Morgunblaðið - 06.10.1957, Síða 14
14
MORGVNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 6. okt. 1957
Sextugur á morgun:
Hannes í Hœkingsdal
„Bóndi er bústólpi,
bú er landsstólpi,
því skal hann virður vel“.
HANNES í Hækingsdal er fædd-
ur 7. október 1897 að Eyrarkoti í
Kjós. Voru foreldrar hans særad-
arhjónin, Guðfinna Þorvarðardótt
ir frá Hækingsdal, og Guðbrand-
ur Einarsson frá Vindási í sömu
sveit. Hannes tók við búi af for-
eldrum sínum, og hefur búið í
Hækingsdal í rúman hálfan f jórða
tug ára. Hannes er búinn að eiga
tvær konur, og missa þær báðar.
Fyrri konu sína, Guðrúnu Gísla-
dóttur, missti hann eftir stutta
sambúð, að öðru barni þeirra. Var
Hannes þá orðinn ekkjumaður 25
ára gamall, svo að segja má, að
snemma hafi erfiðleikar byrjað á
hans fyrstu búskaparárum. —
Nokkru síðar giftist hann Sigríði
Elísdóttur. Eignuðust þau 9 börn,
og eru 7 þeirra á lífi, þrjár stúlk
ur og 4 drengir, og voru þau öll
ung, er móðir þeirra féll frá.
Allir skilja, hve mikið áfall
þetta var fyrir Hannes. En þá,
eins og raunar síða -, kom í ljós
hvað í Hannesi bjó. Nú varð hann
sjálfur að vera allt í öllu, bæði úti
og inni, því fáar eða oftast engar
fullorðnar lcvenhendur voru á heim
ilinu til aðstoðar við innanhúss-
störfin. En Hannesi tókst að hafa
öll börnin hjá sér, með guðs og
góðra manna hjálp, þó sérstak-
lega næstu nágranna.
Eflaust hefði margt heimilið
leystst upp, við slíkt áfall sem get-
ið er um hér að framan. En það
var áreiðanlega fjarri Hannesi, að
halda að sér höndum og hafast
ekki að. Nú fyrst reyndi á þrek
hans og þolgæði, og honum tókst
með mikilli prýði að sigrast á þess
um mikla vanda, að vera hvort
tveggja í senn, faðir og móð-
ir. Og nú getur hann glaður horft
yfir farinn veg. Yngsti drengur-
inn hans var fermdur s.l. vor.
öllum börnum sínum hefur
hann komið vel til manns, og allar
dætur hans hafa gengið á kvenna-
skóla. Eru sumar þeirra nú heima
hjá föður sínum. Þó sérstaklega
ein. Einnig eru 2 yngstu dreng-
irnir heima. Einn son uppkominn
á Hannes, eftir fyrri konu sína og
nam hann búfræði á Hvanneyri.
Hannes nam einnig búfræði á
Hvanneyri í tíð Halldórs heitins
Vilhjálmssonar. Hannes hefur
gert miklar umbætur á jörð sinni,
bæði að húsbótum og ræktun, og
má segja að þar sé nú rekinn all-
stór búskapur. Jörðin liggur nokk
uð frá aðalvegi, og er yfir óbrú-
aða á að fara. (Laxá). Getur hún
orðið allslæmur farartálmi, sér-
staklega á vetrum, og munu þeir
feðgar oft íafa orðið að elda grátt
silfur í slíkum hamförum, og geta
stundum liðið margir dagar, sem
hún er ófær með öllu.
Hannes er mikill dugnaðar- og
drengskaparmaður, félagslyndur
í bezta lagi. Fyrr á árum starfaði
hann sem ágætur ungmennafélagi,
og um eitt skeið var hann formað-
ur' U. M. F. Drengs, foi-m. f jár-
ræktarfélags Kjósarmanna, í
stjórn fiskiræktarfél., situr í
hreppsnefnd sveitarinnar o. fl.
mætti upp telja, sem Hannes
starfar að í félagsmálum.
Ekki kæmi mér á óvart, þó að
mannmargt yrði hjá Hannesi þenn
an dag, svo er hann vel kynntur,
enda ekkert óvanalegt að gest-
kvæmt sé í Hækingsdal, því þar
er öllum vel og vinsamlega tekið.
Til hamingju með daginn, og
farsæla framtíð, góði kunningi.
— St. G.
Tillöour VÍ um
skattaraál og ,9sér-
fræðingaálitið46
A. AÐALFUNDI Verzlunarráðs
íslands á dögunum var gerð svo-
hljóðandi ályktun um skattamál:
„Aðalfundur V.í. 1957 vill enn-
þá einu sinni vekja athygli á, að
brýna nauðsyn ber til, að nú þeg-
ar verði hafizt handa um gagn-
gerða endurskoðun á löggjöf um
skatt- og útsvarsgreiðslur fyrir-
tækja.
Fjöldi fyrirtækja greiðir nú
meira en hreinar tekjur sínar í
skatta, en samvinnufélög og fyr-
irtæki ríkis og bæja eru nær al-
gerlega skattfrjáls. Fyrirsjáan-
legt er, að nær allur einkarekst-
ur í landinu mimi dragast veru-
lega saman eða leggjast niður
með öllu til óbætanlegs tjóns fyr-
ir þjóðarheildina, verði ekki úr
þessu ófremdarástandi bætt.
Það hlýtur að vera skilyrðis-
laus krafa, að allur sambærilegur
atvinnurekstur í landinu búi við
sömu reglur um skattlagningu'*.
Þá samþykkti aðalfundurinn
eftirfarandi tillögu:
„Aðalfundur V.í. 1957 lýsir
furðu sinni á því, að álitsgerð
sérfræðinga Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sem hingað komu á veg-
um ríkisstjórnarinnar, skuli vera
haldið leyndri fyrir alþjóð, og
skorar á ríkisstjórnina að birta
hana nú þegar, svo að menn geti
kynnzt því hvernig hlutlausir sér
fræðingar litu á efnahagsástand
þjóðarinnar fyrir rúmlega ári
síðan, þegar álitsgerðin var sam-
in, og hvaða úrlausnarleiðir þeir
hafi bent á“.
Findus-barnamaturinn er búinn til samkvæmt fyr-
irmælum víðkunnra sænskra bamalækna og hefur
hlotið opinbera viðurkenningu sænskra heilsu-
verndarstöðva, barnaheimila og barnaspítala, —
enda fylgist
„STATENTS INSTITUT FÖR FOLKHÁLSAN“
stööugt rneð framleiðslu hanr
Þær verzlanir, er selja Findus-barnamat hafa ná-
kvæmar töflur samdar af sænsku ríkis-heilsuvernd-
arstöðinni, er tilgreina efnagreiningu hverrar teg-
undar af Findus-barnamat, næringargildi hennar
og vítmín innihaldi. Sömuleiðis eru fyrir hendi
fullkomnar leiðbeiningar um hvernig gefa skuli
matinn og hvaða tegund henti bezt hverjum aldurs-
flokki barna.
Reynum jafnan að hafa 14
tegundir af Findus-bama-
mat fyrirliggjandi:
Aðeins það beztza er nógu gott handa ungbörnunum
Mœgnús Kjtsran,
Umboðs- og heildverzlun
Bananamauk
Bláberjamauk
Eplamauk
Plómumauk
Blandað grænmeti
Grænmeti með lifur
Grænmeti með kjöti
Gulrætur með smjöri
Kjúklingamauk
Apríkósumauk
Pínut-mauk
Fiskmauk
Rósberjamauk
Ertumauk
FINDUS b arnamatur