Morgunblaðið - 24.09.1957, Síða 20

Morgunblaðið - 24.09.1957, Síða 20
VEÐRIÐ Hægrviðri, skýjað með köflum, en víðast úrkomulaust Úr verinu Sjá bls. 8. 215. tbl. — Þriðjudagur 24. september 1957. Byggingarkostnaður barnaskóla í Reykjavík og Kópavogskaupstað Rangfœrslur kommúnistablaðsins hraktar BL.AB kommúnista gerði í lok síðustu viku að umtalsefni þær upplýsingar Gunnars Thoroddsens borgarstjóra á síðasta Varðar- fundi, að hver kennslustofa í nýjum barnaskóla i Reykjavík myndi um þessar mundir kosta að meðaltali um 800 þús. kr. 1 þessu sambandi skýrði kommúnistablaðið frá því, að nýlokið væri í Kópavogskaupstað „byggingu eins vandaðasta barnaskóla landsins. Kostnaður við þá byggingu hefði ekki náð helmingi þess byggingarkostnaðar, sem Gunnar Thoroddsen gefur upp við skólabyggingar Beykjavíkurbæjar." Mbl. hefir af þessu tilefni aflað sér upplýsinga um þetta mál. Samkvæmt upplýsingum frá op- inberum aðila eru 4 kennslu- stofur í hinum nýja barnaskóla í Kópavogskaupstað. Kostar hver kennslustofa um 500 þús. kr. að meðaltali. I skólahúsinu er þó enginn leikfimisalur, engar handavinnustofur, hvorki fyrir pilta né stúlkur, ekkert húsnæði fyrir heilbrigðisþjónustu og eng- inn samkomusalur. „Þjóðviljinn“ segir að bygg ingarkostnaður á skólastofu i Kópavogi sé helmingi minni en í Rvík, miðað við fyrrgreindar upplýsingar borgarstjóra. Hér er bersýnilega um hrein- ar rangfærslur að ræða hjá kommúnistablaðinu. Þegar borg- arstjóri talar um 800 þús. kr. kostnað á kennslustofu, miðar hann auðvitað við að þar sé með- talið það húsnæði, sem fræðslu- lög gera ráð fyrir, svo sem fim- leikasalir, handavinnustofur, hús næði fyrir heiibrigðisþjónustu og fleira nauðsynlegt húsnæði í þágu hvers skóla. Kommúnistar hafa þess vegna farið með blekkingar einar i skrifum sínum um þetta mál. — Upplýsingar borgarstjóra eru byggðar á staðreyndum um raun- verulegan kostnað við byggingu Verðið á slátur- afurðunum komið ÞA hefir verið tilk. um verðið á nýja kjötinu og sláturafurðum. Eins og þegar hefur komið fram í fréttum ætlar ríkið að greiða niður kjötið. Mikil eftirspurn er eftir slátri í kjötbúðum bæjarins. Haustverðið svonefnda ei nú hærra en það var í fyrra, og er kjötverðið nú eins og frosna kjöt ið var selt með álögðum geymslukostnaði og er súpuhj 'itið þá á kr. 24,65. Lifur hjörtu og nýru eru á kr. 21,75 kílóið. Svið- in kosta nú kr. 20,65 kg. fullkomnasta skólahúsnæðis, eins og gert er ráð fyrir í fræðslu- lögum. Er auðsætt að kommún- istum finnst nú allmjög sverfa að sér, er þeir ætla að telja al- menningi í Reykjavík trú um, að skólabyggingar í Kópavogi séu helmingi ódýrari en í Reykjavík. Stórmóti^ STÓRMÓT Taflfélags Reykjavík ur hélt áfram í gærkvöldi, og var þá tefld 8. umferð. Ingi og Frið- rik svo og Guðmundur Pálma- son og St&hlberg gerðu jafntefli. Benkö vann Björn, en biðskákir urðu hjá Ingvari og Guðmundi Ágústsyni, Arinbirni og Guðm. S., Pilnik og Gunnari. Biðskák- irnar standa þannig, að þeir, sem fyrr eru taldir, eiga allir betri stöðu og peð fram yfir andstæð- inga sína. Röð efstu manna er þá þessi: Benkö ðVs v., Friðrik og St&hl- berg 5 v. og 1 biðskák, Ingi og Guðmundur Pálmason 5 v., Pilnik 4% v. -f- 2 biðskákir, Ingvar 3 v. + 2 biðskákir. Norrænir þjóðhöfðingjar til Osló KONUNGAR Dana og Svía haf\ tilkyhnt, að þeir verði við út- för Hákonar Noregskonungs n.k. þriðjudag. í gær var tilkynnt, að Kekkonen Finnlandsforseti myndi einnig verða viðstaddur. Ekki er vitað, hvort forseti ís- lands fer til Osló af þessu til- efni, en sennilegt er, að svo verði. Eldur í skúr UM SJÖLEYTIÐ í gær kviknaði í skúr á lóðinni að Heiði við Kleppsveg. Skúrinn var að mestu fallinn, er slökkviliðið kom á vettvang, en hann var lítils virði og annað tjón varð ekki. Rannsóknarsfofa Klepps- spífalans skemmisf af eldi UM sjöleytið í gærmorgun voru morgunverkin að hefjast í sjúkra húsinu á Kleppi. Niður í aðal- rannsóknastofuna í kjallara stærstu byggingarinnar var borinn dunkur með gólfbóni og honum brugðið á heita rafmagns plötu í því skyni að mýkja bónið, áður en það yrði borið á gólfin. Þegar taka átti það aftur af plöt- unni, kom í ljós, að það hafði ofhitnað, og skipti engum togum, að í því kviknaði og upp gaus eldstólpi, sem læsti sig víða um rannsóknarstofuna. í henni voru ýmis eldfim efni og á augabragði hafði hitinn sprengt nokkrar flöskur, þ. á. m. eina með ether. Sleikti logandi ethergufan loft og veggi. Nærstatt fólk brá skjótt við, og frk. Halldóra Þorláksdótt- ir yfirhjúkrunarkona kom þegar á vettvang með slökkvitæki. Lét hún og sækja til viðbótar slökkvi Endurminningar Boll-Jörgensens BOLT-JÖRGENSEN, fyrrum sendiherra hefur skrifað endur- minningar sínar. Vann hann m.a. að þeim, er hann dvaldi hér á landi í sendiherratíð konu hans frú Bodil Begtrup. Frá þeim ár- um á Bolt-Jörgnsen hér marga vini, sem allir minnast með á- nægju kynna sinna við þennan lífsreynda, gerhugula heiðurs- mann. Mun áreiðanlega ýmsa fýsa að lesa æviminningar hans. Er ráðið, að þær komi út í Danmörku nú í næsta mánuði undir nafninu „Med Sabel og Kaarde“ og er Thaning & Appels Forlag útgefandi. Bolt-Jörgensen var I fyrstu riddaraliðsmaður í her Dana, en gekk síðan í utanríkisþjónustuna. Heiti bókarinnar miðast við mis- munandi embættistákn þessara tveggja starfsgreina. Segir þar nokkuð frá báðum.en þó einkum frá utanríkisþjónustunni. Ber þar margt frásagnarvert við, ekki sízt á stríðsárunum. Frá Árbæjarsafninu. — Eins og frá er skýrt I grein á bls. 3 var minjasafnið í Árbæ opnað almenningi s.l. sunnudag. Myndin er tekin í búrinu, þar sem mörg gömul heimilistæki getur að líta. (Ljósm. Gunnar Rúnar). Met-adsókn að Ijósmyndasýn- ingunni ,Fjölskylda þjóðanna' Á LAUGARDAGINN var alþjóðlega ljósmyndasýningin „Fjölskylda®* þjóðanna“ opnuð í nýja Iðnskólanum. Á sunnudaginn var aðsókn fólks að þessari sýningu svo mikil, að annars eins eru ekki dæmi. Nú þegar munu hátt á áttunda þúsund manns hafa séð sýn- ingu þessa. tæki, sem geymd eru víða í sjúkrahúsinu, og dældi úr þeim á eldhafið. Slökkviliðinu hafði verið gert aðvart þegar í stað. Að lítilli stundu liðinni voru 5 bílar þess komnir á vettvang. En þetta mikla eldvarnarlið þurfti sem betur fer ekki að taka til starfa, því frk. Halldóru hafði þá tekizt að kæfa eldinn með að- stoð frk. Sólveigar Halldórsdótt- ur, frk. Guðrúnar Einarsdóttur og fleira fólks úr starfsliðinu. Aðrar rannsóknarstofur eru í næstu herbergjum svo og skrif- stofa stofnunarinnar og skjala- safn. Eldurmn náði ekki að breið ast út til þessara salarkynna. — Sjúkrahúsið hefur þó orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni, — þarf að hreinsa og mála aðalrannsókna- stofuna ^lla, gera við og endur- nýja rannsóknartæki og annan búnað hennar — og fá nýjan vökva á 8 stór handslökkvitæki. Sýningin „Fjölskylda þjóð- anna“ var opnuð með hátíðlegri athöfn kl. 4 síðd. á laugardag. Viðstaddir opnunina voru for- setahjónin og nærri 200 aðrir gestir. Ræður fluttu Ragnar Jónsson bókaútgefandi, sem full- trúi sýningarnefndar, Theodor B. Olsen sendifulltrúi Bandaríkj- anna og menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason, sem opnaði sýninguna. Hljómkviða ljósmynda Ræða Ragnars Jónssonar birt- ist í heild annars staðar. Næst honum talaði Theodor B. Olson, sendifulltrúi Bandaríkjanna. — Hann gat þess að sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, John J. Muccio, harmaði það að geta ekki verið viðstaddur opnun sýn- ingarinnar. Hann hefði orðið að fara á ráðstefnu bandarískra sendiherra í Lundúnum. Olson minntist á hið frábæra starf Edwards Steichens, sem hefði valið myndir á sýninguna, hann hefði samstillt myndirnar líkt og í hljómkviðu, þar sem stefið er mannlegur virðuleiki og eining alls mannskyns. Mannkynið er ein fjölskylda Vitanlega er margt haria ólikt með mönnunum, sem þér sjáið á myndunum, sagði Olson sendifulltrúi. — En það sem sameiginlegt er öllum mönnum orkar þó sterkar í þessum myndum en það sem skilur þá að. Okkur er hollt að minnast þessara sameigin- legu eiginleika, einkum nú á tímum, þegar þau öfl sem skilja menn að eru svo sterk og svo hávær. Okkur er hollt að minnast þess, að við erum vissulega öll meðlimir einnar og sömu fjölskyldu, — Fjöl- skyldu þjóðanna. Sendifulltrúinn kvað það vera óblandna gleði ríkisstjórn Bandaríkjanna, að hafa getað orðið að liði við að senda þessa sýningu til íslands. Færði hann svo öllum þeim þakkir, fyrir hönd sendiherra Bandaríkjanna, sem af dugnaði, smekkvísi og kunnáttu hafa komið sýningunni upp. Nefndi hann sérstaklega fjóra þeirra, sem unnið hafa að uppsetningu sýningarinnar, þá Stefán Jónsson, sem skipulagði sýninguna og vann sjálfur við uppsetningu hennar, Harald Ágústsson, sem sá um hina tækni legu hlið uppsetningarinnar, Inga Eyvinds, sem aðstoðaði við upp- setninguna og Þórð Einarsson, sem framkvæmd sýningarinnar hefur mjög mætt á. Hrein fegurð Að lokum tók tii máls mennta- málaráðherra Gylfi Þ. Gíslason. Hann sagði m. a.: — Við erum hér komin til þess að virða fyrir okkur myndir. í mörgum þeirra getur að líta svo hreina fegurð, að hún hlýtur að heilla augað. Aðrar vekja hjá okkur viðkvæma samúð. Það kann að valda hrolli að sjá sumar þeirra. En þær hafa allar sinn boðskap að flytja: Allt mann- kyn er ein fjölskylda, allir menn eru bræður, ungbarnið og öld- ungurinn, sjómaðurinn við nyrzta haf og bóndinn í suð- rænni sól, konan og maðurinn, hvort sem þau eru hvít eða blökk, lærður og fáfróður, ríkur og snauður, frjáls og kúgaður. Ræðurmaður hélt áfram: — Um leið og myndirnar á veggjunum í þessum stóru salarkynnum bera okkur þann boðskap, að allir séum við bræður, um leið og þær eggja okkur til aukinnar baráttu fyrir því að tryggja öllum frelsi og frið og hvetja okkur til þess að ástunda réttlæti og kærleika í ríkara mæli, þá eru þær í raun og veru að ræða við okkur um vanda þess og vegsemd að vera mað- ur. Vandi mannsins er sá, að hann er viti borin vera sem er vaxin frá hinum uppruna- lega og eilífa kjarna allrar hinnar kviku náttúru, átökun- um milli lífs og dauða. En vegsemd hans er sú, að hann er kóróna sköpunarverksins og velji hann rétt, hefir hann ótæmandi þroskaskilyrði, hann hefur umráð óþrjótandi auðlinda, hæfileika til si- breytilegrar listsköpunar, eilíf tækifæri til þess að höndla hamingju. Að lokum opnaði ráðherrann sýninguna með ósk um að hún mætti stuðla að auknum skiln- ingi allra á því, að hið versta sem maður gerir sjálfum sér, er að gera öðrum illt. Aðalfundur 'Stefnis' STEFNIR, félag ungra Sjálfstæð- ismanna í Hafnarfirði, heldur að- alfund sinn í kvöld, þriðjudag, kl. 8,30 e.h. í Sjálfstæðishúsinu. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér nýja meðlimi. Þeir, sem votta vilja samúð SAMKVÆMT tilkynningu frá norska sendiráðinu geta þeir, sem votta vilja samúð sína vegna fráfalls hans hátignar Hákonar konungs, ritað nöfn sín á lista, sem liggja frammi í sendiráðinu, Hverfisgötu 45, í dag og á morgun kl. 2—5 e.h.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.