Morgunblaðið - 12.04.1957, Blaðsíða 15
FSstudagur 12. apríl 1957
MORGVNBLAÐIÐ
15
íslandsmótið í knatfspyrnu :
Akureyri og Hufnur-
f jörður eigu fyrstu leik
NIÐURRÖÐUN knattspyrnukappleika sumarsins mun nú að
mestu lokið, en opinber er niðurröðunin ekki orðin ennþá,
en mun verða gerð heyrin kunn innan fárra daga.
Spurzt hefur þó, að fyrsti
meistaraflokksleikur ársins verði
eftir tæpan hálfan mánuð, og
verður það upphaf Reykjavíkur-
mótsins.
inn 21. maí milli Hafnfirðinga og
Akurnesinga. I>að mun vera
landsliðsnefnd, sem hefur óskað
eftir því að Sjá utanbæjarliðin
í 1. deild við fyrsta tækifæri.
Reol í Madrid
vannManchester
MADRID, 11. apríl: — í dag fór
fram kappleikur í knattspyrnu
milli Manchester United og Real
í Madrid. Real sigraði með 3
mörkum gegn 1.
Þessi leikur er sá fyrri af tveim
leikum þessara liða í keppninni
um Evrópubikarinn. Hinn síðari
verður í Manchester síðast í
þessum mánuði. Það liðið er sig-
ur ber (eða hagstæðari marka-
tölu) í þessum tveimur leikum
mætir ítalska liðinu Florentina í
úrslitaleik um Evrópubikarinn.
— Reuter.
* UTANBÆJARLIÐIN
fslandsmótið hefst föstudaginn
17. maí og fyrsti leikur mótsins
verður þann dag milli Hafnfirð-
inga og Akureyringa. Annar leik-
ur mótsins verður milli Akureyr-
inga og Akurnesinga og verður
sunnudaginn 19. maí og þriðji
leikur mótsins verður þriðjudag-
Völsungar á Húsavík 30 ára
IDAG eru liðin 30 ár frá stofnun íþróttafélagsins Völsungur á
Húsavík. Óslitið 30 ára starf liggur að baki þess ágæta félags
og oft á tíðum hefur mjög mikið líf verið í félagsstarfinu. Völsung-
ar eru þekktir um allt land fyrir íþróttaafrek.
Körfuknattleiksmótið :
★ STOFNUNIN
Aðalhvatamenn og forvígis-
menn að stofnun Völsunga fyrir
Gosi og IKF skildu jöfn
— IR sigurstranglegast
KÖRFUKNATTLEIKSMÓTI
fslands var haldið' áfram að
Hálogalandi á miðvikudag.
Fóru fram f jórir leikir í karla-
flokkum. Fyrsti leikur kvölds-
ins var í 2. fl. milli Ármanns
og Gosa. Lauk honum með
sigri Ármanns 21:16. Leikur-
inn var skemmtilegur og hrað
ur á köflum, og einkum sýndu
Ármenningar oft góðan sam-
leik og sigruðu örugglega.
Annar leikurinn var í 3. fl.
milli f.R. A og f.R. B. Lauk hon-
um með sigri A-liðsins 35:7.
Leikur þessi var fremur sýning-
arleikur en kappleikur, og sýndi
A-liðið oft góð tilþrif.
* MEISTARAFLOKKUR
Fyrri leikurinn í meistarafl.
var milli f.R. og K.R. Þessi leik-
ur var mjög jafn og tvísýnn fram
an af og skiptust liðin á að leiða.
Fyrri hálfleik lauk 29:24 fyrir
Í.R. í síðari hálfleik gjörbreytt-
ist gangur leiksins, þar sem Í.R.-
ingaf fengu að leika mjög lausir.
Hraði þeirra er mjög mikill og
úthaldið gott, en K.R.-inga virtist
hins vegar skorta úthald. Breikk
uðu f.R.-ingar bilið jafnt og þétt
og lauk leiknum 67:33. Af ein-
staklingum var Helgi Jónsson
beztur og átti mörg glæsileg
körfuskot, setti 29 stig, og var
jafnframt driffjöður Í.R.-liðsins.
Helgi Jóhanns. sýndi einnig ágæt
an leik og setti 17 stig. Ingi Þór
setti 10 stig. Af K.R.-ingum var
Grettir Pálsson beztur og setti
20 stig.
★ GOSI — HÁSKÓLINN
Síðari leikurinn í meistarafl.
var milli Gosa og Háskólans.
Þessi leikur var mjög jafn allt
fram á síðustu mínútur. Háskól-
inn hafði heldur frumkvæðið í
fyrri hálfleik og vann hann 17:15,
en í síðari hálfleik jöfnuðu Gosar
strax, og skiptust liðin síðan á
um að leiða. Þegar um 6 mín.
voru til leiksloka stóðu leikar
28:28. Þá tókst Gosum að setja
„ódýra“ körfu strax eftir vítakast
á Gosa, og var þá sem Háskólalið-
ið félli saman, og unnu Gosar ör-
uggan sigur 37:30. Af einstakling-
um var Ólafur Th. beztur og lék
einn sinn bezta leik. Hraði hans
var mikill og körfuskotin góð,
setti 18 stig. Af öðrum leikmönn-
um Gosa bar mest á Guðmundi
Georgss. sem sýndi góðan leik,
setti 8 stig. Hjá Háskólaliðinu
höfðu Þórir Ólafsson og Matthías
Kjeld aft góða samvinnu, og
setti Þórir 9 stig og Matthías 6.
Sl. þriðjudag fór fram leikur
í mótinu suður á Keflavíkurflug-
velli milli Gosa og f.K.F. Leik-
ur þessi var mjög jafn og nokk-
uð harður og lauk svo að liðin
skildu jöfn 32:32. Amerískir setu-
liðar dæmdu leikinn, og virtust
ekki dæma að öllu leyti eftir
sömu reglum og dæmt er hér í
Reykjavík.
Mótið er nú um það bil hálfn-
að, og nokkuð farnar að skýrast
línúr. Í.R.-liðið virðist einna
sigurstranglegast, og leikur það
við fslandsmeistarana Í.K.F. suð-
ur á Keflavíkurflugvelli í kvöld.
Úrslitaleikirnir fara síðan fram
að Hálogalandi n.k. mánudag og
mæta þá Gosar Í.R.-ingum, og
ræður sá leikur úrslitum móts-
ins, þar eð Gosar hafa gert jafn-
tefli við Í.K.F. Má því búast við
mjög spennandi leik.
Verði tvö eða fleiri félög jöfn
að stigum er hlutfallstala látin
ráða úrslitum.
30 árum voru bræðurnir Jóhann
og Jakob Hafstein. í fyrstu lög-
um félagsins var svo ákveðið, að
félagsmenn mættu ekki vera
eldri en 15 ára. Það voru strákar
sem stofnuðu þetta félag, og fyr-
ir stráka skyldi það vera. En
lögunum var breytt eftir því sem
félagsmenn urðu eldri að árum.
Og drengirnir sem að stofnun-
inni stóðu mega nú vera hreykn-
ir að þessum bernskuverkum sín-
um.
* GÓÐIR ÍÞRÓTTAMENN
Völsungar hafa átt ýmsa góða
íþróttamenn. Þeir hafa unnið
Norðurlandsmeistaratitil í knatt
leikum og ýmsir mjög góðir
frjálsíþróttamenn hafa keppt
undir merki félagsins og síðan
varpað ljóma á nafn annara fé-
laga er þeir fluttu frá Húsavík.
Meðal þeirra má nefna Ásmund
Bjarnason, Stefán Sörenson þrí-
stökkvara og Gunnar Sigurðs-
son kringlukastara. Þá er Jakob
Hafstein nú form. Í.R., svo víða
koma Völsungar við sögu annars
staðar en á Húsavík.
Núverandi formaður Völsunga
er Lúðvík Jónasson lögreglu-
þjónn.
Bók Helgu Sigurðardóttur
G óðgœfi
er aftur komin í bókaverzlanir. Bókin er
handhægasti leiðarvísirinn fyrir hús-
mæður, til þess að búa til sælgæti
til páskanna.
Bifvélavirkjar
Árshátíð félágsins verður haldin laugardaginn 13. apríl
í Tjarnarcafé niðri og hefst kl. 21.
Skemmtiatriði:. 1. Bingó. — 2. Spuringaþáttur
Sveinn Asgeirsson stjórnar. — 3. Dans.
Haukur Morthens syngur með hljómsveitinni
Aðgöngumiðar í skrifstofu félagsins í Kirkjuhvoli kl.
18—20 á föstudag, sími 81044.
Skemmtinefndin.
Tilkynning
um ferðamannagjaldeyri
Fyrst um sinn verða gjaldeyrisleyfi fyrir ferða-
kostnaði til útlanda því aðeins veitt að viðkomandi
hafi áður tryggt sér farseðil- og sýni hann um leið
og umsókn er lögð fram.
. Gegn framvísun farseðla, verður veitt leyfi fyrir
takmarkaðri upphæð í ferðagjaldeyri.
Bannað verður að endurgreiða farseðil nema hinu
veitta gjaldeyrisleyfi, eða gjaldeyri, hafi áður verið
skilað.
Reykjavík, 10. apríl 1957.
INNFLUTNINSSKRIFSTOFAN.
Diesel rafstöðvar
Óskum eftir verðtilboðum í tvær eftirgreindar
diesel ljósavélar er vér höfum til sölu og afhend-
ingar nú þegar:
1. Internation diesel rafstöð teg. UD-18-A, 50 kw,
220 volt, 50 rið.
2. Caterpillar rafstöð 50 kw, 220/440 volt, 60 rið
nýuppgerð í góðu ásigkomulagi.
Báðar vélarnar eru ,til sýnis á verkstæði voru á
Reykjavíkurflugvelli. Nánari upplýsingar veita Hr.
Árni Steinþórsson, verkstjóri vor á Reykjavíkur-
flugvelli og Hr. Jóhann Pétursson sími 5711.
OLÍUFÉLÁGIO H.F.
Reykjavík
Sýningar skólanna vegna
100 ára afmælis skólaíþrótta
Aðgöngumiðar að sýningunum verða seldir sem hér
segir:
Sundsýningar í Sundhöll Reykjavíkur fimmtudag 11.
apríl kl. 20,30. Miðar seldir á staðnum.
Fimleikasýningar í íþróttahúsi ÍBR við Hálogaland,
laugard. 13. apríl og sunnudag 14. apríl báða daga kl. 14
og kl. 17. Aðgöngumiðar fást í verzluninni Hellas, bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar og Lárusar Blöndal og
við innganginn.
Hátíðasýning í Þjóðeikhúsinu mánudaginn 15. apríl kl.
20. Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinu.
NEFNDIRNAR.
Reflnbogiabók