Morgunblaðið - 11.10.1957, Blaðsíða 15
Föstudagur 11. október 1957
MORGUNBLAÐIÐ
15
stór 5 herbergja íbúð laust til ábúðar 1. nóv. n. k. íbúð-
inni fylgir stór bílskúr. — Tilboð merkt: „5 herbergi —
150 — 6947“, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 16. þ. m.
Til sölu
Höfum kaupanda
að Fiat 1400 ’57 eða enskum 5 manna nýjum bíl.
Staðgreiðsla.
Uppl. í BIFREIÐASÖLUNNI
Njálsgötu 40 — Sími 11420
Nauðungaruppboð
verður haldið hjá Gasstöðinni við Hverfisgötu hér í bæn-
um þriðjudaginn 15. október nk. klukkan 1,30 e. h. eftir
kröfu tollstjórans í Reykjavík o. fl.
Seldar verða eftirtaldar bifreiðar:
R-337., R-515, R-1964, R-2148, R-2217, R-3671, R-3739,
R-4030, R-4135, R-4324, R-4632, R-5314, R-5566, R-5676,
R-5872, R-5920, R-6498, R-7098, R-7100, R-7402, R-7441,
R-8108, R-8428, R-8457, R-8602, R-8613, R-9272 og
R-9680.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógeíinn í Reykjavík.
^J^uen^óÉin oc^ lieimiÍJ
m.eð ferskum liðunarvökva
er laust við lykt
eins og liðun getur verið
Engin römm ammoníak-lykt.
Engin svæla, sem pestar loftið og
loðir á hárinu.
Hið nýja Toni með „ferska“ hár-
liðunarvökvanum er það mild-
asta og þó árangursríkasta, sem
enn er völ á.
Hárþvottur og liðun
á litlum hluta kvöldsins
Hið nýja „ferska" Toni er sér-
stakt í sinni röð. Hvernig hárteg-
und, sem þér hafið. þá tekur lið-
unin aðeins 15 stuttar mínútur.
Engar tímaágiskanir. Enginn mis-
tök. Þér þurfið ekki að bíða alla
nóttina, nei, spólurnar eru tekn-
ar úr eftir fyrsta klukkutímann.
Toni bregst ekki — og kvöldið er
yðar.
Er rétt oð hræða börnisi, til þess
ió þon til nð gætn sín?
FORELDRAR eru oft á báðum
áttum um þetta atriði uppeldis-
ins. Annars vegar vilja þeir að
börnin séu glöð og áhyggjulaus
og með óskerta öryggiskennd.
Hins vegar finnst mörgum rétt
að vara börnin við hættum með
því að segja frá þeimásvo áhrifa
mikinn hátt að barnið minnist
þess, þ. e. a. s. með því að hræða
það. Hvort er rétt og hvort er
rangt?
Ollú lífi er meiri og minni
hætta búin en sjálfsbjargar-
hvötin gerir það að verkum að
við snúumst móti hættunum í
verki. Ef kviknar í húsinu, björg-
um við okkur út. Ef óður tuddi
verður á vegi okkar, forðum við
okkur út fyrir girðinguna. Þessi
tegund hræðslu er heilbngð og
byggist á reynslu. Við vitum að
eldsvoði og tarfar eru hættu-
legir og því forðum við okkur.
Þegar útskýrt hefur verið fyrir
börnunum greinilega og rólega,
hvers vegna eitthvað sé hættu-
legt, þá geta þau vel verið hrædd
við drukkna menn á götunni, öku
níðinga og brattar brekkur, en
það er heilbrigð hræðsla, vegna
þess að þau hafa fengið skýrirgu
á því að slíkt sé aðeins hættulegt
fyrir þá sem ekki gæta sín.
En til er önnur tegund hræðslu,
sem er jafnskaðleg fyrir börn
sem fullorðna, og það er hin
óljósa hræðsla, sem grípur okkur
stundum, þegar við vitum ekki
vel hvað það er sem við óttumst.
Margir fullorðnir eru hræddir
við að vera einir á ferð í myrkri
á fáförnum stöðum eða í nám-
unda við kirkjugarða, svo nokk-
uð sé nefnt. Þessi hræðsla getur
hrjáð fólk mjög enda þótt skyn-
semin segi að mjög litlar líkur
séu til að nokkurt óhapp komi
fyrir. Þessi hræðsla á oft rót sína
að rekja til þess að viðkomandi
hefur verið hrelldur með ein-
hverju í æsku. „Tröllið kemur
og tekur þig, ef þú ert ekki góður
drengur", eða eitthvað því um
líkt. Til eru meira að segja for-
eldrar, sem hræða börn sín með
lögreglunni og lækninum, þótt
þetta séu einmitt menn, sem
Gott er að ná beinunUm úr
síldarflökunum með flísatöng.
vinna að því að hjálpa barniru.
Þetta styður eingöngu að því að
svipta barnið öryggiskennd og
gera það huglaust og myrkfælið.
Ekki ber þó að skilja þetta svo að
öll hræðsla síðar í lífinu eigi or-
sök sína í röngu uppeldi. Foreldr-
ar þurfa ekki að taka á sig þá
byrði. Sum börn eru svo við-
kvæm að hjá því verður ekki
komist að þau verði hrædd við
eitt og annað, þó að uppeldinu sé
alls ekki um að kenna. Það er nú
svo að heimurinn er ekkert barna
herbergi og ekki er hægt að
vernda börn sín fyrir öllum ógn-
um. En foreldrar geta að minnsta
kosti mildað hræðsluna með því
að útskýra málið fyrir barninu
rólega og sannfærandi, í stað þess
að skammast og rífast.
Ungbörn hræðast aðeins tvennt,
hvell hljóð og þegar þeim finnst
þau vera að detta. Þau rétta fram
hendina og vilja strjúka kisu og
stórum illúðlegum hundum.
Hrædd verða þau ekki, nema
hundurinn gelti eða velti peim
um. Lítil börn þurfa ekki á
hræðslutilfinningu að halda. Hún
gerir þeim ekkert gagn, þar sem
þau komast hvort eð er ekki und-
an né heldur geta þau gert nokk-
uð til að verjast. Aðrir verða að
bjarga þeim.
Þegar barnið er orðið 3—4 ára
þá horíir málið öðru vísi við Nú
getur barnið gætt sín sjálft fyrir
bílum, hlaupið burt, komið ser í
örugga höfn. Hræðsla hefur feng
ið sinn tilgang, en aðeins hin heil-
brigða hræðsla, sem útskýrð hef-
ur verið fyrir barninu á rólegan
hátt, en ekki með eilífum nót-
unum og ógnandi aðvörunum. Því
á þessum aldri blómgast ímynd-
unaraflið og forvitnin, og það,
sem barninu er ógnað með á dag-
inn, fyllir myrkrið skelfingu á
næturna. Slík hræðsla er algeng-
ust meðal barna, sem hafa orðið
taugaveikluð af of mikilli af-
skiptasemi, afskiptasemi við mál-
tíðir, aðfinnsum við hreinlætið,
og aðvörunum við hinu og þessu.
Og vegna þess að foreldrarnir
eru áhyggjufull, verða börnin
ósjálfstæð og meir seinþroska en
jafnaldrarnir. Augljóst er, að
barnið missir sj álfstraustið, ef
faðirinn og móðirin eru alltaf að
brýna fyrir því að hættur séu
alls staðar ,og alltaf fyrir hendi.
Þá finnst þeim fleira vera hættu-
legt fyrir sig en önnur börn. Og
hvers vegna? spyrja þau sjálf sig
og sjúga fingurinn. Er það vegna
þess að ég er ekki eins duglegur
og hin? Ef sú hugmynd nær að
festa rætur, getur orðið erfitt. að
losna við hana. Þau eru sér þess
ef til vill ekki meðvitandi, en
þetta getur orðið til þess að þau
veigra sér við erfiðleikum, síðar
meir, sem þau raunverulega áttu
að ganga beint til móts við.
Hins vegar verðum við að
vernda börn okkar gagnvart hin-
um sönnu hættum. T. d. verður
barnið að læra umferðarreglur
áður en það eignast hjól, og við
megum aldrei fara yfir götu móti
rauðu ljósi með barn okkur við
hönd, eins og mun þó ekki óþekkt
fyrirbrigði. Börn verða að lærá
að rétta út hendina, ef þau ætla
að beygja fyrir horn á hjóli. Við
verðum að kenna þeim að sýna
tillitssemi og nota vit sitt. Með
því þarf ekki að skapast óeðlileg
hræðsla, heldur ætti það að
stuðla að því að gera þörnin
glöggskyggn og athugul og fær
um að bregðast við á skynsam-
legan hátt, svo þau þurfi ekki að
vera myrkfælin eða hrædd við
ímyndaðar hættur. (Lausl. þýtt).
Kvikmynd vantar
Sá, sem hefir að láni brezku kvikmyndina „Adventure
On“, sem á ísle'nzku nefnist „Gróður og grænar lendur“,
er beðinn að skila henni strax til fræðsludeildar SÍS,
Sambandshúsinu.
Fyrir fegurri endingarbetri hár-
liðun, sem er laus við lykt. eins
og liðun getur verið þá veljið
TONI við yðar hæfi. —
GENTLE fyrir fínt hár
SUPER fyrir gróft hár
REGULAR fyrir meðal hár.