Morgunblaðið - 05.04.1957, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 05.04.1957, Qupperneq 9
F5studagur 5. aprfl 1957 MOROVMtr ABIÐ 9 Húsnæðismálunum stefnt í voöa SLÐAN núverandi ríkisstjórn tók við völdum, er naum- ast rætt um nokkurt þjóðmál, án þess að af hálfu stjómarliðsins snúist umræðurnar að miklu leyti um það, sem þeir kalla arf- inn í viðkomandi máli. Allt þyk- ir velta á þeim arfi, sem ríkis- stjórnin hefur tekið við frá fyrr- verandi ríkisstjórn. Allt, sem af- laga fer í hverju máli, kenna síjómarliðamir arfinum. Slík viðbrögð við vandamálum hinnar líðandi stundar minna á annað frekar en venjulegar þjóðmála- umræður. Við þekkjum slík fyr- irbrigði í hinu daglega lífi ein- staklinganna. Þó er það ekki al- gengt, og heldur þykja það lít- ilsigldir einstaklingar, sem allt leggja upp úr arfinum. Slíkir menn vilja oft verða athafnalitl- ir og sóa arfinuin og kunna ekki með hann að fara, hversu mikill og góður, sem hann kann að vera. Slíkar landeyður fyrirfinn- ast því miður alltaf meðal ein- staklinga þjóðfélagsins, og venju- legast eiga þær sér þá einu afsök- un, að arfurinn hafi ekki verið nógu góður. Og í hverju máli finnur nú ríkisstjórn fslands þá afsökun, að arfurinn hafi ekki verið nógu góður. >ar sem allt á þannig upphaf sitt og endi í arfinum, verður að sjálfsögðu ekki framhjá hon- um komizt, þegar rætt er um húsnæðismálin. >að er líka fróð- legt að athuga , að mál. ÓMENGUÐ VINSTRISTEFNA Við skulum því hverfa aftur til gullaldar vinstri stefnunnar á íslandi, til áranna fyrir síð- ustu heimsstyrjöld. >á var nægi- legt framboð íbúðarhúsnæðis til að fullnægja eftirspurninni. Hver sem var gat þá fengið leigða íbúð í Reykjavík og var raun- ar meira framboð en eftirspurn. Húsnæðisvandamálið í þeirri mynd, sem það er nú, var þá ekki til. >ó vildum við ekki hverfa frá vandamáli dagsins í dag til þess ástands, sem þá ríkti í hús- næðismálunum. Á þessum tíma bjó þjóðin miklu lakar en nú. Allur almenningur varð að not- ast við verri húsakost og þrengri en i nú tíðkast. Mikið af því hús- næði, sem fólk gerði sér þá að góðu, væri nú talið lítt hæft. >ó var framboð skárra húsnæðis til þess að fullnægja eftirspurn- inni. En eftirspurnin var ekki tilsvarandi þeim þörfum, sem raunverulega voru fyrir hendi. Fyrir þvi sá kaupgeta almenn- ings. >etta voru timar atvinnuleys- is, lítillar framleiðslu og lágra þjóðartekna. Fáir voru bjarglána, en flestir alþýðumenn þökkuðu sínum sæla fyrir að geta á ein- hvem hátt framfleytt sér og sín- tun án þess að gera frekari kröfur til húsnæðis. >etta ástand var að miklu leyti bein afleiðing þeirra stjórnarstefnu, sem þá ríkti í landinu. Á þessum tíma reyndi þjóðin ómengaða vinstri stefnu í framkvæmd. HIN MIKLU UMSKIPTI Síðan þetta var hafa mikil um- skipti orðið. Sótt hefur verið fram til hagsældar og velsældar. Með bættum efnahag hefur þjóð- in gert meiri kröfur til hvers konar lífsþæginda. >etta hefur eltki sízt komið fram í mikilli eftirspum eftir húsnæði. >essu hefur verið svarað með svo mikl- um byggingarframkvæmdum, að þær hafa gjörbreytt húsnæðis- ástandi þjóðarinnar. >jóðin býr nú við svo góðan og aukinn húsa- kost, að ekki er sambærilegt við það, sem áður var. En þrátt fyr- ir þessar framfarir, hefur samt ekki verið hægt að fullnægja eft- irspuminni eftir húsnæði. >að er húsnæðisvandamálið, sem við hefur verið að stríða. Vegna þessa vandamáls sést mönnum oft yfir þann mikla árangur, sem fengizt hefur í auknum og bætt- um húsakosti þjóðarinnar. En Ríkisstjórnin tók við góðum arfi, en hefir brugðizt hlutverki sínu Ræba Þorvaldar Garbars Kristjánssonar lögfræðings á Varðarfundi í fyrrakvöld Þorvaldur GarSar Kristjánsson. þann árangur má sýna glögg- lega með tölum um þær breyt- ingar sem urðu á húsnæðisá- standinu á áratugnum frá 1940 —1950. 1940 1950 íbúðir á 1000 íbúa 190 215 Meðaltal herb. á íbúð 4,17 4,42 Meðalmannfj. á herb. 1,24 1,03 Mannfjöldi í ofsetnum íbúðum á 100 íbúa 14,4 6,2 >etta sýnir, að það var gert meira en að byggja, sem svaraði fólksfjölgun þjóðarinnar. íbúð- um fjclgaði hlutfallslega mun meira en íbúunum. >etta var samt ekki gert á kostnað þess, að íbúðirnar, sem byggðar voru, hafi verið minni, en áður tíðk- aðist, þar sem meðaltal herbergj a á íbúð hækkaði allverulega. Af- leiðing þess varð sú, að þjóð- in bjó mun rýmra í lok tíma- bilsins en í upphafi þess, svo sem frám kemur í því, að m<*d- almannfjöldi á herbergi lækkaði verulega. >essar breytingar urðu svo óhjákvæmilega til þess, að þvi fólki fækkaði stórkostlega, sem bjó við of þröng húsakynni, þannig að tveir eða fleiri menn voru á hvert herbergi. í ofsetn- um íbúðum bjó árið 1950 aðeins 6,2% þjóðarinnar á móti 14,4% árið 1940. Ekki liggja fyrir jafnnákvæm- ar upplýsingar um ástand þess- ara mála eftir 1950. En á tíma- bilinu 1950—1956 voru fullgerð- ar 5886 íbúðir. Með tilliti til þessa er vafalaust, að húsnæð- isástandið hefur enn batnað mik- ið, frá því sem var 1950, án þess að tekið sé tillit til hins óvenju- lega fjölda íbúða, sem nú er í smíðum, og er eitthvað um 3000. ÚTRÝMING HÚ SN ÆÐIS SKORTSIN S Með þessari þróun hlýtur að hafa drjúgum munað í þá átt, að eftirspurninni eftir húsnæði væri fullnægt. Til þess að það megi verða augljóst, þarf að at- huga um framboð og eftirspurn á húsamarkaðinum. Margt kem- ur þá til greina, en góða hug- mynd um þetta atriði gefur sam- anburður á tölu íbúða í land- inu og fjölda heimila. Árið 1950 var fjöldi íbúða 31058, en heim- ili 35869 að tölu. Af heimilunum voru 4955 einstaklingsheimili eða enhleypt fólk, sem hefur íbúð til umráða eða leigir einstök her- bergi. Meginhlutinn er samt fólk, sem hvorki þarf né óskar eftir séríbúðum. Ekki liggja fyrir hlið- stæðar upplýsingar um tölu heimilá' nú. En augljóst er, að byggingaframkvæmdir síðan 1950 hafa numið mun meiru en svarar til nýrra fjölskylduheim- ila, þegar tekið er tillit til hjóna- vígslna og hjúskaparslita á þessu tímabili. Af þessu má nokkuð marka, að útrýming húsnæðis- skortsins var á næsta leiti, þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum. >etta er sá arfur, sem ríkisstjórnin tók við þegar Sjálf- stæðisflokkurinn lét af stjórnar- forustu á s. 1. sumri. MIKIÐ VILL MEIRA Stjórnarliðið forðast að minn- ast á þennan arf, en í stað þess fjargviðrast blöð ríkisstjórnar- innar nú dag hvern yfir þvi, að ekki hafi einnig fengizt í arf gildir sjóðir í reiðu fé til íbúð- arlána, svo að alveg væri hægt að komast hjá öllu amstri í hús- næðismálunum. Er farið hinum hörðustu orðum um fyrrverandi ríkisstjóm fyrir að hafa ekki skilið neitt eftir í handraðanum í þessu skyni. Að sjálfsögðu er þessum ámælum aðeins beint gegn öðrum aðilanum í fyrrver- andi ríkisstjórn, Sjálfstæðis- mönnum, því að það er vist ekki hægt að ætlazt til þess, að Fram- sóknarmenn geti sýnt af sér slíka ráðdeild og fyrirhyggju. En þótt mikils megi vænta af Sjálfstæð- ismönnum, er hér til of mikils mælzt. Á undanförnum árum hafa verið meiri húsbyggingar og framfarir í húsakosti þjóðarinn- ar en nokkurn tíma hefur þekkzt. Verður að telja, að það hafi ver- ið ærið verkefni að afla láns- fjár til þeirra framkvæmda, þótt ekki jafnframt væri aflað láns- fjár til þeirra framkvæmda, sem siðar eiga að verða. Ber þá og að hafa það í huga, að lánsfé hefur ekki legið laust fyrir á undanförnum árum. LÁNSFJÁRSKORTURINN Allt frá því árið 1947 hefir verið mikill lánsfjárskortur, sem leitt hefur af sér erfiðleika við að fá lán til íbúðarbygginga. Veðdeild Landsbankans varð þá að mestu óvirk. Að sjálfsögðu voru þó allt- af veitt fasteignalán af ýmsum lánastofnunum og sjóðum. Auk bankanna var þar um að rseða sparisjóði, ýmsa tryggingarsjóði og lífeyrissjóði, Byggingarsjóð sveitanna og Byggingarsjóð verkamanna. En lán þessara að- ila hrukku skammt til að full- nægja eftirspurninni. Afleiðing- in varð sú, að svartur lánamark- aður skapaðist og margir hús- byggjendur urðu tilneyddir að sæta afarkostum með því að taka okurlán. Augljóst var að stöðva varð þessa óheillaþróun. Árið 1952 var fyrir forgöngu Sjálf- stæðismanna, svo sem kunnugt er, stofnuð Lánadeild smáíbúða. >etta var bráðabirgðaráðstöfun, sem bætti þó mikið úr. HIÐ ALMENNA VEBLÁNAKERFI >egar fyrrverandi ríkisstjórn var mynduð undir forustu' Sjálf- stæðisflokksins var ákveðið að ráðast til atlögu við þetta vanda- mál. >að var síðan gert með setningu laga nr. 55/1955 um húsnæðismálastjórn, veðlán til íbúðabygginga og útrýmingu heilsuspillandi íbúða. Samkvæmt þessum lögum var sett á fót hið almenna veðlánakerfi undir yf- irstjórn Húsnæðismálastjómar og Veðdeildar Landsbanka ís- lands. >egar þessi húsnæðislöggjöf var sett var áætlað að á árunum 1955 og 1956 yrðu samtals um 200 millj. kr. fjármagn, sem hægt væri að verja til íbúðarlána og sú upphæð myndi fullnægja eft- irspurninni eftir lánum. Reynsl- an hefur orðið sú, að á þess- um tíma hefur meira fjármagn gengið til íbúðarlána en áætlað var, en hins vegar hefur eftir- spuminni ekki verið fullnægt. Ástæðan fyrir þessu er sú, að húsbyggingar hafa verið miklum mun meiri en reiknað var með, þegar lögin voru sett. BYGGINGARÞÖRFIN Við áætlanir um þessi efni voru lagðir til grundvallar út- reikningar um hina árlegu bygg- ingarþörf, sem gerðir voru af húsnæðismálanefnd þeirri, s em undirbjó húsnæðislöggjöfina. >ar var reiknað með að hin árlega byggingarþörf í kaupstöðum og kauptúnum næmi 900 íbúðum. Hér var áreiðanlega of lágt á- ætlað, sem nemur sennilega 2—3 hundruð íbúðum á ári. Við setn- ingu laganna var ekki af nein- um gerð athugasemd við þessa áætlun á hinni árlegu byggingar- þörf, og ekki heldur af þáver- andi stjómarandstöðu. Raunar er það svo, að í þessum efnum sem fleirum er hægara að sjá hlutina eftir á en fyrirfram. En það er annað, sem meiru veldur um, að eftirspurninni eft- ir íbúðarlánum hefur ekki ver- ið fullnægt. Byggingarfram- kvæmdirnar urðu miklu meiri en svaraði hinni árlegu byggingar- þörf vegna fólksfjölgunar og fleira. >etta kom til af því, að um langt árabil höfðu verið víð tæk höft og hömlur á byggingu íbúðarhúsa, svo sem kunnugt er. Fyrrverandi ríkisstjórn afnam þessi höft og gerði íbúðarbygg- ingar frjálsar að mestu. Höftin höfðu að sjálfsögðu ekki leyst húsnæðisþörfina heldur aukið húsnæðisskortinn. >egar höftun- um var svo létt af, kom þetta fram í meiri byggingarfram- kvæmdum en nokkurn hafði ór- að fyrir. REYNSLUTÍMI >að var að vísu alltaf gert ráð fyrir, að nokkur óvissa væri um það, hve lánsfjárþörfin til íbúð- arbygginga væri mikil. >egar húsnæðismálalöggjöfin var sett, var þess vegna aðeins gerð áætl- un til tveggja ára, og ráðstafan- ir til fjáröflunar fyrir hið al- menna veðlánakerfi miðaðar við tvö ár'. >ví var yfirlýst af stuðn- ingsmönnum fyrrverandi ríkis- stjórnar á Alþingi, að þessi tími yrði nokkurs konar reynslutími, og gert væri ráð fyrir, að til nýrra ákvarðana kæmi, þegar reynsla væri fyrir hendi. Á árinu 1955 var engin reynsla kom in á starfsemi hins almenna veð- lánakerfis, enda hófst starfræksla þess ekki fyrr en í nóvember það ár. Hins vegar var ekki langt liðið á árið 1956, þegar aug- ljóst var, hvemig málin stæðu. Var þá eðlilegt, að lánamálin væru strax tekin til endurskoð- unar og byggt þá á þeirri reynslu, sem fengin var. En þegar hér var komið, var enginn vinnu- friður á stjórnarheimilinu til þess að sinna slíkum verkefn- um, þar sem Framsókn var önn- um kafin að koma sér út úr ábyrgu stjórnarsamstarfi, og kosningabaráttan h&fin á sl. vori. >annig stóðu því málin, þegar núverandi ríkisstjóm tók við völdum. Sú reynsla, sem fengin var, sýndi ótvírætt, að með stofnun hins almenna veðlánakerfis hafði verið lagður grundvöllur að lausn lánamálanna. Hins veg- ar þurfti að sjá veðlánakerfinu fyrir fjármagni framvegis og styrkja það svo að fullnægt yrði lánaeftirspuminni. >etta hlaut að verða verkefni hverrar þeirr- ar ríkisstjórnar, er að völdum sæti. YFIRSTJÓRN KOMMÚNISTA >að hefur fallið í hlut komm- únista að fara með yfirstjóm hús- næðismálanna, síðan núverandi ríkisstjórn tók við völdum Með- an þeir voru í stjórnarandstöðu, sáu þeir ekki mikil vandkvæði á að leysa annað eins mál. >eir gáfu líka strax ótvírætt í skyn, að þeim yrði ekki skotaskuld úr þessu, og stór fyrirheit voru gef- in. Fyrst af öllu sögðust þeir þó þurfa að útiloka áhrif Sjálfstæð- ismanna í Húsnæðismálastjórn og var í þeim tilgangi fjölgað þar mönnum. Og með tilliti til hinna miklu fyrirhuguðu framkvæmda sögðust þeir þurfa að hafa sér- síaka framkvæmdastjóm í Hús- næðismálastjórninni, og fram- kvæmdastjórn var sett á laggim- ar. Eftir allt þetta áttu rr.enn nú von á, að nú hlytu fram- kvæmdirnar brátt að koma í ljós, en raunin varð önnur. Su.narið 1956 leið án þess að ríkisstjórn- in aðhefðist nokkuð raunhæft 1 málinu, og þegar komið var fram í nóvember s.l. án þess að nokk- uð skeði, lögðum við Ragnar Lárusson fram í Húsnæðismála- stjórn tillögur til aðgerða í mál- um þessum. TILLÖGUR SJÁLFSTÆÐISMANNA Við lögðum til, að tryggt yrði, að á árinu 1957 værl ráðstafrf af sparifé landsmanna til útlása til íbúðabygginga í kaupstöðum og kauptúnum ekki minni upp- hæð en svaraði til þess, sem var- ið var 1956, eða að minnsta kosti 150 millj. kr. Við töldum ekki, að mögulegt væri að spenna bog- ann hærra í þessum efnum. Að vísu höfðu stjórnarflokkarn- ir fullyrt, að þeir myndu stjórna málum þjóðarinnar á þann veg, að framleiðslan myndi mikið aukast frá þvi, sem var í tíð fyrrveranci ríkisstjórnar. >að þýddi auðvitað auknar þjóðar- tekjur og möguleika til aukinnar sparifjármyndunar og fjárfest- ingar. Ekki þótti þó ráðlegt að taka mark á þessu raupi stjórn- arflokkanna, en hins vegar var ráð fyrir gert, að efnahagsástand- ið versnaði ekki frá því sem ver- ið hafði. Var þá farið mjög hóf- lega í sakirnar miðað við öll loforð og fyrirheit, er stjórnar- ( flokkarnir höfðu gefið. Við þetta voru tillögur okkar í Húsnæðis- málastjórn miðaðar. Hér var ekki um að ræða meira átak en áð- ur hafði verið gert, en reiknað með, að ekki yrði slakað á og haldið í horfinu. >að fjármagn, sem þannig var reiknað með að taka með sparifjármyndun í landinu á fullkomlega að nægja til þess að mæta lánveitingum til hinnar árlegu bygginga- þarfa. En hér er meira, sem gera þurfti. >að þurfti lika fjármagn til að mæta byggingarþörfum fyrri ára er komu fram í fram- kvæmdum þeim, sem fylgja ó- hjákvæmilega í kjölfar þess, að fjárfestingarhöftunum V£ir létt af. Til þess að mæta þessum þörfum, lögðum við til að leitað væri eftir erlendum lánum að minnsta kosti 100 millj. kr. Með þessu móti átti að vera leyst úr lánsfjárskortinum og eftirspurn- inni eftir íbúðarlánum fullnægt fyrr en ella. Húsnæðisskortur er svo alvarlegt félagslegt vanda- mál, að fullkomlega eðlilegt er að freista allra úrræða til að leysa það, þar á meðal með er- lendri lántöku. Eins og ég sagði áðan var í upphafi ekki ákveðið um fjár- öflun til hins almenna veðlána- kerfis nema tvö fyrstu árin eða Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.