Morgunblaðið - 27.04.1957, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.04.1957, Blaðsíða 11
Laugardagur 27. apríl 1957. MOECTJnnTAÐtÐ 11 Kaupmannahafnarbréf frá Páli Jónssyni: Danska þjóðín lifir um efni fram Gjaldeyrisaðsiaba Jbjóðbankans hefur versnað um 750 millj. kr. á stjórnarárum jafnabarmanna Kaupmannahöfn, í apríl 1957. FYRRI helming aprílmánaðar jókst gjaldeyrisskuld danska þjóðbankans um 94 millj. d. kr. eða að jafnaði rúmlega 6 millj. á dag og var hinn 15. apríl komin upp í 366 millj. kr. Skuldin er nú aðeins 90 millj. lægri en hún var vorið 1955, þeg- ar löggjafarvaldið skarst í leik- inn og samþykkti 500 millj. kr. skattahækkun, til að draga úr kaupgetunni. Það kemur ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti, að nú hefur að nýju skapazt alvarlegt ástand í g j aldeyrismálunum. Fyrstu tvo mánuði ársins nam vöruskiptahallanum 460 millj. kr. á móts við 168 millj. á sama tíma í fyrra. Haliinn stafar af því að innflutningsverðmætið hefur auk izt, sumpart vegna verðhækkun- ar óg sumpart vegna aukins inn- flutts vörumagns. Búast menn við, að hallinn vaxi á komandi mánuðum vegna aukins innflutn- ings og verðfalls á útfluttum landbúnaðarafurðum. NÝ GJALDEYRISKREPPA í AÐSIGI Thorkil Kristensen, hagfræði prófessor og fyrrv. fjármálaráð- herra, sagði fyrir nokkrum dög- um, að ný og alvarleg gjaldeyris- kreppa væri auðsjáanlega í að- sigi. Fyrir skömmu birti þjóð- bankinn alvarlega aðvörun, þar sem m.a. var komizt svo að orði, að gjaldeyrisstaða landsins vægi salt í hnífsegg. Þetta alvarlega ástand mótar að sjálfsögðu kosningabaráttuna í Danmörku. KOSNINGAR 14. MAÍ Kosningar til þjóðþingsins fara sem kunnugt er fram hinn 14. maí. Efnt er til þessara kosninga, af því að kjörtímabilið er svo að segja á enda. Er því ekki þannig ástatt, að kosnignabaráttan snú- ist um sérstakt mál, sem valdið bafi þingrofi. Það er barizt um það, hvort jafnaðarmenn eða borgaraflokkarnir skuli fara með völd á næsta kjörtímabili. Er því eðlilega á það litið, hvernig jafn- aðarmönnum hefur tekizt stjórn- arstarfið, en þeir hafa setið við völd nálega 4 ár. Fjórða og síðasta þinginu á þessu kjörtímabili var slitið skömmu fyrir páskana. Tvo síð- ustu dagana fóru heitar umræður fram í þinginu. Réðist stjórnar- andstaðan harðvítlega á ríkis- stjórnina og ávítti hana fyrst og fremst fyrir hið alvarlega ástand í efnahagsmálunum. GJALDEYRISSTAÐAN HEFUR VERSNAÐ UM 750 MILLJ. KR. Bent var á, að jafnaðarmanna- stjórnin tók haustið 1953 við 390 millj. kr. gjaldeyrisforða, sem þjóðbankinn eignaðist, á meðan borgaraflokkarnir fóru með völd.En aðeins einu misseri eftir að jafnaðarmenn tóku við völd- um var gjaldeyrisforðinn geng- inn til þurrðar. Síðan hefur hver gjaldeyriskreppan tekið við af annarri. Þrátt fyrir margvíslegar ráðstafanir til að ráða bót á vandræðunum hefur gjaldeyr. isaðstaða þjóðbankans versn- að um 750 millj. á meðan jafn- aðarmenn hafa setið við völd. MIKIL SKATTAHÆKKUN Öllum ber saman um, að vand- ræðin stafa af því, að kaupgetan er of mikil i samanburði við framleiðsluna. Danska þjóðin lif- ir um efni fram. Til að draga úr kaupgetunni hafa árum saman verið innheimtir langtum meiri skattar en nauðsynlegt var vegna gjalda ríkisins. Á fjárlögunum fyrir árið 1957—58 er reiknað með 420 millj. kr. tekjuafgangi. „Á meðan jafnaðarmenn hafa setið við völd, hafa skattarnir verið hækkaðir um 1.200 millj. kr., en samt sem áður hefur ríkis- stjórninni ekki tekizt að ráða bót á gjaldeyrisvandræðunum", sagði Aksel Möller, talsmaður íhalds- manna, í þingræðu. „Ríkisstjórn- in hefur ekki aðeins reynt að draga úr kaupgetunni með geðjast róttæka flokknum, sem alltaf er að klifast á nauðsyn þess að hin tiltölulega miklu útgjöld til landvarna verði minnkuð. — Róttæki flokkurinn studdi mynd- un núverandi stjórnar og hefur hvað eftir annað bjargað henni, þegar hún hefur verið í hættu. H.C. Hansen þarf líka á stuðn- ingi hans að halda, ef jafnaðar- menn sitja áfram við völd eftir kosningarnar. MÖGULEIKAR Á STJÓRNARMYNDUN Á lokafundi þingsins var mikið aldrei verið einhuga í þessum málum. Ekki allfáir í flokknum hafa frá upphafi talið þátttöku Dana í varnarsamstarfi annarra vestrænna þjóða nauðsynlega. — Þessari skoðun vex nú fylgi sér- staklega meðal æskulýðsins. — Á landsfundi róttækra æskulýðsfé- laga á síðastliðnum vetri var bor- in fram tillaga þess efnis, að rót- tæki flokkurinn viðurker.ndi nauðsyn á aðild Dana að NATO. Tillagan var að vísu felld, en þriðjungur fundarmanna greiddi henni atkvæði. Svend Thorsen þjóðþingsritari, sem er einn af frambjóðendum róttæka flokksins við kosning arnar, sagði fyrir nokkrum dög- um: STAKSTEINAR Páska-hugleiðinw Tímans í FYRSTA blaði Tíman* eftir páskahátíðina birtist sú Iiugleið- ing, sem bér er mynd af, og er fróðlegt vitni um andlegt ástand forystublaðs stjórnarliðsins: Síðasta þingi kjörtímabilsins er lokið. Forseti danska þingsins, Gustav Pedersen, kveður tvo aldraða stjórnmálamenn, sem láta nú af þingmennsku og bjóða sig ekki fram aftur. Eru það jafnaðarmaður- inn Johs. Kjærböl húsnæðis- og Grænlandsmálaráðherra, á miðri myndinni, og Halfdan Henriksson fyrrverandi viðskiptamálaráðherra og formaður íhaldsflokksins, lengst til hægri. skattahækkunum. Hún hefur líka aukið kaupgetuna með mörg hundruð milljóna yfirdráttarlán- um hjá þjóðbankanum. Þetta er eitt af hinum mörgu mistökum hennar í efnahagsmálunum". Talsmenn stjórnarandstöðunn- ar benda líka á, að framleiðslan hefur staðið í stað og atvinnu- leysið aukizt á stjórnarárum jafnaðarmanna. Nú sjá menn fram á, að eitt fyrsta verk hins nýkosna þings verður það að gera víðtækar ráð- stafanir vegna gjaldeyriskrepp- unnar. Talsmenn stjórnmála- flokkanna vilja að svo stöddu ekkert um það segja, í hverju þessar ráðstafanir verði fólgnar. En Danir eru við því búnir, að þeir verði að herða á mittisólinni. LANDVARNAÚTGJÖLD LÆKKUÐ Aksel Möller réðist í þmginu harvítlega á H.C. Hansen, for- sætis- og utanríkisráðherra, vegna 60 millj. kr. lækkunar á landvarnarútgjöldunum. H.C. Hansen svaraði, að þetta hafi verið nauðsynlegt, af bví að ríkið þurfi að spara. Þarna sé líka um tiltölulega litla lækkun á herútgjöldunum að ræða, þar sem þau nemi 920 milljónum eft- ir niðurskurðinn. Margir eru ekki ánægðir með þetta svar. H.C. Hansen hefur hvað eftir annað lýst því yfir, að ástandið í heiminum sé ekki orð- ið svo friðvænlegt, að vestrænar þjóðir megi veikja landvarnir sínar. Hvers vegna lækkar hann þá herútgjöldin? spyrja menn. Sparnaðarþörfin er að áliti margra ekki nægileg skýring á þessu. Marga grunar, að forsætis- ráðherrann hafi gert þetta til að rætt um möguleika fyrir stjórn- armyndun eftir kosningar. — í blöðunum og á kjósendafundum er þetta rætt næstum daglega. .H.C. Hansen segir, að ástæðu- laust sé að tala um þetta að svo stöddu, þar sem enginn viti, hvernig kosningarnar fari. Erik Eriksen segir, að stjórnarsam- vinna milli vinstri flokksins og jafnaðarmanna geti ekki komið til mála. Sumir hafa nefnilega verið að tala um þann möguleika, að bændur og verkamenn, þ e.a.s. vinstri menn og jafnaðarmenn, kæmu sér saman um stjórnar- myndun. En nú hefur formaður vinstri flokksins vísað þessum bollaleggingum á bug. Erik Erik- sen segir aftur á móti, að fiokkur hans sé reiðubúinn til stjórnar- samvinnu við íhaldsmenn eins og á árunum 1950—53. AFSTAÐA RÓTTÆKRA Róttæki flokkurinn vill — þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir — ekkert um það segja, hvaða stjórn þeir vilji styðja eftir kosn- ingarnar. Afstaða róttæka flokksins til utanríkismálanna og landvavnar- málanna gerir að verkum, að samvinna milli hans og hinria lýðræðisflokkanna er miklum vandkvæðum bundin. íhalds- menn, vinstri menn, jafnaðar- menn og Réttarríkisflokkurinn eru í aðalatriðum sammála um utanríkis- og landvarnarmálin. En róttæki flokkurinn greiddi at- kvæði á móti þátttöku Dana í NATO og vill verja sem minnstu fé til landvarnanna. ÁGREININGUR UM ÖRYGGISMÁLIN Róttæki flokkurinn hefur þó „Ég hef lengi verið sannfærður um nauðsyn þess, að við séum í NATO, og ég er sammála Aksel Möller, þegar hann segir, að við getum ekki lækkað útgjöld okk- ar til landvarnanna án þess að ræða málið fyrst við NATO. Ef við getum ekki risið undir þeim byrðum, sem landvarnirnar leggja á okkur, þá verðum við að segja bandamönnum okkar frá þessu. Það er þá hugsanlegt, að aðrar NATO-þjóðir, sem eru efnaðri en við, mundu hlaupa undir bagga með okkur, til þess að fátækt okkar leiði ekki til þess, að landvarnir okkar og þá um leið einn hlekkurinn í vörn- um NATO veikist". Þótt nýtt mat á þátttöku Dana í NATO sé að ryðja sér til rúms innan flokksins, þá er þess ekki að vænta, að meiri hluti hans skipti um skoðun í þessu máli þegar í stað. Páll Jónsson. Taflkeppni PATREKSFIRÐI, 24. apríl — Keppni fór fram í Taflfélagi Patreksfjarðar í vetur og lauk henni 1. marz. Þátttakendur voru 11. Sigurvegari í keppninni var Þorvaldur Thoroddsen með 8% vinning. Annar var Haraldur Jósteinsson með 8 vinninga og þriðji Ólafur Magnússo- með 7 Vi vinning. Keppt var um farand- bikar sem Hannes Finnbogason héraðslæknir gaf s. 1. vetur. Sig- urvegari þá var Jenni R. Ólason, sem ekki tók þátt í keppninni nú vegna fjarveru. Þá tefldi Þorvaldur Thorodd- sen nýlega fjöltefli. Þátttakendur voru 15. Vann hann þrjú töfl, gerði sex jafntefli og tapaði fimm. tÉw® kn>»«l«ffnso 1 itíirnamnmmvnoar. f| ttm iMBna-íí eSa f sítest# SteSt, útt áom %«r páska, heljanttóra mynd'* ai mma bbi*me»man Sját£st*®s-S *, s. stjóra- t XJÓýhéin birttet sera;’J stigl 4 ki'íwsfesSogarttegl Krists.' og :: mm hafá á«t aS fcnma í staíí e** myntJir af fwstíjar-s Ynrpar þeí.ta ijóst'j * það, hvectúg v smann Jff ‘ Ifta & sfjórnarsoái’i s.tö*fana, hún etgf |fÍÍKÍiíftftiií; vsétn hrosssf fMenmrmr i 15 . * fcrös3fe*timtM. i myhaiáni ttm aHir ásaftesa jftvinfl iegir eifta og vrr* hm Ólsftsr thars i miði5 og J>jánhtgarbra?5ur hnns tsi - beggis íiamia (Bjarni ift IwegríS, í-,‘ns . os Ban-abas'. VtnftiU Öto.fs visar Wf, ftg segir þaS slns .»%n, ftjtS «r '4 eHki harfcan i svip aíjórnarstMistóS- j mmtr í Jwsswi myaft> en mér heiðS.: samt ín.ttSiít þas sva-StiS }*gra »8 ítirta ttppmamyad af þœ,t. j iioktatam «för pásfcaw* fcriftur et»’I á fSsí«aa.gm»'i ne«íttttottf®riatúsS hus«r i iWxwmm&ímsmí iw>gw5,;|j Of vondur við Banda* ríkin í sama blaði fjargviðrast Tím- inn mjög yfir þv£ í grein, sem nefnisl „Bjarni og Baiularíkin‘% að Bjarni Benediktsson liafi tekið „undir þann óhróður Moskvu- kommúnista, að Bandaríkin beiti mútum til að tryggja sér herstöðv- ar og yfirráð í öðrum löndum“« Greininni lýkur á þessa leið: „í ræðulokin bíður höfundur upp á samstarf gegn kommúnism- anum. — Greind hans ætti þó að geta sagt lionum, að lítið lið er í þeim manni, sem étur upp eftir Moskvukommúnistum eitt eitrað- asta slúðrið um það stórveldið, sem nú leggur mest af mörkum til að treysta lýðræði og frið i heiminum“. Þá höfum við það: B jarni Benediktsson er Bandaríkjunum ekki nógu þægur og þar með er „lítið lið“ í lionum! Þögnin um vfirlýsingu Vilhíálms Þórs. Tímanum væri nær að gera grein fyrir lánabraski ríkisstjórn- arinnar en að láta sér svo hugað um æru Bandaríkjastjórnar. En auðsætt er, að blaðið telur væn- legra fyrir íslenzku stjórnina að skjóta sér undir fald bandarísku stjórnarinnar, en treysta á öryggi manna um, að íslenzka stjórnin blandi ekki á óviðurkvæmilegan hátt saman Tánaútvegunum og vörnum landsins. í því efni er ástæða til að spyrja: Af liverju liefur íslenzka stjórn in aldrei gert grein fyrir lánstil- boðinu frá Rússlandi? Hvert sam- band er á milli þess og hótan- ana, sem fyrir skemmstu bárust að austan? Af hverju feldi íslenzka stjórn- in í vetur úr fréttatilkynningu sinni, að 4 millj. dolla.*a lánið væri úr sérstökum sjóði til að tryggja „öryggi Bandaríkjanna“? Af liverju þegir* íslenzka sljórn- in um það, að vörulánið síðasta var veitt til að „styrkja framtíðar- samvinnu“ landanna? Af hverju skýrir Tíminn í gær ekki frá yfirlýsingu Thorsteins V. Kalijarvis og Villijálms Þórs í þessa átt, þegar blaðið birti mynd af þeim, þar sem þeir takast í hendur, væntanlega til staðfesting- ar yfirlýsingunum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.