Morgunblaðið - 25.05.1957, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.05.1957, Blaðsíða 3
Laugardagur 25. maí 1957 MOnCVTSBl AÐJÐ s Lýðræðislegl irelsi og þingræði mega liia og daino í framtíðinni Forseti sameinaðs Alþingis ávarpar finnska þjóðþingið og fœrir því gjöf Frá skrifstofu Alþingis. DAGANA 22.-25. þ.m. eru há- tíðahöld í Helsingfors í tilefni af 50 ára afmæli finnska þjóðþings- ins 23. þ.m. Forsetar finnska þingsins buðu Alþingi íslendinga að senda fulltrúa til að vera við- staddir hátíðahöld í tilefni af því að þann dag eru liðin 50 ár frá því, að finnska þingið var gert að einni málstofu. Forsetar Alþing- is samþykktu einróma að Emil Jónsson skyldi vera fulltrúi Al- þingis á þessari hátíð og færa finnska þinginu að gjöf af þessu tilefni fundarhamar eftir Rík harð Jónsson, myndlistarmann. Forseti sameinaðs Alþingis koms m.a. svo að orði í ræðu, er hann flutti: „íslenzka þjóðin hefur með að- jafnan fúsir að leggja lífið í söl- urnar til varðveizlu frelsisins. íslenzka þjóðin skilur þá einn- ig vel, hve hátt Finnar meta rík- isþing sitt sem hið ytra tákn lýð- ræðislegs frelsins og þingræðis, en þessu þingi sínu hafa þeir bú- ið stað í hinu fegursta umhverfi í einu tignarlegasta þinghúsi Iheims. Hátíðarkveðja vor íslendinga nnnsKU pjooarumar, pu au laugi, til finnsku þjóðarinnar á þessum sé á milli og lönd og höf skilji. Hún hefur skilið svo vel frelsis- ást Finna, sem þrátt fyrir það, þó að þeir séu í tölu hinna smóu þjóða, unni friði og vilji lifa í sátt og samlyndi við alla, eru degi verður því fyrst og fremst óskin um, að þetta lýðræðislega frelsi og þingræði megi lifa og dafna í framtíðinni, til hagsbóta og blessunar fyrir hina finnsku Þjóð.“ Um skipulag skrúBgarða Eftir Jón H. Björnsson Tíminn svívirðir sjóher Dana og Breta og gerir grín að bœndum DÖNSKUM sjóliða verður það á að „missa af“ skipi sínu er það lætur úr höfn hér í Reykjavík. Ósagt skal látið hvort hér er um ásetningssynd að ræða eða glöp dátans eru óviliaverk, það skeð- ur svo margt þegar sjómenn fá landleyfi. Vafalaust er pilturinn ekki búinn að bíta úr nálinni með þetta, hann á eftir að gera upp við sína húsbændur sam- kvæmt reglum um heraga. En óþarft er okkur, sem ekkert höf- um af herþjónustu né heraga að segja, að vera að gera hlut pilts- ins verri en efni standa til, og í þessu máli er ekki Tímans að dæma. Það gerir blaðið samt í dag á hinn lúalegasta hátt í gleiðgosa- legri grein um mál sjóliðans. Tíminn segir að pilturinn sé „orð- inn vinnumaður í sveit, annað hvort á bæ hjá Akranesi eða suð- ur með sjó“, — greinilegt er það! Hið rétta er að hann réði sig að Hvítárbakka í Borgarfirði. Þá segir Tíminn að sjóliðinn hafi „nú alveg lagt sjóliðabúning sinn á hilluna, nema ef vera skyldi að hann færi í honum í fjósið“. Með þessum ummælum gerir blaðið tvennt £ senn að óvirða danska sjóherinn og með dylgj- um að auka sekt piltsins. Danir kunna vel að meta fjósverk, en þeir virða sjálfa sig og land sitt meira en svo að þeir teldu það svívirðulaust að ætla mönnum að ganga að störfum í fjósi í ein- kennisbúníngi hers eða flota. Er óþarft að ætla hinum danska pilti slíka hegðun, þótt brotlegur sé hann orðin við lög síns lands. Það er fullkomin Tímablaða- mennska að gera slíkt að fífl- skaparmáli á kostnað Dana. Ekki er framkoma blaðsins hetri gagnvart bændunum, en það er nú heimamál þó að Bretar fái þar svívirðingu um leið. Tíminn segist vita, að bændur séu vanhaldnir með vinnuafl, og telur það nú vænlegast til úr- bóta, að sjóliðar muni strjúka af brezku herskipi sem er væntan- legt hingað, gerast fjósamenn, og nota búning brezka sjóhersins, sem einkennisbúning við fjós- verkin. Hún er ekkert smáræði um- hyggja Tímans fyrir bændunum nú sem fyrr, og ekki skortir úr- ræðin. 23/5. Bóndi. „Gróttd” starfar áfram FUNDUR var haldinn í Skip- stjóra- og stýrimannafélaginu Gróttu s.l. sunnudag í Tjarnar- kaffi. Valgarður Þorkelsson setti fundinn og tilnefndi til fundar- stjóra Gísla Jónsson. Skýrði Val- garður m. a. frá því, af hvaða ástæðum fundir og starf félags- ins hefðu legið niðri um langt skeið. Ennfremur gát hann þess, að þessi fundur væri haldinn samkvæmt ósk stofnenda félags- ins og nokkurra félagsmanna, sem óskuðu eftir því að félagið starf- aði áfram. Þá lagði hann til að stjórn yrði kosin í félaginu á þessum fundi. Voru kosnir í stjórnina með öll- um greiddum atkvæðum: form. Agnar Hreinsson, Rvík, ritari Agúst Snæbjörnsson, Rvík, gjaldkeri Gísli Jónsson, Rvík. — Meðstjórnendur Jón S. Kristjáns- son, Rvík og Sigurjón Júlíusson, Hafnarfirði. Varaform. Magnús Magnússon, Hafnarfirði, vararit- ari Jóhannes Guðjónsson, Rvík, varagj. Guðm. Ó. Bæringsson, Rvík. Verkfall á Kýpur? Nikósía, 23. maí. EOKA hefir hvatt Kýpurbúa til að gera 24 klst. verkfall í mót- mælaskyni við þá ákvörðun Breta, að láta hernaðarástand ríkja áfram á eyjunni. Einnig hvetur EOKA til þessa verkfalls í því skyni að knýja Breta til að láta pólitíska fanga lausa. — NTB. Voru miklar umræður á fund- inum um félagið og framtíð þess, og einróma álit félagsmanna að félagsins væri full þörf í fram- tíðinni til að vinna að hags- munamálum skipstjóra og stýri- manna, efla samvinnu og við- kynningu þeirra og vernda rétt þeirra. Þá var þess getið að fé- lagið væri 15 ára í næsta mán- uði. — 15 skipstjórar og stýri- menn gengu í félagið á fundin- um. TJARNIR auka fjölbreytni garða og eiga tilverurétt bæði í stór- um görðum og minnstu baklóð- um. Vatn úti í náttúrunni hefur mikið aðdráttarafl. Við þörfn- umst vatns í einhverri mynd, og er því ekki nema eðlilegt, að við viljum hafa vatn í görðum okk- ar. „Hljóðfall rennandi vatns og endurspeglun kyrra tjarna eyk- ur stórum yndisarð garðsins“ (Skrúðgarðar 1937). Lögun og staðsetning tjarnar í garði verður að vera með tilliti til skipulags garðsins. Ef tjörnin er miðdepill (þungamiðja) garðs ins, má gjarna kosta nokkru til hennar. Annars geta tjarnir verið mjög einfaldar og ótrúlega ódýr- ar. í reglulegum görðum á tjörn in að vera einföld í lögun og í stíl við húsið. Hringmyndaðar tjarn- ir geta gengið hvar sem er. f náttúrulegum görðum fer lögun tjarnarinnar eftir umhverfinu. Stærð og lögun garðsins, tilhög- un gangstíga og hæð gróðurs hef ur áhrif á stærð og lögun tjarn- arinnar. Ef um grýtta lóð er að ræða er sjálfsagt að varðveita og halda eftir fallegum steinum eða klöppum. Við náttúrulegar tjarnir má nota steina til þess að mynda vatnsföll. Vatn og steinar gefa tækifæri til plöntunar vatna og steinhæða gróðurs. Vatn, steinn og gróður er ákjósanleg samsetning í garði. Tjarnir eru oftast gerðar úr steinsteypu. Einföldustu tjarnir má gera með því að grafa holu í þeirri lögun, sem tjörnin á að vera, setja vel af grjóti og sandi undir, móta vírnet með hliðum holunnar og draga síðan stein- steypuhrærú upp í netið. Á þenn- an hátt er auðvelt að gera tjöm sem er óregluleg í lögun og timb- urmót eru óþörf. Vatnslagnir geta verið allt frá notkun garð- slöngunnar til margbreytilegra rörlagna undir yfirborði. Vill fá að vita meira um borinn Á FUNDI bæjarráðs Hafnarfjarð ar hinn 20. maí sl. var lögð fram eftirfarandi tillaga: „Þar sem meirihluti bæjarráðs leggur ríka áherzlu á, að nú þegar verði hafin fullnaðarrann- sókn jarðhitasvæðisins í Krýsu- vík, en til þessa hefur skort nógu stórvirk tæki, og jafnframt því sem vitað er, að jarðboranadeild ríkisins og Reykjavíkurbær eru sameiginlega að fá til landsins stórvirkan jarðbor, þá felur bæj- arráð bæjarstjóra að afla upplýs- inga um með hvaða kjörum og hvenær hægt væri að fá borinn tií borunarframkvæmda í Krýsu- \ík“. Tillaga þessi var samþykkt og jafnframt óskað að þessari athug un yrði hraðað svo sem kostur væri. (Frá bæjarstjóranum í Hafnarfirði). Félag islenzkra leikara Blaðamannafélag Isíands Hér og í Danmörku 1 FORUSTUGREIN Social- Demokraten — málgagni danska jafnaðarmannaflokksins — hinn 18. þ. m. er því haldið fram, að ekki sé unnt að stjórna landinu án þátttöku jafnaðarmanna, sem hafi að baki sér 40% kjósenda. En hvernig er þessu varið hér? Eftir kosningarnar í fyrra höfðu Sjálfstæðismenn enn meira kjós- endafylgi á bak við sig, eða 42,4% kjósenda og unnu stórlega á, hlutfallslega, en jafnaðarmenn í Danmörku töpuðu. Sjálfstæðisflokkurinn var því mun sterkari eftir kosningarnar í fyrra en danski jafnaðarmanna- flokkurinn er nú. Danskir jafnaðarmenn segja að ekki sé hægt að stjórna án þeirra. Hvað mætti þá segja um Sjálfstæðisflokkinn hér? Það er vafalaust erfitt að stjórna án stærsta flokksins í Danmörku og það er jafn erfitt að stjórna til lengdar án stærsta flokksins hér. Og ekki síst þegar stjórnað er gegn honum af fjand- skap — með ofsóknum Og hatri. Iþ róttarevyan 1957 hefst á íþróttavellinum á morgun kl 3. — Skrúðganga leikara og blaðamamia í litklæðum og leikgerfum leggur af stað frá Þjóðleikhúsinu kl, 2.30. Á íþróttavellinmu verður fjölbreytt íþrótta keppni, gamanvísur og gamanþættir. Somtaka nú! 140 leikarar og hlaðamenn koma fram í revýunni. — Fjölbreyttasta skemmtun ársins Forsala aðgöngumiSa heldur áfram við Lækjartorg í dag kl. 10—12 f.h. og 5—7. Einnig á íþróttaveU- inum eftir kl. 10 í fyrramálið. Allir d völliiui! /jbróttarevyan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.