Morgunblaðið - 27.04.1957, Side 9

Morgunblaðið - 27.04.1957, Side 9
Laugardagur 27. aprfl 1957 MORCiiiynr aðið * Merkileg rœða Dulles ufanríkisráðherra : IMauðsyn er stöðugra breytinga til að koma á friði, réttlæti og frelsi Hvergi kalla breytingamar þó eins að og á yfirráðasvæði kommúnismans. Á ANNAN í páskum var hald- in í New York árleg blaða- mannaveizla Associated Press fréttastofunnar bandarísku. I veizlu þessari gerðist það tíð- inda, að John Foster Dulles utanríkisráðherra hélt ýtar- lega ræðu um stefnu Banda- ríkjanna i alþjóðamálum. Þyk ir ræða þessi merkileg m. a. fyrir þær sakir, að hún er fyrsta heildar-stefnuyfirlýsing Bandaríkjastjórnar í þessum málum síðan Eisenhower var cndurkjörinn. 1 ræðu sinni lagði Dulles áherzlu á það, að Bandaríkin stefndu umfram alit að því að viðhalda friði i heiminum. En hann benti á þá grundvallarhættu sem staf- aði af undirokun margra þjóða i veldi kommúnismans. Hér fara á eftir fáeinir kaflar úr ræðu hans: — Við lok síðari heimsstyrj- aldarinnar komu stjórnmála- menn margra landa saman í San Francisco til að leggja grund- völlinn að betri framtíð í þeirri veröld, sem nú lá í sárum eftir styrjöldina. Þeir sömdu sáttmála Sameinuðu þjóðanna og í fyrstu grein hans lögðu þeir þrjú grund- vallaratriði. Það verður að ríkja friður, — það verður að ríkja réttlæti — og það verður að ríkja frelsi fyrir allar þjóðir og ein- staklinga. Þessi þrjú grundvallaratriði, friður, réttlæti og frelsi eru imd- irstaða utanríkisstefnu Bandaríkj anna. Til þess að ná þessu mark- miði, þarf að framkvæma breyt- ingar. ★ Utanríkisstefna okkar viður- kennir breytingar sem lögmál lífsins. Við reynum að stuðla að því að breytingarnar fari fram með góðu en hafi ekki í för með sér eyðingu. Það er fyrsta stefnumál okkar, að hindra algerlega að breyting- •r í alþjóðamálum verði með ofsafenginni hernaðarárás. Það er hlutverk ríkisstjórna að verja þjóðfélagið gegn ofbeldis- árás. Slík vernd verður aðeins veitt með samvirku átaki. Tilraun var gerð til þess að mynda gæzluher undir stjórn Öryggisráðsins, en Sovétríkin beittu neitimarvaldi sínu gegn því. En þá gátu nokkrar þjóðir bundizt samtökum til að hindra érás, þvi að stofnskrá S. Þ. heimilaði varnarbandalög. Valdhafar Sovétrikjanna myndu af skil janlegum ástæð- um heldur kjósa að hinar frjálsu þjóðir væru veikar og sundraðar, eins og þegar þeir rændu sjálfstæði hverrar þjóð- arinnar á fætur annarrar. Svo að i hvert skipti sem svið hinna samvirku varna er vikkað, hella rússnesku vald- hafarnir úr skálum reiði sinn- ar yfir hinar svonefndu „klík- ur hernaðarsinna". Og þegar hinar frjálsu þjóðir gera ráð- stafanir til að efla sameigin- legar varnir sínar, þá senda sovét-valdhafarnir hótanir. En ég held, að við getum verið ðruggir um að slíkar árásir frá Rússum muni ekki leysa upp samtök hins frjálsa heims. Sam- eiginlegar varnir eru orðnar söguleg staðreynd. ★ Meiri hætta stafar af innbyrðis deilum. í varnarsamtökum þar sem hver einstök þjóð viðheldur fullkomlega þjóðlegu sjálfstæði þarf ríkt sjálfviljugt samstarf og samkomulag. Sem betur fer er samkomulag- tð víðtækt. Til dæmis erum við ■ammála um að meginhiutverkið sé að hindra nýja styrjöld. Nú- tíma vopn hafa svo gífurlegan eyðingarmátt, að ef ný styrjöld brytist út, væri ekki hægt að tala um neinn sigurvegara i henni. Það er einnig sameiginlegt álit manna, að það sem helzt getur forðað nýrri árás er hreyfanlegt hernaðarafl til að bregðast skjótt við. Þetta við- bragðsafl verður að vera mjög mikið, en beitingu þess yrði í hvert skipti að haga eftir að- stæðum. Aðalatriðið er, að ár- ásaraðili skilji, að hernaðarár- ás getur aldrei orðið honum til hagsbóta. Varnir hins frjálsa heims eru langt í frá að vera alfullkomnar. Það er ekkert sjálfvirkt við þær, heldur þarf stöðugt fórn margra þjóða í samstarfi til þess að halda þeim við. Og þær þurfa að halda niðri eigingirni og þjóðernisofsa, sem gæti eitrað samstarfið. Samkomulag þeirra markást líka í öllum aðalatriðum af góð- vilja og trausti. ★ Við erum ekki þeirrar skoðlm- ar, að eina leiðin til öryggis sé síaukinn vígbúnaður. Við álítum að eftirlit og takmörkun vopna- búnaðar sé framkvæmanleg og æskileg, já jafnvel óhjákvæmi- leé. Það er ekki nauðsynlegt, að eftirlitið taki þegar í byrjun til alls vopnabúnaðarins. Heldur er líklegt, að þróun eftirlitsins gæti orðið stig af stigi. Enn sem komið er hefur ekki tekizt að tryggja það eftirlit og grundvallar viðleitni eins barin niður og einmitt þar. Fyrir rúmu ári stærði Krús- jeff sig af því fyrir 20. flokks- þingi rússneska kommúnista- flokksins, að hvarvetna færi kommúnisminn nú sigurför og það að verðleikum, sem þjóð- skipulag hugsunar og stjóm- semi. En hvað skyldu margir kommúnistar hafa verið til í Ungverjalandi í október sl.? Nokkur hundrað leynilögreglu menn sem voru flæktir í glæpi stjórnarvaldanna og nokkur hópur svikara, sem voru til- búnir að stjórna í valdi rúss- neskra skriðdreka. . ★ I reynd hefur kommúnisminn birzt sem kúgunarstefna, aftur- haldssöm og frumkvæðislaus. Harðstjórn hans, sem er fjarri því að vera byltingarsinnuð, er gömul í sögunni. Þegnar hans að miklum meirihluta hata skipulag ið og þrá frjálst þjóðfélag. Við skulum gera rússnesku valdhöfunum það ljóst, að við fordæmum og snúumst gegn heimsveldastefnu þeirra. Við viljum stuðla að frelsun hinna kúguðu þjóða. Tilgangur okk- ar með því er ekki sá að um- kringja Rússland, heldur það eitt að heimsfriðurinn e_ í hættu og orðið frelsi gabb eitt, þar til hinar sundruðu þjóðir eru sameinaðar og hinar kúg- uðu þjóðir frelsaðar. ★ Við virðum og heiðrum þá sem urðu píslarvottar og fórnuðu blóði sinu fyrir frelsið. En sjálf- ir viljum við ekki æsa til bylt- ingar, heldur viljum við stuðla að þróun til frelsis. Alþjóðlegi kommúnisminn er nú haldinn hinum verstu kenningarkvillum. Og hrylli- legar aðgerðir rússneskra kommúnista í Ungverjalandi hafa valdið því að fjöldi fólks hvarvetna í heiminum yfirgef ur stefnu kommúnismans. Dulles aðrar öryggisráðstafanir, sem myndu gera það forsvaranlegt að draga úr hernaðarstyrkleika okk- ar. En við munum stefna áfram að því marki. Ekki erum við áf jáðir í vig- búnað. En við erum tilneyddir til að vígbúast vegna árásar og ofbeldisfyrirætlana hins al þjóðlega kommúnisma. Vígbúnaðarkapphlaup er kostnaðarsamt, steinrunnið og hættulegt. Við munum ekki láta af viðleitni okkar tii að reyna að stöðva það. ★ Bandaríkjastjórn telur, að sér- hver þjóð eigi rétt á sjálfstjórn og frelsi, ef hún óskar þess og sýnir sig hæfa til að varðveita það. Við fögnum því, að þróunin er ör fram til þessa markmiðs. Hvergi í heiminum kallar þörf- in fyrir breytingar eins og í lönd- unum á áhrifasvæði Sovét-Rúss- lands. Því að hvergi er mannleg Kjötbúð til leigu Af sérstökum ástæðum er kjötbúð í fullum gangi ásamt vinnslu til leigu nú þegar. — Góður verzlunarstaður. Þeir, sem vildu nota tækifærið, sendi nafn og heimilis- fang til afgr. blaðsins merkt: „Tækifæri — 2624“ fyrir hádegi á sunnudag. TIL SOLU fokhelt hás 1 Kópavogi, 3 herb. og eldhús á hæð og 5 herb. í risi. Greiðsluskilmálar mjög góðir. — Áhvílandi lán til langs tíma. Einar Sigurðsson lögfræðiskrifstofa, fasteignasala, Ingólfsstræti 4, sími 6959. AZQPHONIAS c^petursson ❖ <s? 4* Kostar aðeins 98 kr. Kynnið yður hvað og hvernig þaulvan- ur bridgemaður ráðlegg- ur yður að gera í hinum ýmsu afbrygðum hins vinsæla BKIDGE bókin mun svara yður ótrúlega vel ! Zóphónías Pétursson hefur spilað contract- bridge í meira en 25 ár, og veit vissulega hvað segja skal. FYHSTA HLJÓMLEIKAHÁTÍÐ íslenzkra tónskálda Hátíðin opnuð með stofutónleikum í Þjóðleikhúsinu í dag kl. 4.30 e.h. Menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason opnar hátíðina með ræðu. Blásið í fornlúðra, Karlakór Reykjavikur, undir stjórn dr. Páls ísólfssonar syngur „ísland farsælda frón“. Leikin og sungin verk eftir 10 íslenzk tónskáld. Einsöngvarar: Þuríður Pálsd., Þorsteinn Hannesson. Stjórnandi strokhljómsveitar sinfóniuhljómsveitar- innar er Olav Kielland. Miðasala 'í Þjóðleikhúsinu. ★ ★ ★ Kirkju tónleikar í Dómkirkjunni á morgun, sunnud. 28. apríl kl. 9 e.h. Flutt verk eftir 9 tónskáld. Strengjakvartett Björns Ólafssonar. Dómkirkjukórinn undir stjórn dr. Páls ísólfssonar. Dr. Victor Urbancic leikur orgelverk. Einsöngvarar: Þuríður Pálsd., Guðm. Jónsson. Miðasala í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og við innganginn. Málfundafélagið Óðinn hefur Kvikmyndasýningu fyrir börn félagsmanna í Trípólíbíói n.k. sunnudag klukkan 1,15 e.h. Aðgöngumiðar verða afhentir í Sjálfstæðishúsinu í dag kl. 1 til 5 e.h. Skemmtinefndin. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur almennan félagsfund í Vonarstræti 4, mánudaginn 29. april kl. 6 síðd. Kjaramál á dagskrá. STJORNIN.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.