sín. Þannig væri búið að ákveða alla veiðidaga þesssa árs. 1 vor verður farið til Grænlands þegar þessari veiðiför líkur, skroppið í júlí til Bjarnar- eyjar, síðan til Grænlands. Komið verður hingað til lands aftur með haustinu og komið heim rétt fyrir jólin og komið hingað aftur um jólin. Undanfarin 11 ár hef ég verið hér við land á jólunum sagði skipstjórinn þar til í fyrra að ég kom heim ne* togarann frá Þýzka landi rétt fyrir jólin og varr þá heima um hátíðarnar. —o-O-o— Um kl. 7 í gærkvöldi lét Skála- berg úr höfn og hélt út á miðin. Þessari stuttu heimsókn flagg- skipsins í fiskiskipaflota Færey- inga til Reykjavíkur var lokið. í brúnni stóð hinn trausti skipstjóri þess, radarinn var farinn að snú- ast á þakinu yfir brúnni og í sk-itnum blakti fáni Færeyja i norðan kulinu. Sv. Þ. AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé- lagsins Njarðvíkings var hald- inn í Samkomuhúsinu í Ytri Njarðvík sl. sunnudag. Fundur- inn var vel sóttur og gengu 28 nýir meðlimir í félagið á fund- inum. Formaður félagsins, Ólafur Egilsson setti fundinn, en f'ond- arstjóri var Stefán Sigurfinns- son og fundarritari Þormar Guð- jónsson. Fráfarandi formaður flutti skýrslu um starfsemi félagsins á árinu, sem var mikil og fjölþætt. Þá voru lesnir upp reikningar fé- lagsins og samþykktir samhljóða. I stjórn félagsins voru kjörnir: Ólafur Egilsson, form.; Karvel Ögmundsson, varaform., og með- stjórnendur: Áki Granz, Páll Kristinsson og Þormar Guðjóns- son. Varastjórn: Magnús Krist- insson, Ögmundur Guðmundsson og Karl Oddgeirsson. Að lokinni stjórnarkosningu voru almennar almr. um félags- mál og tóku margir til máls og var mikill áhugi ríkjandi hjá fundarmönnum á eflingu fé- lagsins og framgangi Sjálfstæðis- stefnunnar. Sæluvikan í fullum gangi SAUÐÁRKRÓKI, 4. apríl. — Sæluvikan heldur hér áfram af fullum krafti. í kvöld er hér fjórða sýningin á fleiknum Gas- ljós og hefur verið góð aðsókn. í dag voru tvær kvikmyndasýn- ingar. f gær var fyrsti dansleikur sæluvikunnar og voru gömlu dansarnir stignir af fullum krafti undir stjórn Hálfdáns Sveinssonar. Skemmti fólk sér prýðilega og voru menn sýnilega í sæluvikuskapi. Veðrið í dag var ekki eins gott og að undanförnu, norðaustan slydduhríð og komst hingað ekki flugvél í dag. Búist var við allmörgum gestum hingað flugleiðis, enda er þessi skemmt- un eftirsótt af fleirum en héraðs- búum einum. Kom hingað all- margt fólk innan úr sveitinni, til þess að skemmta sér. Einnig kom fólk vestan frá Blönduósi. Á morgun verður enn bætt verulega við skemmtiskrána, en þá verða gömlu dansarnir í „Ternpló", málfundur í barna- skólanum og kvikmyndasýningar, tvær leiksýningar: Gasljós og Förin til Brazilíu, samsöngur Karlakórsins Heimir og að lokum dansað fram á nótt. — Vignir. Stjórnmálanámskeiðið NÆSTI fundur á stjórnmálanám- skeiðinu um atvinnu- og verka- lýðsmál verður í Valhöll í kvöld kl. 8,30. — Áríðandi að allir mæti. Alþjóðlegir sjálfboðaliðar reisa Langholtskirkju DAGANA 28. júní til 28. júlí n.k. verður hér ílokkur erlendra sjálfboðaliða, sem munu vinna að því að reisa Langholtskirkju ásamt nokkrum íslenzkum sjálfboðaliðum. Er hér um að ræða alþjóðlegan vinnuflokk, sem Alkirkjuráðið í Genf stendur fyrir, en slíkir vinnuflokkar eru nú starfræktir í 27 löndum. Verður nánar sagt frá þessu merkilega fyrirtæki siðar. Heppnir kjallara- íbúar ÞAÐ er einkennilegt með fólkið í kjallaranum að Skipasundi 71, sagði Auðunn Hermannsson, for- stjóri fyrir DAS-happdrættið, er hann hitti einn tíðindamann Mbl. á förunm vegi í gær. Þar bjuggu í fyrra ung hjón, sem hrepptu íbúð í happdrættinu hjá okkur, nokkru eftir að þeim hafði verið sagt upp húsnæðinu. Fluttu þá önnur ung hjón í þetta kjallara- húsnæð. Og svo skeð það i fyrra- dag er dregð var hjá okkur, að þessi ungu hjón fengu nýjan Chevrolet sendiferðabíl, verð- mæti kringum 100.000,00 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.