Morgunblaðið - 30.05.1957, Side 20
2«
MORCUNBL4Ð1Ð
Flmmíudagur 30. maí 1957
Edens
eftir
John
Steinbeck
I
47 i
= I
ina. Villihaí'rarnir höfðu ekki náð
nema sex þumlunga hæð, en báru
samt öx, líkast því sem þeir vissu,
að ef þeir flýttu sér ekki að fræv-
ast, myndu þeir alls ekki frævast
á þessu sumri.
„Þetta er ekki sérlega frjósamt
land“, sagði Adam.
„Frjósamt?“ sagði Louis. —
„Herra minn trúr, hr. Trask!
Þetta land getur slitið kröftum
manns á svipstundu og svelt mann
í hel. Hr. Hamilton á víðáttumikið
land, en hefð’ það átt að fæðu
hann og böm hans, væru þau nú
öll soltin í hel fyrir löngu. Nei,
það eru ekki afurðir jarðarinnar
sem ala hann. Hann tekur að sér
alls konar störf önnur og nú eru
drengirnir líka farnir að vinna
eitt og annað. Þetta er einstaklega
dugleg og samhent fjölskylda".
„Hvers vegna í ósköpunum valdi
hann svona gróðurlaust land?“
spurði Adam undrandi.
Louis Lippo hafði, eins og flest
ir aðrir, gaman af að fræða
ókunnuga, einkum þegar enginn
kunnugur var nærri, til að hreyfa
andmælum „Það skal ég segja yð
2ja—3ja herbergja
íbúð
□-------------------□
Þýðing
Sverrir Haraldsson
□-------------------□
ur“, svaraði hann. „Lítið nú til
dæmis á mig — faðir minn var
ítalskur. Kom hingað eftir borg-
arastyrjöldina, með tvær hendur
tómar. Jörðin mín er ekki mjög
stór, en hún er góð. Faðir minn
keypti hana. Hann valdi hana eft-
ir mikla yfirvegun. Og lítum svo
á yður sjálfan. — Ég Veit ekki
hvernig efnahag yðar er háttað og
ætla ekki að spyrja um það, en
menn segja að þér hafið í hyggju
að kaupa gamla Sanchez-búið og
Bordoni er ekki vanur að gefa
neitt. Þér hljótið að vera ríkur
maður, annars dytti yður ekki í
hug að skipta við hann“.
„Ég er sæmilega fjáður“, sagði
Adam.
„Jæja, nú kem ég að efninu“,
sagði Louis. „Þegar hr. og frú
Hamilton fluttust hingað í dalinn,
óskast
áttu þau ekki bót fyrir boruna á
sér, ef svo mætti segja. Þau urðu
að taka það sem eftir var og eng-
inn hafði viljað líta við — ríkis-
land, sem enginn vildi. Tuttugu og
fimm ekrur þess myndu ekki fæða
kú, jafnvel þótt góðæri væri og
það er sagt að úlfarnir flýi það-
an, þegar illa irar og eru þeir þó
ekki alltaf góðu vanir. Það er
mörgum torskilin gáta, hvemig
Hamilton-fjölskyldunni hefur tek-
izt að draga fram lífið. En hr.
Hamilton hefur auðvitað orðið að
vinna maigt og mikið annað — og
þannig hafa þau komizt af. Hann
stritaði og púlaði sem vinnumaður
hjá öðrum í mörg ár, unz hann
lauk við smíði þreskivélarinnar
sinnar“.
„Hann hefur haft nóg að gera,
maðurinn sá“, sagði Adam.
„Já, hann hefur haft nóg að
gera. Og níu börnum hefur hann
komið til manns. Ég er viss um
að hann hefur ekki getað lagt fyr-
ir einn einasta dollara. Hvemig
hefði hann átt að geta það?“
Önnur hlið vagnsins lyftist upp,
þegar hjólin ultu yfir stóran,
hnöttóttan stein og seig svo niður
aftur. Hestarnir voru dökkir af
svita og löðraðir undir brjóstólun-
um.
„Ég hlakka til að tala við
hann“, sagði Adam.
„Já, hr. Trask. En að einu leyti
var þó uppskera hans góð. Hann
eignaðist góð börn <jg veitti þeim
gott uppeldi. Þau eru öll mjög
mannvænleg — nema þá kannske
Joe. Joe — það er sá yngsti. —
Foreldrar hans eru að tala um að
senda hann í skóla. En öll hin
börnin eru mjög efnileg. Hr. Ham
ilton má vissulega vera hreykinn.
Húsið stendur rétt hinum megin
við hæðina þarna. Gleymið nú
ekki að fela flöskuna undir sæt-
inu. Annars kynni húsfreyjan að
stugga ónotalega við yður“.
Þurr jörðin skorpnaði og sprakk
í funa sólarinnar og engisprett-
urnar tistu.
„Þetta virðist sannarlega út-
skúfað land“, sagði Adam. „Það
liggur við að maður finni til sam-
vizkubits".
„Hvernig þá?“
„Jú, ég er það vel efnum búinn,
að ég þai-f ekki að reisa bú mitt á
öðrum eins stað“.
„Sama segi ég, en finn samt
ekki til neins samvizkubits. Ég er
bara feginn“.
Þegar vagninn kom upp á hæð-
ina, sá Adam litla húsaþyrpingu
niðri við rætur hlíðarinnar —
íbúðarhús með mörgum skúrum,
f jósi, smiðju og vagnskýli. — Allt
var að sjá svc skrælnað og sól-
bakað, brennt og srviðið. — Engin
stór tré, aðeins lítill garður sem
bera þurfti vatn í daglega, svo að
eitthvað þrifist.
, Louis sneri sér að Adam og það
var einhver skyndilegur hótunar-
hreimur í rödd hans, sem Adam
geðjaðist ekki að: „Eitt vil ég að
þér gerið yður strax fyllilega
ljóst, hr. Trask. Sumir menn er
sjá Sam Hamilton í fyrsta skipti,
ímynda sér að hann sé hlægilegur
og sérlundaður þrákálfur. Hann
talar ekki eins og annað fólk hér
um slóðir. Hann er Iri. Og hann
er fullur af áformum og ráðagerð
Tvö heibergi og eldhús
til leigu í Laugarnesi.
Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 1. júní merkt:
„5220“.
um. — Hundrað nýjar ráðagerð-
ir á hverjum degi. Og hann er
fullur af vonum. Annars hefði
hann ekki getað lifað lífi sínu á
öðrum eins stað. En þér skulið
muna þetta — hann er duglegur
maður, mikill verkmaður, góður
járnsmiður og sumar hugmyndir
hans hafa reynzt ágætar í fram-
kvæmd. Og ég hef heyrt hann tala
um margt, sem myndi gerast og
það hefur gerzt“.
Adam kunni illa hótunarhreimn
um í rödd Louis. „Ég er ekki van-
ur að hæðast að mönnum eða líta
niður á þá“, sagði hann og hon-
um duldist það ekki, að á þessari
stundu var hann í augum Louis
framandi og fjandsamlegur.
„Ég vildi bara gera yður þetta
ljóst. Mörgum austurríkjamann-
inum, sem hingað kemur, hættir
nefnilega við því að dæma hvem
þann mann einskis nýtan, sem
ekki á peninga“. *
„Slíkt gæti mér ekki komið til
hug.......“.
„Það má vel vera að hr. Hamil-
ton hafi ekki lagt fyrir einn ein-
asta dollara. En hann er einn af
okkur og betri maður en hann verð
ur seint eða aldrei fundinn. Og
hann hefur alið upp börn, sem
flestir mættu öfunda hann af, Ég
vil bara að þér munið það“
Adam var að því kominn að
svara ónotum, en sá sig svo um
hönd og sagði aðeins: „Ég þakka
yður fyrir. Ég skal muna þetta“.
Louis horfði heim að húsun-
um. „Þarna er hann — sko, fyrir
utan smiðjuna. Hann hefur heyrt
til okkar“.
„Hefur hann skegg?“ spurði
Adam.
„Já, fallegt skegg. Það er nú
farið að grána. Bráðum verður
það alveg hvítt“.
Þeir óku framhjá íbúðarhúsinu
og sáu frú Hamilton, sem stóð við
gluggann og horfði út og svo héldu
þeir áfram til smiðjunnar, þar
sem Samúel beið þeirra.
Adam sá stórvaxinn mann,
skeggjaðan eins og patríarka, með
grátt hár, sem stóð út í loftið eins
og dúnkragi. Fyrir ofan skeggið
voru kinnar hans ljósrauðar, þar
sem sólin hafði brennt hið írska
hörund hans. Hann var í hreinni,
blárri skyrtu og vinnubuxum með
DURflSCHRRF
RAKVÉLABLODIN
hafa farið sannkallaða sigurför um
landið. Reynið fasan durascharf
rakvélablöðin og sannfærist um
gæði þeirra. Þér getið ekki
dæmt um beztu rakvéla-
blöðin fyrr en þér hafið
reyntfasan durascharf.
Einkaumbo&:
BJÖRN ARNÓRSSON
Bankastræfi 10, Reyk/avik
Iðnskólanum
í Reykjavík verður sagt upp föstudaginn 31. þ. mán.
kl. 2 e. h. í skólahúsinu við Skólavörðutorg.
Ósóttar teikningar 3. og 4. bekkjar verða afhentar
sama dag milli kl. 5—6.
Skólastjóri.
Stálskápar
með færanlegum hiHum.
Hentugir fyrir skrifstofur og varahluta-
verzlanir.
Verð frá kr. 1.370.00.
Mekla
Austurstræt* 14.
„».>.x~>.:-x-x..:..x..>.x..x->.>*:',>*>^i">*:->*>*>*>*X">,>*>'>,X":'*'5“X**>.>.>.>.>*x
M ARKÚS Eftir Ed Dodd
SAX LOOK1,
AT HI AA
SWINS THAT
AX...I MUST
GET SOME
PICTUR.ES
1) — Tjaldbúðir Jóa Indíána
eru við þetta vatn. Þu skalt setj-
ast á ísinn. Það er rúmgott.
2) — Þér mun ábyggilega geðj
ast vel við Jóa. Hann er gamall
Indíáni og mjög skapgóður.
— Hann hefur verið eins og
annar faðir minn og hjálpað mér
við að umgangast Indíánana.
4) — Þarna er hann.
— Ja, sá kann að sveifla öxi.
Ég verð að taka mynd af honum.
adlltvarpiö
Fimmtudagur 30. maí:
(Uppstigningardagur).
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Messa í Dómkirkjunni —.
(Prestur: Séra Óskar J. Þorláks-
son. Organleikari: Jón G. Þórar-
insson). 15,00 Miðdegistónleikar.
19,00 Tónleikar (plötur). 20,20
Tónleikar (plötur). 20,40 Náttúra
íslands; VII. erindi: Gróður af
akri Njáls bónda á Bergþórshvoli
(Sturla Friðriksson magister). —•
21,05 Musica sacra tónleikar Fé-
lags íslenzkra ofanleikara í Laug-
arneskirkju 12. f.m. (Hljóðr. á
segulband). Kirkjukór Laugarnes-
sóknar syngur; Kristinn Ingvars-
son stjórnar kórnum og leikur ein-
leik á orgel. Undirleikari með
kórnum: Páll Halldórsson. 21,45
Upplestur: Valdimar V. Snæ-
varr les frumorta og þýdda
sálma. 22,10 Þýtt og endursagt:
Úr '’ndurminningum konu Dosto-
jevskís; síðar: hluti (Arnheiður
Sigurðardóttir flytur). 22,35 Sin-
fónískir tónleikar (plötur). 23,15
Dagskrárlok.
Föstudagur 31. maí:
Fastir liðir eins og venjulega,
13,15 Lesin dagskrá næstu viku.
19,00 Þingfréttir. 19,30 Létt lög
(plötur). 20,30 Erindi: Jósep
Skaptason læknir (Páll Kolka hér-
aðslæknir). 20,55 Islenzk tðnlist:
Lög eftir Bjarna Þorsteinsson og
Emil Thoroddsen (plötur). 21,25
Upplestur: Snorri Sigfússon fyrr-
verandi námsstjóri les kvæði eftir
Gunnar Einarsson bónda á Berg-
skála á Skaga. 21,35 Tónleikar
(plötur). 22,10 Garðyrkjuþáttur:
Jón H. Björnsson skrúðgarðaarki-
tekt talar um skrúðgarða. 22,25
Harmonikulög (plötur). 23,00 Dag
skrárlok.