Morgunblaðið - 20.07.1957, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.07.1957, Blaðsíða 3
Laugardagttr 20. j<Síí MW MORGU1VBLAÐ1Ð % Vegleg afmœlissýning opnuð klukkan 2 í dag Nemendur Handíða- og myndlista- skólans heiðra skólastjóra sinn sexfugan t ÐAG kl. 2 e.h. verður opuuð í Mandíða- og myndlLstaskólanum sýning, sem haldin er til heiðurs skólastjóra skólans, Lúðvig Guð- mundssyni, en hann átti sextugs- afmæli 23. júní sl. — Lárus Sig- urbjörnsson, formaður sitóla- nefndar Handíðaskólans, boðaði blaðamenn á fund sinn í gær og var þá verið að koma sýningar- munum fyrir í þrernur, björtum og vistlegum skólastofum skól- ans. Sverrir Haraldsson, list- málari sem er kennari við skól- ann sér að mestu leyti um sýn- inguna, en honnm til aðstoðar er yfirkennarinn, Sigurður Sigurðs- son. YFIRGRIPSMIKIL SÝNING Sýning þessi er mjög yfirgrips mikil. Meðal þátttakenda eru þessir listamenn: Listmálararnir: Bragi Ásgeirs- lon, Eiríkur Smith, Einar Bald- vinsson, Guðmundur Guðmunds- son (Ferro), Hafsteinn Aust- mann, Hrólfur Sigurðsson, Hörð ur Ágústsson, Jóhannes Geir, Xeikning eftir af gamalli konu Pétur Friðrik Karl Kvaran, Kjartan Guðjóns- son, Pétur Friðrik, Sverrir Har- aldsson og Veturliði Gimnarsson. — Myndhöggvararnir: Gerður Helgadóttir og Gestur Þorgríms- Vel heppnuð för Sinfóníuhljómsveit- arinnar um NorSur- og Austurland Undirfekfir áheyrenda eins og bezf varH á kosið SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands er nú nýlega komin til Reykja- víkur eftir að hafa farið í tón- leikaför um Norður- og Austur- land. Á Austfjörðum dvaldist hljómsveitin dagana 10. til 14. júlí. Voru tónleikar haldnir dag- lega en hljómsveitin hafði bæki- stöð í skólahúsinu að Eiðum. Skýrði Jón Þórarinsson frétta- mönnum frá förinni í gær. Fyrstu tónleikarnir fyrir aust- an voru í félagsheimilinu Valhöll á Eskifirði miðvikud. 10. júlí. Stjórnandi var dr. Páll ísólfsson, en einsöngvari Þorsteinn Hannes- gon. Fimmtudagskvöldið 11. júlí voru haldnir tónleikar í félags- heimilinu Herðubreið á Seyðis- firði. Stjórnandi og einsöngvari voru hinir sömu og á Eskifirði. í Neskaupstað voru tónleikar haldnir föstudagskvöldið 12. júlí í barnaskólanum. Stjórnandi var dr. Páll ísólfsson en einsöngvari Kristinn Hallsson. Laugardagskvöldið 13. júlí voru tónleikar í samkomuskálan- um í VémÖrk í Egilsstaðaskógi. Stjórnandi dr. Páll ísólfsson og einsöngvari Þorsteinn Hannesson. Síðustu tónleikar hljómsveitar- innar í þessari för voru haldnir í félagsheimilinu Mánagarði í Hornafirði sunnudagskvöldið 14. júlí. Stjórnandi var Paul Pam- pichler og einsöngvari Kristinn Hallsson. að taka sem bezt á móti hljóm- sveitarfólkinu og voru þeim hvar vetna haldin gildi og þökkuð kom an. Alls staðar voru ræður flutt- ar við þessi tækifæri. Flest fé- lagsheimili voru lánuð endur- gjaldslaust til tónleikahaldsins og undirtektir áheyrenda svo sem bezt varð á kosið. son. — Myndskerarnir: Jóhann Björnsson frá Húsavík og Sveinn 'Ólafsson. —' Listiðnaðarkonurn- ar: Auður S. Laxness, Ásgerður E. Búadóttir, Sigrún Guðjóns- dóttir, Sigrún Gunnlaugsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Kristín Þorkelsdótt ir, Kristín Jónsdóttir og Ásta Jónsdóttir. — Gullsmiðirnir: Ás- dís Thoroddsen og Jens Guðjóns- son. Er þetta listafólk allt útskrifað frá Handíða- og myndlistaskól- anum, og einnig taka þátt í sýn- ingunni seoiendur skólans frá sl. vetri og má þar nefna Gísla Björnsson, Flóka Nielsen, Stein- unni Marteinsdóttur o.fl. Þá eru á sýningunni muair eft ir ýmsa aðra er stundað hafa nám á ýnrsum námskeiðum skóians, m.a. í bókbandi, teiknun o. fl. greinum. Og loks eru á sýningunni nokkr ar myndir eftir börn. MERKX BRAUTRYÐJANDA- STARF Með sýningu þessari votta nemendur Handíða- og mynd- listaskálans, skólastjóra sínum þökk og viðurkenningu, en Lúð vig Guðmundsson hefur unnið mikið og merkt brautryðjanda- starf í þágu mennta á sviði verk- náms, listiðnaðar og æðri mynd- listar hér á landi. Frá því að skólinn var stofnað- ur árið 1939 til 1957 hafa nál. 4500 nemendur sótt skólann. Á sl. ári voru stofnaðar tvær nýjar deildir, listiðnaðardeild kvenna og kennsludeild hagnýtr- ar myndlistar. Á sýningunni kennir margra grasa, þar eru m.a. olíumálverk, vatnslitamyndir, Gouachemynd- ir, klippmyndir, steinprent, sáld- þrykkmyndir, lágmyndir, mosa- ikmyndir og gluggi, höggmyndir úr járni og vírmyndir, keramik, listvefnaður, útsaumur, tau- þrykk, batik, silfursmíði, bók- band, leður-, og bast- og tága- vina o. fl. Jón Sveinsson fyrrv. bœjarstjóri látinn í FYRRAKVÖLÐ varð Jón Sveinsson, fyrrv. bæjarstjóri á Akureyri, bráðkvaddur hér í Reykjavík, þar sem hann var á ferð. Jón Sveinsson fæddist á Árna stöðum í Loðmundarfirði árið 1889. Hann varð stúdent 1914 og lagaprófi lauk hann 1919. Bæjar- stjóri á Akureyri varð hann sama ár og gegndi því starfi til ársins 1934, fimm sinnum endurkosinn. Hann dvaldist erlendis 1924—25, í Danmörku aðallega, og lagði stund á skatta- og sveitarstjórn- arlöggjöf. Hann starfaði fyrir ríkisstjórnina að undirbúningi útsvarslaganna. Árið 1942 var hann skipaður rannsóknardóm- ari í skattamálum. Jón var mikill íþróttamaður á yngri árum sínum, og einn af kunnustu og bezt metnu borgur um Akureyrar allt frá því að hann kom þangað ungur bæjar stjóri. Akranesi, 19. júlí: TOGARINN Bjarni Ólafsson kemur hingað á sunnudagmorg. un frá V-Grænlandi með ful-1- fermi af karfa. — Oddur. Forseti íslands á Snæfellsnesi GÓÐAR MÓTTÖKUR AIls staðar þar, sem Sinfóníu- hljómsv. kom voru viðtökur mjög glæsilegar. Hreppsnefndir og bæjarstjórnir gerðu sér far um Forsetahjónin gengu á Helgafell um síðustu helgi er þau fóru í heimsókn í Snæfells- og Hnappa- dalssýslu. Myndin er tekin á fellinu og sér til austurs til Hvammsfjarðar og Breiðaf jarðareyja. Forseta íslands færðar j> jafir ÞEGAR forseti fslands og frú hans heimsóttu vörusýningar landanna þriggja í annað sinn í vikunni sem leið, færðu forstjór- ar sýningardeildanna þeim ýmsar gjafir. Forstöðumaður Tékka afhenti þeim hjónum mjög fallegan kristal-vasa, en eins og kunnugt er og sýningarmunirnir bera vott um, standa Tékkar framar öðrum þjóðum í framleiðslu á handslíp- uðum kristal-vörum. Þá var þeim gefin forláta myndavél af sýningarstjóra Þjóð- verja og gildir sama um það að á sviði framleiðslu þeirra standa Austur-Þjóðverjar fremstir í heimi. Lol« fengu þau að gjöf frá sýningardeild Rúmena fallega handhnýtta gólfábreiðu. Verndurum sýningarinnai, við- skiptamálaráðherra og borgar- stjóra, voru einnig færðar vand- aðar gjafir í vináttu og þakkar- skyni frá öllum hinum þremur þjóðum. (Fréttatilkynning frá Kaupstefn- unni) Forsetaveizlan í Stykkishólmi STAKSTEIHAR Fimm-falt fleiri leyfi Lengi vel ætlaði Lúðvík Jós- efsson að láta „humar-veiða*1- hneykslið gleymast í þögninni. — Þjóðviljinn þagði um málið, þang að til viku eftir, að ráðherrann hafði neyðzt til að afturkalla leyfin, og sjálfur lét hann atts ekki í sér heyra um málið. Mm er þó svo að honum kreppt, að hann hefur orðið að gefa opin- bera tilkynningu um það. Sv* langt sem hún nær staðfestir húa í öllu frásögn og ásakanir Morg- unblaðsins. í skýrslunni segir m.a.: „Undanfarin ár hefur ráðherra notað fyrrgreinda heimild eg 4 leyfi veitt 1953, 12 leyfi 1954, U leyfi 1955 og 8 leyfi 1956.“ Hér er því sleppt, að aldrei kom upp grunsemd um það, hvað þá meira, að þessi leyfi, sem Ól- afur Thors veitti, væru misnotuð. En þegar Lúðvik Jósefsson tók við varð annar bragur á. í skýrsl- unni segir: „Alls hafa verið á þessu áii veitt 41 leyfi, þar af 36 ttl Vest- mannaeyja.“ Þarna kemur fram, að Lúðvik leyfir strax á fyrsta ári meira en fimm-falt fleiri leyfi en Ólafur Thors hafði gert árin áður. Fiskifélagið sýknt saka Skýrsla Lúðvíks Jósefssonar staðfestir í einu og öllu þann skort á karlmennsku hjá ráðherr- anum, sem Morgunblaðið hafði bent á. Hann reynir á allan veg að skjóta sjálfum sér undan ábyrgð á verkum sínum og koma henni yfir á Fiskifélagið. — Um þetta segir m.a. í skýrslunni: „f leyfisbréfum þeim, er ráðu- neytið hefur gefið út, hefur verið tekið fram, hverjum skilyrðum leyfin séu bundin og er eitt þeirra, að Fiskifélagi íslands sé send skýrsla um veiðarnar til þess að hægt sé að fylgjast með því, hvort leyfin séu misnotuð." Ennfremur segir: „Aflaskýrslur bátanna fyrir júní mánuð bárust Fiskifélaginu í byrjun júlímánaðar og ráðuneyt inu barst skýrsla Fiskifélagsins, dags. 9. júlí s.I. Aflaskýrslur bát- anna báru með sér, að 28 bátar höfðu misnotað leyfið að meira eða. minna Ieyti.“ Af þessu er greinilegt, að Fiski- félagið hefur ekkert af sér brotið. Það aðvarar ráðherrann strax og það fær ástæðu til. Sekt Lúðvíks Lúðvík Jósefsson gleymir að geta þess, að Fiskifélagið hefur auðvitað hvorki löggæzluvald né heimild til leyfissviptingar. Dóms málastjórninni ber vitanlega að sjá um að lögum sé framfylgt og í þessum efnum hvíldi sérstök skylda á sjávarútvegsmálaráð- herranum. En Lúðvík lætur und- an fallast að geta þess, að búið var að aðvara hann áður en skýrsla Fiskifélagsins kom til um misnotkun leyfanna. Hann skeytti þeim aðvörunum engu heldur fór sínu fram. Leyfishafarnir héldu því, að þeir væru í fullu samræmi við vilja ráðherrans, þegar þeir stunduðu lögbrot sín. Þeir vissu, að hann vissi um þau og hafðist ekki að. Það var ekki fyrr en málið var orðið opinbert hneykslismál, að ráðherrann hófst handa. Ráðherr ann segir nú: „Þar sem þessir bátar höfðu brotið skilyrði leyfanna, með því að nota leyfi til humarveiða til bess að stundá aðrar fiskveiðar, vipti ráðuneytið þá leyfum þana 0. júlí s.l.“ Ráðherrann hafði vitneskju um gbrotin löngu fyrr. En 10. Júlí ar búið að taka málið upp i ^ykjavíkurblöðunum og opinber nnsókn varð ekki lengur um- in. Þá fyrst gugnaði Lúðvík „osefsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.