Morgunblaðið - 11.10.1957, Side 1
20 s’íður
Annað fjárlagafrumvarp vinstri stjórnarinnar:
71 millj. króna grei&sluhalli — algjört úrræðaleysi
Rikisstjórnin lofaði „nýrri stefnu
I stað greiðsluafgangs kemur greiðslu-
halli, þrátt fyrir lægri framlög til
verklegra framkvæmda
FRUMVARF til fjárlaga fyrir árið 1958 var lagt fram í gær, er Al-
{•ingi kom saman til funda. í frumvarpinu kemur þetta fram m.a.:
1) „Ríkistekjur hafa, það, sem af er árinu, brugðizt verúlega frá
því, sem Alþingi áætlaði þær í fjárlögum þessa árs“ eins og segir
orðrétt í athugasemdum við frumvarpið.
2) Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir greiðsluhalla ríkissjóðs á
næsta ári, sem nemur hvorki meira né minna en rúmlega 71 milijón
króna. í fjárlagafrumvarpinu i fyrra var gert ráð fyrir rúml. ]4
millj. kr. greiðsluafgangi og geiðsluhalli hefur ekki verið á fjár-
lögum undanfarin ár. f þessu er fólgin stefna stjórnarinnar, sem
ætlaði sér að „brjóta blað“ í stjórnmálasögunni.
3) í athugasemdunum við frumvarpið segir, að ákveðið hafi verið
að greiða niður verðhækkanir á landbúnaðarvörum, a.m.k. fyrst
um sinn. Eigi að gera það til frambúðar mun greiðsluhallinn aukast
„um f járhæð eigi fjarri 20 millj. kr.“
4) í athugasemdunum segir ennfremur orðrétt: „Ríkisstjórnin tel-
ur sér engan veginn fært að ákveða það, án náins samstarfs við þing-
flokka þá, sem hana styðja, hvernig leysa skuli þann vanda, sem
við blasir í efnahagsmálum landsins.“
5) Síðan segir, að ríkisstjórnin hafi „ekkert tækifæri haft til að
ráðgast við stuðningsflokka sina.“ Að sjálfsögðu hefði stjórnin
getað gert ráðstafanir til að marka einhverja stefnu í efnahagsmál-
unum — og henni bar skylda til að gera það.
Af frumvarpinu verður ekki annað séð en það, að öngþveiti er
fyrir dyrum og að rikisstjórnin kann engin ráð til að bægja því frá.
Ef bornar eru saman einsl akar®'
greinar núgildandi fjárlaga og
fjárlagafrumvarpsins, sem lagt
var fram í gær, kemur þetta í
ljós:
Skattar og tollar eru áætlaðir
rúmlega 41 millj. kr. lægri nú
en áður. Að sjálfsögðu stafar
þetta ekki af því, að fjármála-
ráðherrann hafi hugsað sér að
Eysteinn Jónsson
— Nú vantar 71 milljón —
og 20 í viðbót, nema hætt
verði niðurgreiðslunum, sem
ákvcðnar voru um daginn.
létta skattabyrðina, heldur því,
að nú er af minna að taka. Ríkis-
stjórnin gerir með öðrum orðum
m.a. ráð fyrir minnkandi inn-
flutningi til að taka tolla af.
Gert er ráð fyrir, að aðrar ríkis
tekjur verði einnig lægri en á
fjárlögum þessa árs.
Hins vegar er gert ráð fyrir,
að allar gjaldagreinar fjárlaga
hækki, — nema 13. gr., sem
fjallar um framlög til verk-
legra framkvæmda.
Þar er lækkunin tæpar 8
millj. kr.
Ástæða er til að benda á, að
það fé, sem er til aðstoðar út-
Framh. á bls. 2
Mykle
sýknaður
OSLÓ, 10. okt. — í dag var
kveðinn upp dómur út af
Rauða rúbíninum. Höfundur
bókarinnar, Agnar Mykle, var
sýknaður, en forlaginu var
gert að kalla inn það upplag
af bókinni, sem er í bóka-
búðum.
Fribsamleg stjórn-
arskipti
i San Marinó
SAN MARÍNO, 10. okt. — í dag
náðist samkomulag um, að and-
kommúnistastjórnin í San Marínó
tæki við völdum í dvergríkinu
á friðsamlegan hátt. Eins og
kunnugt er af fréttum, hefur
mikil óöld ríkt í landinu undan-
farna daga.
Asíuveikin breiðist út
Evrópu og Ameríku
75 þúsund veikjast á dag í Hollandi^
LUNDÚNUM, 10. okt. —
Asíu-inflúenzan er nú orðin
að faraldri bæði í Evrópu og
Ameríku. Fréttaritarar Reut-
ers síma, að yfir hálf milljón
Hollcndinga hafi fengið in-
flúenzuna, í Frakklandi hefur
mörgum skólum verið lokað
vegna veikinnar, frá Belgíu
berast fregnir um mörg
hundruð þúsund tilfelli af
vægri inflúenzu og í Ant-
werpen og fleiri borgum hef-
ur skólum verið lokað og í
Ítalíu er talið, að um 1 milljón
manna hafi fengið veikina og
um 50 látizt.
í fyrradag var öllum skólum
í Bonn lokað - eftir að faraldur-
Rússneskur vísindamaður
segir fyrir um funglferðir
„Sputnik<£ heídur áfram ferð sinni.
LUNDUNUM, 10. okt. — Rúss-
neski gervihnötturinn „Sputnik“,
heldur áfram ferð sinni umhverf-
is jörðina. f dag skýrði rúss-
neskur vísindamaður frá því, að
Rússar mundu senda annan hnött
upp innan mánaðar. Vísinda-
maður þessi heitir Bragankavov
og er um þessar mundir staddur
í New York. Hann sagði, að næsti
hnöttur mundi vera útbúinn ýms
um mælitækjum til að rannsaka
geimgeisla. Þegar hann var spurð
ur um það, hvenær geimför yrðu
send til tunglsins, svaraði hann
því til, að nú þegar væri fræði-
legur möguleiki á því, en þó
mundi nokkur tími líða, áður en
það mundi takast í reynd. Það
yrði þó áreiðanlega í hans tíð.
inn var kominn í algleyming í
Vestur-Þýzkalandi. Er áætlað að
skólarnir verði ekki opnaðir aft-
ur fyrr en í byrjun næstu viku.
— Einnig hefur inflúenzan herj-
að í Berlín, en læknar gera ráð
fyrir, að hún hafi náð hámarki
þar. Síðan á sunnudag hafa 5
menn dáið úr veikinni þar í borg.
í Sviss hefur verið tilkynnt um
14 þús. tilfelli og þar hafa 5
menn látizt úr veikinni. í Austur-
ríki hafa nokkrir menn látizt og
í Vínarborg er öllum skólum
lokað.
1 Belgrad hafa 30 þús. manna
fengið Asíuveikina undanfarnar
vikur og í mörgum héruðum þar
í landi er helmingur íbúanna
rúmfastur.
Eins og fyrr getur hafa um
hálf milljón Hollendinga fengið
veikina. Því má bæta við þessa
tölu, að heilbrigðisyfirvöldin
segja, að um 75 þús. menn legg-
ist daglega. Heilbrigðisyfirvöld-
in í París segja, að þar í borg
liggi 20% skólabarna í veikinni.
Frá Stokkhólmi berast þær
fregnir, að inflúenzan breiðist út
í Svíþjóð og sama er að segja um
Danmörk, en þó er ekki enn hægt
að tala um faraldur.
í síðustu viku höfðu um 300
þús. Bandaríkjamenn fengið veik
ina, en í dag voru sjúkdómstii-
fellin komin yfir milljón.
Bann við notkun
gervihnatta í hernaði \
Tillaga Bandaríkjanna um þettaeíni
NEW YORK, 10. okt. — Cabot
Lodge, aðalfulltrúi Bandaríkj-
anna hjá S.Þ., sagði í stjórnmála-
nefndinni í dag, að Bandaríkja-
menn væru fúsir að athuga, hvort
ekki væri unnt að koma á samn-
ingi milli stórveldanna, sem
fæli í sér bann við notkun gervi-
hnatta í hernaði. Lagði Lodge
fram tillögu um þetta efni. — Nú
fara fram í stjórnmálanefndinni
umræður um afvopnunarmál og
virðist „Sputnik“ ætla að hafa
allmikil áhrif á þær.
Gromyko, utanríkisráðherra
Rússa, tóli einnig til máls í nefnd
inni. Hann svaraði ekki tillögu
Lodge, en ræddi almennt um af-
vopnunarmálin, sagði m.a., að
stórveldin ættu að skera niður
um helming herafla sinn í Þýzka-
landi og einnig ættu þau að
minnka heri sína í löndum Atl-
antshafs- og Varsjárbandalagsins.
Afhenti trúnaðarbréf
STEFÁN Jóhann Stefánsson af-
henti Danakonungi í gær trúnað-
arbréf sitt, sem sendiherra ís-
lands í Danmörku, í Amalíuborg.
við hátíðlega athöfn.