Morgunblaðið - 22.09.1957, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.09.1957, Qupperneq 16
írbæjarsafnið opnað í dag Samúðarhveðja forseta íslands tif Olafs Noregskonungs Forseta íslands barzt í gær- morgun svohljóðandi sím- skeyti frá Ólafi V. Noregskon- ungi: í djúpri sorg tilkynni ég yð- ur að minn ástkæri faöir, Hans Hátign Hákon Konung- ur sjöundi, andaðist í morgun. ÓlafurR. m Forseti íslands hefur sent Ólafi Noregskonungi svohljóð andi símskeyti: Hans hátign Ólafur V. Kon- ungur Noregs, Oslo. 1 tilefni af andláti Hans Há- tignar Hákonar Konungs Sjö- unda föður Yðar sendi ég Yð- ar Hátign innilegar samúðar- kveðjur mínar og íslenzku þjóðarinnar. Með einlægum óskum um bjarta og hamingju ríka framtíð fyrir Konung Noregs og þjóð. Ásgeir Ásgeirsson, Forseti íslands. 170 milljónir króna FYRSTU átta mánuði ársins hef- ir vöruskiptajöfnuðurinn verið óhagstæður um 169,8 millj. kr. Inn var flutt fyrir 782,9 millj. kr., en út fyrir 613,1 millj. Á sama tíma í fyrra var vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 234,6 millj. kr. Þá nam innflutn- ingurinn 836,7 millj., en útflutn- ingurinn 602,1 millj. 1 ágústmánuði var vöruskipta- jöfnuðurinn óhagstæður um 27,7 millj. kr. ÁKVEÐIÐ hefir verið að í dag klukkan 4 síðd. skuli Arbæjar- safnið opnað almenningi. — Þá fyrr um daginn mun borgar- stjóri ásamt bæjarfulitrúum skoða ^fnið, og borgarstjóri að því loknu opna það almenningi. Þetta er þó undir því komið að veður verði sæmilegt. Um daginn barst Árbæjarsafni mikil gjöf. Frú Þorbjörg Berg- mann frá Hafnarfirði, sem lát- in er, safnaði miklum fjölda ým- iss konar muna og áður en lauk átti hún hið bezta safn. Reykvík- ingafélaginu var gefið safnið, en nú hefur það með samþykki að- stendenda verið afhent Lárusi Sigurbjörnssyni forstöðumanni Skipstjóri heiðraður SLYSAVARNAFÉLAG íslands hefur veitt Snæbirni Ólafssyni skipstjóra á togaranum Hvalfell, sérstaka viðurkenningu fyrir þá sérstöku árvekni er hann hefur þótt sýna fyrir árvekni um ör- yggi skipverja sinna. Er hér um að ræða verðlaun úr minningar- sjóði Systkinanna frá Hrafnar- björgum, sem foreldrar þeirra Kristín Sveinbjörnsdóttir og Ragnar Guðmundsson bóndi að Hrafnabjörgum í Arnarfirði, stofnuðu 1948. Þetta er í fyrsta skipti, sem við- urkenning er veitt úr þessum sjóði. Verður síðar sagt nánar frá þessari viðurkenningu. S.kjala- og minjasafns Reykja- víkur. — Því hefur verið komið fyrir að nokkru í Arbæ. — Þessi mynd var tekin þá er Sveinn Þórðarson banka- gjaldkeri framkvstj. Reykvíkinga félagsins, til hægri og Lárus Sig- urbjörnsson skoða ýmsa gripi, úr stórum kistli sem geymdur var í eldtraustum skáp. Um daginn voru unglingar úr Vinnuskóla Reykjavíkurbæjar við kaftöfluuppskeru í svonefndum Borgarmýrargörðum, sem eru við veginn upp að Álafossi. Einmitt þessa dagana hefur mikill fjöldi bæjarbúa notað góða veðrið til þess að taka upp úr görðum sínum, t.d. á sunnudaginn var, þá var mesti fjöldi fólks við að taka upp í leigugörðunum hér við bæinn. Ljósm. Mbl. Gunnar Rúnar. Samið um sölu 130,000 funnum af Suðurlandssíld Ljósmyndasýning ALÞJÓÐA Ijósmyndasýningin Fjölskylda þjóðanna var opnuð í gær í Iðnskólanum við Vitastíg. Var það menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason, sem opnað sýn- inguna með ávarpi. Einnig töluðu Theodor Olsson sendifulltrúi Bandaríkjanna og Ragnar Jóns- son bókaútgefandi, sem talar af hálfu sýningarnefndar. Um 200 boðsgestir voru við- staddir opnunina. Um kvöldið var sýningin opin fyrir almenning og var þegar góð aðsókn að henni. Verður hún opin framvegis á hverjum degi kl. 10—10. Vök fyrir fuglana ÞÁ HEFUR MÁL, sem oft hefur verið rætt um í blöðunum, verið til lykta leitt: Vök fyrir endurnar á Reykjavíkurtjörn. Á fundi bæjarráðs er haldinn var á föstudag voru samþykktar tillögur dr. Finns Guðmundssonar og Helga Sigurðssonar hitaveitu- stjóra, um að veita heitu afrennsl isvatni frá Miðbæjarskólanum í tjarnarkrikann við Búnaðarfé- lagshúsið, og halda þar opinni vök fyrir fuglana. SÍLDARÚTVEGSNEFND hefur nú gert samninga um sölu á 170 þús. tunnur. f fyrsta lagi er um að Sem kunnugt er hefur vertiðin gengið mjög erfiðlega fram að Ekki einn einasti bœjarbúi grœðir á ofbeldisaðgerðum kommústiráðherrans GLUNDROÐALIÐIÐ undir forystu kommúnista heldur áfram árásum sínum á Reykjavíkurbæ í sambandi við niðurjöfnun út- svaranna og hinn fáránlega „úrskurð" Hannibals. Af því tilefni er ástæða til þess að minna enn á eftirfarandi: 1) Heildarupphæð útsvaranna samkvæmt fjárhagsáætlun var 181 millj. kr. Við þá upphæð má bæta 10% fyrir vanhöldum. Sam- tals yrði þá útsvarsupphæðin 199,4 millj. kr. 2) Enginn hefir véfengt að heimilt væri að leggja þessa upp- hæð á. 3) Þegar niðurjöfnunarnefnd lýkur störfum hefir hún jafnað niður 198,1 millj. kr., eða 1,3 millj. kr. lægri upphæð en allir flokkar voru sammála um að heimilt væri að leggja á. 4) Auðvitað bar að miða við þessa upphæð, sem jafnað var niður, því það er hún, sem kemur til innheimtu hjá gjaldendum og engin önnur. Þetta vissi félags- málaráðherrann fimm dögum áð- ur en hann gaf út hinn dæma- lausa „úrskurð“ sinn, sem hefir enga stoð í lögum og er hrein markleysa. Bæjarfulltrúar minnihluta- flokkanna létu á síðasta bæjar- stjórnarfundi bóka mótmæli gegn aðferðum niðurjöfnunarnefndar. Þau mótmæli eru gersamlega á sandi byggð og út í hött, því þau eru reist á þvi, að „farið sé í kringum úrskurð og fyrirmæli félagsmálaráðuneytisins“, sem eins og kunnugt er var eintóm endileysa og hvorki bæjarstjórn né niðurjöfnuunarnefnd var skylt að fara eftir. 5) Á það má að lokum benda, að niðurjöfnunarnefnd hafði í þetta skifti nákvæmlega sömu starfsaðferð og síðastliðin fjögur ár og samþykkt var af fulltrúum kommúnistaflokksins og Alþýðu- flokksins í nefndinni. Enginn bæj arfulltrúi né heldur félagsmála- ráðuneytið hefur á undanförn- um árum hreyft athugasemdum við þau vinnubrögð 6) 1 úrskurði Hannibals er heldur ekki minnzt á. að lækka eigi útsvör eða farið íram á það. Enginn, ekki einn einasti bæjar- búi eða gjaldandi getur því grætt einn eyri á ofbeldisaðgerðum kommúnistaráðherrans Hins veg- ar munu þær skaða bæjarfélagið og tefja framkvæmdir þess. t þeim felst fyrst og fremst póli- tísk ofsókn, sem allir sanngjarn- ir menn hljóta að fordæma þessu og það magn sem búið er að salta er óvenjulegt. Sóvet-Rússland mun kaupa 130 þús. tunnur. í fyrstalagi um að ræða kaup á Suðurlandssíld, að auki nokkurt magn sem á vantar af Norðurlandssíld sem gerðir höfðu verið sölusamningar um. Þá fara 10,000 tunnur til Póllands og áætlað er að til Finnlands verði seldar 30,000 tunnur. Söltun Suðurlandssíldar hefur gengið treglega, það sem af er ver tíð. Á undanförnum árum hefur töluvert verið saltað í ágústmán- uði, einkum á Snæfellsnesi og á Akranesi Að þessu sinni hefur sáralítið verið saltað þar, og veið in algjörlega brugðizt. Síldin sem veiddist við Reykja nes í ágúst var ósöltunarhæf vegna þess hve horuð hún var. f september hefur síldin yfirleitt verið léleg, og söltun lítil. Nú er búið að salta alls nær 19000 tunn- ur. Á sama tíma í fyrra var búið að salta 40,000 tn. Síldveiðin lá niðri um þetta leyti árs í fyrra, en hófst aftur um miðjan okt. og var óslitin fram í desember, og var mikill afli og góður, þegar á sjó gaf Listkynning Morgunblaðsins Vigdls Kristjánsd, í GÆR hófst sýning á listaverk- um eftir frú Vigdísl Kristjáns- dóttur listmálara á vegum list- kynningar Mbl. Sýnir hún bæði listvefnað og frumdrætti að vefn- aði. Frú Vigdís er fædd á Korpúlfs- stöðum í Mosfelissveit, en hefur lengstum átt heima hér i Reykjavík. Ilún hóf ung listnám, fyrst hjá Stefáni Eiríkssyni, Rík- arði Jónssyni og Guðmundi Thorsteinsson. Ennfremur stund- aði hún nám í Handíðaskólanum en fór síðan utan. Stundaði hún listnám við Konunglega lista- háskólann í Kaupmannahöfn um fimm ára skeið. Lagði hún þar stund á málaralist hjá prófessor Kræsten Iversen. Síðan stundaði hún nám í þrjú ár í myndvefn- aði í Osló undir leiðsögn Káre Jonsborg listmálara. Frú Vigdís hefur farið náms- ferðalög til margra landa, m. a. til Grikklands, Tyrklands, Þýzka lands, Hollands og Frakklands. Hún hefur haldið fjórar sjálf- stæðar sýningar á málverkum og myndvefnaði hér heima. Tók hún fyrst þátt í málverkasýningu hér árið 1924. Þá hefur hún tekið þátt í sýningum erlendis á Char- lottenborg og á Norrænu sýning. unni í Finnlandi 1950. Árið 1955 sýndi hún myndvefnað á sýningu í Múnchen og á síðastliðnum vetri átti hún þrjú myndofin teppi á listsýningu Kvenréttinda- félags íslands. Hefur hún getið sér mikið orð fyrir hin mynd- ofnu teppi sín, sem þykja merki- leg og sérstæð listaverk. Hafa þau t. d. vakið mjög mikla at- hygli í Noregi. Á síðastliðnum vetri var listakonunni sýndur sá heiður, að henni var falið að standa um skeið fyrir myndvefn- aðardeild listiðnaðarskólans í Osló, og kenna þar í forföllum aðalkennarans. Reykjavíkurbær hefur ákveðið að kaupa tvö af hinum mynd- ofnu teppum frú Vigdísar. Enn- fremur hefur listiðnaðarskólinn í Osló keypt af henni tvö kross- ofin teppi. Frú Vigdís sýnir nú á vegum listkynningar Mbl. krossvefnað, myndvefnað, gobelin-vefnað, flos vefnað (rya) og íslenzkt nála- flos. Samtals eru þetta 9 ofin stykki. Ennfremur sýnir hún 8 teikningar, sem eru frummynd- ir fyrir vefnað. Nokkur af listaverkunum eru til sölu. MOSKVA, 19. sept. — „Rauða stjarnan“ málgagn Rauða hers- ins, segir í dag, að Atlantshafs- bandalagið ætli að gera Noreg að einni allsherjar hernaðarstöð sem verða eigi stökkpallur til árásar á Ráðstjórnarríkin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.