Morgunblaðið - 26.06.1957, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.06.1957, Qupperneq 2
2 MORCVWRL 4&1Ð Miðvlkudagur 25. júní 1957 Farmannadeilan VEGNA villandi fréttatilkynn- ingar frá samninganefnd far- manna í dagblöðunum í dag, varð andi samningsuppsagnir, viljum vér undirrituð samtök taka fram eftirfarandi: Kjarasamningar stéttarfélaga þeirra yfirmanna á farskipum, 3em nú eiga í verkfalli voru upp- segjanlegir tvisvar á ári 1. júní og 1. des. og þá með 3 mán. upp- sagnarfrestL Til þess að samningarnir gætu fallið úr gildi 1. des. s.l. þurfti því að segja þeim upp fyrir lok ágústmánaðar sl. „Uppsögn" fór ekki fram fyrr en með bréfi dags. 29. sept. sl., og þá miðað við 1. jan- en ekki 1. des. Þrátt fyrir að uppsögnin væri miðuð við annan dag en ákveðið var í samningn- imi töldu útgerðirnar ekki rétt að neita að taka uppsögnina gilda og kusu nefnd til viðræðna við far- menn og óskuðu eftir að fá kröf- ur farmanna í hendur Á fundi 19. des. eða 11 dögum fyrr en farmenn ætluðust til, að samningar féllu úr gildi höfðu þeir ekki enn tilbúnar kröfur sín- ar til breytinga á samningum. Fyrrgreind viðræðunefnd út- gerðanna skrifaði 19. des. sl., svo hljóðandi bréf til Farmanna- og fiskimannasambands íslands: „15. nóv. sl., vorum við undir- ritaðir á fundi fyrirsvarsmanna Hí. Eimskipafélags íslands, Skipa útgerðar ríkisins, Skipadeildar S.Í.S., Jökla hf. og Eimskipafé- lags Reykjavíkur hf. kosnir í nefnd, til þess að annast viðræð- ur við fulltrúa Vélstjórafélags ís- lands, Stýrimannafélags íslands og Félags ísl. loftskeytamanna um viðhorf í sambandi við fram komna uppsögn kjarasamninga þessara aðila. 19. nóv. sl. komu aðilar saman á sinn fyrsta fund að frumkvæði okkar. Á þessum fundi kom fram Onassis vill flugvélar AÞENU, 25. júní: — Gríski skipa kóngurinn Aristoteles Onassis, sem nýlega tók við flugfélaginu TAE og nefndi það „Olympic Air- ways“, er nú með áætlanir um að gera það að stærsta einka-flug- félagi heims. 1 ráði er, að „Olym- pi<f Airways" haldi uppi daglegum ferðum á Ieiðinni Aþena-Róma- borg-París-London. Ennfremur tekur það upp flug til Þýzkalands, Svisslands, Suður-Afríku og Bandaríkjanna. Auk þess er gert t&6 fyrir því, að flugfélag On- assis hafi samvinnu við rússneska flugfélagið „Aeroflot". sú skoðun okkar, sem ekki var mótmælt af hálfu gagnaðila, að framkomin uppsögn sé andstæð ákvæðum kjarasamninganna. Hins vegar létum við þess getið, að svar skipsfélaganna um það, hvort uppsögnin yrði tekin gild, þrátt fyrir allt, kynni að vera undir því komið, hvaða breyting- um yfirmenn hugsuðu sér að að koma fram á gildandi samn- ingum. Fulltrúar yfirmanna tóku fram að félög þeirra létu nú fara fram athugun á því, hverjar kröfur þessar ættu að vera, og myndi greinargerð um það efni væntan- lega geta legið fyrir eftir svo sem vikutíma, og myndi þá verða hægt að skýra skipafélögunum frá þvi, hverjar kröfurnar yrðu. 15. þ.m. hefur Farmanna- og fiskimannasamband íslands, f.h. nefndra þriggja félaga, skrifað skipafélögunum bréf, þar sem ó- skað er eftir ákveðnu svari um það, hvort margnefnd uppsögn yrði viðurkennd. Hafa skipafélög in falið okkur, að svara þessu bréfi, með því, að enn sé ekki lokið þeim viðræðum, sem okk- ur var falið að annast við yfir- mennina. Viljum við hér með ítreka þær yfirlýsingar, sem fram komu af okkar hálfu á áðurnefnd um fundi 19. nóv. sl., að svar við spurningunni í bréfi yðar kann að vera undir því komið, hvaða kröfur eru fyrirhugaðar. Sjáum við okkur því ekki fært að gefa ákveðið svar fyrr en yfirmenn Lafa skýrt frá kröfum sínum eins og heitið var af þeirra hálfu á margnefndum fundi. Virðingarfyllst, Björgvin Sigurðsson (sign) Guðmundur Ásmundsson (sign) Ingólfur Jónsson (sign) Guðjón Einarsson (sign).“ Hinn 15. febr. sl. skrifaði Vinnuveitendasambandið Far- manna- og fiskimannasamband- inu eftirfarandi bréf: „Vér leyfum oss hér með að vísa til bréfs fulltrúa Hf. Eim- skipafélags íslands, Skipaútgerð- ar ríkisins, Skipadeildar SÍS., Jökla hf. og Eimskipafélags Reykjavíkur hf., til yðar dags. 19. des. 1956 varðandi kröfur Vél- stjórafélags íslands, Stýrimanna- félags íslands og Félags ísL loft- skeytamanna til breytinga á kjarasamningum þessara aðila. Þar sem oss hafa enn ekki bor- izt kröfur þessar, eru það vin- samlega tilmæli vor, að oss verði sendar þær svo fljótt sem verða má, til þess að viðræður um þær , geti hafizt sem fyrst. Eins og yður er kunnugt standa nú yfir samningar við Sjómanna- félag Reykjavíkur um kaup og kjör háseta og kyndara, og telj- um vér æskilegt, ef unnt er, að — Nauðungarflutningar Framh. af bls 1 staðreynd, að vinnuskilyrði „brautryðjendanna" verði mjög erfið, og þess vegna sé þörf hraustra, samvizkusamra og „verðugra" sjálfboðaliða. Jafnframt er skýrt frá því, að 1300 Búlgarar verði sendir til Tékkóslóvakíu til að vinna að byggingum. 1* EÐA 15 ÞÚS. TII. SÍBERÍU Það er haft eftir áreiðanleg- um heimlidum í Berlín, að 10 þús. Búlgarar á aldrinum 18 til 30 ára verði sendir til Siberíu á næstunni, en hins vegar þykir líklegt að talan verði hærri, ekki sízt þar sem búlgörsk blöð hafa gefið í skyn, að „sjálfboðalið- arnir“ verði 15 þús. Það er talið fullvíst, að leitað verði út fyrir raðir kommúnistaæskunnar, og verða þá fyrst og fremst teknir bændur og landbúnaðarverka- menn, sem leitað hafa til borg- anna. UNGVERJALAND í BAKSÝN Ekki þykir leika vafi á því, að þessir „frjálsu nauðungar- flutningar" frá Búlgaríu standi í sambandi við atburðina í Ung- verjalandi. Margir af þeim æsku- mönnum, sem sendir verða til Síberíu, hafa verið stimplaðir „óáreiðanlegir“ og verið vísað burt frá Sofia eftir uppreisnina í Ungverjalandi. Margir stúdent- ar hafa af sömu ástæðum verið reknir úr háskólum og öðrum æðri skólum. ATVINNULEYSIÐ MEGIN- VANDAMÁL Atvinnuleysið hefur orðið eitt af höfuðvandamálum rúss nesku leppríkjanna síðan efna hagsáætlanir þeirra fóru út um þúfur á árunum 1954 og 1955. Eina leppríki Rússa, sem hefur nokkurn veginn heil- brigt atvinnulíf, er Tékkó- slóvakia. samningar yfirmanna á skipun- um yrðu endurskoðaðir á sama sama tíma. Virðingarfyllst**. Farmanna- og fiskimannasam- bandið svaraði þessu 20. febr. sl. þannig: „Vér viðurkennum móttöku heiðraðs bréfs yðar dags. 15. þ.m. varðandi tilmæli yðar um að Vélstjórafélag íslands, Stýri- mannafélag íslands og Félag ísL loftskeytamanna sendi yður kröf- ur sínar um breytingu á gildandi kaup- og kjarasamningum þeirra við útgerðarfélög farskipanna. Vér höfum komið þessum til- mælum yðar á framfæri hjá stjómum nefndra sambandsfél- aga og hafa svör þeirra verið samhljóða á þá leið að með því að uppsögn þeirra á samningun- um á sl. hausti, miðað við 1. jan. 1957, hafi af yður og viðkomandi útgerðarfélögum ekki verið talin lögleg og mundi ekki tekin gild, ef um ágreining yrði að ræða, þá telji félögin tilgangslaust að setj- ast að samningaborðinu. Á félaga- og stjórnarfundum téðra sambandsfélaga hefir ver- ið samþykkt að segja upp gild- andi kaup- og kjarasamningum miðað við 1. júní þ.á., með þeim fyrirvara, sem enginn ágreining- ur getur risið út af, og geta þau því eigi breytt þeirri ákvörðun úr þessu“. Öllum ætti því að vera Ijóst, að það var á farmönnum en ekki á útgerðarmönnum sem strandaði, að kröfur farmanna fengjust ræddar, þar sem útgerðimar fengu kröfurnar ekki i hendur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og óskir, enda er það mála sannast, að kröfurnar voru ekki tilbúnar fyrr en um mánaðamótin apríl- maí sl. og bárust útgerðunum ekki fyrr en 3. maí. Reykjavík, 25. júní 1957. Vinnuveitendasamband felands, Vinnumálasamband samvinnu- félaganna." — ,,Gullna hSiðið" // Frh. af bls. 1. leiksýningin hafi verið „áhrifa- rík kynning á nútíma leikritun íslenzkri og leik“. Rekur hann síðan efni leikrits- ins og segir svo: „Þjóðleikhúsið túlkar þetta leikrit í samræmi við efni þess og anda. Leikurinn var einfaldur en djarfur. Yfir honum hvíldi kátínubragur, en einnig hlýr og rólegur blær. Fyrstu tveir þætt- irnir eru rammíslenzkir, bera vitni stórbrotinni náttúru og erf- iðum lífskjörum. Tveir síðari þættimir túlka þrána, dag- drauma og innilega guðrækni. Vart er hægt að hugsa sér leik- ritið betur túlkað á sviði en hér átti sér stað.“ Síðan segir hann, að Arndís Björnsdóttir beri hita og þunga leikritsins og hrósar túlkun henn ar á hlutverkinu, sannri og ó- gleymanlegri. Leik Brynjólfs Jó- hannessonar kveður hann sann- an í hverju smáatriði. Hann leik- ur Jón af skaphörku, ósvífni og mikilli lífsorku en í síðasta þætti verði umskiptin þó hin sannverð- ugustu. Lárus Pálsson leysi hlut- verk djöfulsins prýðilega af hendi og Valur Gíslason og Jón Aðils leiki þá Pétur og Pál af miklum virðuleik. Þá nefnir hann og þá Harald Björnsson, Önnu Guðrnundsdóttir og Bryndísi Pét- ursdóttur sérstaklega, þá hina síðustu sem sérlega fríða og blíða jómfrú Maríu. ★ Gunnar Larsen segir í Dag- bladet: „Aldrei fyrr hefir manni þótt eins leitt að skilja ekki íslenzku sem í gærkveldi. Aheyrendur í leikhúsinu fögnuðu hrifnir þess- um leikflokki, en meðferð hans á Gullna hliðinu er þegar orðin sígild. Það var góður viðburður að fá að sjá leikrit Davíðs Stef- ánssonar, ýmist trúar eða alvöru- fullt eða létt og leikandL Síðan hrósar leikdómandinn sviðsetningu Lárusar Pálss., og segir að hann hafi einnig sýnt að hann sé ágætis leikari, er hann lék djöfulinn af miklum eldmóði. Sumardvöl fyrir hafnfirzkar mæður HAFNARFIRÐI: — Nú er í ráði að gefa hafnfirzkum mæðrum — með eða án bama — kost á ókeyp- is dvöl um nokkurn tíma hérna suður í hraunum, eða nánar tiltek- ið í Straumi, en því húsi hefir nú verið breytt í dvalarheimili. Er ráðgert að þær konur, sem hefðu hug á að dveljast á þeasum kyrr- láta og fagra stað um nokkurt tímabil, fari þangað þriðjudaginn 2. júlí. Eru þær beðnar um að geifa sig fram á skrifstofu verka- kvennafélagsins í Alþýðuhúsinu á fimmtudags- og föstudagskvöld kl. 8—10. Svo sem kunnugt er, dvöldust konur í fyrra í Kaldárseli um nokkurn tíma og gafst það með ágætum. En tilgangurinn með þessu boði er að gefa hafnfirzkum mæðrum og börnum þeirra kost á nokkurra daga dvöl á góðum stað fyrir utan bæinn, þar sem kon- urnar geta notið hvíldar frá dag- legum önnum. — G.E. Dulles er ehki vonlons nm lnnsn Washington, 25. júlí. — Frá Reuter-NTB. DULLES utanrikisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi við fréttamenn í dag, að árás Gromykós utanríkisráðherra Rússa á Norstad hershöfðingja, yfirmann herafla NATO, væri augljóst áróðursbragð. Gromykó hafði sagt fyrr í dag, að Norstad vildi aukin hernaðarútgjöld Vesturveldanna, tU að geta haldið uppi árásarstefnu gangvart Sovétríkjunum. Norstad ynni í rauninni gegn tilgangi afvopnunarráðstefnunnar í London. Dulles sagði í dag, að erfitt væri um það að segja, hvers vegna þessi árás Gromykós kæmi einmitt nú, en eitthvað byggi undir henni. Hann kvaðst hvorki bjartsýnn né bölsýnn varðandi horfurnar á afvopnun, en það gæfi ástæðu til bjartsýni, að Rússar virtust nú hafa meiri hug á ^ð semja en áður, og að þeir notuðu fundarhöldin mun minna en áður til áróðurs. Hann sagði að niðurskurður á vopna- framleiðslu og bann við kjarn- orkusprengingum væri nátengd verið rætt. Hann kvað flest á huldu um afstöðu Rússa til þessara mála enn sem komið værL Arbeiderbladet segir að leikrit- ið hafi verið listræn heild í með- förum íslenzku leikaranna. Leik- dómari þess Paul Gjesdahl seg- ir að Lárus Pálsson hafi skapað með sviðsetningu sinni kimna, formfasta og undir lokin, hríf- andi sýningu, og þar hafi hin skemmtilega tónlist dr. Páls ís- ólfssonar átt þátt L Hann kveður leik þeirra Arndísar Björnsdótt- ur og önnu Guðmundsdóttur sem íslenzkra bændakvenna góðaa og Jón bóndi hafi það sem Pét- ur Gaut skorti — kjarnannl Leik- ur Vals Gíslasonar hafi verið blæ brigðaríkur og mjög mannlegur og Lárus Ingólfsson hafi hrifið áhorfendur í litlu atriði sem drykkjurúturinn. Leiktjöld Lár- usar hafi einnig verið skemmti- leg og kátleg. Morgenposten kveður eins og mörg hinna blaðanna forspjall skáldsins Daviðs Stefánssonar hafa verið snjallt og áhrifaríkt og íslenzkan einkar hljómfögur 1 i munni hans. IGestaleikur þessi var leiklist- arviðburður, segir blaðið. Leik- ritið sjálft sé dæmigert ísL leik- rit, frumstæður „realismi“ komi fram í því, sem reyndar sé I ætt við gamlar altaristöflur og kvæðl Péturs Dass. Þar blandist alvara og gaman, virðing og virðingar- leysi, sérstæð samfella, sem að lokum hafi staðið áhorfendum fyrir hugskotssjónum sem lifandi trúarsaga, milli spjalda gamallar guðsor/ðabókar. Leikurinn hafi borið vott um léttleik og fjör i hreyfingum leikenda, hann hafl verið eðlilegur og sannur. Blaðið hrósar mjög, jafnt og hin blöðin, leik einstakra leikenda, og segir þá hafa skilið hlutverk sín eink- ar vel. „Leiksýningin vakti óvenju- mikla hrifningu, og fagnaðarlát. unum ætlaði aldrei að linna. Það er sjaldan sem leiksýning vekur slíka hjartanlega gleði í brjóstum áhorfendanna. Þjóðleikhúsið get- ur óhrætt komið í leikför með annað leikrit hingað til Osló“. Aftenposten birtir grein eftir Finn Bö, en hann leggur áherzlu á, að mestum áhrifum verði ein- mitt náð með því að leika á svo einfaldan, en sannan máta, þegar um gamla þjóðsögu í leikrits- formi sé að ræða sem Gullna hlið ið. Það hafi hinum íslenzku leik- urum afbragðsvel tekizt imdir stjórn Lárusar Pálssonar. Brynj ólfur Jóhannesson sé einstæður og blæbrigðaríkur gamanleikari og leikur Arndísar sé tær og gæddur heillandi undirstraumL Tónlist dr. Páls ísólfssonar kveð- ur Finn Bö falla vel að leikritinu og haíi hljómsveitinni verið stjórnað með næmri tónlistar- hæfni af dr. Urbancic. Ævintýra- bragur hafi og verið yfir leik- tjöldum Lárusar Ingólfssonar. Islenzku leikurunum var sýnd- ur margvíslegur sómi meðan þeir dvöldust í Noregi, m.a. hafði norska Þjóðleikhúsið og bæjar- stjórn Osló boð inni fyrir þá. Norðurlandafréttir í stuttu máli OSLÓ, 25. júní. — Sameiginleg norsk-tássnesk nefnd, sem á að ganga frá samningum um marka- línuna milli Noregs og Rússlands og verður undirbúningur hafinn i júlí. STOKKHÖLMI, 25. júnt. Fljúg á hafinu, hélt fyrsta fund sinn » andi eftirlitsmenn útbúnir nýju Kvrkenes í gser. OSLÓ, 25. júní. Formælandi tæki, sem nefnt er „drunkometer" munu framvegis hafa eftirlit með því, hvort starfsmenn ssenslcu vandamál en þó mætti banna norska utawríkisráðuneytisins jámbrautanna fá sér i staupinu \ ■ t J — M ... A D a%i r* L/i a/Wm i / /iii/M-vi 11 L/wi rs /í '-M Al f /i # n* L - T . . — sprengingar áður en vopnafram- leiðsla væri stöðvuð, ef Rússar heimtuðu það. Dulles sagði, að Rússar hefðu nú í fyrsta sinn gefið í skyn, að þeir væru fúsir til að sam- þykkja eftirlit með kjarnorku tiiraunum, en eðli og víðtæki sagði í dag, að Bandarikjastjóm jf vinnutima. Ennfremur hefur hefði ekki spurzt fyrir um það Iveriö hafinn öflug herferð gegn hjá Norðmönnum, að hve miklu rnisnotkun áfengis á vinnustaö leyti þeir væru reiðubúnir að neð auglýsingum, flugmiðum og minnka herafla sinn, ef stórveldin fyrirlestrum. Ástxðan er sú, að ákvæðu að draga úr vígbúnaði. vart hefur orðið stóraukinnar mis —o—o— notkunar á áfengi meðal sænskra OSLÓ, 25. júnl. — Norska þjóð- jám. brautars tarfsmanna, og þyk- þingið hefur samþykkt að taka j ir það alvarlegt mál sökum ábyrgð siíks eftirlits hefði enn ekki I upp sjónvwrpssendingar í Noregi, \ arinnar sem á þeim hvilir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.