Morgunblaðið - 20.07.1957, Side 16
2-24-80
flttjimMíifoíiti
160. tbl. — Laugardagur 20 júlí 1957.
2-24-80
Domus Medica, miðstöð
lækna á oð rísa i Reykjavik
L.ÆKNUM þessa lands er fyrir löngu orðið ljóst, hve þýðingar-^-
mikið það væri fyrir samtök þeirra að eignast læknahús, Domus
Medica, í Reykjavík. Mál þetta hefur verið rætt á læknafundum og
læknaþingum. Nefndir hafa haft það til meðferðar og athugunar,
teikningar og allt er tilbúið, en ekki hefur ennþá fengizt fjárfest-
ingarleyfi, þó þrívegis hafi verið sótt.
★ I VANDRÆÐUM
Eitthvað á þessa leið fórust
Bjarna Bjarnasyni lækni orð er
hann ásamt ýmsum öðrum lækn-
um ræddi við blaðamenn í gær-
dag. Og Bjarni hélt áfram:
Ýmsar aðstæður hafa skapazt
í seinni tíð sem hafa vakið lækna
samtökin til meðvitundar um
það, að bygging læknahúss er
orðin knýjandi nauðsyn. Húsnæð
isskortur hefur verið öllu sam-
starfi læknanna mikill fjötur um
fót lengi. Margir læknar í
Reykjavík búa við lélegan húsa-
kost fyrir læknastofur sínar,
sitja í ótryggri leigu og eiga
jafnan yfir höfði sér uppsögn.
Biðstofur eru þröngar og óhent-
ugar og samrýmast hvergi
heilbrigðiskröfum nútímans. Um
þetta þýðir ekki að sakast við
læknana. Og nú eru komin lög
sem banna að íbúðarhúsnæði sé
leigt til lækna m.a. Þrengist nú
enn hagur þeirra. Víða er ekki
hægt að koma við þeirri aðstoð
sem nauðsynleg er og þjónustan
verður af þessum sökum mjög
seinleg og léleg við sjúklinga.
★ SÉRFRÆÐINGAR
Til þess að bæta úr þessu og
stíga spor fram á við hefur
Læknafél. íslands og Læknafélag
Reykjavíkur ákveðið að beita sér
fyrir byggingu Domus Medica.
Allt að 30 læknar hafa ,nú þegar
ákveðið að setjast að í bygging-
unni með læknastofur sínar. Er
þessi samvinna lækna, sérfræð-
inga á ýmsum sviðum, mjög farin
að ryðja sér til rúrris, einkum í
Ameríku, og hafa bæði þeir og
ekki sízt sjúklingar gagn af. í
einu og sama húsi starfa þá sér-
fræðingar í öllum greinum og
þá er aðeins í eitt hús að sækja
til rannsóknar. Allt er miðað við
að sjúklingar fái sem bezta þjón-
ustu og rannsókn á sem skemmst
um tíma.
Þá eru ráðgerðar rannsóknar-
stofur og því um iíkt ef til vill
apotek og færi ágóði af því til
að minnka kostnað við rann-
sóknarstofu. Á rannsóknarstofum
yrðu öll tæki. Þar gætu Reyk-
víkingar sem utanbæjarmenn
fengið alla þjónustu læknisfræði-
lega, í stað þess sem nú er að
menn eru sendir frá einum stað
til annars, löng bið á hverjum
stað og tekur marga daga að fá
einhverja niðurstöðu heildar-
rannsóknar.
1 Domus Medica yrðu og bóka-
söfn og miðstöð lækna. Þar ættu
þeir fundarstað og gætu rætt ný
mál sín á milli.
Engin síld
1 GÆR fékk Mbl. skeyti frá
fréttaritara sínum á Raufarhöfn.
Hann segir enga síld hafa borizt
á land í gær, en veður sé batn-
andi og allir séu vongóffir.
Héraðsmót í V.-ís..
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæffismanna
í Vestur-ísafjarffarsýslu verffur
haldiff á Suffureyri á morgun,
sunnudag og hefst mótiff kl. 4 sd.
Ræffur flytja: Jóhann Hafstein,
alþm. og Þorvaldur Garffar Krist-
jánsson, lögfræffingur. Fluttur
verður söngleikurinn „Ást og
andstreymi“ meff hijómiist eft-
ir Offenbach. Söngvarar: Þuríff-
ur Pálsdóttir, Guðmunda Elías-
dóttir og Guffnrundur Jónsson.
Fritz Weisshappel aðstoðar. Að
lokum verffur stiginn dans.
Síldin haíði
6-14% fitumagn
Reknetjabáturinn Aðaíbjörg
fékk 92 tunnur síldar í dag. Fitu-
magn síldarinnar var mælt og
reyndist 6—14%, en lágmarks-
fitumagn síldar, er fryst er til út-
flutnings verður að vera 12%. —
Síldin fór í bræðslu.
Sigurfari fékk svo lítið að ekki
þótti taka því að hann kæmi inn.
Örlítið hefur vottað fyrir
krabbátu í síldinni. — Oddur.
SÁ hörmulegi atburður gerðist
vestur í Bolungavík liinn 10. júlí
sl. að ungur drengur varð fyrir
dráttarvél og beið samstundis
bana.
Nánari atvik þessa dauðaslyss
eru sem hér segir: Dráttarvél var
ekið frá Bolungavíkurkauptúni
fram í Syðridal til þess að vinna
þar við heyskap. Ók fullorðinn
maður drátfarvélinni.
Þegar hann var kominn um það
bil 1 km frá kauptúninu varð 10
ára gamall drengur, Lárus Guð-
mundur Gíslason, fyrir öðru hjóli
vélarinnar með þeim afleiðingum
Stórmeistorar
i fjölteili
í DAG kl. 3 gefst mönnum kost-
ur á að tefla fjöltefli við stór-
meistara í skák. Fjölteflið fer
fram í Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar og stórmeistararnir eru
Pachmann, frá Tékkóslóvakíu
og Auerbakh, frá Rússlandi. Þeir
eru báðir hér sem fararstjórar
stúdenta landa sinna. Menn eru
beðnir að hafa með sér töfl.
Fimdir í far-
mannadeilunni
í GÆR og í fyrradag hefir sátta-
nefndin í farmannadeilunni hald-
iff fundi meff deiluaffilum. í gær-
morgun var samninganefnd far-
manna á fundi meff sáttancfnd-
inni og fulltrúar vinnuveitenda
síffarihluta dags í gær. Engir sam
eiginiegir fundir meff affilum
hafa veriff haldnir þessa daga.
Fimm ára
drukknar
Fimmtudaginn 18. júlí um há-
degisbil varð það hörmulega slys
að fimm ára drengur, Bolli Guð-
mundsson skráður til heimilis að
Drápuhlíð 3, tók sig út úr barna-
hópnum í sumardvalarheimili
Rauða krossins í Laugarási, Bisk-
upstungum og beið bana í Hvítá.
Foreldrar drengsins Soffía Sigur-
jónsdóttir og Guðmundur Ólafs-
son, eru nú til heimilis að Heiði í
Ytri-Njarðvík.
að hann beið samstundis bana. —
Foreldrar hans eru þau Gísli
Valdemarsson, verkamaður í Bol-
ungavík, og kona hans, frú Mar-
grét Magnúsdóttir. — Er mikill
harmur að þeim kveðinn
við hið sviplega fráfall Lárusar,
en hann var hinn mesti efnispilt-
ur og hvers manns hugljúfi í Bol-
ungavík.
Eftir upplýsingum frá skrif-
stofu lögreglustjórans í Bolunga-
vík, sem blaðið aflaði sér í gær,
mun hafa verið um óhappatilvilj-
un að ræða, sem mjög erfitt hefði
verið að afstýra.
Drengur verður undir
dráttarvél í Bolungavík
og bíður samstundis bana
Fyrir tveimur árum fann fólkiff á bænum Syffri-Völlum í Flóa
álftarunga sem var nýskriffinn úr eggi sínu. Var honum veitt
affhlynning góff og dafnaði hann vel, en ekki var gælt viff hann.
Var hann oft á vappi kringum bæinn, fékk kannske matarbita
en ból átti hann þar ekki af mannahöndum gert. En álftin óx
og tók ástfóstri viff bæinn. Var hún þar oft, en fór þó oft á
brott þetta allt upp í viku í senn — en kom alltaf aftur og var
mjög gæf eins og myndin sýnir. En nú er hún dauff álftin góða.
Hún flaug á háspennustreng og féll dauff til jarffar. Slík verffa
örlög allmargra fugla. —Ljósm.: Guðm. Pálsson.
„Misi USA" missti fililinn
drengur
í Hvítá
í Laugarási dveljast 120 börn.
Mikið land er umhverfis heim-
ilið en um það bil stundarfjórð-
ungs gangur niður að ánni, þar
sem börnunum er að sjálfsögðu
haldið frá að koma, enda skurðir
og hindranir á þeirri leið.
Fóstrurnar voru komnar heim
með börnin til hádegisverðar og
var drengurinn þá í hópnum. Áð-
ur en gengið var til borðs, tóku
fóstrurnar eftir, að drenginn litla
vantaði. Var þegar hafin leit og
menn fengnir til hjálpar frá
Iðu hinum megin Hvítár. Kl. 15
fannst lík hans í ánni. Hafði hann
gengið fram af bakkanum, þar
sem djúpur hylur er framundan.
Er þetta drjúgan spöl utan endi-
marka þess lands, þar sem fóstr-
urnar gæta barnanna. En þennan
sólríka, heita sumardag voru
börnin flest í sólbaði í brekkun-
um kring um heimilið.
Margar þúsundir barna hafa
verið í sumardvöl á vegum Rauða
krossins og aldrei orðið banaslys
fyrr. Til allrar gæzlu hefir verið
vandað svo sem föng voru á,
einni fóstru ætlað að annast 10—
12 barna hóp. Hefir slys þetta
vakið oss harm og orðið oss aukin
áminning um, hver ábyrgð fylgir
þessu starfi.
(Frétt frá Reykjavíkurdeild
R. K. í.).
Long Beach, 19. júlí.
Frá Reuter-NTB.
f „Miss Universe“-keppninni á
Langasandi varff óvænt „slys“,
þegar fegurðardrottningar fylkj-
anna 48 í Bandaríkjunum höfffu
lokiff keppni um titilinn „Miss
U.S.A.“ Stúlkan, sem var kjörin,
er nefnilega gift og á tvö börn,
en slíkt er gagnstætt öllum regl-
um.
Stúlkan er 23 ára gömul og
heitir Leona Gage. Hún tók þátt
í keppninni sem „Miss Maryland“
og vann sigur yfir öllum banda-
rísku keppendunum eftir harða
keppni. Nú verður hún að ganga
úr keppninni og láta „Miss Utah“
fá hinn eftirþráða titil „Miss
U.S.Á“.
HÚN NEITAÐI ÖLLU
Það var símhringing til dag-
blaðs í Baltimore, sem olli þessu
raski. Blaðinu var sagt, að Leona
Gage væri ekki aðeins gift, held-
ur ætti líka tvö börn. Hin ný-
kjörna „Miss U.S.A.“ neitaði
þessu ákveðið og kvaðst aldrei
hafa heyrt talað um Gene Ennis
liðþjálfa, sem var sagður maður
hennar. Að síðustu flúði hún grát
andi til herbergis síns og neitaði
að tala við fréttamenn. í dag
kom svo tengdamóðir hennar og
staðfesti sögu blaðsins í Balti-
more. Leona hafði gifzt liðþjálf-
anum árið 1953 og þau áttu tvö
börn. Móðir hennar játaði þetta
loks, og þá gat Leona ekki leng-
ur neitað því.
Úrslitin í sjálfri „Miss Uni-
verse“-keppninni verffa kunn á
sunnudaginn.
if ALLIR ÓSKA
Domus Medica er nauðsynja-
mál, sem almenningur óskar að
komist upp hið allra bráðasta
Þar yrðu að vísu ef til vill ekki
unnin verk sem ekki er nú þegar
hægt að vinna í sjúkrahúsum.
En þar yrði veitt svo mjög aukin
og bætt þjónusta, svo löng bið
spöruðu, svo mörg spor fjöl-
margra er leita þarfa 2—4 sér-
fræðinga í senn, að það er þjóð-
félagslega séð sparnaðarmál að
koma húsinu upp, fyrir utan það
að það er menningaratriði að
búa sem bezt að hinni þýðing-
armiklu læknastétt. Læknarmr
óska eftir að húsið rísi. Fólkið
óskar þess. Hver getur þá verið
á móti því. Fjárfestmgarleyfi fyr-
ir byggingarframkvæmdum þarf
að fást strax. Teikningar og fé
<er fyrir hendi.
Víffa í sveitum er heyskapur lángt kominn. Heyfengur hefur veriff mjög góffur og bændur eru
velbúnir undir veturinn, eins og sjá má á þessari mynd sem ljósm. Mbl. tók á dögunum, af
heygöltum við bóndabæ.
BRYNDÍS EKKI í ÚRSLITUM
Keflavíkurútvarpiff skýrði frá
því seint í gærkvöldi, aff „Miss
Maryland“ hefffi svariff og sárt
viff lagt, aff hún væri ógift, og
þess vegna væri hún enn „MISS
USA“. Þá skýrffi þaff ennfremur
frá því, að í síðusíu undankeppni
„Miss- Universe“-keppninnar
tækju þátt 10 fegurðardrottning-
ar Þær eru frá Bandaríkjunum,
Belgíw, Frakklandi, Grikklandi,
Ítalíu, Kanada, Marokkó, Sví-
þjóff, Uruguay og Þýzkalandi.
Ný kirkja vígð
Biskupinn herra Ásmundur Guff-
mundsson vígir nýja kirkju á
Hvammstanga n.k. sunnudag
kl. 2 e.h.