Morgunblaðið - 12.04.1957, Blaðsíða 6
6
Monnvititr 4mð
Fostudagur 12. apríl 1957
Hið nýja húsnæðismálafrumvarp:
Nýtt 1% dlag d skatta og tolla
Unglingar greiði 6% oi lounum
sínum í skyldusparnað
FRUMVARP þaff, sem ríkis-
stjórnin lagði fyrir Al-
þingi í gær um húsnæðismál
er aff verulegu leyti uppsuffa
úr löggjöf þeirri, sem fyrrver-
andi ríkisstjóra lét lögfesía
árið 1955 um húsnæffismála-
stjórn, veðlán tii íbúffabygg-
inga og útrýmingu heilsuspill-
andi húsnæðis.
Þau nýmæli, sem í því felast,
eru fyrst og fremst þessi:
L Húsnæðismálastjórn skal nú
skipuð 5 mönnum, fjórum
kosnum hlutfallskosningu í
sameinuðu Alþingi til 3ja ára
í senn og einum skipuðum af
félagsmálaráðherra samkv.
tilnefningu Landsbanka ís-
lands. Skal hann ekki hafa
atkvæðisrétt um lánveitingar.
2. Stofnaður skal byggingarsjóð-
ur ríkisins og er hlutverk hans
að annast lánveitingar til í-
búðabygginga og standa
straum af framkvæmdum er
húsp,æðismálastjórn kann að
ráðast í til lausnar á húsnæð-
isvandamálum. Veðlánakerfi
til íbúðabygginga skal þó
starfrækt áfram undir stjórn
húsnæðismálastj órnar.
>. Lagður er á nýr skattur, 1%,
sem innheimtur skal sem álag
á tekju- og eignarskatt, stríðs-
gróðaskatt og aðflutningsgjöld
samkvæmt tollskrá með gild-
andi viðaukum. Rennur hann
í byggingarsjóð ríkisins, sem
vera skal í vörzlu veðdeildar
Landsbanka íslands og veitast
lán úr honum, hvort heldur
eru A- eða B-lán, á sama háít
og önnur lán samkvæmt lög-
unum.
' . Sett skulu ákvæði um skyldu-
sparnað til íbúðabygginga. —
Fara þær. greinar frv., sem
um það fjalla hér á eftir.
1ÉRSTÖK INNLÁNSDEILD
Sérstök innlánsdeild skal starfa
i vegum byggingarsjóðs ríkisins.
Þeir, sem leggja fé inn í deild-
ina, skulu að minnst 5 árum
liðnum frá því inrilög hófusf" eiga
kröfu a að fá það útborgað, að
viðbættum venjulegum innláns-
vöxtum, enda nemi hin innlagða
upphæð minnst 5 þús. krónum á
ári. Skylt er að láta þá, er taka
þátt í innlögum þessum, sitja fyr-
ir um lán til íbúðabygginga frá
húsnæðismálastjórn, að öðru
jöfnu, og mega þau lán vera allt
að 25% hærri en almennt gerist
þá, þó aldrei yfir % hluta af
matsverði viðkomandi íbúðar.
Nánari ákvæði um réttindi og
skyldur samkvæmt þessari grein
skulu sett í reglugerð.
Tilsvarandi ákvæði gilda um
þá menn utan kaupstaða og kaup
túna, sem leggja á þennan hátt
fé í veðdeild Búnaðarbankans.
’>% AF LAUNUM
Öllum einstaklingum á aldrin-
im 16—25 ára skpl skylt að
leggja til hliðar 6% af launum
sínum, sem greidd eru í pening-
um eða sambærilegum atvinnu-
tekjum, í því skyni að mynda sér
sjóð til íbúðarbygginga eða til
bústofnunar í sveit. Fé það, sem
á þennan hátt safnast, skal á-
vaxtað í innlánsdeild byggingar-
sjóðs ríkisins fyrir alla þá, sem
búsettir eru í kaupstöðum og
kauptúnum, en í veðdeild Bún-
aðarbanka íslands fyrir þá, sem
búsettir eru í sveitum.
Fé það, sem skylt er að spara
á þennan hátt, er undanþegið
::ekjuskatti og útsvari.
Þegar sá, er safnað hefur fé
í sjóð samkv. 1. mgr., hefur náð
25 ára aldri, eða gengur í hjóna-
band og stofnar heirnili skal
hann eiga þess kost að fá spari-
Veðlánakerfið starfi áfram og byggingar
sjóður ríkisins verði stofnaður
fé sitt endurgreitt að viðbætt-
um þeim vöxtum og uppbót
vegna vísitöluhækkunar, sem
greidd er af vísitölubundnum
verðbréfum á innlánstímanum.
Enn fremur skulu og þeir, að
öðru jöfnu, sitja fyrir lun lán til
íbúðabygginga frá húsnæðismóla-
stjórn, og mega þau lán vera
allt að 25% hærri en almennt ger
ist þá, þó eigi yfir % hluta af
matsverði viðkomandi íbúðar.
Þessi forgangsréttur, til lána, er
þú bundinn því skilyrði, að spari
fjársöfnun þeirra, sem að bygg-
ingu hlutaðeigandi íbúðar standa,
nemi samanlagt að minnsta kosti
kr. 25.000.00.
Sérhverjum skal heimilt að
leggja til hliðar í þessu skyni
hærri hluta launa sinna en 6%,
byrja sparnaðinn fyrr en tilskilið
er og halda honum áfram lengur.
Þeir, sem lagt hafa fé í veðdeild
Búnaðarbankans og vilja stofna
bú í sveit, skulu njóta hlið-
stæðrar fyrirgreiðslu um lón til
bústofnunar úr deildum Búnað-
arbankans. Heimilt er Búnaðar-
banka íslands og húsnæðismála-
stjórn að semja um, að réttindi
þessi verði gagnkvæm.
UNDANÞEGNIR
SPARNAÐARSKYLDU
Undanþegnir sparnaðarskyldu
eru:
a. gift fólk, sem hefur stofnað
heimili.
b. skólafólk, sem stundar nám í
skóla 6 mánuði eða meira á
ári, og iðnnemar meðan þeir
stunda iðnnám,
c. þeir, sem hafa börn eða aðra
skylduómaga á framfæri sínu,
þó ekki þeir, er hafa yfir 30
þúsund kr. skattskyldar tekj-
ur, enda hafi þeir ekki fyrir
heimili að sjá.
Heimilt er sveitarstjórnum að
veita tímabundna undanþágu frá
sparnaðarskyldu þeim, sem verða
fyrir veikindum, slysum eða eiga
af öðrum ástæðum erfitt með
framfærslu. Ákvörðun sveitar-
stjórnar má áfrýja til félagsmála-
ráðherra.
ÚTGÁFA
SPARIMERKJA
Vegna framkvæmda á ákvæð-
um þessa kafla skulu gefin út
sparimerki, og skulu allir atvinnu
rekendur og aðrir kaupgreiðend
ur skyldir til að greiða tilskilinn
hluta launa með slíkum merkj-
um, hverju sinni, er kaup kemur
til útborgunar. Um framkvæmd-
ina fer að öðru leyti eftir lögum
nr. 16/1943, um orlof, eftir því
sem við getur átt og eftir því,
sem nánar verður álcveðið í
reglugerð.
STOFNFÉ BYGGINGAR-
SJÓÐS
í greinargerð frv. er talið að
stofnfé byggingarsjóðs ríkisins
muni nema 118,2 millj. kr. Skipt-
ist það þannig:
millj. kr.
1. Varasjóður hins alm.
veðlánakerfis......... 20,9
2. Lán ríkisins til lána-
deildar smáíbúða .... 32,8
3. A-flokksbréf ríkisins, er
keypt voru fyrir tekju-
afgang ríkissjóðs 1955 .. 11,3
4. % hlutar af væntanlegum
stóreignaskatti ...... 53,2
Þá er frá því skýrt að tekjur
af skylduspamaði sé áætlaður
Þetta er fyrsti „fljúgandi dráttarbáturinn“, sem sögur fara af.
Er þaff tveggja hreyfla þyrilvængja, eins og þiff sjáiff, sem dregur
3000 lesta landgöngupramma. Hefir þetta reynzt vel. Hraðinn er
fimm hnútar á klst.
um 15 millj. kr. á ári og megi
gera ráð fyrir að meginhluti þess
fjár geti verið í útlánum á hverj-
um tíma.
Samtals er gert ráð fyrir að
árlegt eigíð fé sjóðsins til útlána
verði á næstu árum um 40 millj.
kr. —
Nœsfa ráðsfefna
Norrœna byggingar-
dagsins" í Ósló
ISLANDSDEILD N.B.D. hélt nýlega aðalfund sinn. Félagssamtök
þessi eru starfandi á Norðurlöndum öllum undir sameiginleg'ri
aðalstjórn, en í sjálfstæðum deildum innan hvers ríkis. Samtökin
draga nafn sitt, „Norrænn byggingardagur", af ráðstefnu, sem hald-
in er að jafnaði þriðja hvert ár, til skiptis í höfuðborgum Norður-
landanna. Er þar fjallar um byggingamál þessara þjóða, og þróun
þeirra mála milli ráðstefna.
N.B.D. eru fjölmennustu heild-
arsamtök hinna fimm Norður-
shrifar úr
daqleqa lífinu
ASÍÐASTA fundi Útvarpsráðs
var tekin sú ákvörðun að
banna að leika hljómplötuna
Vagg og velta, sem Erla Þor-
steinsdóttir syngur, og þeir sem
tónlistinni í Útvarpinu stjórna og
hinum einstöku óskalagaþáttum
hafa fengið bréf upp á að leika
ekki þessa margumtöluðu plötu.
Góff framkvæmd
VELVAKANDA er þetta mikið
ánægjuefni að vonum, þar sem
hann hefur síðustu dagana oftar
en einu sinni ritað gegn þessari
makalausu plötu og átalið þá sér-
kennilegu útrás skáldgáfunnar,
sem afskræmir og bjagar gaml-
ar stökur og ferskeytlur svo sem
Yfir kaldan eyðisand og Afi minn
fór á honum Rauð, er íslenzk
börn hafa lært um langan aldur
við móðurkné.
Slíkt framferði er í rauninni
miklu saknæmara heldur en
margt af því útlenda ómeti, sem
íslenzkir menn þýða og gefa út
sér til fjáröflunar, vegna þess, að
hér er verið að afbaka það, sem
við eigum fegurst af alþýðlegum
skáldskap og hjartkærast hefur
verið þjóðinni.
Það er svipað því að krotað
væri með kústskafti í málverk
eftir Kjarval eða Þjóðleikhúsið
tekið undir geymslu fyrir úr-
gangsfisk.
Mikið alvörumál
ÞVÍ fer vel á að Útvarpsráð
skuli að minnsta kosti hafa
lagt bann við þar til öðru vísi
verður ákveðið að útvarpa þess-
um ósóma á öldum ljósvakans
inn á nær því hvert íslenzkt
heimili. Þar sitjá menningar-
menn, sem skilja að hér er reynd-
ar um meira alvörumál að ræða
en mörgum kann í fyrstu að virð-
ast.
Ein hljómplata sem misþyrmir
íslenzkri tungu, afskræmir ljóð-
perlur þjóðarinnar og brenglar
brageyra hennar er nefnilega
alvörumál sem ekki verður vikið
til hliðar með góðlátlegu brosi.
Allt er einhvern tímann fyrst,
og ef slík list á að fá að viðgang-
ast óátalin, slík skáld að rísa upp
með þjóðinni sem telja sér nokk-
urn sóma í að umyrkja stökur,
svo sem höfundur Vaggs og veltu
þá er illa farið fyrir þeirri þjóð
sem eitt sinn átti sinn Snorra og
í dag á Kiljan.
Úlpurnar kveffja
GÓÐA veðrið er komið með
súra mjólk og hlýja daga. —
Menn hafa varpað af sér loðfeld-
unum. Úlpurnar sem Hillary
sagði á sínum tíma að væru ágæt
ar í jökulfrostum Himalaya en
íslendingar bregða yfir sig í
vetrarhörkunum, eru sem óðast
að hverfa af herðum manna, og
léttir poplínfrakkar taka við og
margir ganga meira að segja
frakkalausir eins og inni í stofu
heima hjá sér.
Og þá skapast tækifæri til þess
að njóta lífsins á margan þann
hátt sem kuldar, snjór og vetrar-
frost útiloka. í dag hitti ég tvo
kunningja mína í Aðalstræti.
Annar var að koma frá því að
leika golf og lét hið bezta yfir
langri göngu og góðum leik í
blíðskaparveðri. Hinn var nýkom
inn á litlum bíl norðan af Akur-
eyri og sýnir það hve mjög hefur
hlánað og landið er þegar orðið
auðvelt yfirferðar.
,
Notum góffa veðrið
BÁÐIR voru þeir með vorið í
huganum og dásömuðu góða
veðrið og hlýindin. Og það er
ástæða til þess að undirstrika að
nú er þegar ágætustu tækifæri
til þess að hefja ýmsar þær í-
þróttir sem bundnar eru við
sumartímann.
Sundlaugarnar eru hinn mæt-
asti staður fyrir þá sem kunna
vel við sig í vatniriu, golfvöllur-
inn er kominn í ágætt lag og þeg-
ar eru komin ágæt skilyrði til
þess að iðka frjálsar íþróttir und-
ir berum himni. Og síðast en ekki
sízt þá hefur góða veðrið gert
þeim mörgu sem gönguferðun-
um unna auðvelt fyrir um að
iðka'þær að hjartans lyst.
landaþjóða á þessu sviði. Þeir
aðilar, sem að samtökunum
standa í hverju landi, og starfa
að byggingamálum að einhverju
eða öllu leyti, eru ráðuneytis-
deildir, sem byggingamál heyra
undir, opinberar stofnanir, sveita
stjórnir, vísinda- og rannsókn-
arstofnanir, fagfélög, stéttarfélög,
byggingarsamvinnufélög, fjár-
málastofnanir, tæknifélög á sviði
byggingariðnaðar og samtök
framleiðenda.
í hinni íslenzku deild N.B.D.
eru nú 14 slíkir aðilar.Næsta ráð-
stefna „Norræna byggingadags-
ins“ verður haldin í Osló haust-
ið 1958. Aðalverkefnið þar verð-
ur um samræmingu á frágangi
uppdrátta að byggingum (Total-
projektering), eða nánar til tek-
ið, — samstarf milli húsameist-
’árá; verkfræðinga og bygginga-
meistara í öllum undirbúningi,
áður en byggingarframkvæmdir
hefjast. Ennfremur verður annað
aðalverkefni ráðstefnunnar um
smáíbúðabyggingar, og gefið út
sérstakt rit með samanburði
slíkra húsa, frá hverju landinu
um sig.
Undirbúningur af hálfu íslands
deildar til þátttöku í þessari
næstu ráðstefnu, og verkefnum
hennar, er þegar hafinn.
STJÓRN ÍSLANDSDEILDAR-
INNAR
í stjórn hinnar íslenzku deild-
ar N.B.D. eiga sæti: Hörður
Bjarnason, húsameistari ríkisins,
formaður, Gunnlaugur Pálsson
arkitekt, ritari, Axel Kristjáns-
son framkv.stj., gjaldgeri og húsa
smíðameistararnir Tómas Vigfús-
son og Guðmundur Halldórsson
meðstjórendur.