Morgunblaðið - 16.05.1957, Síða 20
Veðrið
NA-kaldi. Sums staðar léttskýjað.
108. tW. — Fimmtudagur 10. maí 1957.
Bókmennfir
Sjá grein eftir Kristmann Guð-
mundsson á blaðsíðu 11.
Byggð verða i Laug-
ardsnum norðanverð-
nm 10-12 hæðn hds
390 íbuðir í stúrbyggingum
og raðhúsum í hverfinu
^KIPULAGSDEILD bæjar-
ins hefur fellt inn í heild-
irskipulag íbúðahverfisins í
Laugarásnum norðanverðum
og byggðarinnar, sem nú er
að rísa upp fyrir neðan ás-
inn, átta stórhýsi 10—12 hæða
auk nokkurra tvílyftra rað-
húsa, en í þessum húsum öll-
um verða alls 390 íbúðir. —
Bæjarráð samþykkti þetta
skipulag hverfisins á fundi
sínum á þriðjudaginn, en þar
var lagt fram Iíkan það, er
blaðið birtir hér mynd af.
Svæði það í Laugarásnum, sem
skýjakljúfarnir fimm eiga að
risa á, markast að norðan og
austan af Austurbrún og sunn-
an og vestan af Vesturbrún og
standa fimm stórhýsi, sem sjást
| á líkaninu, á ásnum norðan- og
austanverðum. Rúmt verður eðli-
lega á milli húsanna, vegna þess
að þau verða hvert um sig 12
hæðir, með 48 íbúðum. —
Verða í þessum fimm húsum alls
240 íbúðir. Vinstra megin við
húsin (norðanvert við þau) verða
verzlunarhús, svo og sameiginleg
kyndistöð húsanna með meiru,
auk bílskúra, en að sjálfsögðu
verður einnig séð fyrir nægileg-
um bílastæðum heima við hús-
in. Miðsvæðis sést hvar leik-
völlurinn með tilheyrandi dag-
heimili verður.
TENGT
LAUGARDALSSVÆÐI
Hið óbyggða svæði til hægri
við skýjakljúfana (suður og
vestur) verður tengt hinu mikla
Laugardalssvæði með 90 metra
breiðri tungu milli Vesturbrúnar
og Laugarásvegar, sem merktur
er með tölustafnum 3.
VED KLEPPSVEGINN
Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna er merkt 2 á myndinni,
en það er sem kunnugt er
skammt frá Kleppsvegi, merkt-
um 1. — Nokkru fyrir utan
Dvalarheimilið, við Kleppsveg-
inn, verða reist þrjú 10 hæða
hús, hvert með 40 íbúðum, eða
120 alls. — Milli þessara stór-
hýsa eiga svo að koma tvílyft
raðhús, eins og þau sem Reykja-
víkurbær er að láta byggja við
Bústaðaveginn, og verða í þeim
30 íbúðir. í>annig verða í þessum
fjölbýlis- og raðhúsum, sem felld
hafa verið inn í skipulag þessa
svæðis, alls 390 íbúðir, en á líkan
inu er einnig sýnd byggð sú, sem
þegar er risin upp t.d. fyrir neðan
DAS, svo og húsin við Austur-
og Vesturbrún og víðar.
Iðja vítir stjórn Alþýðusambandsins
Starfsgrundvöllur iðnaðarins
sé fryggður
mátt Iauna, er áherzla lögð á, að
ástæðulaust sé fyrir launþega að
leita eftir bættum kjörum við
vinnuveitendur.
Í FUNDI stjórnar og trúnaðarmannaráðs Iðju, félags verksmiðju-
fólks í Reykjavík, hinn 30. apríl sl. voru gerðar eftirfarandi
ályktanir:
40-50 íþrótta-
menn
f KVÖLD fer fram Vormót Frjáls
íþróttaráðs Reykjavíkur og hefst
klukkan 20 á íþróttavellinum.
Keppendur eru 40—50 frá 6 fé-
lögum og íþróttabandalögum, eru
margir af beztu íþróttamönnum
landsins meðal keppenda.
Bæjarfulltrúum
sýnt merki
Á FUNDI í bæjarstjórn í dag
verður lagt fram fyrir bæj-
arfulltrúa álit nefndar þeirrar er
skipuð var á sínum tíma til að
gera tillögur um merki Reykja-
víkur. Jafnframt nefndarálitinu
verður lögð fram teikning af
þessu merki. Nefndin sem fjallað
hefur um málið mun sammála
um þessa tillögu.
Umferðarmál
í bæjarráði
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á þriðjudaginn, komu til um-
ræðu þar og ályktunar þrjár til-
lögur varðandi umferðarmál frá
umferðarnefnd bæjarins.
Fyrsta till. er á þá leið að ein-
stefnuakstur verði ákveðinn á
Háaleitisvegi frá norðri til suð-
urs, milli Suðurlandsbrautar og
Ármúla.
Næsta tillaga er varðandi bíla-
stöður. Leggur umferðarnefnd til
að bannaðar verði stöður lang-
ferðabíla yfir 10 farþega og vöru
bíla sem eru yfir 1 tonn, á bíla-
stæðinu á Rauðarárstíg milli
Hverfisgötu og Skúlagötu. Að
lokum er svo tillaga um það að
bannaður verði akstur úr Lækj-
argötu norðan Bankastrætis inn
í Austurstræti, þó með undan
þágu fyrir strætisvagnana.
f>essum tillögum öllum sam-
þykkti bæjarráð að vísa til bæjar
stjórnar, með meðmælum sínum.
Samkvæmt tillögunum má
reisa 8 söluturna. Eru þeir allir
að einum undanskyldum í út-
hverfum A'usturbæjar, en einn
er við Suðurgötu, suður við
Fálkagötu.
Skilyrði þau sem bæjarráð set-
ur eru í 9 liðum: Þar skal vera
biðskýli fyrir farþega strætis-
vagna, sem opið er frá kl. 8 árd.
til 11,30 síðd. Heilbrigðisnefnd
getur áskilið að handlaug eða
salerni sé í söluturni til afnota
HLÚÐ VERÐI AÐ
ÍSLENZKUM IÐNAÐI
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Iðju, félags verksmiðjufólks í
Reykjavík, beinir þeirri áskorun
til ríkisstjórnarinnar, að hún hlúi
að íslenzkum iðnaði og tryggi
honum það góðan starfsgrund-
völl, að tryggt sé að iðnverka-
fólk fái notið til frambúðar
þeirra kjarabóta, sem það nú hef-
ur fengið með nýgerðum samning
um við Félag íslenzkra iðnrek-
enda.
Ennfremur mótmælir stjórn og
trúnaðarmannaráð Iðju þvi, að
fluttar séu inn fullunnar iðnaðar-
vörur, sem hljóta að valda sam-
drætti í innlendum iðnaði og
rýra atvinnu iðnverkafólks.
VÍTIR STJÓRN
ALÞÝÐUSAMBANDSINS
Fundur í stjórn og trúnaðar-
mannaráði Iðju, félags verk-
smiðjufólks í Reykjavík, lýsir
yfir undrun sinni vegna ályktun-
fyrir starfsfólkið. Þar skal vera
almenningssími, sala íarmiða
með strætisvögnum, án umboðs-
gjalds og upplýsingar um ferðir
þeirra.
Leyfið skal veitt til 10 ára i
senn, og aðeins veitt þeiin er
verzlunarleyfi hafa og er gjaldið
20.000 kr. á ári.
Tekjum þeim er bæjarsjóður
fær samkvæmt þessu, segir í frv.,
skal varið til tómstundastarfs
æskufólks.
ar miðstjórnar og efnahagsmála-
nefndar ASÍ frá 23. apríl sl., þar
sem, þrátt fyrir minnkandi kaup-
MYNDUN GEISLAVIR ^
EFNA HINDRUÐ
Tilraunir þessar eru alli íikil-
vægar m. a. fyrir þá sök, að
reyndar verða nýjar aðferðir til
að hindra að mikið af geislavirk-
um efnum myndist við spreng-
ingarnar. En ýmis ráð munu vera
til þess, og vekur það mikla at-
hygli, sakir þess umtals sem ver-
ið hefur að undanförnu, m. a.
um bréf dr. Schweitzers.
Nýtt raðhúsa-
hverfi
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu skipulagsnefndar um nýtt
íbúðarhverfi, raðhúsabyggð, við
Otrateig og Laugalæk.
Á þessu svæði er fyrirhugað að
byggðar verði 9 ,blokkir‘ tvílyftra
raðhúsa og verða 7 íbúðir í hverri
eða alls 63 íbúðir. Þar er fyr-
irhugað sérstakt verzlunarhús
fyrir þetta hverfi og verður það
á horni Hrísateigs og Laugalækj-
ar. Lokið er við lagningu gatn-
anna og eins er lokið holræsalögn.
Verða raðhús þessi í næsta ná-
grenni sundlauganna, á hinum
gömlu túnum þar.
Sérstaklega mótmælir fundur.
inn því, að ályktun þessi skyldi
vera birt einmitt þann dag, sem
líkur voru á, að verksmiðjufólk
í Reykjavík næði bættum kjör-
um á friðsamlegan hátt og án að-
stoðar ASÍ.
NORÐURLÖNDIN
SENDA FULLTRÚA
Bandaríkjastjórn ákvað að
bjóða fulltrúum frá 47 löndum
að vera viðstaddir þessar tilraun-
ir og er því fagnað víða um
lönd, að greinargóðir fulltrúar
hinna ýmsu þjóðríkja fá þannig
tækifæri til að kynnast því af
eigin sjón, hvað kjarnorkuhern-
aður er.
Það er þegar vitað að Nor-
egur, Svíþjóð og Danmörk
hafa tekið boðinu og munu
senda til Bandaríkjanna bæði
fulltrúa á sviði stjórnmála og
hermála, svo og blaðamenn.
Island er örugglega meðal
þeirra ríkja, sem boð hafa
fengið, en utanríkisráðuneytið
veit ekkert um málið.
Bæjarverkfræðingur
fil Kaupmannahafnar
Á FUNDI bæjarráðs á þriðjudag-
inn var samþ. að bæjarverkfræð-
ingur Bolli Thoroddsen skuH
mæta sem fulltrúi Reykjavíkur
á fundi í Kaupmannahöfn, sem
norræna vegtæknisambandið
heldur þar í borg í júnimánuði
næstkomandi.
Oryrkjar hafi forgangsréff við
veifingu söluíurnaleyfa
AFUNDI bæjarráðs er haldinn var á þriðjudaginn var af-
greitt til bæjarstjórnar tillaga um söluturna, en það mál hefur
verið alllengi á dagskrá. f tillögunni er sett ákvæði, sem um það
fjallar að við úthlutun söluturnaleyfa skuli öryrkjar að öðru jöfnu
ganga fyrir. Tillögur þessar munu koma til umræðu í bæjarstjórn
í dag, en um þær var enginn ágreiningur gerður í bæjarráði.
Islandi boðið að eiga full-
trúa við kjarnorkutilraunir
En ufanríkisráðuneyfið veit minnst um boðið
Samkvæmt fréttum frá W aehíngton hefur fslandi verið boðið að
senda fulltrúa til að vera viðstaddur tilraunir með kjarnorku-
sprengjur, sem hefjast í dag í Nevada-eyðimörkinni í Bandaríkjun-
um. Utanríkisráðuneytið gat engar upplýsingar gefið um þetta boð
í gær, né heldur, hvaða fulltrúi hefði verið valinn til að vera við-
staddur tilraunirnar fyrir íslands hönd.