Morgunblaðið - 11.10.1957, Síða 2
2
MORCr * ÐJÐ
Föstudagur 11. október 1957
Dýpbvo Biisbsibj nouðsynleg
Fréttabréf frá Hellissandi
HELLISANDI, 20. sept. — Tveir
bátar stunduðu síldveiðar héðan
í sumar með reknetjum. Þeir
hættu 4. sept. Veiði var sæmileg
í júlí en annars mjög lítiL Aflaði
annar 2760 tunnur, hinn 1900 tn.
Var það mest hraðfryst hér og
annars staðar. Einn bátur héðan
var með hringnót fyrir norðan og
aflaði hann um 1100 mál. Hann
er nú farinn á veiðar með reknet
i Faxaflóa. Reknetjabátarnir
urðu oft að fara á aðra staði til
að selja aflann vegna lítilla
frystimöguleika hraðfrystihúss-
ins, sem mikil nauðsyn er að auk-
ist hið allra fyrsta, mundi þá at-
vinna aukast mikið við hrað-
frystingu.
í sumar var lokið við og tekinn
í notkun stór freðfisksgeymslu-
klefi við frystihúsið, en saltfisks
móttaka og geymsla er rúmgóð
áfast beinamjölsverksmiðjuhús-
inu. Eru því fiskmóttöku-mögu-
leikar hraðfrystihússins allgóðir
en frystitæki of fá og afkastalít-
il, en verið er nú að vinna að úr-
bót á því ásamt bættum vinnu
skilyrðum sem kæmu með ráð-
gerðri hækkun á aðalálmu húss-
ins og færslu á vinnusal þangað.
Aukast atvinnumöguleikar hér
mikið er þetta kemst í fram-
kvæmd og er því vonandi að það
verði sem fyrst.
Jóhannes Kristjánsson hefir nú
lokið við að byggja beinaverk-
smiðju og lifrarbræðslu í Rifi og
er nú að byggja þar hraðfrysti-
hús og hús fyrir fiskmóttöku og
fisksöltun og verbúðir fyrir
báta. Vonandi kemst þetta það
langt áleiðis að það verði starf-
rækr á næstu vetrarvertíð.
Hreppurinn er að láta byggja
verbúða- og beitningahús í Rifi
fyrir 6 báta, verða þar frystiklef-
ar fyrir beitu- og lóðabala-
geymslu. Við báðar þessar fram-
kvæmdir batnar mjög mikið að-
staða til útgerðar frá Rifi.
Því miður hefir ekkert verið
unnið að landshafnargerðinni í
Rifi á þessu ári. Sanddælan sem
þar hefir verið, var tekin suður
í fyrrahaust og er enn ókomin
aftur. Væri þó full þörf fyrir
hana til að halda við og endur-
bæta innsiglingarleiðina og snún-
ingsplássið við bryggjuna, sem
hvorttveggja þrengist og grynn-
ist við það að sandurinn úr bökk
unum sígur fram, þar eð engin
þil hafa enn verið sett til að
varna þvi. Nokkur erlend og inn
lend skip hafa komið í Rif til að
taka freðfisk og saltfisk og með
varning. Strandferðaskipið Skjald
breið kom nokkrum sinnum í vet
ur en nú telur skipstjóri þess
ekki fært að koma þangað lengur
og er það til mikils baga.
Undrast það allir að ekki skuli
einu sinni haldið við bryggjunni
og innsiglingarleiðinni sem kom-
in var í Rifshöfn og er það mik-
ið áhyggjuefni þeim er gera út
báta þaðan og yfirleitt allra íbúa
Hellissands, sem raunverulega
eiga alla afkomumöguleika sína
undir því komin að hafnarað-
staða sé góð til útgerðar frá
Rifi.
Auk heimamanna er vitað um
marga útgerðarmenn sem vilja
koma með báta til útgerðar frá
Rifi, enda er þaðan skemmst og
hagast að sækja á hin aflasæl-
ustu fiskimið í Breiðafirði og
Faxaflóa og því von um betri
afkomu útgerðarinnar en þar
sem lengra þarf að sækja á mið-
in.
Það er því ekki einungis af
koma Hellissandsbúa sem undir
því er komin að nýtt og alvar-
legt átak verði nú gert í lands-
hafnargerðinni í Rifi, heldur er
inn ,sem þó er aðeins kominn 500
metra fram en rifið sem er sjálf
gerð undirstaða og kemur að
mestu á þurrt um stórar fjörur,
er samtals um 1800 metrar að
lengd og endar á ávalri klöpp.
Innan við rifið er eingöngu
sandur ásamt vikur og aurfram-
burði sem mjög auðvelt er að
dæla burtu eftir því sem með
þarf til að dýpka og rýmka höfn
ina, enda er ekki á því svæði
nokkur steinvala til, aðeins hefir
orðið vart við nokkra útlenda
séglfestusteina frá þeim tíma er
Rifshöfn var eftirsóttasta verzl-
unar- og útflutningshöfn lands-
ins en varð óskipgeng vegna
framburðar ár, sem nú hefir ver-
ið fjarlægð frá hafnarsvæðinu.
Nokkur ný íbúðarhús eru nú
smíðum hér og verið er að
stækka og endurbæta mörg, en
skortur á byggingarefni er til
mikils baga.
Verið er að enda við að endur
byggja póst- og símahúsið hér svo
það verður sem nýtt hús.
Búið er að grafa fyrir grunni
að félagsheimili. Ný steinsteypt
brú var sett á Höskuldsá í sumar.
Verið er að ýta upp vegi fram
hjá Djúpudölum, skammt utan
við flugvöllinn, en þar var helzt
hætta á snjósöfnun á Útnesvegin
um, en hann er nú orðinn svo
greiðfær að ekki tekur nema
6—7 tima að aka til Reykjavík-
ur.
Mikill áhugi er nú bæði hér
og í Ólafsvik á því að næsta
sumar verði lagður vegur í Ólafs
víkurenni, enda mundi það til
mikils hagræðis fyrir bæði kaup-
túnin og þann mikla fjölda fólks
er nú fer kringum Snæfellsjökul
og upp á hann til að sjá hann frá
öllum hliðum og marga fagra og
einkennilega staði á þeirri leið.
Afli á trillubáta er nú góður,
1—2 tonn af góðum fiski á grunn
miðum.
B. S. Benediktsson.
Kvikmyndasýningar
Germaníu að hefjasl
EINS og að undanförnu mun fé-
lagið Germania efna til kvik-
myndasýninga í vetur, og verður
hin fyrsta í Nýja bíói á morgun
laugardag, og hefst hún kl. 2 e. h.
Urðu sýningar í fyrra vetur mjög
vinsælar og allar vel sóttar.
Á þessari fyrstu sýningu vetr-
arins verða sýndar fréttamyndir
frá Þýzkalandi, m. a. myndir frá
Iðnaðarsýningunni í Hannover,
frá opnun garðyrkjusýningarinn-
ar í Köln, sem hinn kunni garð-
yrkjumaður Dr. Adenauer opn-
aði, frá heimili og sýningu hins
fræga málara Emil Noldes, sem
nú er nýlátinn, frá nýafstaðinni
kosningabaráttu til þingsins í
Bonn, og sjást báðir aðalmenn
kosningabaráttunnar, Dr. Aden-
auer og Erich Ollenhausr, halda
ræður.
Enn fremur verða sýndar tvær
fræðslumyndir: „Wasser fiillt das
Tal“ og „Pferde im Finale“. Sýn-
ir hin fyrrnefnda byggingu mik-
illar stíflu, en hin síðarnefnda
hindrunarhlaup hesta, og er þar
lýst undirbúningi undir kapp-
reiðarnar, hvernig folarnir eru
tamdir og æfðir í ýmsum þraut-
um, en tilkomumest eru þó stökk
hinna beztu hesta y>fir margar
hindranir.
Gæti leitt til
heimsstyrjaldar
WASHINGTON, 10. okt.
Krúsjeff hefur átt viðtal við
fréttaritara New York Times í
Moskvu. í viðtalinu sagði
Krúsjeff m. a., að Sovétríkin
litu mjög alvarlegum augum á
það, ef Vesturveldin reyndu að
ná fótfestu í Miðjarðarhafslönd-
unum og koma sér upp hernaðar-
bækistöðvum þar frekar en nú
er orðið. Gæti sú viðleitni orðið
til þess að koma af stað ófriðar
báli í heiminum.
Ríkissjóður hefur ekki
lagt neitt fram til Sogs-
virkjunarinnar
,,Eysteinskan" og rafmagnsmál Reykvíkinga
AÐ marggefnu tilefni frá Tím-
anum, er rétt að rifja upp nokkr-
ar staðreyndir í sambandi við
Sogsvirkjunina fyrr og síðar.
í upphafi hafði Reykjavíkur-
bær alla forgöngu um virkjun
Sogsins og stóð einn að fyrstu
virkjuninni, sem um leið var
fyrsta stórvirkjun hér á landi. —
Síðar gerðist ríkið meðeigandi að
Sogsvirkjuninni, en það greiddi
ekki eyri í því sambandi. Þegar
svo til þess kom að virkja Sogið
annað skiptið, og byggja orku-
verið við írafoss, var fengið hið
svonefnda Marshall-lán til þeirra
framkvæmda. Um það var samið
að ríki _og bær legðu fram til
viðbótar"við lánið sínar 12 millj.
krónur hvor. Reykjavíkurbær rMíÁla||f áf Annhá
ætlaði að dreifa þessu framlagi
4 ár, og hafði borgað 2 ára
Nýll dagheimill í bygg-
ingu við Foarnhaga
Páll S. Pálsson, hrl. kosinn formaður
Sumargjafar
AÐALFUNDUR Barnavinafélags
ins Sumargjafar var haldinn i
Reykjavík dagana 25. júní og
2. okt. sl.
í skýrslu stjórnarinnar, er for-
maður félagsins, Arngrímur
Kristjánsson, flutti á fundinum,
kom það fram, m. a., að 440 börn
hefðu sótt dagheimili félagsins á
árinu og 1137 börn dvalizt á leik-
skólum þess. Dvalarumsóknir
voru fleiri en nokkru sinni fyrr,
og engin tök að verða við þeim
öllum.
Félagið gerði samninga við
Reykjavíkurbæ um byggingu nýs
dagheimilis við Fornhaga, er
Sumargjöf eignast síðan í skipt-
um fyrir Tjarnarborg, er Reykja-
víkurbær kaupir af félaginu. —
Bygging nýja dagheimilisins
hófst siðla á þessu sumri og
standa vonir til að henni verði
lokið að ári, ef ekki stendur á
fjárfestingarleyfum. Framkv.stj.
félagsins, Bogi Sigurðsson, flutti
skýrslu um rekstrarútgjöld fé-
lagsins, samkvæmt reikningum
þess. Fyrir s.l. ár námu útgjöld-
in samtals kr. 3.628.626,05, en til
samanburðar voru rekstrarút-
gjöldin 1955 kr. 3.022.850,13.
Rætt var á fundinum um fram-
tíðarskipun félagsins og stjórn
þess falið að taka upp samn-
það einnig til stórtjóns fyrir þjóð inga við Reykjavíkurbæ um nýj
Srhlislfflrnnn liTfo A p/\vm jþflð * i _ • *: í íAl o ríc! n e xrí J
arbúskapinn hvað
dregst úr þessu.
Hafnarstæðið er svo gott í Rifi
að ekki er svo mikill vottur af
súg nú, þegar bátur hreyfist
við bryggjuna hversu mikið haf-
rót og rok sem er utan við garð-
ar leiðir í samstarfi félagsins við
bæinn um rekstur leikskóla og
dagheimila.
Aðalfundurinn fól félagsstjórn-
inni að vinna að því, að aukið
framlag fáist frá ríki og bæ til
Uppeldisskóla Sumargjafar.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Arngrímur Kristjánsson
skólastjóri, og Jónas Jósteinsson,
yfirkennari. Arngrímur Kristjáns
son, sem setið hefur samfleytt í
stjórn félagsins í 29 ár, skoraðist
eindregið undan endurkjöri. —
Kjörnir voru Jónas Jósteinsson
og Sveinn Ólafsson, forstjóri.
Lögum félagsins um kjör vara-
manna 1 stjórn var breytt á fund-
inum þannig, að framvegis eru
varamenn aðeins 3 í stað 7 áður
Kjörnir voru sem varamenn
Bjarni Bjarnason, kennari, Arn
heiður Jónsdóttir, kennari og
Guðm. M. Þorláksson, kennari.
Endurskoðendur voru kosnir
Zophonías Jónsson, skrifstofu-
maður og Jón Kristgeirsson
kennari.
Á fyrsta fundi stjórnarinnar
hinn 9. þ. m., skipti hún með sér
verkum þannig: Formaður: Páll
S. Pálsson, hrl., varaform. Jónas
Jósteinsson, yfirkennari, ritari
Þórunn Einarsdóttir, forstöðu
kona, gjaldkeri: Sveinn Ólafsson.
forstjóri, meðstjórnendur: Helgi
Elíasson, fræðslumálastjóri, séra
Emil Björnsson og frú Valborg
Sigurðardóttir, skólastjóri.
Þá var einnig kjörin bygging-
arnefnd hins nýja barnaheimilis
og var hún skipuð þremur
möiinum, auk formanns félagsins,
sem jafnframt er formaður nefnd
arinnar, þeim Arngrími Kristjáns
syni, Boga Sigurðssyni og Þór-
unni Einarsdóttur.
isstjórnarinnar, enda er ekkert
stórlán unnt að taka á Islandi
öðru vísi en að ríkisstjórnin hafi
þar forgöngu. Hvorki Reykvík-
ingar né aðrir hafa Eysleini Jóns-
syni nokkuð að þakka í því sam-
bandi, nema siður sé. Ef aðdrag-
andi að lánatökunni til Efra-Sogs-
ins væri nánar rakinn, mundi það
koma í ljós, að Eysteinn Jónsson
tafði þá lántöku meðan fyrrver-
andi ríkisstjórn sat að völdum og
kann að gefast nánara tækifæri
síðar til að rekja þá sögu eins
og liún er.
Vegir vesfanlands
framlag eða 6 milljónir, þegar
það kom í ljós, að Eysteinn Jóns-
son fjármálaráðherra var staðráð
inn í að svíkja gerða samninga
og borga ekkert. Þegar þessi svik
urðu endanlega uppvís, sá Reykja
víkurbær ekki ástæðu til að
halda sínum framlögum áfram,
þar sem var um sameign ríkis
og bæjar að ræða.
Hins vegar hirti Eysteinn Jóns-
son í ríkissjóð 20 milljónir króna
tolla og söluskatt vegna
írafossvirkjunarinnar. Það sem
Eysteinn Jónsson gerði í sam-
bandi við írafossvirkjunina var
því að taka af henni 20
milljónir á þennan hátt, en
svíkjast um að greiða þær 12
millj. króna til framkvæmdanna,
sem samið hafði verið um.
Hvað viðvíkur framkvæmdun-
um við Efra-Sog, sem nú eru
hafnar, er skemmst að segja, að
ríkissjóður hefur ekki lagt fram
einn eyri til hennar, en hins vegar
gerir Eysteinn Jónsson ráð fyrir
að fá um 32 millj. króna sem tolla
og söluskatt af þessari virkjun.
Þegar leitað var eftir láni til
þessarar virkjunar í Bandaríkj-
unum, gerði Eysteinn Jónsson þá
kröfu að Bandaríkjamenn lánuðu
Sogsvirkjuninni einnig fé til þess
að borga skatta og tolla í ríkis-
sjóð. En lánveitendunum kom
þetta eysteinska fyrirbrigði ó-
kunnuglega fyrir sjónir og höfn-
uðu þessari kröfu, sem hverri
annarri fjarstæðu. Lántaka til
virkjunar Efra-Sogsins fór vita-
skuld fram fyrir milligöngu rík-
Gefa 5 þús. kr.
III skála
HAFNARFIRÐI. — Slysavarna-
deildin Hraunprýði hélt sinn
fyrsta fund á vetrinum sl. þriðju-
dagskvöld og var þá m.a. rætt
um vetrarstarfið. Var ákveðið að
gefa Skátafélagi Hafnarfjarðar 5
þúsund krónur til kaupa á full-
komnum ljóskösturum, sem keypt
ir verða frá Þýzkalandi. En þeir
þykja t.d. mjög heppilegir þegar
leyta þarf að týndu fólki eftir að
skyggja tekur.
Geta má þess, að Hraunprýðis-
konur hafa nú komið fyrir litlum
björgunarbáti á syðri hafnargarð
inn, en annar er sem kunnugt er
á gömlu bryggjunni. Var bátur-
inn smíðaður í Bátalóni og gaf
fyrirtækið mikinn afslátt á hon-
um. Er báturinn í bryggjukrikan
um á garðinum og þar vel fyrir
komið.
Vetrarstarf slysavarnadeildar
innar er nú að hefjast og verður
hinn árlegi basar haldinn fyrsta
vetrardag. Er mikill hugur í fé-
lagskonum að gera hann sem
beztan úr garði. — G.E.
PATREKSFIRÐI, 10 október. —
Fjallvegir hér vestanlands eru
enn snjólausir og víðast sæmi-
lega færir, þótt föl sé stundum á
hæstu fjallvegum, einkum eft-
ir kaldar nætur. Þannig hafa bílar
til þess alltaf komizt hindrunar-
laust frá Reykjavík hingað.
Vestfjarðaleiðir halda ennþá
uppi reglulegum áætlunarferðum
tvisvar í viku frá Reykjavík til
Patreksfjarðar. S.l. föstudag þeg-
ar áætlunarbíllinn var á leiðinni
hingað frá Reykjavík brotnaði
gírkassinn í nánd við Hjallaháls.
Mun bíllinn nú vera í viðgerð í
Bjarkarlundi.
Að fenginni reynslu, má búast
við því að ferðir þessar falli niður
á næstunni vegna ófærðar. Hafa
bílstjórar Vestfjarðaleiða sýnt
framúrskarandi dugnað i starfinu.
Mikil samgöngubót er að ferðum
þeirra hingað.
Yfir vetrarmánuðina flýgur
Flugfélag fslands hingað aðeins
einu sinni í viku. Er það á fimmtu
dögum. — Karl.
— Setning Albingis
Framh. af bls 1
veginum vegna opinberra ráð-
stafana, er ekki talið með á fjár-
lögum. Er það í samræmi við þá
stefnu Eysteins Jónssonar að
reyna að dylja það, hver er raun-
verulega hlutur ríkisins í rekstri
þjóðarbúsins.
í fjárlagafrumvarpinu er hins
vegar gert ráð fyrir 105 millj.
kr. framlagi til dýrtíðarráðstaf-
ana, aðallega til niðurgreiðslna
á landbúnaðarvörum, og vantar
þá sem fyrr segir 20 millj. kr.
vegna niðurgreiðslna á þeim vei ð
hækkunum, sem áttu að koma til
framkvæmda í haust.
Heildarniðurstöður á sjóðsyfir-
liti eru nú 851.828.676 kr.. í fjár-
lögum þessa árs er niðurstöðutal-
an 811.602.000 kr., en í fjárlaga-
frumvarpinu, sem lagt var fram
í fyrra, þegar þing kom saman,
var hún 713.465.000.
Greiðsluhallinn, sem nn er
gert ráð fyrir, er meira en
þrisvar sinnum hærri en áður
hefur þekkzt á fslandi, og
markar þáttaskil í fjármáium
ríkisins. í tíð fyrrverandi
stjórnar var jafnan mjög veru-
legur greiðsluafgangur á fjár-
lögum, og hefur Eysteinn Jóns-
son nú brugðið af þeirri venju,
sem hann var síoltastur af til
skamms tíma: að hafa ekkt
greiðsiuhalla á fjárlögum.
PATREKSFIRÐI, 10. október. —
Hrísnesbrúin á Barðaströnd er
nú fullsmíðuð. Sá Sigfús Krist-
jánsson, brúarsmiður frá Reykja-
vík um verkið. Ennþá er ekki
fulllokið vegagerð að brúnni en
tvær ýtur munu vera á leiðinni til
að ljúka verkinu. — Karl.