Morgunblaðið - 06.10.1957, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.10.1957, Blaðsíða 23
Sunnudagur 6. okt. 1957 VORGrnvpr 4pjd 23 - Varsjá Frh. af bls. 1. krefjast þeir að fá að ræða við stjórnina um áframhaldandi út- gáfu stúdentablaðsins Po Prostu. En rikisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni alls ekki létta banninu við útgáfu þess. Það er vitað með vissu, að einn maður Iét lífið í óeirðunum í Varsjá. Ekki er vitað, hve margir stúdentar voru handteknir en þeir skipta hundruðum. Frá ein- um stúdentagarði eru 50 stúdent- ar týndir og má gera ráð fyrir að þeir sitji nú í fangelsi. — Kvöldsamfal Framh. af bls. 6 minn, það er lítið að segja. Ég veit ákaflega lítið um ljóðin mm Ég veit ekki einu sinni, hvernig þau verða til. Þegar ég byrja á kvæði, hef ég ekki hugmynd um efni þess, get varla skýrt frá því, þegar því er lokið. Þetta er allt ákaflega skritið. Það er eins og að falla í leiðslu, ja eða tefla skák. Maður kemst einhvern veg- inn ekki undan þessu. Þetta ligg- ur á manni eins og mara. Það er eitthvað sem knýr á, og svo sezt maður niður og horfir á hvítan pappirinn eins og maður líti nið- ur í glas af víni, já einmitt, glas af víni. Það getur vel verið að þetta sé einna líkast því að fara á kenderí. Hvað segir þú um það? Ekki svo að skilja, að þetta sé nein andagift, sem hellt er yfir mann, eins og hlandi úr fötu. Alls ekki. Þetta kemur bara. Og eins og þú getur séð, þá gæti ég ekki ort kvæði eftir pöntun, ekki einu sinni í sambandi við konungsheimsóknir. Á ég að segja þér, hvernig þetta getur gerzt. Mér koma í hug einhverj- ar línur úti í haga, já, einhverj- ar vorlínur og mér finnst þær geðugar, get ekki gleymt þeim. Mörgum árum síðar skjóta þær svo aftur upp kollinum og ég yrki vorkvæði utan um þær: Fífan úti í flóanum fer í kjólinn nýja, greidd af góða og hlýja golulófanum. Þessar fjórar línur í þriðja erindi voru upphafið að Kóngs- bænadagskvæðinu. Annars er þessi ljóðagerð mín í seinni tíð ákaflega fástrengjuð, aðallega ljóð um gamlan tíma, og þá helzt annálsbrot um lítilfjörlega at- burði, sem enginn hefur heyrt um, og svo náttúru- og ástar- kvæði. Það er víst kall- að lýrik. Það er gott að yrkja slík kvæði á Akur- eyri, þar er rólegt og þægilegt að vera, en þar hafa menn samt ekki eins mikinn áhuga á skáld- skap og hér í Reykjavík. Þetta er þó afbrágðsfólk, dálítið sein- tekið, en ég veit ekki, hvort það er löstur. Á Akureyri eru a. m. k. 6 skáld, sem látið hafa ljós sitt skína í bókmenntaheiminum og er samkomulagið með ágætum. Við erum kunningjar og lofum hver öðrum að heyra nýjustu kvæðin, lesum þau gjarna í síma. Það veit sennilega enginn, hvað síminn hefur lagt af mörkum til íslenzkra bókmennta. Annars er það rétt hjá Tómasi Guðmunds- syni, að menn eiga ekki að yrkja ljóð, því það er bezta leiðin til að einangra sig frá öðru fólki. Það forðast skáld, heldur að þau séu öðru vísi en aðrir, hættulegri á einhvern hátt. En það er ekki rétt. Skáldið er ekki hættulegra en þeir sem leysa krossgátur Morgunblaðsins. En nú erum við komnir út á hála braut og svo má ég ekki vera að þessu lengur. Ég þarf að nota tímann vel hér fyrir sunnan, til dæmis er ég í óða önn að lesa söguna hans Mykles um rauða rúbíninn, held það sé góð bók, full af skáldskap inni á milli, er það kannski mis- skilningur hjá mér? Annars skal ég játa, að ég er aðallega að for- vitnast í svæsnustu kaflana eins og krakkarnir. Mykle hefur marg háttaða reynslu í kvennamálum, það leynir sér ekki, liggur við borð að maður öfundi hann. M. Barnamúsíkskólinn Almenn músíkkennsla, söngur og kennsla í hljóðfæra- leik fyrir börn frá 8 ára aldri. Forskóladeildir fyrir 5—7 ára börn. — Að gefnu tilefni er athygli vakin á því, að nýir nemendur eru aðeins teknir í byrjun skóla- árs. Síðustu innritunardagar eru á morgun og þriðju- dag. Innritun fer fram í Iðnskólanum (inng. frá Vila- stíg) kl. 4—6 e. h. Afgreiðsl ustúlka Lipur og ábyggileg stúlka, helzt vön afgreiðslu, getur fengið atvinnu nú þegar. — Uppl. frá kl. 6—7 á mánu- dag. Verzlunin Austurstræti 12 Alúðar þakkir sendi ég öllum þeim vinum og vanda- mönnum, börnum og tengdabörnum, sem heiðruðu mig á sjötugsafmæli mínu 24. september með heimsóknum, skeytum og gjöfum. Guð blessi ykkur öll. Helgi Jónsson Krókatúni 15, Akranesi Nauðungaruppboð Eftir kröfu Guðlaugs Einarssonar hdl. og að undan- gengnu fjárnámi 5. sept. 1957, verður opni vélbáturinn Sædís AK-86, skráð eign Þóris Lárussonar og Gylfa Þorsteinssonar, boðinn upp og seldur, ef viðunanlegt boð fæst, til lúkningar dómsskuld að fjárhæð kr. 15.000,00 auk vaxta og kostnaðar, á opinberu uppboði, sem haldið verður á skrifstofu embættisins Mánabraut 20, Akranesi, þriðjudaginn 22. október 1957 kl. 14. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Bæjarfógetinn á Akranesi, 4. okt. 1957. Þórhallur Sæmundsson. Nýkomnir: Danskir, þýzkir, enskir filthattar HATTABÚÐ BEYKJAVÍKUR Laugavegi 10 Hafnarfjörður Vantar unglinga eða eldri menn til að bera blaðið til kaupenda. — Hátt kaup. Talið strax við afgreiðsluna, Strand- götu 29. Haust laukarnir eru komnir Túlipanar, páskaliljur, krókusar o. fl. tegundir. Plöntuskeiðar og pinnar til niðursetningar. Laufhrífur og önnur verkfæri. Onnumst einnig niðursetningu og haustfrágang. GRÓÐRASTÖÐIN við Miklatorg — Símar 19775 og 24917 Skrifstofuhúsnæði Nokkur skrifstofuherbergi — einstök eða samliggjandi — eru til leigu í Mið- bænum. — Uppl. hjá Guðmundi Blöndal sími 19822 (heimasími 18073). Stúlkur óskast í verksmiðjuvinnu. Uppl. í síma 11600. Konan mín GUÐRÚN HÁKONARDÓTTIR lézt laugardaginn 5. okt. — Jarðarförin auglýst síðar. Magnús Þórarinsson. Faðir okkar EINAR JÓNSSON sjómaður, Njálsgötu 69, lézt á heimili sínu, 4. október. Sigurður Einarsson, Vigberg Einarssson, Valur Einarsson, Díana Einarsdóttir. mmmmsmmmmmmmmmmmmmmummmmmmmmmmmmmmmBmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm ÓLÖF JÓH. SIGMUNDSDÓTTIR frá Akureyjum, sem andaðist 29. sept. s. 1., verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. október kl. 13,30. — Blóm afþökkuð. Aðstandendur. Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR 'yrrv. umsjónarmanns í Verkamannaskýlinu Guð blessi ykkur öll. Sigríður Helgadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum innilega samúð okkur veitta við andlát og jarðarför GUÐMUNDAR HALLGRÍMSSONAR Akurgerði 14, Akranesi. Ingveldur Kristjánsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát móð- ur okkar HALLDÓRU EINARSDÓTTUR frá Kirkjubæ í Húnaþingi. — Sérstaklega þökkum við Siglfirðingum fyrir vinsemd og virðingu auðsýnda við jarðarför hennar þar. Gunnfríður Jónsdóttir, Jóninna Jónsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Einara Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.