Morgunblaðið - 02.07.1957, Page 2

Morgunblaðið - 02.07.1957, Page 2
2 M0RCVNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 2. júlí 1957 STAKSTEIIVAR Ólíkur Hannibal á Al- þingi og í Danmörku I viðtali við Hannibal Valde- marsson spurði Bent A. Koch frá Kristeligt Dagblað ráðherrann svo: „Hver er persónnleg afstaða yðar tii Atlantshafsbandalags- ins?“ („Hvordan er Deres person- lige stilling tíl NATO?“) Hannibai svaraði: JÉg tel, að það hafi verið rétt af íslandi að gerast aðili Atlants- hafsbandalagsins“. ()rJeg mener, ðet var rigtigt af Island at til- siutte sig NATO“) Ef Hannibal meinar það, sem þarna er eftir honum haft, hefur hann skipt um skoðun frá því, að Alþingi tók ákvörðun um það 1949, hvort ísland skyldi gerast aðili Atlantshafsbandalagsins. Þá greiddi Hannibal við nafnakall atkvæði á móti aðildinni. Björgunarbelti kommunista En önnur rök mæia gegn þvi, að Hannibal hafi snúizt hugur í þessu. Næsta spuming blaða- mannsins á undan hljóðaði á þessa leið: „Hver var afstaða Alþýðubanda lagsins til atburðanna í Ungverja- landi?“ Hannibal svaraði: „Við fordæmdum íhlutunina bæði í Ungverjalandi og Súez og síðan kom tilsvarandi yfirlýsiiig frá rikisstjórainni“. („Vi for- dönrte indgrebet baade i Ungarn og Suez, og siden kom en tilsvar- ende erklæring fra regeringen“). Þá vitum við það: „Alþýðu- bandalagið“ beinlínis mótaði yfir lýsingu íslenzku ríkisstjórnarinn ar um Ungverjalandsárásina, þar sem reynt var að fela hana á bak við Súez-fíflsku Breta og Frakka. Þurfti raunar ekki vitnanna við um það, að sú yfirlýsing var ætíð hugsuð sem haldreipi fyrir kommúnista, Ekki sterkur á svellinu Það, sem hér skiptir máli, er Þ® hitt, að Hannibal gleymir að geta þess, að í tilvitnaðri yfirlýs- ingu Alþýðubandalagsins segir berum orðum: „Alþýðubandalagið álítur enn- fremur að þessir atburðir sýni Ijóslega hvílik nauðsyn það er, vegna heimsfriðarins að hernað- arbandalög stórveldanna, Atlants hafsbandalagið og Varsjárbanda- lagið verði formlega leyst upp og allt herlið stórvcldanna, sem nú dvelur í herstöðvum utan heima- lands þeirra, víki þaðan og hverfi heim“. Hér er sem sé berum orðum lagt til að Atlantshafsbandalagið verði leyst upp. Það er skoðun fyrir sig. En viðfeldnara er, að þeir, sem henni halda fram, hafi kjark til að standa við hana, ekki aðeins gagnvart íslendingum heldur og erlendum blaðamönn- um. Hannibal þagði hins vegar vitanlega um þessa kröfu sína við fyrsta danska blaðamanninn, sem við hann vildi tala. Hætt er við, að manninum hefði sýnzt mesti móðurinn renna af „sterka manninum frá Jonstrup“, ef hann hefði þekkt þessa sögu. Undén ufanrikisráðherra: Svíar eru ekld hlutlausir í gamalli merkingu orðsins ÖSTEN UNDÉN utanríkisráðherra Svía átti stutt viðtal við frétta- menn í stofu sinni á Hótel Borg í gærkvöldi. Undén er í mesta máta hæglátur og varkár, vegur orð sín vandlega áður en hann segir þau og gerir sér far um að koma í veg fyrir, að viðstaddir misskilji það, sem hann lætur frá sér fara. Á fundinum í gærkvöldi barst talið fyrst að hlutleysi Svía, og sagði ráðherrann, að raddir gagn- rýninnar á stefnu Svía yrðu nú æ færri heima fyrir. Að vísu væru einstök atriði þessarar stefnu oft gagnrýnd harðlega, en yfirleitt væri Svíum ljóst, að þeim væri hlutleysið happasælast, ekki sízt þegar tekið væri tillit til nýjustu tækni í hernaði. MEÐLIMIR ALLRA FLOKKA Undén sagði, að aðrar þjóð- ir virtu þessi sjónarmið Svía og Iægju þeim ekki á hálsi fyrir stefnu þeirra, enda hefði þeim oft tekizt að draga úr misklíð og koma á sættum milli deiluaðila. Hann sagði, að í sendinefnd Svía hjá S.Þ. væru meðlimir allra flokka, þannig að þar kæmu fram öll sjónarmið. HLUTLEYSI OG HERSTYRKUR Aðspurður sagði ráðherrann, að Svíar tækjn enga opinbera af- stöðn til heraaðarbandalaga aðra en þá, að Svínm væri bezt að halda sig utan þeirra. Hins veg- ar verðu þeir árlega offjár til hervarna. Hann kvaðst ekki vilja komast svo að orði, að hernaðar- legur styrkur Svía gerði þeim kleift að vera hlutiausir, en hins vegar væri sér ljóst, að Danir og Norðmenn teldu sig ekki hafa efni á að búast þannig til varna, sem nauðsynlegt væri, og hefðu þeir þvi gengið í Atlantshafs- bandalagið. FLUGVÉLAMÁLIÐ ÓÚTKLJÁÐ Þegar talið barst að flugvél- umun, sem Rússar skutu niður fyrir Svíum fyrir 5 árum, sagði Undén, að málið hefði ekki verið lagt opinberlega fyrir S.Þ., en hann hefði flutt þeim skýrslu um málið og látið dreifa bæklingi á nokkrum tungumálum meðal full trúanna. Málið hefði aldrei verið útkijáð, sagði hann. HRIFINN AF NEHRU Undén kvað nýafstaðna heim- sókn Nehrus til Svíþjóðar hafa haft mikil áhrif. Nehru væri mik- ill og athyglisverður persónu- leiki, sem hefði strax nnnið hjörtu Svía. Hann kvað stefnu Svía og Indverja ekki hina sömu, þótt bæði ríkin værn hlutlaus. Indverjar tækju virkan þátt í málum Asiu-þjóða og væru í rauninni leiðtogar þeirra. Auð- vitað værn Svíar ekki hlutlausir í hinni gömlu merkingu þess orðs. Þeir tækju ákveðna afstöðu til þeirra mála, sem upp kæmu, en þeir væru mjög varkárir og íhaldssamir í alþjóðamálum. ÞÖRF A LAGNI Hann kvað Svía vera fylgjandi sjálfstæði þeirra þjóða, sem enn væru háðar öðrum þjóðum, en málin væru flókin og oft miklu erfiðari úrlausnar en virðast mætti við fyrstu sýn. T. d. hefðu Svíar ekki tekið endanlega af- stöðu í Kýpur-málinu eða Alsír- málinu. — Sameinuðu þjóðirnar yrðu að ráða fram úr slikum málum með mikilli lagni, því Ánægjuleg för vistfólks Grundar SL. laugardag bauð Félag ísl. bifreiðaeigenda vistfólkinu að elli- heimilinu Grund og vistfólkinu í Elliheimilinu í Hveragerði í ferða- lag. Farið var frá Reykjavík aust- ur að Hveragerði og Selfossi, en síðan á Þingvöll. Ágætsveitingar og móttökur voru alls staðar þar sem fólkið kom og á Þingvöllum var ýmislegt til skemmtunar. Skemmtu allir sér ágætlega. Forstjóri Grundar, Gísli Sigur- bjömsson, hefur beðið blaðið fyrir hönd gamla fólksins að flytja öll- um þeim, sem að þessari ferð stóðu og gerðu hana eftirminni- lega og ánægjulega, beztu þakkir fyrir. Östen Undén þær hefðu ekki vald til að gera annað en hvetja hlutaðeigandi ríki til að fylgja Stofnskrá S.Þ. NORRÆN SAMVINNA Komið verður víða við á þessu ferðalagi og haldnir hljómleikar á hverjum degi og tvennir einn daginn. Míðvikudaginn 3. júlí verð- ur farið að Bólstaðarhlíð og haldnir hljómleikar í félags- heimili Bólstaðarhlíðarhrepps. Er Keimilið alveg nýtt og ó- vígt og verða hljómleikamir fyrsta samkoman sem haldin verður i húsinu. Fimmtudag- inn 4. júlí verða hljómleikar á Sauðárkróki, 5. júlí á Siglu- firði, 6. júli á Ólafsfirði og 7. júlí verða haldnir tvennir hljómleikar, í Freyvangi í Eyjafirði, sem er nýtt og myud arlegt félagsheimili, og síðan á Húsavík. Mánudaginn 8. júlí verða hljómleikar að Skjólbrekku í Mývatnssveit, 10. júlí á Eski- firði og 11. júlí á Seyðisfirði, á báðum stöðunum verður leik ið í nýjum og myndarlegum félagsheimilum. Þá verða hljómleikar í Neskaupstað 12. ráðherrann, að hún væri í mörg- um greinum blómleg, en á efna- hagssviðinu væru enn alls konar kindranir. T. d. hefði ekki verið hægt að koma á frjálsum mark- aði Norðurlandanna vegna ósam- komulags um sjávar- og land- búnaðarafurðir. En þetta stæði tii bóta, ekki sízt ef Norðurlöndin tækju virkari þátt í samstarfi hinna Evrópuríkjanna um sam- ciginlega markaðL ANÆGÐUR MEÐ KOMUNA Östen Undén, sem hefur komið til íslands þrisvar áður, lét þess að lokum getið, að hann væri mjög ánægður með þessa fjórðu heimsókn. Hann hefði notið ein- stakrar gestrisni og vinsemdar og séð margt ógleymanlegt. Að júlí, 13. Júlí á Egilsstöðum af 14. júlí eru seinustu hljóm- leikarnir í Mánagarði í Ilorna- firði. Alls verða 40 manns í ferð- inni, þar af 35 hljóðfæraleikarar einsöngvararnir, hljómsveitar- stjórarnir og fararstjórinn. í sambandi við aðbúnað hljóm, sveitarinnar á ferðalaginu gat Jón Þórarinsson þess að ógerlegt hefði verið að fara för þessa ef hin nýju og myndarlegu félags- heimili sveitanna væru ekki risin upp. Sagði Jón að húsin ættu eitt sammerkt, að þau væru öll mjög vel úr garði gerð og vel til þeirra vandað á allan hátt. Nokkrum erfiðleikum er það bundið að fá gistingu fyrir svona stóran hóp, og t.d. verður hópur- inn að hafa „viðlegu" á Sauðár- króki og fara þaðan m.a. tii Siglu fjarðar og Ólafsfjarðar. Á öðrum stöðum verður gist í skólum þar sem gistihús eru ekki fyrir hendi. Fer hljómsveitin í bifreið aust- ur að Egilsstöðum en þangað verS ur hún sótt af flugvél, sem flýgur með hana til Hornafjarðar og býður á meðan bljómleikarnir eru haldnir og flytur hljóm- Skýrsla um norrœnt tollabandalag svo búnu kvaddi hann fretta- mennina eigandi fyrir höndum Um norræna samvinnu sagði enn eina dýrindisveizlu, 12 hljómleikar haldnir á Norður- og Austurlandi NÆSTKOMANDI miðvikudag leggur Sinfóníuhljómsveit íslands af stað í 11 daga hljómleikaferð um Norður- og Austurland. Hljómsveitarstjórar hljómsveitarinnar eru dr. Páll ísólfsson og Poul Pampichler og einsöngvarar Kristinn Hallsson og Þorsteinn Hannesson. Jón Þórarinsson, framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar, sem verður fararstjóri, skýrði fréttamönnum frá þessu ferðalagi í gær. Er þetta í annað sinn, sem hljómsveitin leggur leið sína út á land, en í fyrrasumar fór hún í nokkrar eins-dags hljómleikaferðir, Að hljómleikaförinni lokinni hefjast sumarleyfi hljómlistarmann- anna. Helsingör, 1. júlí. ÉRFRÆÐINGAR hafa nú eftir þriggja ára starf lagt síðustu hönd á skýrslu um möguleikana á norrænu tollabandalagi, og og fræðilegt samstarf stóraukast, sem og efnahagssamvinna. sveitina síðan heim til Reykja- víkur, að þeim loknum. á sunnudaginn munu þeir ráðherrar, sem fjalla um norræna sam- vinnu, hittast í Hamri í Noregi. Þar verða ráðherrar frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Áætlunin, sem þeir munu ræða, er norrænt tollabandalag og tek- Skemmliferð gamla fólksins í Hafnarf irði Sl. sjö sumur hefur gamla fólk- inu í Hafnarfirði ávallt verið boð ið í skemmtiferð af bifreiðastjór- um. Fyrstu árin fóru bifreiðastjór ar frá Nýju Bílstöðinni með það, en svo hafa hin síðari ár einnig verið bifreiðastjórar af Bifreiða- stöð Hafnarfjarðar ásamt bif- reiðastjórum og bifreiðum frá Hafnarfjarðardeild ísl. bifreiða- eigenda. Nú hefur verið ákveðið að fara á Þingvöll í dag (2. júlí), og eru þeir, sem ætla að vera með i þess- ari ferð, beðnir vinsamlega að gefa sig fram á Nýju Bílstöðinni og Bifreiðastöð Hafnarfjarðar. ur til um 80% af þeim viðskipt- um, sem eiga sér stað milli land- anna fjögurra. Nemur viðskipta- fjárhæðin árlega um 9 milljörð- um króna. Síðustu dagana hefur skýrslan verið rædd í Helsingör, og hafa 4 sérfræðingar frá hverju hlutaðeigandi landa unn- ið að undirbúningi hennar. Með fylgiskjölum öllum verður hún um 1000 blaðsíður. STÓRAUKIÐ SAMSTARF Helztu vörur, sem tollabanda- lagið mundi ekki ná til, eru sjáv- ar- og landbúnaðarafurðir, vefn- aður, klæðnaður og skór. Næst verður áætlunin sem sagt rædd af ráðherrum, og ákveði þeir að hrinda henni í framkvæmd er cnn eftir að ræða hana á þjóð- þingum viðkomandi landa. Sér- fræðingarnir gera ráð fyrir, að það muni taka um 10 ár að koma tollabandalaginu í endanlegt horf. Við það mun allt tæknilegt Þarflegt erlndi SVO MIKIÐ er nú keypt af enskum bókum að miklu máli skiptir fyrir menningu þjóðar- innar að þær séu sem bezt vald- ar. Ekki þarf að efa að bók- salar leitast við af alúð að flytja inn einungis góðar bækur, en vitanlega hafa þeir misjafnlega mikla þekkingu til þess að geta valið vel. Hér er nú stödd ung og gáfuð stúlka ensk, með háskólaprófi í enskri tungu (þar með engil- saxnesku) og enskri bókmennta- sögu. Að beiðni Snæbjarnar Jónssonar & Co. h.f. mun hún í kvöld kl. 8,30 flytja erindi í Tjarnar-Café (uppi) og nefnir það „How to build up your English home library". Má ætla að um það efni gefi hún þær bendingar er mörgum reyndist hinar þarflegustu. Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis og öll- um heimill eftir því sem hús- rúm leyfir. Ættu því þeir menn, er því geta komið við og ensku lesa, ekki að sitja sig úr færi að hlýða á hann. Geta má þess, að enda þótt stúlka þessi, Miss Muriel Jack- son, flytji erindi sitt á ensku, er það öðru nær en að hún sé ófróð í móðurmáli okkar íslend- inga. Forntunguna nam hún af Mrs. Vivien Salmon, meðan hún stundaði nám í Bedford College í London, en að undanförnu hef- ir hún lagt stund á nútíðarmálið í University College, þar sem Eiríkur Benedikz hefir verið kennari hennar. Ég held að það sé nú loks orðið almenningi sæmilega kunn ugt, að bókaverzlun sú, er beitt hefir sér fyrir flutningi þessa erindis, er mér með öllu óvið- komandi. En allur er varinn góð- ur, og því minni ég á þetta einu sinni enn Sn. J,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.